Dagur - 28.11.1984, Blaðsíða 3

Dagur - 28.11.1984, Blaðsíða 3
28. nóvember 1984 - DAGUR - 3 Verktakafyrirtækið Gunnar og Kjartan á Egilsstöðum sem vann við fyrsta áfanga Leiru- vegarins, hefur lagt fram kröfur á hendur Vegagerðinni um rúmlega hálfa milljón króna vegna aukakostnaðar sem fyrirtækið varð fyrir við gerð vegarins. Kröfur Gunnars og Kjartans eru í einum sjö liðum og vegur þar þyngst að fyrirtækið telur sig hafa orðið fyrir miklum kostnaði vegna þess að ekki var hægt að nota opna malarnámu, eins og kveðið var á um í útboðsgögnum, Flugleiðamótið í skák: Akureyringar sigursælir til uppfyllingar hluta vegarins. Kornastærð hafi ekki verið í sam- ræmi við kröfur og því hafi þurft að ýta upp úr árfarvegi. Ýtu- kostnaður hafi því aukist veru- lega en auk þess hafi hið nýja efni verið mun þyngra og því minna komist á bílana í hverri ferð. Viðræður Vegagerðarinnar og Gunnars og Kjartans vegna þessa deilumáls eru komnar í strand og málinu hefur því verið skotið til gerðardóms Verkfræðingafélags Islands. Verður málið tekið þar fyrir á næstunni, ef ekki verður lögð fram sáttatillaga, en hún var ekki komin fram í morgun. - ESE Framkvæmdir Skáksveit frá Skákfélagi Akur- eyrar stóð sig frábærlega vel á hinu árlega Flugleiðamóti í skák sem haldið var um síðustu helgi. Hrepptu Akureyringarnir Lægsta tilboði tekið - ef allt kemur heim og saman Lægsta tilboðinu í annan áfanga Leiruvegarins verður tekið ef allar upplýsingar og áætlanir tilboðshafa hljóta náð fyrir augum forráðamanna Vegagerðarinnar. Það eru fyrirtækin Ýtan sf. á Akureyri og Reynir og Stefán, Sauðárkróki sem eiga lægsta til- boðið í verkið, 12.125.200 kr. sem er 45,5% af kostnaðaráætl- un. Eigendur fyrirtækjanna tveggja munu funda með vega- gerðarmönnum á Akureyri kl. 14 í dag og samkvæmt upplýsingum Guðmundar Svafarssonar, um- dæmisverkfræðings Vegagerðar- innar, ætti ekki að taka langan tíma að taka afstöðu til tilboðsins eftir þann fund. - ESE annað sætið á mótinu næst á eftir hinni geysisterku skák- sveit Búnaðarbankans. Það voru þeir Gylfi Þórhalls- son, Pálmi Pétursson og Jón Garðar Viðarsson sem tefldu fyr- ir SA en varamaður var Jakob Kristinsson. Sveitin vann meðal annars það afrek að sigra sveit Búnaðarbankans með fullu húsi, 3:0. Önnur sveit frá Akureyri tók þátt í mótinu en það var ný sveit frá KEA. Lenti hún í 18. sæti með 28,5 v. en 24 sveitir tóku þátt í mótinu. Fimm efstu sveitir voru þessar: Búnaðarbankinn 54 v., SA 48 v., Einar Guðfinnsson 47,5 v., Járn- blendifélagið 45,5 v. og sveit Verkamannabústaða 45 v. Að sögn Gylfa Þórhallssonar var þetta rnjög spennandi mót en SA hefur staðið sig vel á þessum vettvangi undanfarin ár án þess að vinna til verðlauna. Nú varð uppskeran annað sætið og flug- farseðill á innanlandsleið fyrir hvern keppanda og auk þess náði Jón Garðar Viðarsson bestum ár- angri allra þriðja borðs rnanna. Hlaut 20.5 v. af 23 v. mögulegum sem er frábær árangur en þess má geta að er SA tefldi við Bún- aðarbankann, tefldi Jón Garðar hreina úrslitaskák við Guðmund Halldórsson um þriðja borðs verðlaunin, sem voru utanlands- ferð að eigin vali á vegum Flug- leiða. - ESE Bændaklúbbsfundur: Viðurkenningar Mánudagskvöldið 3. des. nk. verður bændaklúbbsfundur haldinn á Hótel KEA. Aðal- efni fundarins verður á sviði nautgriparæktar. Ólafur E. Stefánsson ráðu- nautur ræðir um stefnuna í naut- griparæktinni. Ráðunautarnir Erlendur Jóhannsson og Guð- mundur Steindórsson kynna niðurstöður kúasýninganna sem fram fóru í sumar, í máli og myndum. Fram fer verðlaunaveiting eins og um héraðssýningu á kúm væri að ræða. Þá verða á fundinum af- hentar hinar árlegu viðurkenn- ingar Búnaðarsambandsins fyrir snyrtilega umgengni á sveitabýl- um og fyrir góðan árangur í naut- griparækt. Einnig verðlaun Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga fyrir skógrækt. Fundurinn hefst kl. 21.00. Vorum að taka upp úrval af herrajökkum ogstökkum úrbómull og ullarefnum. Einnig úr leðri og bómull saman. 100 ára Jón Stefánsson Vopni, Gránu- félagsgötu 43, er 100 ára í dag. Hann fæddist í Vopnafirði 28. nóvember 1884 en flutti til Akur- eyrar 1913. Hann starfaði ávallt eftir það sem verkamaður hjá Akureyrarbæ en lét af störfum þar er hann var 85 ára gamall. Vatteraður karlmannajakki aðeins kr. 1.595,- Munið 10% afslátt til félagsmanna. Sími 96-21400 Pá minnum við á stórkostlegt úrval afskyrtum, peysum, buxum, treflum, bindum o.fl. o.fl. á herra. SértSboð Leiruvegurinn: Verktakinn krefst hálfrar milljónar - til viðbótar vegna aukakostnaðar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.