Dagur - 03.09.1984, Síða 7

Dagur - 03.09.1984, Síða 7
6 - DAGUR - 3. september 1984 Víðir upp í 1. deild? Víðir úr Garði stendur nú mjög vel að vígi í baráttunni um laust sæti í 1. deild næsta keppnistímabil, en þó er ekki enn séð fyrir endann á því hvaða lið fylgir FH upp í 1. deildina. Víðir vann FH mjög sannfær- andi á föstudagskvöldið og hefur nú hlotið 27 stig. Liðið á eftir að leika við botnliðið Einherja á úti- velli og síðan við Njarðvík á heimavelli í síðustu umferðinni og því má segja að Víðismenn séu komnir með annan fótinn í 1. deild. ísfirðingar eru nú komnir upp í 3. sætið en þeir byrjuðu mjög illa, en eru hins vegar með besta liðið í 2. deild í dag að margra mati. Þeir eiga eftir að taka á móti Eyjamönnum um næstu helgi, og síðan að leika gegn KS á Siglufirði. Mun erfiðara „prógram“ en Víðir á fyrir höndum. Eyjamenn eru með 25 stig einu stigi minna en ÍBÍ og því er ljóst að innbyrðisviðureignin á ísafirði milli þessara liða verður hörð og ef öðru liðinu tekst að sigra þar stendur það enn í baráttunni, en það lið sem tapar hefur misst af lestinni. Þá má segja að Njarðvík, KS og Völsungur eigi öll fræðilega möguleika á að komast upp í 1. deild, en mögu- leikarnir minnkuðu verulega í umferðinni sem leikin var um helgina eins og sjá má á stöðunni hér að neðan. GH sigraði GE Húsvíkingar sigruðu Eskfirð- inga naumlega í bæjakeppni í golfí sem háð var um helgina á Eskifírði. Ekki gat þó munur- inn orðið minni en raun varð á í lokin, Húsvíkingar léku á 1888 höggum, einu höggi minna en Eskfírðingarnir. Bestum árangri í karlaflokki náði Áxel Reynisson sem lék 36 holur á 153 höggum, Bogi Boga- son GE var á 166 höggum og Skúli Skúlason GH á 172 höggum. Sigríður B. Ólafsdóttir GH var best í kvennaflokki, lék á 215 höggum. Dagmar Óskarsdóttir GE á 224 höggum og þriðja varð Dóra Sigurmundsdóttir GH á 246 höggum. I síðustu viku var háð „Frico- Skandia" keppnin hjá GH. Fjórir menn eru komnir í úrslit í þeirri keppni og leika holukeppni, Pröstur Brynjólfsson, Ragnar P. Ragnarsson, Pálmi Pálmason og Kristján Guðjónsson. Sveitakeppni GSÍ um helgina Um næstu helgi fer fram Sveitakeppni Golfsambands íslands á velli Golfklúbbs Suðurnesja. Indriði sigraði Indriði Jóhannsson sigraði í keppninni um „Nafnlausa bikar- inn“ sem háð var hjá Golfklúbbi Akureyrar í gær. Indriði lék á 68 höggum nettó eins og Einar Pálmi Árnason en Indriði hafði betur í bráðabana. í þriðja sæti varð Björn Axelsson á 71 höggi. Þrír keppendur hafa þegar ver- ið valdir til að keppa í karlaflokki fyrir Golfklúbb Akureyrar, Sverrir Þorvaldsson, Þórhallur Pálsson og Sigurður H. Ringsted. Ekki hefur verið ákveðið hver skipar 4. sætið en valið stendur á milli Viðars Þorsteinssonar, Björns Axelssonar og Baldurs Sveinbjörnssonar. Kvennalið GA verður skipað Ingu Magnúsdóttur, Jónínu Páls- dóttur Katrínu Frímannsdótt- ur. Staðan Staöan í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu er nú þessi: Skaga- menn meistarar Akurnesingar urðu um helgina íslandsmeistarar í knattspyrnu 1984. Þeir gerðu jafntefli gegn KR á Laugardalsvelli 0:0 en það sem endanlega tryggði þeim titil- inn var 2:1 sigur Þórs gegn Kefla-' vík, eina liðinu sem gat náð Skagamönnum að stigum. ís- landsmeistaratitillinn er því kom- inn til Akraness annað árið í röð. Víðir - FH 2:0 KS - Völsungur 0:0 Einherji - ÍBÍ 1:3 ÍBV - Tindastóll 4:2 UMFS - UMFN 3:0 FH 16 : 10 4 2 32:15 34 Víðir 16 8 3 5 29:24 27 ÍBÍ 16 7 5 4 32:20 26 ÍBV 16 7 4 5 24:22 25 KS 16 6 6 4 19:16 24 UMFN 16 7 3 6 17:16 24 Völsungur 16 7 3 6 21:21 24 Skaliagr. 