Dagur - 05.11.1984, Page 9
5. nóvember 1984 - DAGUR - 9
Það var eins og við manninn
mælt. Fyrsti vetrardagur rétt
genginn í garð, þegar einhver
ótætis lægðin opnaði himnana og
logndrífa færði Norðurland í kaf.
Fullorönir bölvuðu en blessuð
börnin sem hafa tvístigið í skóla<
leysinu fögnuðu ákaft. . .
Á meðan handhafar öku-
skírteina brutust leiðar sinnar á
blikkbeljum, reistu börnin sér
hallir og verkfallsverðir afmynd-
uðu Albert og Lucy í snjó. Mátti
vart á milli sjá hvor var meiri
skelfír, Albert fannhvíti eða
snjómaðurinn hræðilegi.
Á hjólbarðaverkstæðum ríkti
ringulreið. Gatslitnir sumarbarð-
arnir voru ýmist afskrifaðir eða
seltir í farangursgeymsluna. í
hjólförin komu vetrarbarðarnir,
harðirnaglar, reiðu- ---------
búnir til að takast á
við snjóinn, hálkuna
og Vetur konung. ‘
Guðjón Ás- \ é
nmndsson, verk- j
stæðisformaður hjá |
Gúmmíviðgerðinni fj I
á Óseyri, líkti
ástandinu við brjál-
æði.
- Það hefur verið
Það var örtröð
fyrir utan Gúininí-
viðgerð KEA, líkt
og hjá öðrum hjól-
barðaverkstæðum og
ekki voru lætin minni
innan dyra
gera í dag og senni
lega vinnum við til
miðnættis, sagði
hann um leið og
hann umfelgaði af
mikilli list.
Á meðan snjón-
renna hjólbarðarnir
út eins og heitar
lummur. Sólaður
vctrarglaðningurinn
kostar frá 1.200 til
2.000 kr. stykkið og
auðvitað eru naglar
innifaldir. En nú fer
hver að verða síðastur. Að vísu
er mér sagt að Albert sé að skrifa
undir samninga á þessari stundu,
þegar þetta er skrifað en það
breytir því ekki að það er lítið af
börðum til í bænum. Kannski
gerir það ekkert til - bensinið er
nefnilega á þrotum.
Myndir og texti: ESE
Krakkarnir í
Brekkugötunni
slógu ekki
slöku viö
TI ; * ||
jlíl
: |P