Dagur - 31.08.1984, Page 4
r! - qt ]f)Afl - NftPh fpfinA CP
4 - DAGUR - 31. ágúst 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÓGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Á 26. Fjórðungsþingi Norð-
lendinga að Reykjum í
Hrútafirði fjallaði fram-
kvæmdastjóri Fjórðungs-
sambandsins, Áskell Einars-
son, m.a. um þá búsetu-
röskun sem þegar er hafin
á Norðurlandi. Hann sagði
að færð hefðu verið rök fyrir
því að beint samhengi væri
milli atvinnuframboðs og
búsetuþróunar. Um stöðn-
un eða samdrátt í atvinnu-
greinum og þar með búsetu
röskun sagði Áskell:
„Þetta eru ekki stundar-
fyrirbrigði heldur varanleg
staða, ef ekkert er að gert.
Ljóst er að atvinnuleys-
isvofan er við bæjardyrnar í
haust, þegar engan fisk er
að hafa í fiskiðjuverin og
þeir sem betur geta, sigla
með afla sinn vegna fjár-
hagsástæðna. Sveitarfélögin
hafa verið rúin tekjum frá
Jöfnunarsjóði, samdráttur
er í lánastofnunum og fjár-
lagageirinn er í baklás.
Byggingamenn eiga þess
kost að fara suður, þar sem
stórfyrirtækin, bankarnir,
veitustofnanirnar og sam-
skotastofnanir landsmanna
halda uppi leiknum í
hröðum takti, sem örvar
alla aðra starfsemi. “
Áskell sagði síðan að það
alvarlegasta í þessu væri
það að full atvinna í helstu
atvinnugreinum dygði ekki
til að ná búsetujafnvægi.
Þjónustusamfélagið á suð-
vesturhorninu bólgnaði út
og drægi til sín sérmennt-
aða fólkið. Á sama tíma
væri hver króna talin út til
höfuðatvinnuveganna, með
hagfræðilegu seinlæti. Op-
inberar framkvæmdir væru
skornar niður úti á landi, en
á sama tíma bólgnaði ríkis-
reksturinn og tengdar
greinar, þannig að nota yrði
erlent lánsfé til að reka
ríkishítina á höfuðborgar-
svæðinu. Á sama tíma og
ríkishítin væri rekin fyrir er-
lent lánsfé þyrftu höfuðat-
vinnuvegirnir að sækja dag-
legt brauð úr hendi stjórn-
málamanna og lánadrottna.
„Þjónustusamfélagið á
Suðvesturlandi og fram-
leiðslusvæði landsbyggð-
anna eru á ný að verða vax-
andi andstæður í atvinnu-
legu tilliti. Þær raddir verða
æ háværari, sem virða að
vettugi samfélagsleg úr-
ræði um að skapa jafnræði í
landinu á milli fólks í þétt-
býli og dreifbýli, að því er
varðar velferðarþjónustu
þjóðfélagsins. . .
Tryggja verður jafnræði
þegnanna, án tillits til bú-
setu. Meginverkefnin eru
byggðaaðgerðir í atvinnu-
málum með auknu forræði
heimamanna og eigin
bankastarfsemi, “ sagði
Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Norðlendinga,
meðal annars í ræðu sinni á
Fjórðungsþingi.
Friðfinnur K. Daníelsson iðnráðgjafi á Fjórðungsþingi Norðlendinga:
Síðasta ár, ár mikilla athafna . . .
Fjórðungsþing Norðlendinga
er haldið að Reykjum í Hrúta-
firði um helgina. Á þinginu
flutti Friðfinnur K. Daníelsson
iðnráðgjafi erindi um störf sín
frá því Fjórðungsþing var síð-
ast haldið, og við birtum hér
kafla úr erindi hans:
Að þessu sinnu mun ég að gera
grein fyrir störfum mínum frá
því á síðasta fjórðungsþingi;
þannig að fyrst ætla ég að tala um
farinn veg almennt séð, síðan
greina frá nokkrupi af þeim verk-
efnum sem upp á mitt borð hafa
komið. Að síðustu mun ég tala
stuttlega um þróunarsjóð sem ég
tel að Norðlendinga vanti.
Almennt yfirlit
Ef við víkjum að fyrsta liðnum
þá verður síðastliðið ár að teljast
ár mikilla athafna, þótt ekki sjá-
ist árangurinn í formi nýrra fyrir-
tækja enn sem komið er. Enda er
það svo í flestum tilvikum að það
eru ekki við ráðgjafarnir sem
sköpum störfin heldur er okkar
hlutverk frekar að hjálpa öðrum
til að koma hugmyndum sínum í
framkvæmd.
Mér telst svo til að alls hafi ég
tekið þátt í 36 mismunandi verk-
efnum sem ég kalla svo, það er
að segja málum þar sem raun-
verulegt vinnuframlag hefur
komið til. Og ég vil taka það
skýrt fram að ég er ekki að tala
um nokkra tugi annarra smá-
snúninga sem ættu frekar að
flokkast sem spjall til upplýsinga
fyrir mig og aðra.
Fað væri þó e.t.v. full ástæða
til að telja til verkefna eitthvað af
þeim fjölmörgu klukkustundum
sem einungis hafa farið til skrafs
og ráðagerða. Orð eru til alls
fyrst stendur skrifað, og get ég
vissulega tekið undir það þó hóf
sé best í öllu, orðum sem og
öðru.