16 7 2 7 27:24 23 Tindastóll 16 2 3 11 15:39 9 Einherji 16 1 3 12 11:28 6 Næstu leikir: Njarðvík - FH fímmtudag. Völsungur - UMFS laugardag. ÍBl - ÍBV laugardag. Tindastóll - KS laugardag. Einherji - Víðir laugardag. Bjarni Sveinbjörnsson var maður dagsins í leik ÍBK og Þórs. Bjarni sem hér sést í leik á Akureyri fyrr í sumar skoraði tvö glæsileg mörk og Þór sigraði 2:1. Slagsmálaleikur á Siglufirði: Jafnteflið sanngjarnt - í viðureign KS og Völsungs Mönnum bar saman um það að 0:0 jafntefli í leik KS og Völsungs sem leikinn var á Siglufirði um helgina hefðu verið sanngjörn úrslit. Eins og jafnan þegar þessi lið eig- ast við er lítið gefið eftir og svo var nú. Barist var af alefli frá fyrstu til síðustu mínútu og þegar upp var staðið hafði hvort lið eitt stig upp úr krafsinu. Við ræddum við tvo aðila félaganna eftir leik- inn. „Þetta var ömurlegur leikur,“ sagði Hermann Einarsson ritari KS er við ræddum við hann. „Þegar líða tók á leikinn var þetta ekkert nema harkan og enginn fótbolti. Það var meira hugsað um manninn heldur en að reyna að spila boltanum. Þá var dómarinn ömurlegur dómari og hann hafði alls engin tök á leiknum þótt segja megi að það hafi ekki komið öðru liðinu verr en hinu.“ - Eruð þið búnir að gefa upp vonina um að komast upp í 1. deild? „Það var nú aldrei stefnan hjá okkur að fara upp og við áttum ekki von á slíku. Stefnan hjá okkur var að halda sætinu í 2. deild, sérstaklega eftir að við urðum fyrir því að missa menn í önnur félög í vor. Við getum því verið ánægðir með árangurinn," sagði Hermann. „Eins og alltaf“ „Þetta er. eins og alltaf þegar þessi lið eigast við og þetta var slagsmálaleikur,“ sagði Kristján Olgeirsson annar þjálfara Völs- ungs og leikmaður með liðinu eftir leikinn. „Ég tel að þetta séu sanngjörn úrslit. Leiknum hefði getað lokið með mörkum og jafntefli og það hefði hvort liðið sem er getað unnið leikinn með smá heppni. Ég held því að það geti allir vel við þessi úrslit unað.“ - Hvað um möguleika ykkar á að ná 2. sætinu í deildinni og komast upp? „Við erum búnir að vera held ég þótt við getum hugsanlega far- ið upp með smá heppni. Ég tel að ísfirðingar séu með besta liðið í deildinni í dag, en þó reikna ég með því að Víðir fari upp. Víðir á eftir tvo leiki sem ættu að vera nokkuð léttir hjá þeim, þeir eiga eftir Einherja úti og Njarðvík á heimavelli og ég held að þeir vinni þessa leiki og fari svo upp. Árangurinn hjá okkur er alveg viðunandi. Við eigum eftir að spila við Skallagrím heima og FH úti og ef okkur tekst að ná í sigur í öðrum þessara leikja þá þýðir það stigamet hjá Völsungi í 2. deild og það er nokkuð gott að ná því miðað við að við misstum menn í vor,“ sagði Kristján. 