Dagur - 21.11.1984, Page 9

Dagur - 21.11.1984, Page 9
21. nóvember 1984 - DAGUR - 9 1-X-2 þessu?“ „Ég byrjaöi að halda með Luton í fyrra og ástæðan var sú að mér fannst liðið leika ákaflvga skemmtilcga sókn- arknattspvrnu. Vörnin var að vísu ansi léleg hjá liðinu en hvað um það, sóknar- leikur þeirra var svo skemmtilegur að ég fór aö lialda með Luton.“ Þetta sagði Stefán veit- ingamaður Gunnlaugsson á Bautanum er við fenguin hann til þess að spá fyrir okk- ur sem aðdáanda Luton, en þeir vaxa víst ekki á trjánum hér á landi aödáendur þess félags. Viö spuröUni Stefán hvcrnig honum litist á leikina sem hann f'ær að glíma við. „Ja, hvað er létt í þessu? Eigum við ekki bara aö segja að þetta sé svona meðalseð- ill, annars verð ég að viður- kenna að ég hel' ekki mjög mikið vit á cnska boltanum þótt ég fylgist svona sæmi- lega með.“ Og þá er það spá Stefáns: Luton-West Ham 1 Norwich-Everton 2 QPR-A.Villa 1 Southampton-Newcastle x Stoke-Watford 2 Sunderland-Man.Lltd. 2 WBA-Coventry x Birmingham-Barnsley 1 Man.City-Portsmouth x Oxford-Leeds 1 Schrewsbury-Sheff.Utd. x Wimbleton-Grimsby 2 Guðmundur náði 5 Guðmundur Svansson spá- maður síðustu viku var með 5 leiki rétta og viröist það vera mjög vinsæl tala hjá spámönnum okkar. Fimm hafa nú spáð og eru fjórir þeirra með 5 rétta, en Arsen- almaðurinn Sigurður Pálsson er bestur enn sem komiö er og státar al' 6 leikjum réttum. 1—X—2 Fall er fararheill Kári Elíson og Flosi Jónsson kepptu um síðustu helgi á KR- mótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Réttarholtsskóla að viðstöddu fjölmenni. Ekki varð þessi ferð Kára til neinnar frægðar því hann féll úr keppni í hnébeygju og tapaöi þar með sinni annarri keppni á ævinni gegn íslenskum keppinaut. Flosi vann hins vegar sinn flokk örugglega. - Þetta var einfaldlega ekki dagurinn hans Kára. Hann keppti að vísu í of stórri stálbrók, og hafði létt sig mikið fyrir keppn- ina en það afsakar ekki neitt, sagði Flosi í samtali við Dag. Það er vonandi að þarna hafi „fall verið fararheill" því Kári keppir „Góðir kaflar“ KA lék tvo leiki í 1. deild kvenna í blaki um helgina og fóru þeir fram á Akureyri. Mótherjarnir voru Iið Þróttar úr Reykjavík og unnu gestirnir tvo 3:0 sigra. í fyrstu hrinunni í fyrri leikn- um hafði KA undirtökin lengi vel, en Þróttur sigldi síðan fram úr og sigraði 15:10. Næsta hrina fór 15:4 fyrir Þrótt, en í þriðju hrinunni sem lauk 15:10 var KA yfir framan af. í síðari leiknum vann Þróttur fyrstu hrinuna auðveldlega 15:2. Síðan kom mikil baráttuhrina sem endaði 15:13 Þrótti í vil og lokahrinan fór 15:10. Iþióttir hjá fötluðum Vetrarstarf íþróttafélags fatl- aðra á Akureyri er komið á fulla ferð. Stjórn félagsins hvetur félagsmenn til þess að taka þátt í starfinu, og nýir fé- lagar eru um Ieið boðnir vel- komnir. Æfingatímar eru á laugar- dögum kl 10-11.30 í íþróttahúsi Glerárskóla og er þar æft boccia og borðtennis. Æfingar í skotfimi (bogi og byssur) eru hins vegar á Bjargi þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17—18.30 og á laugardögum kl. 13.30-15. í fyrravetur fékk félagið tíma í endurhæfingarstöðinni á Bjargi og mæltist það mjög vel fyrir. Því verður framhald á þessum tímum og verða þeir á laugar- dögum kl. 15.