Dagur - 12.11.1984, Side 6

Dagur - 12.11.1984, Side 6
6 - DAGUR - 12. nóvember 1984 12. nóvember 1984 - DAGUR - 7 Enska knattspyrnan: BIKARINN ÁFRAM í UVERPOOL? Everton stefna ótrauðir að meistaratitlinum Enn sem komið er bendir fátt til þess að enski meistaratitill- inn sé á leiðinni úr borginni Liverpool. Á meðan meistar- arnir sjálfir dóla um miðja deild halda erkifjendurnir, Everton, uppi merkinu. Liðið hefur nú leikið 19 teiki í röð í deildinni, deildarbikarnum og Evrópukeppni án ósigurs. Á laugardaginn náði Everton svo þriggja stiga forystu ■ deildinni með naumum sigri í Lundún- um á West Ham. Fyrri hálfleikurinn var ekki rismikill og engu líkara en að Everton ætlaði að gera sig ánægt með jafnteflið. í þeim seinni lifn- aði yfir leiknum og varð fótbolt- inn að sama skapi mun betri. Um miðjan hálfleikinn sótti West Ham grimmt og bæði Paul Godd- ard og Tony Cottee voru þuml- ungum frá því að skora. 11 mínút- um fyrir leikslok náði Everton sókn sem endaði með marki. Sharp og Heath léku í gegnum vörn West Ham og þeirri sókn lauk með skoti þess síðarnefnda en Tom McAllister náði að verja. Hann hélt ekki boltanum sem rann fyrir fætur Heath á ný og kauði lét ekki slíkt færi fara for- görðum. Góður sigur í höfn í leik sem þótti heldur slakur. Arsenal var í öðru sæti fyrir leikina á laugardaginn og þurfti á sigri að halda gegn Aston Villa á heimavelli. En það fór á aðra leið. Villa náði að skora strax á áttundu mínútu þegar Paul Birch stakk sér inn fyrir Arsenal-vörn- ina sem hafði blundað ögn á verðinum. En áður en blásið var til leikhlés hafði Arsenal jafnað með marki Paul Mariner af fimm metra færi. í seinni hálfleik hélt Mervin Day liði sínu á floti með stórgóðri markvörslu. Arsenal hefur því einungis fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum. Enn bjargar Strachan United Bragðmesta steikin á laugardag var sennilega á Filbert Street í Leicester þar sem heimamenn fengu Manchester United í heim- sókn. 24 þúsund áhorfendur fengu heil fimm mörk fyrir pund- in sín. Eftir25 mínútna leik hafði United náð forystunni. Remi Moses lék Alan Brasil frían. Brasil fékk markvörðinn út á móti sér og skaut góðum lágbolta í markhornið, 1:0. Tíu mínútum síðar jafnaði Leicester með skallamarki Ian Banks. Mark Hughes, strákurinn sem heldur gullkálfunum Frank Stapleton og Norman Whiteside fyrir utan United-liðið, kom sínum mönnum 2:1 yfir. En Leicester- liðið barðist af krafti og sjö mínútum fyrir leikslok náði Gary Lineker að jafna. Jafntefli hefði verið sanngjörnustu úrslitin en tveim mínútum fyrir leikslok handlék einn varnarmanna Leic- ester boltann á marklínu og dóm- arinn dæmdi réttilega vítaspyrnu. Gordon Strachan skoraði af ör- yggi úr spyrnunni og er þetta í annað sinn í sömu vikunni að Strachan skorar úrslitamarkið úr vítaspyrnu. Á miðvikudag skor- aði hann úr vítaspyrnu í Evrópu- leik gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven eftir að dómarinn hafði framlengt leikinn. Tottenham heppnir á City Ground Pað gengur hvorki né rekur hjá Brian Clough og félögum hjá Nottingham Forest. Á laugardag var Tottenham í heimsókn og laumaðist á brott með öll stigin þrjú. Forest hefur nú