Dagur - 05.11.1984, Qupperneq 12
DABUlí
RAFGEYHAR
i BtUH BÁ1HL VUWUVtllHA
MERKI
Togarar Útgerðarfélags Skagfirðinga:
Aflaverðmætið
102 milljónir króna
- Kvótar duga til áramóta
Togarar Útgerðarfélags Skag-
firðinga eru búnir með þann
þorskkvóta sem þeim var út-
hlutað á þessu ári. Eftir eiga
togararnir um 900 tonna
þorskígildi af öðrum fiskteg-
undum sem lausiega áætlað
gæti svarað til um 1.200 til
1.300 tonna afla af ýsu, kola,
karfa, grálúðu, steinbít og
ufsa.
Ofangreindar upplýsingar fékk
blaðamaður Dags hjá Bjarka
Tryggvasyni, framkvæmdastjóra
útgerðarfélagsins. Að sögn
Bjarka ætti þetta magn að duga
togurunum fram að hátíðum en
þess ber að geta að Hegranesið er
í slipp á Akureyri. Aflaverðmæti
Sauðárkrókstogaranna frá ára-
mótum fram til þessa dags er um
102 milljónir króna.
- Við höfum getað haldið uppi
fullri dagvinnu í frystihúsinu með
því að skipuleggja og stytta út-
haldstíma togaranna. Það er
stefnan að halda þessu út árið og
allt bendir til þess að það ætti að
takast, sagði Bjarki Tryggvason.
- ESE
Háttí
400 án
síma í
verk-
fallinu
Hátt í fjögur hundruð sím-
notendur á Norðurlandi
vorú án almennrar síma-
þjónustu í nýafstöðnu verk-
falli BSRB. Þetta eru þeir
sem enn hafa handvirka
síma en símstöðvarstjórar
sinntu einungis neyðarþjón-
ustu í verkfallinu.
Að sögn Ársæls Magnús-
sonar, umdæmisstjóra Pósts
og síma er handvirkur sími
enn í Öxnadal, Hörgárdal,
Bárðardal og Öxarfirði á
Norðurlandi eystra og á
Skaga, Hólahreppi, Rípur-
hreppi og Viðvíkurhreppi á
Norðurlandi vestra.
- Ég held að þrátt fyrir að
almennri þjónustu hafi ekki
verið sinnt í verkfallinu, hafi
ástand í símamálum almennt
verið nokkuð gott og engin
kvörtun hefur enn borist
vegna neyðarþjónustunnar.
Öllu því sem kalla mátti lækn-
isþjónustu var umsvifalaust
sinnt og sama er að segja um
aðra neyðarþjónustu, sagði
Ársæll Magnússon. - ESE
Samtök um jafnrétti milli landshluta:
Fylkjaskipu-
lagi verði komið
á í landinu
Samtök um jafnrétti milli
landshluta halda almenna
fundi á Norðurlandi eystra um
þessar mundir til að kynna
starfsemi sína og sjónarmið,
ásamt því að afla nýrra félaga
til starfa.
Samtökin vinna gegn miðstýr-
ingu í þjóðfélaginu, sem einkum
hefur hlaðist upp á Reykjavíkur-
svæðinu. Þeir vilja að fólkið og
samtök þeirra hver á sínum stað
fái að ráða sínu eigin aflafé.
Stjórnarskráin verði endur-
skoðuð með það að markmiði að
landsbyggðin og Reykjavík fái að
njóta þess sem aflað er á hverjum
stað. Það verði best gert með
fylkjaskipulagi. Fylkin ákveði
skatta og útsvör í samráði við Al-
þingi og sveitarfélögin og ráðstafi
einnig tekjunum í samræmi við
hagsmuni íbúanna á hverjum
stað.
Nokkrir fundir hafa þegar ver-
ið haldnir, jf.á m. á Dalvík, í
Breiðumýri, á Þórshöfn. Raufar-
höfn, Kópaskeri og Húsavík.
Fyrirhugaður var fundur á Ólafs-
firði í kvöld og lokafundurinn
verður annað kvöld á Hótel KEA
á Akureyri og hefst kl. 21. HS
Nú er kalt á mönnum og fuglum, þótt skammt muni í hlýindi. Endurnar á
polli sínum taka ávallt feginsgoggi viö brauðbita, ekki síst í kaldri vetrartíð.
