Dagur - 19.11.1984, Síða 1

Dagur - 19.11.1984, Síða 1
Húsgögn fyrir Verkmenntaskólann: Lítill áhugi hjá íslenskum framleiðendum - Þessar dræmu undirtektir koma mér svo sannarlega á óvart. Ég átti von á mun meiri viðbrögðum, sagði Magnús Garðarsson, eftirlitsmaður með byggingu Verkmennta- skólans í samtali við Dag, er hann var spurður um viðbrögð framleiðenda og innflytjenda við óskum um tilboð í húsgögn fyrir bókmenntaálmu skólans. skólans að kaupa innflutt hús- gögn í skólann. Þótti framleið- endum hér heima gengið freklega á sinn hlut og ákvörðun bygg- ingarnefndar væri frekleg móðg- un við íslenskan iðnað. Því var brugðið á það ráð að hafa sam- band við framleiðendur að þessu sinni og óskað var eftir svörum fyrir júnílok. Innan við fjórðung- ur þeirra sem leitað var til sá ástæðu til að svara. Byggingin þýtur i upp Af 18 innflytjendum og fram- leiðendum sem skrifað var til, svöruðu aðeins fjórir, þar af þrír sem bjóða innflutta vöru. Eins og mönnum er í fersku minni urðu á sínum tíma mikil læti vegna þeirrar ákvörðunar byggingarnefndar Verkmennta- - Miðað við fyrri viðbrögð þá kemur þetta óneitanlega mjög á óvart. Hér er um að ræða hátt á annað þúsund borð og stóla fyrir bóknámsálmuna sem fyrirhugað er að flytja inn í næsta haust, sagði Magnús Garðarsson. - ESE Mikill munur á fasteignaverði Söluverð íbúðarhúsnæðis á stærstu þéttbýlisstöðunum utan höfuðborgarsvæðisins er einungis 50-70% af söluverði íbúða í höfuðborginni. Hæst er verðið á Suðurnesjum og á Akureyri, 69% á Akureyri og 70% á Suðurnesjum af höfuð- borgarverðinu. I minni sveitarfélögum er fast- eignaverð ennþá lægra en á þess- um stærri stöðum, eða á bilinu frá 50-60% af söluverði í Reykjavík. Á minnstu þéttbýlis- stöðunum er söluverð íbúða jafn- vel ennþá lægra en þetta, sam- kvæmt upplýsingum Fasteigna- mats ríkisins. Hin „öfuga“ byggðaþróun sem verið hefur undanfarin ár á vafalaust mestan þátt í þessu, en hún hefur valdið spurnarþenslu á svæðinu. mikilli eftir- höfuðborgar- - HS Félagsmenn í Náttúrulækn- ingafélaginu, vinir og vel- unnarar fögnuðu um helgina merkum áfanga í sögu fé- lagsins. Á Iaugardagsmorg- un voru fánar dregnir að húni á byggingu Náttúru- lækningafélagsins í Kjarna- skógi og teist byggingin nú næstum fokheld. Hressingarhælið í Kjarna- skógi er samtals um 2.400 fermetrar að stærð, á fjór- um hæðum og hefur bygg- ingin öll verið reist fyrir gjafafé. Húsið hefur kostað um 6.6 milljónir króna eins og það er í dag en talið er að verðmætið sé um helmingi meira. Mynd: ESE. Skip við landfestar: Rafmagn dýrara Þrátt fyrir það að innfluttir orkugjafar séu dýrir hafa margir útgerðarmenn komist að þeirri furðulegu niður- stöðu að ódýrara sé að keyra Ijósavélar skipanna, þegar þau liggja við bryggju, heldur en að fá rafmagn úr landi. Rafmagnsverðið er orðið það hátt að útgerðarmenn telja að þannig sé málið vaxið. Hins vegar kostar það ýmislegt um- stang að keyra ljósavélarnar í landlegum, t.d. þurfa vélamenn þá að vera á vakt, meira og minna. Því hefur reyndin verið sú að rafmagn hefur oftast verið keypt úr landi, þrátt fyrir að það sé dýrari kostur en að keyra ljósavélarnar á olíunni. Rafmagn er eitthvað mis- munandi dýrt til þessara nota en þetta mun eiga við um t.d. Ak- ureyri og Ólafsfjörð, að sögn Sverris Leóssonar, formanns Útvegsmannafélags Norður- lands. HS Afleiðing