aðeins krækt í einn sigur í síðustu tíu leikjum. Prátt fyrir tapið lék For- est ágætan bolta og Ray Clem- ence mátti hafa sig allan við til að koma spöðunum fyrir skot og skalla leikmanna Forest. Fyrri hálfleikur var markalaus, ein- göngu vegna frammistöðu Clem- ence sem varði þrívegis meistara- lega. Á 54. mínútu kom Mike Hazard Spurs á bragðið með góðu marki af 20 metra færi eftir hornspyrnu. Peter Davenport náði að jafna og var svo aftur á ferð í námunda við vítateig Spurs en að þessu sinni náði Clemence að slæma hendi í boltann og bjarga meistaralega. Sigurmarkið gerði Tony Galvin sem annars átti slakan dag. Hann fann eyðu vinstra megin í vörn Forest og átti ekki í vandræðum með að koma knettinum fram hjá mark- verðinum. Ennþá einu sinni átti Hollendingurinn hjá Forest Johnny Metgod snilldarleik með liði sínu. Gary Stevens átti og góðan leik með Spurs. Loks sigur hjá Watford Pað hlaut að koma að því að Watford færi að sigra. Hvað eftir annað hefur liðið skorað þrjú mörk í leik en annað hvort tapað eða gert jafntefli á síðustu mín- útu. Watford var miklu betra en spuntniklið Sunderland og þó einkum og sér í lagi í vörninni sem hefur verið þeirra Akkilesar- hæll. í vikunni keypti liðið John McLelland frá Rangers og það gerði gæfumuninn í leiknum. McLelland átti frábæran leik. Kenny Jeckett kom Watford yfir með skringilegu marki. Hann hugðist senda fyrir mark Sunder- land en Chris Turner markvörður misreiknaði boltann sem hafnaði í markinu. David Hogdson jafn- aði fyrir Sunderland. En tvö mörk hjá Watford, Steve Perry og Warren Sterland tryggðu lið- inu fyrsta heimasigurinn í langan tíma. Liverpool var mörgum árgerð- um betri en Southampton á heimavelli sínum, en mátti sætta sig við 1:1 jafntefli. Ian Rush náði forystunni fyrir Liverpool og reiknuðu flestir með því að fleiri mörk fylgdu í kjölfarið. En Peter Shilton var aldeilis í banastuði í markinu. Hvað eftir annað hirti hann bolta sem voru á leið í netið. Rétt áður en dómarinn flautaði leikinn af náði South- ampton sinni annarri sókn í leiknum og Joe Jordan plataði Grobba í markinu og jafnaði leikinn. Það vekur athygli hvað QPR virðast slakir um þessar mundir. Á miðvikudaginn var þeim sparkað út úr Evrópukeppninni og á laugardaginn tókst þeim að- eins að ná í eitt stig í 0:0 leik gegn Sheffield Wednesday. Par með hefur QPR aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum. Það hlýtur að vera heitt undir bossanum á stjóranum Alan Mullery sem virðist á góðri leið með að eyði- leggja liðið. Stoke eru kyrfilega staðsettir á botninum og þeir riðu ekki feit- um hesti frá viðureigninni við WBA. Albion vann 2:0 með mörkum Steve Hunt og Steve McKenzie. Coventry tókst að bera sigur úr býturn í viðureign- inni gegn Ipswich. Mick Adams náði að skora eina mark leiksins seint í leiknum. Tvö af liðunum sem komu upp úr annarri deild Chelsea og Newcastle áttust við á heimavelli síðarnefnda liðsins. Newcastle vann 2:1 með mörkum Neil McDonald og Chris Waddle. Kerry Dixon sá mikli markaskorari minnkaði muninn fyrir Chelsea. Luton er enn á hættusvæðinu eftir ósigurinn í Norwich 0:3. Peter Bentham, Asa Hartford og Dave Gordon sáu um að lúskra á