Mynd: KGA
Trúnaðarmaður kennara í Lundarskóla:
„Býst við að til
uppsagna komi“
- ef árangur í sérkjarasamningum verður lítill
„Það er afskaplega lítið hljóð
í kennurum hér eftir þessa
samninga,“ sagði Helgi Már
Eggertsson kennari og trúnað-
armaður kennara í Lundar-
skóla er við ræddum við hann
í tilefni samnings BSRB og
ríkisins.
„Við vitum ekki hvað sérkjara-
samningur kemur til með að gefa
af sér, það er okkar eina von að
við fáum einhverja leiðréttingu
þegar gengið verður frá honum.
Sérkjarasamningurinn er laus
núna strax og við eigum von á
einhverri leiðréttingu fyrir ára-
mót. Það hefur verið talsvert rætt
um það á Alþingi hvað þyrfti að
gera vel við kennara en um út-
komuna er ógerlegt að spá.
Ef árangur í sérkjarasamning-
um verður lítill, þá býst ég fast-
lega við að til uppsagna komi,“
sagði Helgi Már, en þess má geta
að allir kennarar Lundarskóla
hafa ritað undir viljayfirlýsingu
þess efnis að þeir séu tilbúnir til
uppsagna fái þeir ekki verulega
breytingu á kjaramálum sínum.
„Það er ekki um miklar
breytingar að ræða á Norður-
landi næstu daga,“ sagði
Bragi Jónsson veðurfræð-
ingur í morgun.
„Það verður hægviðri fyrir
norðan eða í mesta lagi aust-
angola. Ekki verður um úr-
komu að ræða og allt bendir
til þess að það verði léttskýj-
að. Hitastig verður svipað og
veriö hefur,“ sagði Bragi
veðurfræðingur.
# Græddi
Albert?
Mikið er nú rætt um það hvað
hver og einn hafi grætt mikið
eða tapað miklu í verkföllum
BSRB og bókagerðarmanna.
Einn skemmtilegur punktur
kom upp í einum slíkum um-
ræðum - sá að eftir allt sam-
an hefði Albert ekki þurft að
tapa neinu, ef hann hefði eitt-
hvert vit á peningamálum,
heldur hefði hann getað stór-
grætt á öllu saman. Skýringin
er sú, að i verkfaili greiddi
hann starfsmönnum ríkisins
ekki laun, eins og ríkisstarfs-
menn vita best. Ef Albert
hefði nú álpast til að setja
þessa fúlgu á bankareikning,
en eins og allir vita slást
bankarnir nú um að bjóða
hagstæðustu kjörin, þá hefði
kallinn komið út úr þessu
með stórhagnaði. Hver veit
nema Albert hafi einmitt gert
þetta? Bjargað þar með
sökkvandi skútunni?
# Vissi betur
„Ég hef trú á því að næsta ár
verði mjög gott - það hlýtur
bara að vera, eftir undan-
gengin hallæri,“ sagði Jón
Sólnes, þegar hann hafði
samband á dögunum. Þetta
var nú reyndar ekki tilefni
þess að hann hringdi, heldur
vildi hann aðeins benda á að
þegar hann hafi greitt at-
kvæði gegn breytingu á
kjarasamningi, sem rætt var
um í næstsíðasta Helgar-
Degi, hafi hann ekki með því
orðið til þess að breytingin
komst í gegn. Sitt atkvæði
hefði engu breytt þar. Reglur
þær sem gilda um atkvæða-
greiðslu með nafnakalli væru
þær, að allir teldust greiða at-
kvæði, hvort sem þeir væru
með, móti eða segðu að þeir
greiddu ekki atkvæði. Hjá
bæjarstjórn Akureyrar giltu
um þetta sömu reglur og á Al-
þingi. Hefði atkvæðagreiðsl-
an hins vegar farið fram með
handauppréttingu, þá hefði
eitt atkvæði á móti og fimm
með, þegar fimm sátu hjá,
orðið til þess að málið hefði
verið samþykkt. Fimm með
en sex hjásetur heföu fellt
málið vegna ónógrar þátt-
töku í atkvæðagreiðslunni.
Um slíkt væri hins vegar ekki
að ræða þegar um nafnakall
væri að ræða. Auðvitað veit
Jón þetta, fyrrverandi alþing-
ismaður, bæjarfulltrúi um
margra ára skeið og - mátu-
legur bragðarefur til að hafa
slík mál á hreinu.