Dagur - 05.11.1984, Síða 3
Verður starfsháttum
skólanna breytt?
„íslenskt skólakerfí hefur síð-
ustu áratugina verið rekið á
magnmælingum og ef það er
rétt skólastefna þá er að sjálf-
sögðu alveg nauðsynlegt að
bæta upp það sem tapast hefur
núna,“ sagði Sturla Kristjáns-
son fræðslustjóri í Norður-
landsumdæmi eystra er við
ræddum við hann um áhrif
verkfalls BSRB og hugsanleg-
ar leiðir til þess að bæta nem-
endum upp það sem tapast
hefur á meðan verkfallið stóð
yfir.
„Ef einungis er horft á stunda-
fjölda og mínútur og lesnar blað-
síður er Ijóst að það er útilokað
að missa sjötta eða sjöunda hlut-
ann án þess að það sé bætt upp.
En vilji menn horfa á einhver
önnur gildi, breyta um gildismat
á skólagöngunni, þá tel ég það al-
veg til umræðu að það megi
breyta starfsháttum skólanna án
kostnaðar og ná jafngóðum ár-
angri. En þetta er grundvallar-
ákvörðun, hvort einhverju á að
kosta til eða hvort gefin er út yfir-
lýsing um það eða fyrirmæli til
fræðslustjóra að brjóta eitthvað
upp í skólastarfinu og leita nýrra
leiða til að ná árangri á skemmri
tíma.“
Þetta sagði Sturla Kristjáns-
son, en samkvæmt heimildum
Dags er mikill vilji til þess meðal
skólamanna, að nemendum verði
bætt það kennslutap sem þeir
urðu fyrir í verkfalli BSRB.
Skólameistarafélagið hefur þegar
sent menntamálaráðuneytinu
áskorun um að taka upp laugar-
dagskennslu og það má búast við
því að skólastjórar og kennarar
grunnskólanna fari fram á
svipað. Eeir skólamenn sem Dag-
ur ræddi við voru ekki vissir um
afstöðu menntamálaráðherra, en
þeir töldu víst að Albert segði
nei, ef Ragnhildur gerði það
ekki, þar sem fjármálaráðherra
yrði að segja síðasta orðið í þess-
um efnum, vegna þess kostnaðar-
auka sem laugardagskennsla
hefði í för með sér.
„Mér sýnist ekki þörf á auka-
kennslu hér, því við skipulögðum
starf nemenda strax í upphafi
mánaðarins og vorum auk þess
svo lánsamir að missa ekki nema
9 daga úr kennslu vegna verk-
fallsins,“ sagði Tryggvi Gíslason,
skólameistari Menntaskólans á
Akureyri, í samtali við Dag.
Hann var spurður um þau grund-
vallarviðhorf sem Sturla minntist
á; hvort hægt sé að leita nýrra
leiða í skólastarfi til að ná árangri
á skemmri tíma en nú er.
„Það er náttúrlega ljóst, að á
lengri tíma og með meiri vinnu,
þá næst betri árangur. En auðvit-
að er þetta háð miklu fleiri at-
riðum, eins og t.d. aðbúnaði í
skólanum, þar á meðal fjölda í
bekkjardeildum, og þar að auki
bætast við kjör kennara. Árangur
og ánægja í námi eru því háð
fleiru en tímanum einum,“ sagði
Tryggvi Gíslason. GS/gk-.
Skólanefnd Dalvíkurskóla:
Þungar ávirðingar í
garð bæjarstjórnar
- en liggur sökin hjá skólanefndinni?
Nokkuð sérstakt mál er kom-
ið upp á Dalvík milli bæjar-
stjórnar og skólanefndar Dal-
víkurskóla. Á fundi skóla-
nefndar þann 26. september
sl. er tekið fyrir bréf frá kenn-
arafundi í Dalvíkurskóla, þar
sem seinagangur í uppbygg-
ingu skólans er harmaður.
Tekur skólanefndin í einu og
öllu undir þetta bréf og skellir
skuldinni á bæjarstjórn. I
svari bæjarstjóra vegna þessa
máls er hins vegar bent á að
ef við einhvern sé að sakast
þá sé það við skólanefndina
sjálfa.
