Dagur - 19.11.1984, Blaðsíða 12
Glæsilegt skip í Eyjafjarðarflotanum:
„Við erum ekkert á
pví að gefast upp“
- Aðalástæðan fyrir því að við
kaupum þetta skip er sú að út-
haldið var orðið mikið og við
þurftum að sækja langt og að-
staðan í gamla Arnþóri var
ekki bjóðandi við þær aðstæð-
ur. Úthaldið verður svo sem
svipað en nú getum við boðið
mönnunum betri aðbúnað,
sagði Hermann Guðmunds-
son, skipstjóri og einn eigenda
G. Ben sf. á Árskógssandi sem
nýlega festi kaup á fiskiskipinu
Valdimar Sveinssyni VE 22
frá Vestmannaeyjum.
Par með hefur glæsilegur far-
kostur bæst við eyfirska flotann,
Arnþór EA 16, 150 lestir, smíð-
aður í Þýskalandi 1962 og endur-
byggður í Vestmannaeyjum fyrir
tveim árum.
- Pað er mikill munur að fá
þetta skip. Við förum á línu og
það er gífurleg hagræðing að hafa
beitingarvél um borð, sagði
Hermann er hann sýndi blaða-
manni Dags skipið.
- En er ekki mikil bjartsýni að
ráðast í þessi kaup nú þegar séð
er að fiskveiðistefnan verður
óbreytt á næsta ári frá árinu í ár?
- Auðvitað er það bjartsýni en
við höfum staðið í þessu í 21 ár
og erum ekkert á því að gefast
upp og með þessu móti ættum við
að geta tryggt okkur hráefni fyrir
saltfisk- og skreiðarverkunina
sem við rekum á Árskógssandi.
- Hvað með kvótamálin?
- Skipið var með um 800
tonna kvóta fyrir þetta ár, miðað
við slægðan fisk en nú eru um 150
tonn eftir. Sá kvóti nýtist okkur
hins vegar illa, vegna þess að það
er mestmegnis ufsi sem er eftir.
Bæði er lítið af ufsa um þessar
mundir og eins höfum við engin
tök á að verka hann, segir Her-
mann og bætir því við að nýja
skipið muni samt örugglega bæta
verulega úr hráefnisstöðunni.
- ESE
Gaf rúmar
tvær millj-
ónir kr.
Steindór Pálmason, fyrrum
bóndi á Þelamörk í Hörgárdal
síðar smiður og húsvörður á Ak-
ureyri gaf Náttúrulækningafclag-
inu stórgjöf sl. haust. Steindór
lét þá af hendi rakna rúmar tvær
Hækkanir á fasteignum:
m
Erlingur Davíðsson.
25. bók
Erlings
Davíðssonar
- Við verðum sennilega að
fara að heiðra Erling líkt og
gert er í fótboltanum þegar
landslrðsmenn ná merkis-
áfanga, sagði Svavar Otte-
sen í samtali við Dag í tilefni
af því að innan tíðar kemur
út hjá Skjaldborg 25. bók
Erlings Davíðssonar.
Það er bók úr bókaflokkn-
um Með reistan makka sem
markar þessi tímamót Erlings
Davíðssonar. Erlingur skrifaði
sína fyrstu bók árið 1972 en
það var fyrsta bindið af Aldnir
hafa orðið. Sá bókaflokkur
hefur notið mikilla og vaxandi
vinsælda undanfarin ár. Fyrir
jólin kemur út 13. bókin í
þessum bókaflokki en Erl-
ingur vinnur um þessar mund-
ir að 14. bindinu, en það bíður
jólanna 1985. - ESE
Arnþór EA - Hermann Guömundsson í brúnni á innfelldu myndinni.
Mynd: ESE
milljónir króna til byggingar
heilsuhælisins í Kjarnaskógi en
það lætur nærri að Steindór hafi
þannig gefið um einn þriðja
byggingarinnar eins og hún er í
dag.
Þetta kom fram í máli Laufeyj-
ar Tryggvadóttur formanns Nátt-
úrulækningafélagsins er hún lýsti
byggingarsögu hælisins við hátíð-
lega athöfn sl. laugardag. Sagði
Laufey að þannig hefði þessi
bygging verið reist fyrir gjafafé
og henni væri sannkölluð ánægja
að skýra frá því að Aldís á
Stokkahlöðum sem nýlega hélt
upp á 100 ára afmæli sitt hefði
ákveðið að gefa félaginu 50 þús-
und krónur í tilefni af aldaraf-
mælinu. - ESE.