Einstök verkefni
Blönduós
Frá því í janúar s.l. hef ég verið í
sambandi við mann nokkurn á
Blönduósi sem þá hugðist hefja
framleiðslu á vörum til sjávarút-
vegs. Aðstoð mín til þessa hefur
einkum verið fólgin í leit að upp-
lýsingum jafnframt því að benda
á aðra sem hafa þegar lagt hönd
á plóginn. Einnig fékk ég Hafþór
Helgason, viðskiptafræðing, þá-
verandi starfsmann Fjórðungs-
sambandsins til að gera hag-
kvæmniathugun sem leiddi í ljós
að um ábatasama iðju gæti orðið
að ræða að vissum skilyrðum
uppfylltum. Því má svo bæta við
að í dag er búið að framleiða eitt
stykki til prufu sem tókst framar
öllum vonum, en ennþá er verið
að eltast við óleyst vandamál sem
nú eru í athugun bæði innanlands
og utan.
Siglufjörður
Á Siglufirði höfum við nokkrir
saman unnið í hátt á annað ár að
ákveðnu verkefni. Þar er mikið
búið að ganga á, enda málið flók-
ið og erfitt, og búið að snúast í
höndunum á okkur oftar en einu
sinni.í þettatiltekna dæmi er búið
að eyða miklum tíma og fjármun-
um í upplýsingaöflun svo og gerð
stofn- og rekstraráætlana, eða
sagt með öðrum orðum, búið að
framkvæma flesta eða alla þá
þætti sem fylgja því að stofna
nýtt framleiðslufyritæki. Enn ér
ekki séð fyrir endann á málinu,
en fróðlegt verður að sjá hverju
fram vindur.
Ólafsfjörður
í Ólafsfirði er um að ræða verk-
efni á sviði matvælaiðnaðar, sem
nú er komið á góðan rekspöl.
Mitt framlag hefur ekki verið
stórt til þessa, aðeins lauslegar
athuganir og vinna við að finna
málinu réttan framgang. Enn er
nokkuð í land með þetta verkefni
og því of snemmt að spá fyrir um
niðurstöðuna en málið er álitlegt.
Eyjaförður
í Eyjafirði að Akureyri frátal-
inni, hefur nokkuð margt verið á
döfinni að undanförnu. Þar ber
þó hæst samstarfsverkefni okkar
Friðflnnur K. Daníelsson.
Stefáns Þórðarsonar í Teigi og
Þórarins Lárussonar hjá Ræktun-
arfélagi Norðurlands, varðandi
heykögglaverksmiðjuna í Teigi.
í ljós fenginnar reynslu var gerð
ítarleg úttekt á rekstri verksmiðj-
unnar sem ekki hefur reynst skila
nægjanlegum hagnaði hingað til.
Niðurstöður okkar urðu þær, að
með nokkrum endurbótum á
vélabúnaði verksmiðjunnar
mundi reksturinn skila mark-
tækum hagnaði miðað við núver-
andi markaðsaðstæður.
Þess er og að geta að við telj-
um ómaksins vert að gaumgæfa
betur þennan iðnaðarvalkost sem
við eigum þ.e.a.s. fóðuriðnað-
inn. Reynslan sýnir að heyköggl-
ar íblandaðir fiskimjöli og hugs-
anlega öðrum próteingjöfum eru
úrvalsfóður sem getur hæglega
keppt upp að vissu marki við
innflutt kjarnfóður.
Akureyrl
Á Akureyri hefur sitt af hverju
rekið á mínar fjörur, þó hljótt
hafi farið. Frá því um áramót hef
ég verið í samstarfi við tvo aðila
sem báðir hafa unnið nótt sem
nýtan dag að undanförnu við
hönnun og vöruþróun á væntan-
legum framleiðsluvörum sínum.
Hér er um gjörólíkar fram-
leiðsluvörur að ræða en stefnt er
að útflutningi í báðum tilvikum.
Mitt hlutskipti í öðru tilfellinu
sérstaklega hefur verið að að-
stoða við þreifingar á markaði
erlendis, en ýmislegt fleira hefur
komið til. Ég bind miklar vonir
við bæði þessi verkefni og yrði
ekki hissa þótt þau ættu eftir að
vinda utan á sig svo um munaði.
Nokkuð hefur borið á hug-
myndum um járniðnað, en ekki
hefur orðið alvara úr nema hvað
Járntækni hf. sem klofnaði út úr
öðru starfandi fyrirtæki var stofn-
að og tók til starfa. Gúmmí-
vinnslan hf. stendur fyrir sínu og
færist öll í aukana, en sömu sögu
er því miður ekki hægt að segja
um Auroru hf. Þar komu upp erf-
iðleikar sem ekki hefur tekist að
ráða bót á enn sem komið er
þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir.
S.-Þing.
í S.-Þingeyjarsýslu hefur mikið
verið umleikis í iðnaðarmálum,
aðallega í Mývatnssveit. Þar hafa
ekki færri en 5 aðilar haft sam-
band við mig með álíka mörg
verkefni. Þar af eru 2 mál í mark-
vissri vinnslu, en bæði eiga það
sameiginlegt að vera mjög spenn-
andi. Þriðja málið sem nú er unn-
ið að eru markaðsathuganir er-
lendis fyrir laufabrauðs- og
kleinuhjól en sölu á þeim vörum
má nú telja í þúsundum stykkja
á ári.
Húsavík.
Á Húsavík tók ég þátt í undir-
búningi og framkvæmd ráðstefnu
um atvinnumál sem haldin var í
nóvember sl. Að mínu mati
heppnaðist þessi ráðstefna vel og
síðan þá hefur verið nokkuð mik-
ill samgangur milli mín og hóps
áhugamanna um atvinnumál á
staðnum. Um önnur verkefni á
Húsavík fjölyrði ég ekki sérstak-
lega, en þar eru margar hug-
myndir á lofti.