Luton, sem tapar ævinlega á útivelli. í annarri deild missti Oxford niður tveggja marka forystu gegn Schrewsbury. Leiknum lauk 2:2. John Aldridge gerði bæði mörk Oxford en brenndi auk þess af víti í leiknum. Portsmouth vann Notts County auðveldlega og gerði Scott McGarvey tvö mörk fyrir liðið en McGarvey þessi lék meðal annars á Akureyrarvelli fyrir nokkrum árum með Man. Utd. - AB Miklar framkvæmdir á svæði KA við Lundarskóla Knattspymufélag Akureyrar boðadi á dögunum til fundar í Félagsmiðstöð KA í Lundar- skóla, og var bæjarfulltrúum, íþróttaráðsmönnum og bæjar- starfsmönnum boðið til fund- arins. Efni fundarins var að ræða uppbyggingu þá sem átt hefur sér stað á félagssvæði KA og framhald þar á. Framkvæmdir á félagssvæði KA hófust 1975 með gerð malar- vallar sem tekinn var í notkun 1977. Á næstu árum var unnið að gcrð grasvaliar sem tekinn var í notkun 1982. í t'yrrahaust var svo hafist handa um byggingu gras- vailar sem var þökulagður í sumar. Pað kom fram hjá forráða- ntönnum KA aö þeir hafa átt mjög gott samstarf við Akureyr- arbæ og starfsmenn bæjarins og var það samstarf þakkað. Þá hafa sjálfboðaliðar verið drjúgir við að leggja sitt af mörkum við upp- bygginguna og hafa lagt fram yfir 10 þúsund vinnustundir. Talið er að framkvæmdakostnaður við uppbyggingu svæðisins nemi nú um 11,5 milljónum króna. Á fundinum gerðu forráða- menn KA grein fyrir hugmynd- um sínum um áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Félagið óskar eftir nýju svæði austan við núverandi svæði þar sem ætlunin er að koma upp sparkvöllum. Pá er vakin athygli á nauðsyn þess að byggja upp áhaldageymslu þar sem einnig yrði vinnuaðstaða og kaffistofa starfsmanna vallanna og er þessari byggingu ætlaður staður í norðausturhorni núver- andi svæðis félagsins. • Pá vöktu forráðamcnn KA á fundinum athygli á nauðsyn þess að ráðist verði í byggingu íþrótta- húss við Lundarskóla og ræddu það mál við fundarmenn. Mögu- leiki er talinn vera á því að hefj- ast fyrst handa við byggingu stjórnunarálmu við skólann, en þar í kjallara yrðu búningsklefar og sturtur. Sú aðstaða er mjög ófullkomin í dag. Fundurinn var mjög gagnlegur að mati KA-manna, bæjarfull- trúar sýndu mikinn skilning á þeim málum sem félagið lagði höfuðáherslu á og væntir KA áframhaldandi góðs samstarfs við bæjaryfirvöld að sögn forráða- manna félagsins. Þórarinn Sigurðsson brýst hér í gegnum vörn Reynis og nokkuð virðist aug- Ijóst að hann hyggur á körfuskot. Mynd: KGA SÆT1R SIGRAR - hjá Þór gegn Reyni Þór vann tvo sæta sigra á liði Reynis frá Sandgerði er tiðin mættust í fyrstu deildarkeppn- inni í körfuknattleik á Akur- eyri um helgina. Tveir öruggir sigrar sem voru svo sannarlega uppreisn æru fyrir Þórsara sem töpuðu fyrsta leiknum í deild- inni - fyrir Reynismönnum með aðeins eins stigs mun. Þór - Reynir 94:82 Konráð Óskarsson átti mjög góð- an leik fyrir Þór að þessu sinni. Hann skoraði fyrstu körfuna og Pórsarar náðu að komast í 5:0. Reynismenn sigu á og í fyrri hálf- leik var yfirleitt mjög mikill barn- ingur. Staðan í hálfleik var 40:39 Þór í vil. í seinni hálfleik sigu Þórsarar svo fram úr og náðu mest 14 stiga forskoti undir lok leiksins. Þórs- arar