3. september 1984 - DAGUR - 7 Þórsara stálu öllum stigunum í Keflavík - Bjarni Sveinbjörnsson skoraði tvö mörk í 2:1 sigri Þórs í leik þar sem Keflvíkingar voru áberandi betri aðilinn nær allan tímann „Það er alveg óhætt að segja að við höfum stolið þremur stigum í Keflavík að þessu sinni. Þeir áttu miklu meira í leiknum en við höfðum loksins heppnina á okkar bandi og unnum,“ sagði Arnar Guðlaugsson lið- stjóri Þórs eftir að Þórsarar unnu Keflavík á útivelli um helgina 2:1. Eftir nokkurt jafnræði í byrjun tóku Keflvíkingarnir leikinn í sínar hendur og þeir voru mun betri aðilinn allt til leiksloka. „Þeir sögðu eftir leikinn að þeir hreinlega skildu það ekki að það væri hægt að eiga svona miklu meira í leiknum en tapa samt, en við skildum það alveg. Við höfðum nefnilega lent í þessu í sumar og það var tími til kominn að lukkudísirnar létu sjá sig í her- búðum okkar,“ sagði Arnar Guðlaugsson. Sem fyrr sagði var nokkurt jafnræði með liðunum í byrjun, og Þór náði forustunni strax á 5. mínútu eftir glæsilegt einka- framtak Bjarna Sveinbjörnsson- ar. Bjarni lék upp völlinn, síðan plataði hann Þorstein Bjarnason markvörð og komst framhjá hon- um til hliðar við markið. Þá gat hann skotið á markið og skorað, en tók ekki áhættuna heldur lék til baka og inn að markinu. Þar biðu tveir varnarmenn eftir hon- um en Bjarni sendi boltann af ör- yggi á milli þeirra og inn. Glæsi- lega gert hjá honum. Þegar Keflvíkingarnir hófu að pressa stífar að marki Þórs lá markið í loftinu hvað eftir annað. Bjargað var á línu, Baldvin varði ■ mjög vel nokkrum sinnum en þegar nokkrar mínútur voru til loka fyrri hálfleiks jafnaði ÍBK. Sending kom fyirr markið á Óskar Færseth bakvörð sem var kominn í sóknina og Óskar klippti boltann í loftinu og skor- aði með þrumuskoti. Fyrsta mark Óskars í 1. deild' og það ekki slorlegt. Staðan Staðan í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu er nú þessi: Akranes - Víkingur ÍBK - Þór KR - Akranes 2:3 1:2 0:0 Valur - Breiðablik 1:1 Akranes 16 11 2 3 29:16 35 ÍBK 16 8 3 5 19:16 27 Valur 16 6 6 4 22:16 24 Þór 16 6 3 7 24:23 21 Víkingur 15 5 5 5 24:24 20 Þróttur 16 4 7 5 17:17 19 KR 16 4 7 5 16:23 19 Breiðablik 16 3 8 5 16:17 17 KA 16 4 4 8 23:34 16 Fram 15 4 3 8 15:10 15 Næstu leikir: Víkingur - Fram í kvöld. Fram - Valur fimmtudag. Breiðablik - Akranes föstudag. Þór - Víkingur laugardag. ÍBK - KR laugardag. Þróttur - Akranes laugardag. í síðari hálfleik hélt sóknar- þungi Keflvíkinganna áfram að aukast. „Við biðum bara eftir því að þeir skoruðu og vonuð- umst auðvitað eftir því að sleppa með eitt stig,“ sagði Arnar. Og svo var það rétt fyrir leiks- lok að Bjarni Sveinbjörnsson komst skyndilega einn á auðan sjó. Hann geystistað Keflavíkur- markinu og Þorsteinn kom út á móti. Bjarni gerði sér lítið fyrir, vippaði boltanum yfir hann og í markið. „Ég hélt að boltinn ætl- aði að fara yfir markið, en hann var ansi lengi á leiðinni og manni létti loksins þegar hann sigldi í netið,“ sagði Arnar Guðlaugs- son. Þórsarar höfðu stolið öllum stigunum þremur og bjargað sér af fallhættusvæðinu. Völlurinn í Keflavík má heita ónýtur, og engin leið að leika knattspyrnu á honum. Þórsarar náðu aldrei að sýna sitt rétta and- lit og sannleikurinn er sá að þeir voru heppnir