Dagur - 24.10.1984, Blaðsíða 9

Dagur - 24.10.1984, Blaðsíða 9
24. október 1984 - DAGUR - 9 Akureyrarsamningarnir samþykktir með naumum meirihluta: Rúmlega 20% hækkun - sé miðað við 12. launaflokk út samningstímabilið Samkvæmt Akureyrarsamn- ingnum, sem undirritaður var aðfaranótt föstudags, hækka laun starfsmanna Akureyrar- bæjar um 3% 1. september og síðan um 7% frá undirritun samninga, sem gilda til ársloka 1985, bæði aðal- og sérkjara- samningur. „Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé sáttur við þessa samninga, sérstak- lega vegna þess hvað lítill meiri- hluti reyndist fyrir þeim innan fé- lagsins,“ sagði Erlingur Aðal- steinsson, formaður samninga- nefndar STAK, í samtali við Dag eftir að úrslit í atkvæðagreiðslu STAK um nýgerðan kjarasamning við Akureyrarbæ lágu fyrir. „Pað má segja að sömu vandamál- in séu ennþá til staðar innan félags- ins,“ sagði Erlingur, „og við höfum ekki fengið þá leiðréttingu sem við ætluðum okkur. Við lögðum á það áherslu að fá að komast í sérkjara- samning, auk þess sem við vildum fá inn í samninginn einhverja tryggingu gagnvart þróun í efnahagsmálum þjóðarinnar á samningstímanum. Við þessu vildi viðsemjandi okkar flokkar um 800 krónur og aftur um sömu upphæð 1. maí 1985. 1. nóvember nk. verður greidd sér- stök persónuuppbót að upphæð 4.500 kr. Þá er gert ráð fyrir að launakerfi Akureyrarbæjar verði endurskoðað fyrir 1. júlí á næsta ári. Gerð var bókun um m.a. ein- földun og samræmingu starfsald- ursreglna, endurmat á ýmiss kon- ekki verða og þar við sat. Fleira kem- ur til og það er greinilegt þegar litið er á úrslit atkvæðagreiðslunnar, að stór hluti félagsmanna í STAK er sáróánægður með sín laun. Og fé- lagslega séð er mjög erfitt eftir tveggja vikna verkfall, að ekki næst meiri samstaða um gerða samninga en raun varð á. En úr því sem komið er verðum við að vona að bókun sem fylgdi samningnum, um endur- skoðun á launakerfi bæjarins og samanburð við kjör á almennum vinnumarkaði, gangi í gegn fljótt og vel, þannig að við getum komist í viðræður um þessi mál á samnings- tímabilinu." - Nú virtist vera rekinn harður áróður fyrir því að fella samningana, m.a. var samþykkt ályktun þess efnis á kynningarfundi félagsins sl. laugar- dag. Þá ályktun samþykktu um 50 ar álögum og að samdar verði reglur til viðmiðunar við röðun í launaflokka. Þá verði gerð sam- anburðarkönnun á vinnumarkaði á Akureyri og endurskoðað það starfsmatskerfi sem nú er notað við röðun í launaflokka. Kynningarfundur var haldinn um samningana kl. 16 á laugar- dag í Húsi aldraðra og atkvæða- fundarmenn, en hún var komin frá einum fundarmanna, Sigurði Jóns- syni, starfsmanni húsameistara. 3 fundarmenn greiddu atkvæði gegn þessari ályktun, en 80 manns sátu hjá. Þrátt fyrir þetta verður niður- staðan sú, að samningurinn er sam- þykktur. Hvers vegna, höfðu samn- ingarnir við bókagerðarmenn þar einhver áhrif? „Það er nú einu sinni þannig í slík- um tilvikum, að það heyrist hærra í þeim sem vilja fella samninga heldur en þeim sem vilja samþykkja þá. Ég hygg að ástæðan fyrir því að svo margir sátu hjá á fundinum hafi verið sú, að þeim hafi þótt óeðlilegt að taka opinbera afstöðu til samning- anna tveim dögum áður en