Dagur - 07.09.1984, Qupperneq 5
7. september 1984 - DAGUR - 5
I
30. ágúst til 1. september 1984,
telur endurskoðun laga um út-
varpsrekstur tímabæra, m.a. til
að tryggja í lögum skyldu ríkisút-
varpsins um að halda uppi lands-
hlutaútvarpi innan dagskrárkerfis
hljóðvarpsins. Þingið leggur
áherslu á tengsl landshlutaút-
varpsins við heimaaðila og telur
að í útvarpslögum þurfi að vera
ákvæði um samstarfsnefndir, sem
kosnar séu af landshlutasam-
tökum og séu til ráðuneytis út-
varpsráði og starfsliði um efnisval
og stjórnun landshlutadeilda út-
varpsins. Fjórðungsþing fagnar
því að fastráðinn er sérstakur
fréttamaður við hljóðvarpsdeild-
ina á Akureyri er sinni frétta-
störfum um Norðurland í sam-
starfi við fréttaritara einstakra
staða.
Samhliða þessu leggur fjórð-
ungsþingið áherslu á að komið
sé á fót aðsöðu til efnisöflunar
fyrir sjónvarp á Akureyri, með
föstu starfsliði.
Með tilliti til þess leggur þingið
áherslu á að þótt rýmkaður verði
réttur til útvarpsstarfsemi, megi
ekki skerða tekjumöguleika
ríkisútvarpsins til að vera áfram
útvarp allra landsmanna.
Hagsmunastaða minni
sveitarfélaga
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
telur ljóst að verulega hafi hallað
á hin minni sveitarfélög í sam-
skiptum við ríkisvaldið hin síðari
ár og bendir margt til þess að út-
gjöld þeirra til skylduverkefna
séu þeim ofviða. Með stækkun
sveitarfélaga fæst ekki fjárhags-
leg lausn á þessum vanda. Því
skorar Fjórðungsþingið á Sam-
band ísl. sveitarfélaga í samráði
við landshlutasamtök sveitarfé-
laga og hagsmunaaðila minni
sveitarfélaga að beita sér fyrir
því að dregnar verði skýrar línur
í verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga og stöðvuð verði sú þróun
að ný löggjöf velti sífellt nýjum
byrðum yfir á sveitarfélögin án
þess að nýir tekjustofnar komi á
móti.
Atvinnustaða sveitanna
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
fagnar því að tekist hefur að
koma á samstarfsnefnd landshluta-
samtaka sveitarfélaga, Stéttar-
sambands bænda og Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins um at-
vinnumál sveita.
Fjórðungsþingið bendir á að
íbúar sveitanna verða í vaxandi
mæli að sækja atvinnu til þéttbýl-
isstaða. í>ví er að dómi Fjórð-
ungsþingsins gagnkvæmt hags-
munamál sveita og þéttbýlis að
atvinnugrundvöllur sveitanna
verði treystur með auknu
atvinnuvali til að koma í veg fyrir
fólksflutninga til annarra lands-
hluta og vaxandi atvinnuleysi.
Skólamál
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
fordæmir harðlega síendurtekinn
drátt á lögboðnum greiðslum
ríkisins til reksturs grunnskóla.
Telur þingið eðlilegt og sjálfsagt
að allar greiðslur ríkisins til skól-
anna verði greiddar til viðkom-
andi starfsmanna án milligöngu
sveitarsjóða. Þingið beinir þeim
eindregnu tilmælum til sveitarfé-
laga að þau greiði ekki á komandi
skólaári hlut ríkisins í launum og
akstri ef framlög berast ekki
skilvíslega.
1. Þingið leggur áherslu á að
þátttaka ríkisins í kostnaði við
grunnskóla byggist á því að
jafna sem mest aðstöðu nem-
enda til náms hvar sem þeir
búa.
2. Þingið mótmælir framkomnum
hugmyndum sem myndu auka
verulega þann kostnaðarmis-
mun sem fyrir hendi er, svo
sem í akstri, viðhaldi, orku-,
heimavistar- og byggingar-
kostnaði. Þingið felur nefnd
þeirri sem kosin var á fundi
sveitarstjórnarmanna að
Laugaborg 8. júni 1984 að
vinna áfram að þessum málum
í samráði við strjálbýlisnefnd.
Verð á raforku
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
beinir þeirri eindregnu kröfu til
Rafmagnsveitna ríkisins að tafar-
laust verði tekið til endurskoðun-
ar hið háa verð á raforku til húsa-
hitunar og að ekki verði dýrara
fyrir sveitabæi að fá inn þriggja
fasa rafmagn en önnur heimili á
landinu.
Bankastarfsemi
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
beinir því til viðskiptabankanna
og bankayfirvalda að samdráttur
í útlánastarfsemi komi ekki sér-
staklega niður á landsbyggðinni.
Kostnaðarhlutdeild
ríkisins í rekstri fram-
haldsskóla
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjum í Hrútafirði
30. ágúst til 1. september 1984
krefst tafarlausrar leiðréttingar á
þeirri mismunun sem nú ríkir
varðandi kostnaðarhlutdeild
ríkisins í uppbyggingu og rekstri
framhaldsskólanna. Fjölbrautar-
skólarnir lúti sömu reglum og
menntaskólarnir nú hvað þetta
varðar.
MYNDLISTASKÓLINN
Á AKUREYRI
INNTÖKUPRÓF
Inntökupróf í Myndlistaskólann á Akureyri
fyrir skólaárið 1984-85 verða
dagana 17. september til 20. september.
Umsóknarfrestur er til 12. september.
Nánari upplýsingar veittar í skrifstofu skólans
Glerárgötu 34, sími 24958
Skólastjóri.
Námsflokkar Akureyrar
Innritun
Innritun í almenna flokka, verslunardeild og
kjarnanámskeiö hefst mánudaginn 17. sept-
ember.
Innritun fer fram á skrifstofu námsflokkanna í
Kaupangi alla daga frá kl. 17-19 og lýkur laugar-
dag 22. september.
Nemendur greiði námsgjöld við innritun.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 25413 milli
kl. 10 og 12.
Skólastjóri.
100% hreinn
appelsínusafi
frá Flórida
Engum sykri,
litarefnum, rotvarnar-
efnum, né öðrum
aukaefnum er bætt í
Picana
I hverjum líter af safa eru u.þ.b. 2.4 kg
af Flórida appelsínum