að sleppa með stig frá Keflavík. Enginn Þórsaranna lék á getu en heppnin var með þeim og fannst mörgum tími til kominn. Nói og ■ ■ ■ ■ Bjossi í leik- bann? Svo getur farið aö Þór leiki án tveggja fastamanna í leiknum gegn Víkingi á laugardaginn. I leiknum í Keflavík fékk Nói Björnsson að sjá gula spjaldið hjá dómaranum Eysteini Guð- mundssyni. Nói gerði athuga- semd við línuvörðinn Kjartan Ólafsson, fannst hann ekki vera Gott golf hjá Birgi Mar. Birgir Marinósson lék glæsi- legt golf á laugardaginn þegar keppt var um Sjóvá-bikarinn hjá Golfklúbbi Akureyrar. Leiknar voru 18 holur með forgjöf í þessu árlega móti klúbbsins og Birgir vann yfír- burðasigur. Óvenju fáir kylfingar mættu til leiks, 32 talsins, en það bar til tíðinda að 12 þeirra léku upp á forgjafarlækkun sem er mjög gott. Misstu margir af verðlauna- sæti þótt þeir lékju undir 70 höggum nettó. Birgir, sem hafði fulla forgjöf fyrir þetta mót lék á 89 höggum eða 61 höggi nettó. Þetta þýðir að hann hefur lækkað í forgjöf um 4.4. í 2. sæti varð annar gamall „refur“, Bjarni Jónasson sem lék á 66 nettó, og hefði það einhvern tíma nægt til þess að vinna for- gjafarmót. Þriðji varð svo Þor- bergur Ólafsson á 67 höggum nettó og var óheppinn að sögn. Sigurbjörn Viðarsson. vakandi á línunni, en Kjartan veifaði flaggi sínu til dómarans sem sýndi Nóa gula spjaldið. Nói hafði 8 refsistig fyrir þennan leik, þannig að spurningin er hvort hann fær eitt eða tvö stig til við- bótar. Fái hann tvö stig missir hann af leiknum á laugardag. Sigurbjörn Viðarsson fékk einnig gult spjald fyrir grófan leik. Hann hafði 7 refsistig fyrir og þeir sem við ræddum við töldu allar líkur á að hann fengi 3-4 stig til viðbótar. Það bendir því allt til þess að Sigurbjörn verði ekki með á laugardaginn. Birgir Marinósson lék á 61 höggi nettó er keppt var um Sjóvá-bikarinn í golfí um hclgina. Baldvin Ólafsson. „Algjör þjófnaður" „Þetta var algjör þjófnaður,“ sagði Baldvin Ólafsson Þórs- ari, getraunasérfræðingur og vallarstjóri hjá Þór eftir leik- inn í Keflavík, en Baldvin var þar á meðal áhorfenda. „Það má segja að þessi leikur hafi verið eins og þegar Þór tap- aði hér heima fyrir Þrótti fyrr í sumar nema að nú vorum það við sem höfðum heppnina með okkur. Keflvíkingarnir óðu í fær- unum allan leikinn, það var bjargað á línu og hvaðeina. Bjarni skoraði svo tvö mjög góð mörk og var það fyrra mjög glæsilegt. Hann þvældi hvern manninn á fætur öðrum og plat- aði Þorstein Bjarnason landsliðs- markvörð svoleiðis að það lá við að hann kastaði sér aftur fyrir markið. Þetta var ljúft,“ sagði Baldvin Ólafsson. Bautamót í golfi Hið árlega Bautamót í golfi verður háð á Jaðarsvelli á Ak- ureyri á morgun, og leggja fyrstu kylfingarnir af stað kl. 14. Það er að sjálfsögðu veitinga- húsið Bautinn á Akureyri sem hefur veg og vanda af þessu móti, og er keppt um hinn glæsilega „Bautabikar“ sem er með glæsi- legri verðlaunum í íslenskum íþróttum, og að auki eru veitt verðlaun fyrir bestu menn bæði með og án forgjafar. Mótið er opið öllu starfsfólki á veitinga- og gististöðum, starfs- fólki á ferðaskrifstofum og blaða- mönnum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.