almenn atkvæðagreiðsla átti að fara fram. Samninganefndin kynnti samninginn á fundinum á hlutlausan hátt, en síð- greiðsla fór fram á skrifstofu STAKS á mánudag frá kl. 10-22. Miðað við 12. launaflokk er reiknað með að í lok samnings- tímabilsins verði um að ræða rúmlega 20% kauphækkun, sam- kvæmt þessum samningi. Hækk- un er minni í efri launaflokkum, þar sem krónutöluhækkanirnar vega þar minna. an kom þessi ályktun frá einum fund- armanna. Hvað varðar samning bókagerðarmanna, þá held ég að hann geti ekki hafa haft afgerandi áhrif á úrslit atkvæðagreiðslunnar. Þó get ég ekkert staðhæft í því sam- bandi.“ - Nú hefur stór hluti félagsmanna í STAK unnið í verkfallinu, t.d. hjúkrunarfólk og slökkviliðsmenn, en samt sem áður geta þessir starfs- hópar haft á það úrslitaáhrif hvort aðrir félagsmenn eru í verkfalli og þar með kauplausir í lengri eða skemmri tíma. Þetta fyrirkomulag hefur verið gagnrýnt, sérstaklega af þeim sem voru í verkfalli. Þarf ekki að gera þarna einhverjar breytingar? „Það er rétt, þetta hefur verið gagnrýnt, og ég held að sú gagnrýni hafi orðið til þess að þátttaka hjúkr- unarfólksins var minni í atkvæða- greiðslunni heldur en hinna starfs- hópanna. Þetta er eitt félag og félags- menn verða að standa saman í kjara- baráttunni. En ég tel að hægt verði að jafna þennan mun með því að þeir sem vinna greiði verulegar upphæðir af launum sínum í verkfallssjóð, svo sem eins og 25% af föstum launurn. Þannig held ég að þessir hópar styðji hvern annan í kjarabaráttunni.“ - Nú hefur það heyrst, að þeir sem unnu í verkfallinu megi búast við að dregið verði af launum þeirra í verkfallssjóð við næstu útborgun. Er það rétt? „Nei, það verður ekki gert, þó hugsanlega sé til þess heimild. Hins vegar munum við óska eftir frjálsum framlögum frá þeim félögum í STAK sem fá óskert laun á meðan verkfall- ið stóð. Þetta er mjög eindregin ósk, sett fram til að milda launatap þeirra sem voru í verkfalli, og það er mjög mikilvægt fyrir okkur félagslega að sem flestir sjái sér fært að verða við þessum óskum,“ sagði Erlingur Aðalsteinsson í lok samtalsins. - GS „Ánægður með að verkfalli er lokið“ — segir Helgi M. Bergs ..F.g er anæaður með að það skuli vcra búið að' semja. en að oðru leyti vil égekki tja tnig ittn innihald þess- arr;i sanmingu." sagði Helgi M. Bergs. bæjarstjóri. i samtali við Dag. Hn hvað þvða þessir samning- ar fvrir Akureyrarbæ; verður s;i út- gjaldaauki sem þeir hafa i fiir með sér til þess að þjónusta bæjarins hækki íverði og skattheimta aukist. ..I’essir samningar þvða nattúr- lega það sama fvrir Akureyrarbæ eins og fvrir starfsmennina; það ræðst allt af verðbólguþróuninni næstu mánuði. Þjónusta bæjarins sem bæjarbúar greiöa fyrir beint keniur ekki til með að hækka sem bcin afleiðing þessarra samninga. heldur miklu frekar sent afleiðing aukinnar verðbðlgu. Og við reynum að mæta þessum útgjaldaauka án þess að leggja aukna skatta á bæjar- búa.” -1 Iver finnst þér vera rcynslan af þeim tveim verkföllum sem opin- berir starfsmenn hafa fariö í? ..Fyrirkomulag í kjaradeilum op- inberra starfsmanna er náttúrlega ekki gallalaust frekar en önnur mannanna verk, raunar er það að mörgu lcyti mjög gallaö. En þetta er einungis