-16.30. Þá má geta þess að sundæfingar félagsins eru á sunnudögum kl. 17-18. Þjálfarar félagsins í vetur eru Einar Kristjánsson og Auðunn Eiríksson. íþróttafélag fatlaðra á Akureyri var stofnað 7. des- ember 1974 og verður félagið því 10 ára eftir nokkra daga. Verður afmælisins minnst með afmælis- hófi sem haldið verður að Bjargi laugardaginn 8. desember. um helgina á heimsmeistaramót- inu sem fram fer í Bandaríkjun- um. Flosi Jónsson vann léttan sigur í 90 kg flokki. Lyfti samtals 640 kg (250-140-250) en átti mikið inni. Til að mynda fékk hann dæmda ógilda réttstöðulyftu 270 kg, sem hann fór þó vel upp með. - ESE Friðjón Jónsson hefur átt góða leiki með KA. Hér sést hann sækja að vörn Gróttu um síðustu helgi og fær hann óblíðar móttökur. Mynd gk-. Tekst að leggja Hauka? Handknattleiksunnendur á Akureyri fá enn leiki til þess að horfa á um næstu helgi, en nóg hefur verið um heimaleiki Akureyrarliðanna að undan- förnu. Nú eru það Haukar sem koma í heimsókn, en þeir féllu sem kunnugt er niður í 2. deild sl. vor ásamt KA. Haukarnir hafa ekki byrjað mótið vel, töpuðu fyrir HK í fyrstu umferð mótsins og um helgina steinlágu þeir er þeir mættu Fram og Fram vann með 8 marka mun. Akureyrarliðin eiga því góða möguleika í þessum leikjum. KA á að mæta Haukunum á föstu- dagskvöld kl. 20.30 og KA-menn sem eru eina taplausa liðið í deildinni ættu að vinna sigur. Þórsarar eiga síðan að mæta Haukum kl. 14 á laugardag og ef Þórsarar taka sig saman í andlit- inu er ekki fráleitt að ætla þeim sigur. Þeir hafa sýnt það í leikjum sínum til þessa að þeir geta ýmislegt, en baráttan og leikgleðin verður að vara allan leikinn, ekki bara kafla í síðari hálfleik eins og verið hefur. Mikið hefur verið rætt um niðurröðun mótanefndar HSÍ á leikjum Akureyrarliðanna. Þess má geta í því sambandi að um aðra helgi kemur Fylkir hingað og leikur tvo leiki. Að þeim leikjunt loknum hafa öll liðin í deildinni komið norður og spilað nema Ármann sem kemur eftir áramót. Eitthvað íyrir þig? Samvinmidagar 24. og 25. nóvember í Félagsborg samkomusal verksmiðja Sambandsins Opið kl. 14-18 báða dagana Vörusýningar frá: Efhaverksmiðjunni Sjöfii ACT Skinnaverksmiðjunni Iðunni Ullarverksmiðjunni Geljun Zá Dukrista: „Maður og maskína II Bragðty'nningar frá: Kjötiðnaðarstöð KEA Mjólkursamlagi KEA Eftiagerðinni Flóru Brauðgerð KEA Guðm. Ármann. Samvinnudagar og Búseti kynna starfsemi sína Skemmtiatriði á klukkustundar fresti Tískusýningar, leikþættir, söngur Fræðslu- og skemmtiefini á myndböndum Okeypis happdrætti fyrir alla gesti Komdu og skoðaðu, smakkaðu og skemmtu þér Starfsmannafélag KEA SAMVINNUVORUR OKKAR VÖRUR Starfsmannafélag verksmiðja Sambandsins

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.