í bréfi kennarafundarins segir
orðrétt:
„Nú þegar kennarar mæta til
starfa, er ljóst að frágangi hús-
næðis er engan veginn lokið og
stofnbúnaður sá sem nauðsyn-
legur telst er ekki kominn utan
Ijósmyndavélar. Á fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir 1983 var
samþykkt framlag sem síðan
var skorið niður að mestu eða
öllu leyti.
Fundurinn harmar þá með-
ferð sem uppbygging skólans
hefur verið látin sæta og fer
fram á að nú þegar verði staðið
við fyrrnefnda samþykkt í fjár-
hagsáætlun Dalvíkurbæjar fyrir
árið 1984.“
í bókun skólanefndar segir
m.a.: „Skólanefnd tekur í einu
og öllu undir bréf kennarafund-
ar og harmar hversu slælega
hefur verið staðið að fram-
kvæmdum varðandi lokafrá-
gang þess byggingaráfanga skól-
ans sem þegar er risinn. Jafn-
framt vill skólanefnd benda á að
ekkert samráð hefur verið haft
við nefndina af bæjarstjórnar
hálfu varðandi framgang verks-
ins á árinu 1984.“
Þessu hefur Stefán Jón
Bjarnason, bæjarstjóri svarað
á eftirfarandi hátt: Vitnað er til
þess að í fjárhagsáætlun bæjar-
ins fyrir 1983 hafi verið sam-
þykkt framlag til skólabygging-
arinnar sem síðan hafi verið
skorið niður að mestu eða öllu
leyti. Hið rétta er að á árinu
1983 var áætlað að framkvæma
fyrir 900 þúsund krónur en var
í reynd framkvæmt fyrir rúm
880 þúsund.
Í fjárhagsáætlun fyrir 1984
var samþykkt framkvæmdafé
ein milljón og jafnframt sam-
þykkt að skólanefnd fengi um-
rætt fé til ráðstöfunar án frekari
afskipta bæjaryfirvalda og var
það gert í samráði við skóla-
stjóra og formann skólanefnd-
ar. í bókun skólanefndar frá 10.
apríl 1984 segir orðrétt um
þennan lið: „Skólanefnd sam-
þykkir að því fjármagni sem
ætlað er til fjárfestingar fyrir
skólann á fjárhagsáætlun Dal-
víkurbæjar verði skipt þannig:
Frágangur innanhúss; 443 þús.
kr., stofnbúnaður 330 þúsund,
lóð og teikningar 227 þús. kr.
eða samtals ein millj. kr. . . .“
Þessi bókun skólanefndar fór
síðan athugasemdalaust í gegn-
um fund bæjarstjórnar og verð-
ur því að teljast í hæsta máta
ósanngjörn og ástæðulaus setn-
ing í bókun skólanefndar frá 26.
september . . . Hér má öllum
vera ljóst að verið er að ásaka
aðila sem nefndin sjálf gerði
ómerkan og hefur því eðlilega
ekkert haft með verkið að
gera . . .“
í lok greinargerðar sinnar
vekur bæjarstjóri athygli á að í
ár sé búið að verja um 600 þús-
und krónum til verklegra fram-
kvæmda í skólanum, 100 þús-
und krónum til teiknivinnu og
nteð kaupum á stofnbúnaði sé
búið að verja alls 888 þúsund
kr. á árinu og framkvæmdir
standi enn yfir. - ESE
5. nóvember 1984 - DAGUR - 3
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NÝLAGNIR
VIDGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Orðsending
til rjúpnaveiðimanna
Veiöileyfi í löndum Skógræktar ríkisins í Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslum eru seld í verslun
Brynjólfs Sveinssonar, Skipagötu 1, Akureyri. Þar
eru veittar nánari upplýsingar.
Skógrækt ríkisins.
Hnéháir ullarsokkar, hvítir.
Fóðraðir vinnugallar, stxrðir so-se.
Haglaskot í miklu úrvali.
Bláu stígvélin
lágu frá Viking komin aftur.
Stærðir 35-42. Verð kr. 550.-
Útsalan
heldur áfram
Ujj Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 • simi 22275
..... ... — .
Auglýsing i Degí
BORCAR SIC
Hvaö er góö auglýsing? Allir auglýs-
endur borga fyrir aö fá auglýsingu
birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtaeki þá vöru sína? Jú, til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En þaðer
ekki sama í hvaða blaöi auglýst er,
því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sig því að auglýsa íDegi.
þar erú allar auglýsingar
lýsingar.