annaö verkfallið og vonandi læra menn af reynsl- unni. því undanfarna áratugi hafa nienn verið að draga einhverja lær- dóma af reynslunni á almennum vinnumarkaði. Þeir sem standa i dcilum opinberra starfsmanna hafa varla haft tíma til þess ennþá. Svo ég nefni dæmi um vankantana held ég að það þvrfti að vera í lögum. að það væri ein samninganefnd sveitar- félaganna. sem semdi við eina samninganefnd af hálfu starfs- mannafélaganna. Ég held að það sé útilokað að vera með þetta svona eins og það er, enda er eðlilegt að kjör opinberra starfsmanna séu svipuð urn allt land. Einnig held ég að það sé galli á þcssu fyrirkomu- lagi. að sáttasemjara sé skylt að leggja fram sáttatillögu. Ég held að það sé alveg klárt í þcssu tilviki, að sáttatillagan var ótímabær. Nú, og þegar út í vcrklall er komið hafa verið skiptar skoðanir um ýmis framkvæmdaatriði milli deiluaðila, sem verður að koma á hreint." - Hvað með það fyrirkomulag, að fjölmennir starfshópar halda áfram vinnu. en geta samt haft úr- slitaáhrif á það hvort verkfall stcnd- ur lengri eða skemmri tíma? „Þetta er ákaflega erfitt atriði til úrlausnar. Það er óeðlilegt að þeir sem eru í fullri vinnu geti haldið öðrum í verkfalli til að bcrjast fyrir sig. Verði farin sú leið, að taka at- kvæðisréttinn af þeim sem vinna, má búast við að þeir sem eru í verk- falli geti níðst á þeim. Við þessu er engin leið. nema þá að draga úrallri vinnu eins og mögulegt er. Þeir sem hér er um að ræða starfa flestir á sjúkrahúsum og þá vaknar sú spurn- ing í huga manns hvort hægt sé að draga meira úr þjónustu þar þegar til verkfalla kentur. En ég þekki það mál ekki nægilega vel til að geta fullyrt um það," sagði Helgi Bergs í lok samtalsins. GS. SKRÍPALEIKUR sagði einn fundarmanna að loknum kynningarfundi STAK Um 130 manns sóttu kynn- ingarfundinn sem efnt var til í Húsi aldraðra á laugardag um Akureyrarsamninginn. Fundurinn breyttist í ályktun- arfund, sem ekki er óþekkt fyrirbæri á þessum slóðum og var samin ályktun gegn sam- þykki samningsins. Hún var samþykkt af 48 en 3 voru á móti. Þorri fundarmanna sat hjá við afgreiðsluna. „Þessi kynningarfundur sner- ist í skrípaleik. Fundarsköp voru brotin með því að gera kynningarfund ályktunarhæfan. Þetta varð líkast sellufundi hjá Alþýðubandalaginu. Það er ekki nema um helmingur félaga í STAK í verkfalli og það er auðvelt fyrir hina, sem vinna t verkfallinu, að segja þeim sem eru tekjulausir að halda bara áfram í verkfalli og krefjast ennþá meiri launahækkana,“ sagði einn fundarmanna, sem ekki tók þátt í atkvæðagreiðsl- unni á STAK-fundinum á laug- ardag. Talið er að samningurinn hafi í för með sér frá 14-22% hækkun. Þrátt fyrir þá launa- jöfnun sem hann hefur í för með sér, vegna jafnra peninga- launahækkana á alla flokka, eykst bilið milli t.d. 15. og 30. launaflokks um rúmlega 1.200 kr. og bilið milli hæsta og lægsta flokks um einar 3 þúsund krónur, samkvæmt upplýsing- um sem blaðið hefur aflað. HS 1. janúar hækka allir launa- STAK-félagar biðu með eftirvæntingu eftir úrslitum í atkvæðagreiðslunni um kjarasamninginn. „Margir sáróánægðir“ - segir Erlingur Aðalsteinsson, formaður samninganefndar STAK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.