Dagur - 05.11.1984, Side 3

Dagur - 05.11.1984, Side 3
Verður starfsháttum skólanna breytt? „íslenskt skólakerfí hefur síð- ustu áratugina verið rekið á magnmælingum og ef það er rétt skólastefna þá er að sjálf- sögðu alveg nauðsynlegt að bæta upp það sem tapast hefur núna,“ sagði Sturla Kristjáns- son fræðslustjóri í Norður- landsumdæmi eystra er við ræddum við hann um áhrif verkfalls BSRB og hugsanleg- ar leiðir til þess að bæta nem- endum upp það sem tapast hefur á meðan verkfallið stóð yfir. „Ef einungis er horft á stunda- fjölda og mínútur og lesnar blað- síður er Ijóst að það er útilokað að missa sjötta eða sjöunda hlut- ann án þess að það sé bætt upp. En vilji menn horfa á einhver önnur gildi, breyta um gildismat á skólagöngunni, þá tel ég það al- veg til umræðu að það megi breyta starfsháttum skólanna án kostnaðar og ná jafngóðum ár- angri. En þetta er grundvallar- ákvörðun, hvort einhverju á að kosta til eða hvort gefin er út yfir- lýsing um það eða fyrirmæli til fræðslustjóra að brjóta eitthvað upp í skólastarfinu og leita nýrra leiða til að ná árangri á skemmri tíma.“ Þetta sagði Sturla Kristjáns- son, en samkvæmt heimildum Dags er mikill vilji til þess meðal skólamanna, að nemendum verði bætt það kennslutap sem þeir urðu fyrir í verkfalli BSRB. Skólameistarafélagið hefur þegar sent menntamálaráðuneytinu áskorun um að taka upp laugar- dagskennslu og það má búast við því að skólastjórar og kennarar grunnskólanna fari fram á svipað. Eeir skólamenn sem Dag- ur ræddi við voru ekki vissir um afstöðu menntamálaráðherra, en þeir töldu víst að Albert segði nei, ef Ragnhildur gerði það ekki, þar sem fjármálaráðherra yrði að segja síðasta orðið í þess- um efnum, vegna þess kostnaðar- auka sem laugardagskennsla hefði í för með sér. „Mér sýnist ekki þörf á auka- kennslu hér, því við skipulögðum starf nemenda strax í upphafi mánaðarins og vorum auk þess svo lánsamir að missa ekki nema 9 daga úr kennslu vegna verk- fallsins,“ sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, í samtali við Dag. Hann var spurður um þau grund- vallarviðhorf sem Sturla minntist á; hvort hægt sé að leita nýrra leiða í skólastarfi til að ná árangri á skemmri tíma en nú er. „Það er náttúrlega ljóst, að á lengri tíma og með meiri vinnu, þá næst betri árangur. En auðvit- að er þetta háð miklu fleiri at- riðum, eins og t.d. aðbúnaði í skólanum, þar á meðal fjölda í bekkjardeildum, og þar að auki bætast við kjör kennara. Árangur og ánægja í námi eru því háð fleiru en tímanum einum,“ sagði Tryggvi Gíslason. GS/gk-. Skólanefnd Dalvíkurskóla: Þungar ávirðingar í garð bæjarstjórnar - en liggur sökin hjá skólanefndinni? Nokkuð sérstakt mál er kom- ið upp á Dalvík milli bæjar- stjórnar og skólanefndar Dal- víkurskóla. Á fundi skóla- nefndar þann 26. september sl. er tekið fyrir bréf frá kenn- arafundi í Dalvíkurskóla, þar sem seinagangur í uppbygg- ingu skólans er harmaður. Tekur skólanefndin í einu og öllu undir þetta bréf og skellir skuldinni á bæjarstjórn. I svari bæjarstjóra vegna þessa máls er hins vegar bent á að ef við einhvern sé að sakast þá sé það við skólanefndina sjálfa. í bréfi kennarafundarins segir orðrétt: „Nú þegar kennarar mæta til starfa, er ljóst að frágangi hús- næðis er engan veginn lokið og stofnbúnaður sá sem nauðsyn- legur telst er ekki kominn utan Ijósmyndavélar. Á fjárhags- áætlun bæjarins fyrir 1983 var samþykkt framlag sem síðan var skorið niður að mestu eða öllu leyti. Fundurinn harmar þá með- ferð sem uppbygging skólans hefur verið látin sæta og fer fram á að nú þegar verði staðið við fyrrnefnda samþykkt í fjár- hagsáætlun Dalvíkurbæjar fyrir árið 1984.