Dagur - 24.10.1984, Blaðsíða 1
67. árgangur Akureyri, miðvikudagur 24. október 1984 104. tölublað
Allt stopp!
- í samningaviðræðum VSÍ og landssambandanna.
„Ju þetta er nú svolítið þreyt-
andi. Það eru helst vindlarnir
sem halda manni gangandi.
Það er bara verst að þær teg-
undir sem ég reyki helst eru
búnar í verslunum hér í
Reykjavík,“ sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, sáttasemjari,
þegar Dagur ræddi við hann á
léttari nótunum. Starfsmenn
Dags brugðu við, kembdu
verslanir á Akureyri og fundu
vindla handa Guðlaugi og
sendu honum með sérlegum
sendimanni.
Meðfylgjandi var eftirfarandi
bréf:
„Ágæti sáttasemjari.
Okkur hér á Degi á Akureyri
rann það til rifja að heyra að þú
sért að verða uppiskroppa með
það sem hvað helst heldur þér
gangandi í mjög svo erfiðu hlut-
verki sem maður sátta meðal
stríðandi þjóðar. Við gerum okk-
ur grein fyrir því hversu hlutverk
þitt er mikilvægt og ef þessi send-
ing okkar gæti orðið til þess að
þú héldir óskertri starfsorku,
þrátt fyrir langar vökur og nána
umgengni við hin stríðandi öfl í
þjóðfélaginu - sem hlýtur að vera
ákaflega þreytandi - þá er vel.
Því miður eru uppáhaldsvindl-
arnir þínir búnir í verslunum á
Akureyri, rétt eins og í Reykja-
vík, en þú hafðir orð á því í síma-
samtali okkar í morgun að þú
reyktir þá og þessa tegund
jöfnum höndum (eða jöfnum
reykjum öllu heldur). Við vonum
því að þessir 100 vindlar komi að
tilætluðum notum.
Með kærri kveðju og óskum
um áframhaldandi velgengni í
starfi sem sáttasemjari. Svældu
þá til samninga, þessa höfðingja.
Hermann Sveinbjörnsson,
ritstjóri.“
„Því miður verður að segja
eins og er, að samningavið-
ræður á almenna vinnumark-
aðinum eru úr sögunni í bili að
minnsta kosti, allt stopp. Ég er
ekki bjartsýnn á lausn á næst-
unni og einnig er ég hræddur
um að þessi vika sé frá hjá
BSRB og ríkinu. Samninga-
nefnd ríkisins var að bíða eftir
því að það kæmi einhver lína
fram í viðræðum landssam-
bandanna og VSÍ, en nú er það
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri lokaði um síðustu helgi
fyrir endurvarpssendingar
manns nokkurs á Akureyri, en
hann hefur fengist við það um
nokkuð langan tíma að endur-
varpa útsendingum útvarpsins
í Luxemborg og fleiri stöðva.
Rannsóknarlögreglunni barst
kæra vegna þessa athæfis eftir að
starfsmenn Pósts og síma miðuðu
út sendingar hans og reyndust
þær koma frá húsi á Oddeyri.
Lögreglan kom að húsinu um
miðnætti sl. fimmtudagskvöld og
viðurkenndi maðurinn strax að
hann endurvarpaði sendingum
útvarpsstöðva. Þar sem slíkt er
ólöglegt féllst hann strax á að
hætta endurvarpinu.
Ekki gerði lögreglan tækjabún-
aðinn upptækan en þegar sækja
átti sendinn daginn eftir tjáði
endurvarparinn lögreglunni að
hann hefði ekki sendinn lengur
undir höndum, þeir gætu leitað
að honum á öskuhaugunum.
borin von. Þegar menn fóru
ofan í skattadæmið náðist ekki
samstaða. Eins og staðan er
núna tel ég að byrja þurfi alveg
upp á nýtt,“ sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari
í viðtali við Dag.
Eins og kunnugt er snerust
viðræður Landssambands iðn-
verkafólks og Verkamanna-
sambandsins við VSÍ, sem
ASÍ kom síðan inn í, um
skattalækkunarleiðina svo-
Sá sem hér um ræðir mun að
sögn hafa stundað þetta endur-
varp í um 5 ár með nokkrum
hléum þó, og hefur heyrst að
hann hafi m.a. endurvarpað
sendingum BBC í Skotlandi á
dögunum er Skotland og ísland
léku í Heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu. gk-
Það var mjótt á munum í at-
kvæðagreiðslu Starfsmannafélags
Akureyrarbæjar um nýgerða
kjarasamninga við Akureyrarbæ,
sem fram fór í gær, en aðeins
munaði 9 atkvæðum þegar upp
var staðið. 203 félagar í STAK
samþykktu samningana, eða
nefndu. Þegar á reyndi náðist
ekki samstaða, enda málið
flókið og allt of skammt á veg
komið eftir að kjaradeilurnar
hörðnuðu svo sem raun varð á.