Raunvirði hækkar
vel umfram söluverð
A síðasta ári voru hækkanir á
söluverði fasteigna minni en
mörg undanfarin ár. Hækkun
á söluverði íbúðarhúsnæðis er
áætluð nálægt 15% á tímabil-
inu frá október 1983 til sama
tíma í ár. Hækkunin er mjög
hliðstæð fyrir höfuðborgar-
svæðið og landið utan þess þó
að hækkunin hafi gengið
ójafnt yfir eftir landsvæðum.
Á höfuðborgarsvæðinu hækk-
aði söluverð íbúðarhúsnæðis
mest í lok janúar og febrúar en
frá þeim tíma hefur verð að
mestu staðið í stað. Utan þess
svæðis hefur hækkunin gengið
jafnar yfir.
Að mati Fasteignamats ríkisins
hafa í raun orðið meiri hækkanir
á fasteignaverði en hækkun
heildarverðs gefur til kynna.
Lækkuð verðbólga hefur í för
með sér hækkun á raunvirði fast-
eigna að öðrum þáttum óbreytt-
um. Ástæða hækkunarinnar felst
í því að greiðslur, serr^inntar eru
af hendi eftir nokkra mánuði frá
gerð kaupsamnings rýrna nú ekki
eins mikið og áður. Að mati
FMR má reikna áhrif lækkaðrar
verðbólgu til að minnsta kosti
9% hækkunar raunvirðis.
Samanlagt valda hækkun
heildarverðs og áhrif minnkaðrar
verðbólgu 25% hækkun á raun-
virði íbúðarhúsnæðis samkvæmt
þessu.
ÚtUt er fyrir hæga austanátt,
nánast logn, í dag og jafnvel
næstu daga og hitastig verður
um frostmark eins og verið
hefur. Einhver þokuslæðingur
verður hér og þar, en ekki þó í
eins miklum mæli og í gær.
Samkvæmt upplýsingum
veðurstofunnar má búast við
veðurbreytingum um miðja
vikuna með vaxandi austanátt,
sem jafnvel gæti þróast í norð-
austanátt. Þó vildi veðurfræð-
ingurinn ekki útiloka neina
möguleika í þeim efnum.
„Þegiðu,
skömmin
þín
i«
Hver þekkir það ekki að eiga
þá ósk heitasta á morgnana
að helvítis vekjaraklukku-
fjandinn gæti þagað örlítið
lengur, bara smá stund.
Sjaldnast verður manni að
ósk sinni - helsta ráðið er að
þagga niður í gripnum til
frambúðar með því að fleygja
honum í næsta vegg. En það
er dýrt til lengdar. Nú er málið
leyst. Þeir Jón Eðvarð og
Reynir, rakarafeðgar, eru
nefnilega komnir með í sölu
einn mikinn merkisgrip, fág-
aða rafefndaklukku. Hún
hringir með lágværu, tillits-
sömu kvaki, en hættir um-
svifalaust ef henni er sagt að
þegja. Já, bara að segja þeg-
iðu - og hún þagnar. En ekki
til lengdar því að fjórum
mínútum liðnum byrjar hún
aftur. Nenni menn ekki á fæt-
ur strax er bara að ávarpa
hana á ný - og hún þagnar.
En smátt og smátt færir hún
sig upp á skaftið - verður
háværari og háværari - en
þagnar þó alltaf sé henni sagt
að gera svo. Hún hættir ekki
að reyna að vekja fyrr en hún
er lamin á kollinn - þ.e.
stöðvuð með hefðbundnum
hætti. Ef þetta verður ekki
jólagjöfin í ár, hvað þá?
BSÉGI
# Þetta með
hattinn
Það eru sennilega ekki allir
sem vita til hvers Húsvíking-
ar eru með höfuð. Við getum
upplýst það hér með að það
er vegna þess að ekki er
hægt að leggja það á þá grey-
in að ganga alltaf með hattinn
í hendinni.
- Tveir svona húsvískir
hattamenn hittust á förnum
vegi og annar þeirra óskaði
hinum til hamingju með ný-
fætt barn hans. „Takk fyrir,“
sagði pabbinn. „Gettu hvort
það var strákur eða stelpa.“ -
Var það strákur, sagði hinn?
„Nei,“ sagði pabbinn. - Ætli
það hafi þá ekki verið stelpa?
sagðl hinn drýgindalega. „Jú,
hvernig gastu eiginlega getið
upp á þessu,“ svaraði pabb-
inn alveg öldungis hissa.
# Slekkur aldrei
Af einum Húsvíkingi heyrð-
um vfð sem kom tvisvar í
viku tií að kaupa rafhlöður í
útvarpið sitt. „Hvað er þetta
maður, slekkurðu aldrei á
tækinu?“ spurði kaupmaður-
inn. - Ha ég, gera þeir það
ekki á útvarpinu í Reykjavík?