Dagur - 24.10.1984, Qupperneq 3
24. október 1984 - DAGUR - 3
Grænmeti og
ávextir af
skornum skammti
- En nóg er til af annarri matvöru
Nokkur vöruskortur er farinn
aö gera vart við sig í bænum
nú þegar verkfall opinberra
starfsmanna hefur staðið í
þrjár vikur. Enn sem komið er
mun vöruskorturinn ekki vera
tilfinnanlegur, nema fyrir
reykingamenn en vindlingar
eru orðnir fágæt vara i öllum
verslunum.
Ingvi Guðmundsson innkaupa-
stjóri Birgðadeildar KEA sagði
að staðan hjá þeim væri nokkuð
góð. Það væri helst laukur sem
lítið væri til af en birgðir myndu
þó duga fyrir viðskiptavini út
næstu viku. Nóg er til af ýmiss
konar dósamat hjá verslunum
KEA líkt og hjá Hagkaupum
þannig að staðan varðandi mat-
vælin er alls ekki svo slæm þrátt
fyrir verkfallið.
Guðmundur Friðriksson,
verslunarstjóri í Hagkaupum
sagði í samtali við blaðamann
Dags að það væru einkum ávextir
og grænmeti sem væru af
skornum skammti. Laukur væri
t.a.m. á þrotum hjá versluninni
en af allri annarri matvöru væri
nóg til. Ein sígarettutegund er til
í Hagkaupum en töluvert af
vindlum. _ ggg
Staða
lands-
byggðar
aðalmálið
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, verður
gestur á kjördæmisþingi fram-
sóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra sem haldið
verður á Hótel Húsavík dag-
ana 26. og 27. október nk.
Kjördæmisþingið hefst kl. 20
á föstudag og stendur fram á
laugardagskvöld. Sérmál þingsins
verður „Staða landsbyggðar -
framtíðarhorfur".
Á föstudagskvöld mun for-
sætisráðherra verða með fram-
söguræðu og á eftir verða al-
mennar umræður. Á laugardag
starfa nefndir og mál verða af-
greidd.
Gestur E. Jónasson og Guðlaug María Bjarnadóttir í hlutverkum sínum í
Einkalífí.
Einkalíf
gengur vel
Nýr söngstjóri
Atli Guðlaugsson tónlistar-
kennari hefur verið ráðinn
söngstjóri Karlakórs Akureyr-
ar.
Atii er Akureyringum að góðu
kunnur, hefur m.a. verið skóla-
stjóri Tónlistarskóla Akureyrar
sl. tvö ár. Pá hefur hann stjórnað
Lúðrasveit Akureyrar um 3ja ára
skeið.
Karlakórsmenn hafa ýmislegt
á prjónunum í vetur og ætla sér
stóra hluti með nýja söngstjór-
ann. Þá hvetja þeir söngmenn að
ganga til liðs því hægt er að bæta
við mönnum í allar raddir. (Sjá
nánar auglýsingu í blaðinu.)
Undirleikari Karlakórs Ákur-
eyrar er hinn góðkunni Ingimar
Eydal.
Atli Guðlaugsson.
Blomberq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup i nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
% ■■ NÝLAGNIR
(©mAf sr
Kaupangi v/Mýrprveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Kápur og kjolar stór númer.
Úlpur og stakkar margar gerðir.
Glansgallar tvær tegundir.
Barnaföt í úrvali
Sængurverasett
og handklæði.
Útlit
fyrir að
blaðamenn
semji
Kjarnanefnd Blaðamanna-
félags íslands og samninga-
nefnd útgefenda sátu á fundi
í „Karphúsinu" fram til
klukkan að ganga tvö í nótt.
Þá var fundi slitið án þess að
samningar hafi náðst, en lítið
ber í milli, að sögn eins
samningamanns úr röðum
blaðamanna. Að hans sögn
er ekki annað séð en samn-
ingar náist fyrir helgina, áður
en boðað verkfall blaða-
manna kemur til 'fram-
kvæmda. Samkomulag hefur
náðst um launaliðina, en
ágreiningur er um hvort
fyrsíu hækkanirnar eiga að
koma til framkvæmda við
undirskrift, eins og útgefend-
ur vilja, eða hvort þær eiga
að reiknast frá l. september,
eins og blaðamenn vilja.
- GS.
„Sýningarnar hafa gengið vel,
við erum alls ekki óánægð þar
sem fjölmiðlar hafa ekki kom-
ið út og við þar af leiðandi ekki
getaö auglýst sýninguna sem
skyldi, en þrátt fyrir það er
ekki undan neinu að kvarta.
Sumir telja að vöntun á sjón-
varpi og útvarpi hefði átt að
auka aðsóknina, en við teljum
að svo hafi ekki orðið. Stærst-
ur hluti okkar áhorfenda þarf
þá hvatningu sem gjarnan felst
I auglýsingum í fjölmiðlum.“
Theodór Júlíusson, leikari hjá
L.A., svaraði þessu til þegar við
hittum hann á förnum vegi og
spurðum um gang sýninga á
Einkalífi, sem nú er á fjölunum
hjá Leikfélaginu.
„Við erum búin að sýna fjórum
sinnum, aðsókn hefur verið ágæt
og undirtektir mjög góðar. Sýn-
BORNIN
Börnin eiga auðvitað að vera i belt-
um eða barnabílstólum í aftursæt-
inu og barnaöryggislæsingar á
huröum. “1FERÐAR
dir
ingin hefur slípast og jafnast
mjög mikið frá því sem var á
frumsýningu og verkið er farið að
leikast mun betur,“ sagði Theo-
dór að lokum. HS
UJ
D
Sigurðar Gubmuudssomrhf.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Singer sauma- og pijónavélakynning og sýning
* v Prjónar flnl oð
k gróft garn, m«ö
w Jafnri og fallepn
áfarö («inn»ð lopa).
Margvialeg
mun3lur*prj0n og
litaprjón. Hrlngpr|ón og
klukkuprJOn. Prjónar aokka.
halla I haal og tá Hafur tvó
nálaborö úr málml 360 nátum
alts. Hefur ainníg tvöfaldan bandtalöir.
prjónavél
verður í verslun
vorri föstudaginn
26. október.
Leiðbeint verður um notkun
og gefin góð ráð. Einnig er
fyrirhugað námskeið í
meðferð prjónavéla
laugardag 27. október.
Nánarí upplýsingar verða
gefnar í versluninni
föstudag 26. október.
Jám- og glervörudeild.