Einn viðmælenda blaðsins
sagði að ekki hafi verið ein-
hugur um þessa leið, hvorki
meðal atvinnurekenda né full-
trúa launþega. Hins vegar hafi
sumir talið sem svo að gott
væri að geta sagt að þessi leið
hafi verið reynd, en aðrir sem
hafi eyðilagt hana. Þetta hafi
e.t.v. verið skýringin á því að
ekki gekk saman.
Eins og fram kom hjá sátta-
semjara biðu menn eftir því í
viðræðum BSRB og ríkisins að
einhver lína fengist í þessum
málum á almenna vinnumark-
aðinum. Nú þegar allmargir
aðilar hafa samið um verulegar
kauphækkanir er skattalækk-
unarleiðin hins vegar úr sög-
unni. Menn þurfa því að byrja
upp á nýtt, endurmeta stöðuna
og vopnast á ný. Ekki er því
útlit fyrir að BSRB-deilan leys-
ist í þessari viku. Hún er hins
vegar farin að hafa mjög veru-
leg áhrif á fjölmarga þætti
þjóðlífsins. HS
49,75% þeirra sem þátt tóku í at-
kvæðagreiðslunni. 194 vildu fella
samningana, eða 47,55%. 11 seðl-
ar voru auðir eða ógildir, sem er
2,7%. Alls tóku 408 manns þátt í
atkvæðagreiðslunni, af 555 sem
voru á kjörskrá, eða 73,51%.
- GS
Sjá nánar bls. 9.
Norðurland eystra:
Kvótamir á þrotum
Kvótar eru víðast hvar á þrot-
um hjá útgerðarfyrirtækjum
á Norðurlandi eystra. Sér-
staklega er lítið eftir af þorsk-
kvótum en þeim mun meira
af ýsu-, kola- og grálúðukvót-
um sem ekki er víst að hægt
verði að veiða upp í að fullu.
Ef litið er á hina ýmsu staði,
kemur í ljós að Akureyrartog-
ararnir eru langt komnir með að
veiða upp í kvóta. Á Húsavík
dugir kvótinn sennilega út árið
en þar hefur líka annar togarinn
verið á rækjuveiðum síðan í
byrjun apríl. Þrfr til fjórir bátar
hafa verið á línu og þeir eiga
sáralítið eftir, samkvæmt þeim
upplýsingum sem Dagur fékk
hjá Tryggva Finnssyni, fram-
kvæmdastjóra Fiskiðjusamlags-
ins.
í Ólafsfirði hefur skapast al-
varlegt ástand í atvinnumálum.
Allir togararnir hafa siglt með
afla að undanförnu og nú er svo
komið að aðeins eru eftir um
700 tonn, uppistaðan ýsa og
aðrar minna veiðanlegar fisk-
tegundir. Sagði Valtýr Sigur-
bjarnarson, bæjarstjóri óvarlegt
að ætla að meira en 400 til 500
tonn næðust fram til áramóta.
Óvíst væri hvar þessum afla yrði
landað og fyrirsjáanlegt væri
mikið atvinnuleysi í frystihús-
unum fram til áramóta.
Svipaða sögu er að segja frá
Grenivík. Knútur Karlsson,
framkvæmdastjóri Kaldbaks hf.
sagði að Núpur væri búinn með
sinn kvóta en svolítið hefði
fcngist til viðbótar og væri verið
að veiða það magn núna. Fyrir-
sjáanlegt væri að báturinn yrði
aðeins um fjóra mánuði að
vciða þorskkvótann á næsta ári
miðað við óbreytt ástand.
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf. á Rauf-
arhöfn, gaf blaðinu þær upplýs-
ingar að nú ætti togarinn Rauði-
núpur um 300 tonn eftir af kvót-
anum, þar af aðeins 50 tonn af
þorski. Ekki hefði verið unnið í
frystihúsinu sl. tvær vikur og
horfur á bágbornu atvinnu-
ástandi, þar til loðnan færi að
berast til Raufarhafnar. Margir
yrðu þó án atvinnu út þetta ár.
- ESE
Endurvarpsstöð á Akureyri:
Stöðvuð með
lögregluaðgerð
Mjótt á munum
hjá STAK