prentaraverkfallsins: Starfsmenn hafna verkefninu ,,Mér finnst þetta út í bláinn. Ég er búinn að vinna fyrir stéttarfélagið í ein 20 ár og þessu líkt hefúr aldrei komið upp á. Ég sé ekki betur en starfsmenn séu búnir að taka yfír stjóm fyrirtækisins og eig- endur ráði því ekki lengur fyrir hverja er unnið,“ sagði Hörð- ur Svanbergsson, prentari, þegar Dagur innti hann eftir því að hann fékk ekki inni með verkefni í Prentverki Odds Björnssonar vegna ágreinings hans við Félag bókagerðar- manna. Hörður rekur fyrirtækið HS- vörumiða og fjölskylda hans vinnur þar með honum ásamt einum öðrum starfsmanni, en ekkert þeirra er í FBM. Starfs- menn í POB telja að um brot sé að ræða og vilja að starfsmenn hjá Herði verði í Félagi bóka- gerðarmanna, enda vinni þeir við prentstörf. Hörður telur að svo þurfi ekki að vera og hefur fyrir sér álit lögfræðings Félags ís- lenskra iðnrekenda, sem hann hefur nú gengið í. „Ef einhver Ólafsfjörður: Uggvænlegt atvinnuástand Á fundi bæjarráðs Ólafsfjarðar á dögunum þar sem rætt var um atvinnulcysisskráningu, kom fram að þar sem atvinnuleysi hefur stóraukist frá sl. ári hefur öll vinna við skráningu og út- greiðslur vaxið að sama skapi. Er nú svo komið að umsaminn vinnutími þess manns sem hefur haft þennan starfa með höndum dugar hvergi tU að sinna þessum verkefnum og hefur bæjarstjóra Ólafsfjarðar og fleiri aðilum verið falið að finna lausn á þessu máli. Ástandið í atvinnumálum Ól- afsflrðinga er vægast sagt dapurt. Þar hafa að jafnaði ver- ið 28 manns á atvinnuleysisskrá alla daga fyrstu 10 mánuði árs- ins og tveir verstu mánuðir árs- ins voru þá eftir. „Þetta eru miklu hærri tölur en við sáum á síðasta ári og var ástandið þó ekki gott þá,“ segir Valtýr Sigurbjamarson bæjar- stjóri í Ólafsflrði í samtali við Dag. „Við eram þó ekki að bera saman gott ár, árið 1983 var slæmt ár hér í Ólafsfírði en nú tekur steininn úr.“ í samtali Dags við Valtý Sig- urbjarnarson kemur fram að á vegum Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar og Fjórðungssambands Norðlendinga er unnið að möguleikum á frekari vinnslu sjávarafurða í Ólafsfírði. Þar kemur einnig fram að bygging Iðngarða í Ólafsfírði sem kostar um 5 milljónir króna hefur ekki skilað nema tveimur atvinnu- tækifærum í iðnaði enn sem komið er. - Sjá bls. 3. minna starfsmanna er í FBM má hann ekki vinna með ófaglærðu fólki sem ekki er í sama félagi. Nú er enginn í þessu félagi og því er ekki um neitt ólöglegt at- hæfi að ræða,“ sagði Hörður. „Starfsmenn mínir tjáðu mér að þeir myndu ekki vilja vinna að verkefnum frá þessu fyrirtæki nema þeim yrði skipað að gera svo. Hér er um eitt lítið verkefni að ræða eftir nokkurt hlé á við- skiptum við HS-vörumiða og ég víl ekki stofna góðu samstarfi við mína starfsfélaga í hættu vegna máls, sem ætti að vera hægt að fá botn í. Auk þess væri hægt að komast framhjá þessu með því að HS-vörumiðar fengju viðskipta- vin þann sem um ræðir til að leggja fram verkbeiðnina, í stað þess að HS-vörumiðar geri það,“ sagði Bjarni Sigurðsson, einn eig- enda POB. Pess má geta að í samkomulagi milli FBM og FÍP, sem POB er aðili að, segir að fyrirtæki innan FÍP styðji hvert annað eftir þörf- um og getu og þeim sé óheimilt að veita fyrirgreiðslu þeim fyrir- tækjum sem starfa að prentiðn og standa utan FÍP. - HS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.