sigruðu svo með 12 stiga mun, 94:82. Konráð skoraði 24 stig, Jón Héðinsson 18, Björn Sveinsson 16, Þórarinn Sigurðs- son 15, Guðmundur Björnsson 12, Jóhann Sigurðsson 5, og Stef- án Friðleifsson 4. Gamli landsliðsmaðurinn Sturla Örlygsson var langbestur Reynismanna og skoraði 36 stig. Þór - Reynir 98:90 í þessum leik náðu Þórsarar strax yfirhöndinni og sigldu fram úr. í hálfleik voru þeir tíu stigum yfir 48:38 og í byrjun seinni hálfleiks jókst munurinn enn og þegar 3 mínútur voru til leiksloka höfðu Þórsarar 18 stiga forskot. Þegar hér var komið sögu hafði Eiríkur þjálfari lofað flestum leikmanna Þórs að koma inn á og Reynis- menn náðu aðeins að rétta úr kútnum undir lokin. Söxuðu á forskotið og þegar upp var staðið var munurinn átta stig. 98:90 fyr- ir Þór. Björn var stigahæstur Þórsara með 22 stig, Konráð 21, Jóhann 17 og Guðmundur 11. Aðrir skoruðu minna. í þessum leikjum vakti annars ungur nýliði Hólmar Ástvaldsson, mikla athygli. Átti mjög góðan leik í vörn og sókn þegar hann kom inn á. Stigahæstur Reynismanna: Sturla 34 stig. - ESE „Megum sennilega þakka fyrir að fá að vera með“ - segir Jón Héðinsson, Þórsari - Þetta gekk hjá okkur en það var ansi skrykkjótt á köflum, sagði Jón Héðinsson, reynd- asti leikmaður Þórsliðsins í samtali við Dag eftir leikina gegn Reyni. Jón lék þarna sína fyrstu leiki fyrir Þór í vetur og munar svo sannarlega um minna, ekki síst í vörninni þar sem Jón gefur aldrei tommu eftir. - Ég er ánægður með það að menn tóku sig saman og reyndu að spila almennilega vörn. Við lékum þarna gegn miklu baráttu- liði, eins og öll Suðurnesjaliðin eru og það má því ekki mikið bera út af til þess að illa fari. - Er ekki blóðugt að hafa tap- að fyrir Reyni í Sandgerði með einu stigi? - Jú, ég skil eiginlega ekki hvernig strákunum tókst að tapa þeim leik. Jón Héðinsson. - Nú hefur Þór leikið fjóra leiki í vetur og þar af þrjá gegn Reyni. Hvað þykir mönnum um þessa niðurröðun? - Þetta er auðvitað ákaflega kjánalegt en við verðum að hafa það í huga að verkfallið setti mótið úr skorðum og eins vilja liðin að sunnan leika tvo leiki við okkur þegar þau koma norður. Staðreyndin er sú að þessi lið vilja ekki koma oftar hingað og við verðum að sætta okkur við þetta fyrirkomulag. Sennilega megum við bara þakka fyrir að fá að vera með í þessu Reykja- víkur- eða Suðurnesjamóti sem íslandsmótið er orðið í dag. Lið úr dreifbýlinu eiga ekki annarra kosta völ en að samþykkja allt sem að þeim er rétt, sagði Jón Héðinsson, en það sem hann ótt- ast mest í vetur er reynsluleysi leikmanna Þórsliðsins. - Ég er tíu árum eldri en næst elsti maður liðsins og það vantar nauðsynlega eitthvað til að fylla í þetta tóm. En ef strákarnir berj- ast í vörninni þá ættum við ekki að þurfa að kvíða vetrinum, sagði Jón Héðinsson. - ESE Tildrög þess að Haraldur fór utan ásamt unnustu sinni, eru þau að þegar Haraldur keppti á Evrópumeistaramótinu á Spáni, hrifust forráðamenn Baltic Club mjög af frammistöðu hans og eft- ir mótið buðu þeir honum að koma og æfa í Málmey. - Við kunnum ágætlega við okkur hérna, sagði Haraldur í samtali við Dag nú um helgina. - Þetta er búið að vera ansi stíft. Miklar æfingar sem hafa