“ í bókun skólanefndar segir m.a.: „Skólanefnd tekur í einu og öllu undir bréf kennarafund- ar og harmar hversu slælega hefur verið staðið að fram- kvæmdum varðandi lokafrá- gang þess byggingaráfanga skól- ans sem þegar er risinn. Jafn- framt vill skólanefnd benda á að ekkert samráð hefur verið haft við nefndina af bæjarstjórnar hálfu varðandi framgang verks- ins á árinu 1984.“ Þessu hefur Stefán Jón Bjarnason, bæjarstjóri svarað á eftirfarandi hátt: Vitnað er til þess að í fjárhagsáætlun bæjar- ins fyrir 1983 hafi verið sam- þykkt framlag til skólabygging- arinnar sem síðan hafi verið skorið niður að mestu eða öllu leyti. Hið rétta er að á árinu 1983 var áætlað að framkvæma fyrir 900 þúsund krónur en var í reynd framkvæmt fyrir rúm 880 þúsund. Í fjárhagsáætlun fyrir 1984 var samþykkt framkvæmdafé ein milljón og jafnframt sam- þykkt að skólanefnd fengi um- rætt fé til ráðstöfunar án frekari afskipta bæjaryfirvalda og var það gert í samráði við skóla- stjóra og formann skólanefnd- ar. í bókun skólanefndar frá 10. apríl 1984 segir orðrétt um þennan lið: „Skólanefnd sam- þykkir að því fjármagni sem ætlað er til fjárfestingar fyrir skólann á fjárhagsáætlun Dal- víkurbæjar verði skipt þannig: Frágangur innanhúss; 443 þús. kr., stofnbúnaður 330 þúsund, lóð og teikningar 227 þús. kr. eða samtals ein millj. kr. . . .“ Þessi bókun skólanefndar fór síðan athugasemdalaust í gegn- um fund bæjarstjórnar og verð- ur því að teljast í hæsta máta ósanngjörn og ástæðulaus setn- ing í bókun skólanefndar frá 26. september . . . Hér má öllum vera ljóst að verið er að ásaka aðila sem nefndin sjálf gerði ómerkan og hefur því eðlilega ekkert haft með verkið að gera . . .“ í lok greinargerðar sinnar vekur bæjarstjóri athygli á að í ár sé búið að verja um 600 þús- und krónum til verklegra fram- kvæmda í skólanum, 100 þús- und krónum til teiknivinnu og nteð kaupum á stofnbúnaði sé búið að verja alls 888 þúsund kr. á árinu og framkvæmdir standi enn yfir. - ESE 5. nóvember 1984 - DAGUR - 3 SIEMENS heimilistæki stór og smá. Heimsþekkt gæðavara. Komið og gerið kjarakaup í nýju versluninni Raf í Kaupangi. NÝLAGNIR VIDGEROIR VERSLUN Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400. Verslið hjá fagmanni. Orðsending til rjúpnaveiðimanna Veiöileyfi í löndum Skógræktar ríkisins í Eyja- fjarðar- og Þingeyjarsýslum eru seld í verslun Brynjólfs Sveinssonar, Skipagötu 1, Akureyri. Þar eru veittar nánari upplýsingar. Skógrækt ríkisins. Hnéháir ullarsokkar, hvítir. Fóðraðir vinnugallar, stxrðir so-se. Haglaskot í miklu úrvali. Bláu stígvélin lágu frá Viking komin aftur. Stærðir 35-42. Verð kr. 550.- Útsalan heldur áfram Ujj Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 • simi 22275 ..... ... — . Auglýsing i Degí BORCAR SIC Hvaö er góö auglýsing? Allir auglýs- endur borga fyrir aö fá auglýsingu birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa fyrirtaeki þá vöru sína? Jú, til þess að hún seljist. Þannig er hægt að láta auglýsingu borga sig. En þaðer ekki sama í hvaða blaöi auglýst er, því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa lesendur. Dagur hefur aftur á móti mikla útbreiðslu og lesendur eru fjölmargir. Það borgar sig því að auglýsa íDegi. þar erú allar auglýsingar lýsingar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.