Dagur - 29.08.1984, Side 4
„Sitjum ekki við sama borð
varðandi getraunaseðlana“
- segir Indriði Jóhannsson gjaldkeri knattspyrnudeildar
„Það eru hreinar línur að
hlutur okkar vegna sölu á get-
raunaseðlum er stórlega
skertur vegna þeirra reglna
sem farið er eftir,“ segir Indr-
iði Jóhannsson gjaldkeri knatt-
spyrnudeildar KA.
„Við sitjum alls ekki við sama
borð og félögin í Reykjavík t.d.
Okkur er gert að skila okkar
seðlum á hádegi á fimmtudögum,
á sama tíma og Reykjavíkurfé-
Iögin hafa frest til hádegis á laug-
ardögum. Pannig ná þeir upp
stemmningu á laugardagsmorgun
og selja þá verulegan hluta sinna
miða. Menn hittast, fá sér kaffi
og tippa.
Ég ræddi þetta við yfirmann
Getrauna í Reykjavík á dög-
unum og hann tjáði mér að það
væri ekkert útlit fyrir að þessu
yrði breytt, var eitthvað að tala
um Dómsmálaráðuneytið í því
sambandi. Ég vil hins vegar að
það verði stofnað embætti um-
boðsmanns Getrauna á Norður-
landi, hann tæki við okkar seðl-
um og innsiglaði þá og með því
fyrirkomulagi væri hægt að bæta
hlut okkar verulega. Eins og er,
Margir hafa lagt hönd á plóginn við uppbyggingu KA-svæðisins.
er þetta ekki stór fjáröflunarleið höfuðborgarsvæðinu hjá félög-
hjá okkur öfugt við það sem er á unum þar,“ sagði Indriði.
Punktar. . .
Á hverjum sunnudagsmorgni
safnast nokkur hópur manna
saman í herbúðum KA í
Lundarskóla. Þeir eru þangað
komnir til þess að taka í kaffi-
bolla, og til þess að ræða málin
vítt og breitt, og eru allir KA-
menn velkomnir í Lundarskól-
ann á þessum tíma kl. 10-12 á
sunnudagsmorgnum.
KA-peningurinn hefur nú ver-
ið til sölu um nokkurn tíma.
Aðalsölustjórinn er Sveinn Kris-
tjánsson, en peningurinn er einn-
ig seldur í Sporthúsinu, hjá Stef-
áni Gunnlaugssyni á Bautanum
og hjá Siguróla Sigurðssyni.
Sæmundur Óskarsson, hinn
ötuli formaður KA-klúbbsins í
Reykjavík varð sextugur á dögu-
num. KA-menn heiðruðu hann
lítillega á þessum merku tíma-
mótum og senda honum hér með
bestu hamingjuóskir með
þökkum fyrir geysilegt starf í
þágu félagsins.
Þegar grasvöllur KA var tekinn í notkun var haldin mikil tertuveisla í
Lundarskóla.
Sljof iP5Hr •■2-s * %
I \\ I
Skrifstofuval hf.
Sunnuhlíð 12, sími 25004.
myndbandstæki
* t *2 «3 »4 »5 »C cm i t i m m n M n m... m .. m.r. kr. 39.500,
mj m g mg »10 »11 ■ 12 □ OIO l
íiUt
VC-481N/S
T.d. VC-481
með þráðfjarstýringu
VC-384 stereo
kr. 45.850.
LUXOR
Framtíðar-
sjónvarpið
Tengimöguleikar t.d.:
Fjarstýring, stereomóttaka,
gervihnattamóttaka,
„Teletext“-móttaka,
bein videótenging.
22ja tommu með hjólagrind
kr. 34.100,-