komið nokkuð niður á tækninni en auk þess sitjum við á skólabekk og lærum sænsku öllum stundum. Haraldur og unnusta hans eru flokkuð sem innflytjendur í Sví- þjóð og fá þau því laun á meðan á sænskunáminu stendur. Þau komast ágætlega af og að sögn Haraldar getur hann nú einbeitt sér að lyftingunum. - Ég æfi yfirleitt fimm sinnum í viku en auk þess keppi ég með B-liði klúbbsins í annarri deild- inni í lyftingum hér. Ég er ekki gjaldgengur í A-liðið sem keppir í Allsvenskan, þar sem ég er ekki sænskur ríkisborgari. Ég get unn- Haraldur Ólafsson æfir nú stíft í Svíþjóð. Mynd:ESE Haraldur Ólafsson æfir og keppir í Svíþjóð: „Læri sænsku og lyfti mikið“ Haraldur Ólafsson, lyftinga- maðurinn kunni frá Akureyri hefur undanfarna mánuði dvatið við æflngar og keppni í lyftingum í Svíþjóð. Haraldur keppir fyrir Baltic Club í Málmey sem er einn sterkasti lyftingaklúbbur Svíþjóðar. ið mér þennan þátttökurétt eftir að ég held tveggja ára búsetu hér og ætti þá að vera sjálfsagður í A- liðið, sagði Haraldur og bætti því við að enn sem komið væri, ætti hann talsvert eftir til að kom- ast í sitt besta form. - Ég hef ver- ið að byggja mig upp og stefni að því að standa mig vel á Sweden Cup í Stokkhólmi í janúar og Norðurlandamótinu sem haldið verður í Óðinsvéum í apríl. Þá verð ég líklega á toppi, sagði Haraldur, sem jafnframt bað fyr- ir kveðjur til ættingja og vina á Akureyri. - ESE 1—X—2 . Úrslit leikja á getraunaseðlinum: Arsenal-A. Villa 1:1 Coventry-Ipswich 1:0 Leicester-Man. Unt. 2:3 Newcastle-Chelsea 2:1 Norwich-Luton 3:0 Nott. For.-Tottenham 1:2 Watford-Sunderland 3:1 WBA-Stokc 2:0 West Ham-Everton 0:1 Blackburn-Brighton 2:0 Man. City-Birmingham 1:0 Schrewsbury-Oxford 2:2 Staðan í Englandi rffiír5- & l í “A . 4 . 3V “fi- ; A! » • > »4 . .. . . . , 1 A Everton. 1. deild Everton Man. Utd. Arsenal Tottenham West Ham Sheff. Wed Southampton Newcastle Sunderland Norwich Chelsea WBA Liverpool Nott. For. Ipswich Aston Villa Coventry OPR Luton Watford Leicester Stoke 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 14 13 14 14 14 13 2 3 5 2 2 4 1 5 28:18 30:16 29:21 29:15 20:20 25:17 17:15 28:27 22:18 21:19 22:15 22:18 16:15 21:20 17:18 18:28 12:20 19:24 17:29 29:33 20:33 11:29 29 26 26 25 22 22 21 21 20 20 19 19 18 18 16 16 15 15 13 12 12 7 2. deild Oxford 13 9 3 1 Portsmouth 14 9 3 2 Blackburn 14 8 3 3 30:12 30 23:12 30 28:13 27 Settu fjóra leiki á - en Höllin var fullbókuð! Engir leikir eru hjá meistaraflokkum KA og Þórs í handknattleik um þessa heigi. Reyndar voru einhverjir gáfumenn hjá mótanefnd HSÍ búnir að setja eina fjóra leiki á um helgina en af þeim getur ekki orðið af skiljanlegum ástæðum. Kapparnir hjá HSÍ ætluðu að senda Gróttu og HK í leiki gegn KA og Þór og án þess að ræða við Pétur eða Pál voru leikdagar ákveðnir föstudagur og laugar- dagur. Það sem snillingarnir gleymdu hins vegar að athuga var hvort þlöHin væri laus. Þvf fór fjarri. Körfuknattleikur á föstu- dagskvöld og „turnering" í körfu á laugar- dag en köppunum fyrir sunnan fannst sem sagt ekkert sjálfsagðara en að „dreifbýlis- höllin“ væri laus þegar þeim sýndist svo. - ESE

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.