Dagur - 03.09.1984, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 3. september 1984
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú ert
orðin(n) stór?
Brynhildur Eggertsdóttir 2ja
ára bráðuin 3ja:
Ég ætla að verða rafvirki.
Jón Gísli Óskarsson 5 ára:
Sjómaður.
Sigrún Kristjánsdóttir:
Ég ætla að vinna á löggustöð-
inni.
Janus Sigurjónsson 4ra ára:
Ég ætla að verða lögga.
Kristján Sigurjónsson 7 ára:
Tannlæknir.
Þó Skagaströnd sé ekki stór
bær eru þar þó tvö kaupfé-
lög. Þannig er nefnilega, að í
gamla daga var til Kaupfélag
Skagstrendinga. Að því kom
að það fór á hausinn og þá yfir-
tók kaupfélagið á Blönduósi
Kaupfélag Skagstrendinga.
Þeir byggðu hús fyrir starfsemi
sína og það átti að þjóna öllum
bænum. Bærinn skiptist í 2
hluta og sá hluti sem hafði
gamla kaupfélagið neitaði að
láta leggja það niður, því að á
veturna væri svo erfitt að kom-
ast á milli bæjarhluta til að
versla. Kaupfélagið vill að
sjálfsögðu allt fyrir sitt fólk
gera og þar eru því 2 kaupfélög
núna, eða réttara sagt þá rekur
kaupfélagið á Blönduósi 2 úti-
bú á Skagaströnd.
Við reyndum fyrst að fá útibús-
stjórann í nýja húsinu til að
spjalla við okkur en hún neitaði
staðfastlega. Benti okkur á að
tala við þær í hinu kaupfélaginu,
því þær væru miklu hressari! Við
undum okkur því yfir í hinn
bæjarhlutann og hittum þar að
máli Steinunni Friðriksdóttur,
sem sér um útibúið í Höfða-
hverfi, það heitir því Höfðaúti-
bú. Steinunn var til í smá spjall
og fer það hér á eftir.
- Er ekki nokkuð skrýtið að
hafa 2 kaupfélög í ekki stærra
bæjarfélagi?
„Það er kannski ekkert
skrýtið, þetta er eiginlega sitt
hvor deildin. Við erum með
byggingavörur, fóðurvörur, raf-
magnsvörur og fleira. Það er líka
smá matvöruhorn hjá okkur, það
er vegna þess að það verður oft
ófært yfir víkina á veturna og þá
er gott fyrir fólk að geta keypt
það nauðsynlegasta hér. Hitt
kaupfélagið er aðallega með mat-
vöru og vefnaðarvöru, og eitt-
hvað af búsáhöldum."
- Er einhver rígur á milli
bæjarhlutanna?
„Nei, það er alls enginn rígur
þó bærinn skiptist svona.“
- Ermikið verslað hjá ykkur?
„Ég veit ekki hvað skal segja
um það, það er mjög misjafnt.
Það er meira að gera þegar unnið
er í frystihúsinu, þá kemur fólkið
í pásum og kaffi og kaupir sér
eitthvað. Sveitafólkið kemur
hingað að kaupa fóðurvöru, en
fer frekar í hitt kaupfélagið til að
versla matvöruna.“
- Hvað vinna margir hérna?
„Það vinna hér 5 manns í allt.
Það er bara einn sem vinnur allan
daginn, hin öll vinna hálfan
daginn. Ég vinn bara hálfan
daginn, við erum tvær sem erum
útibússtjórar, Helga Guðmunds-
dóttir er á móti mér, hún er á
morgnana.“
- Vendum okkar kvæði í kross
og hættum að tala um kaupfélag-
ið og fáum einhverjar upplýsing-
ar um þig. Ertu innfædd?
„Nei, ég er fædd í Reykjavík
og uppalin í Kópavogi. Maðurinn
minn er héðan, ég giftist samt
ekki beint hingað heldur fluttum
við. Ég er búin að búa hér í 8 ár
síðan í apríl.“
- Hefur þér líkað vel?
„Mér líkar mjög vel, þetta er
góður staður. Ég vil alls ekki fara
héðan aftur. Það er svo miklu
rólegra hér en fyrir sunnan,
minna stress. Hér hverfur maður
ekki í fjöldann eins og þar. Ég
er alltaf fegnust þeirri stund
þegar ég kem heim aftur, ef ég
hef skroppið eitthvað."
- En áhugamálin og félagslíf-
ið?
„Ég veit ekki með áhugamálin!
Ég keypti mér gönguskíði í vor
og komst einu sinni á þau áður en
snjórinn fór. Ætli ég reyni ekki
að fara eitthvað næsta vetur. Það
er ekkert sérstaklega mikið fé-
lagslíf hérna, t.d. eru ekki mörg
böll, þó eru alltaf ákveðin böll,
ball á gamlárskvöld og sjómanna-
daginn. Það er hins vegar lítið
um að vera fyrir utan þetta
fasta."
Síminn var búinn að hringja
margoft og margir sem vildu ná
tali af Steinunni og það var aug-
ljóst að við trufluðum, svo við
létum þetta gott heita og þökk-
uðum spjallið. - HJS.
Fallegt í Stærra-Arskógi
og mikið af berjum
Kona í Norðurgötu skrifar:
Mig langar til að koma á framfæri
þakklæti til hjónanna í Stærra-
Árskógi fyrir þá ómældu ánægju
sem þau veita fólki er kemur
þangað til berjatínslu. Þar fer allt
saman: Fagurt umhverfi, óspillt
náttúra og mikil ber. Þar er land-
ið ekki sundurgrafið af óþarfa
skurðum, sem svo víða má sjá í
sveitum. Stundum virðist manni
að skurðirnir séu aðeins til þess
að fá út á þá styrki.
í Stærra-Árskógi er vel girt
enda sýnir góð berjaspretta þar
að sauðfé og nautgripir hafa ekki
aðgang. í upphafi var gjald fyrir
berjatínsluna 80 krónur á mann
og börn undir tólf ára aldri þurftu
ekki að borga. Nú hefur þetta
verið lækkað í 50 krónur á hvern berjaland er að ræða og í Stærra- búið áhugamönnum um berja-
fullorðinn, sem er í rauninni ekk- Árskógi. Hafi ábúendur þökk tínslu.
ert gjald þegar um jafn gott fyrir þá aðstöðu sem þeir hafa Kær kveðja.
Slysagildra við Klapparstíginn
Klappabúi skrifar:
Ég er nýbúinn að lesa um slysa-
hættu í Lesendahorni Dags og
þær eru víst víða um bæinn.
Mig langar til þess að benda á
eina slíka hér við Klapparstíginn.
Það er brött brekka yst í stígnum
og bílar snúa þarna alltaf við. ís-
ing er mikil á vetrum á malbikinu
og það þarf ekki mikið til að þeir
hreinlega geti runnið þarna fram
af.
Fyrir þremur árum voru settir
þarna nokkrir kantsteinar sem
áttu að vera til hjálpar, en þeir
fóru fljótt því er ýta þurfti snjó
fóru þeir bara með. Ér nú ekki
kominn tími til að gera við kant-
inn þarna áður en stórslys
verður?
Hér er svo fyrirspurn til Stef-
áns Stefánssonar bæjarverkfræð-
ings:
Var nauðsynlegt að þrengja
Klapparstíginn svona upp? Bílar
eiga í mestu erfiðleikum að kom-
ast upp úr stígnum á vetrum fyrir
ísingu og snjó. Svo er engin prýði
af þessu moldarflagi sunnan við
stíginn. Það hefði mátt malbika
líka.