Dagur - 28.11.1984, Page 13

Dagur - 28.11.1984, Page 13
28. nóvember 1984 - DAGUR - 13 Kári í 4. sæti Kári Elíson hafnaði í 4. sæti á heimsmeistaramótinu í kraft- lyftingum sem haldið var í Dallas í Texas um helgina. Kári Iyfti samtals 642,5 kg sem er nýtt glæsilegt íslandsmet. Þá setti hann einnig met í rétt- stöðulyftu er hann fór upp með 265 kg. Það var Bandaríkjamaður sem sigraði í þessum flokki og Breti varð annar. I þriðja sæti varð sænskur lyftingamaður og kom það á óvart að sá skyldi sigra Kára, en Kári hefur verið fremst- ur kraftlyftingamanna í sínum þyngdarflokki á Norðurlöndum undanfarin ár. Kári keppti í 67,5 kg flokki. í 110 kg flokki keppti hins vegar Víkingur „Heimskautabangsi“ Traustason og hafnaði hann í 8. sæti af 12 keppendum. Víkingur lyfti samtals 780 kg sem er nokk- uð frá hans besta árangri í þess- um þyngdarflokki. Kári fagnaði 4. sætinu í Dallas. Staðan Erfiðlega hefur gengið að koma saman töflu fyrir 2. deildina í handknattleiknum. Stafar það aðallega af því að leikjum hefur verið frestað, sumir þeirra hafa síðan verið leiknir en aðrir ekki, en engar upplýsingar liggja fyrir um þessi mál hjá Handknattleiks- sambandinu. Við höfum reynt að hafa sam- band við forráðamenn liðanna 1' 2. deild og er meðfylgjandi tafla unnin samkvæmt upplýsingum þeirra. Bendir allt til þess að hún sé rétt, án þess að það sé alveg 100%. Það er þó ljóst að KA hef- ur forustu í deildinni, en aðal- keppinautarnir Fram og HK hafa tapað þremur stigum. KA 5 5 0 0 127:102 10 Fram 6 4 1 1 135:121 9 HK 5 3 1 1 111:105 7 Fylkir 3 1 1 1 60:69 3 Þór 5 1 1 3 113:120 3 Grótta 4 0 2 2 88:97 2 Haukar 5 1 0 4 106:117 2 Ármann 3 0 0 3 59:68 0 Enn verður handbolti á dagskrá á Akureyri um næstu helgi, en þá koma Fylkismenn í heimsókn og leika tvo leiki í 2. deildinni. Er Fylkir næstsíð- asta liðið í 2. deild sem leikur á Akureyri. Sem sagt, að þess- um leikjum loknum eru Akur- eyrarliðin búin með alla sína heimaleiki við utanbæjarliðin nema leikina við Ármann og hvorki Þór né KA eru farin að leika syðra enn. Þór mætir Fylki á föstudags- kvöldið kl. 20 og ef Þórsarar halda vel á spöðunum þá eiga þeir að hafa góða möguleika á að sigra í þessum leik. Með sigri kæmist Þór í 5 stig og ætti nokk- uð raunhæfa möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. KA leikur svo við Fylki kl. 14 á laugardag og ef allt verður með felldu á KA að vinna sigur í þeim leik. KA er eina liðið í deildinni sem hefur ekki tapað stigi og væntanlega verða það ekki Fylk- ismenn sem stöðva KA í vetur. í háifleik á leik KA og Fylkis verður leikið í Mjólkurbikarnum Ársþing Knattspyrnusam- bands íslands verður haldið um helgina og að venju liggja margar tillögur fyrir þinginu. Tiílaga verður borin fram um breytingar á reglugerð unt kvennaknattspyrnu og gerir hún ráð fyrir að í 1. deild skuli vera 8 lið og leika heima og heiman. Tvö lið falli í 2. deild ár hvert. Tillagan gerir ráð fyrir að næsta sumar skipi 1. deild lið Akraness, Þórs, Vals, KA, Breiðabliks, ísa- fjarðar, Keflavíkur og annað hvort KR eða Súlan. Miklar breytingatillögur um starfsreglur aganefndar liggja fyr- ir þinginu. Þannig verði leikmað- ur sem hefur verið áminntur 4 sinnum af dómara á keppnistíma- bilinu án þess að vera vikið af velli dæmdur í eins leiks bann. Leikmaður sem hefur fengið 6 áminningar án þess að vera vikið af velli skal fara í eins leiks og eru það Iðnaðardeild SIS og Slippstöðin sem eigast við. Tveim- ur leikjum er lokið í keppninni, Sporthúsið og Iðnaðardeildin gerðu jafntefli 3:3 og Slippstöðin vann Póst og síma 4:3. bann, og eftir 8 áminningar verði bannið tveir leikir. Verði um fleiri áminningar að ræða skal aganefnd fjalla um málið sérstak- lega. Sé leikmanni vikið af leikvelli skal hann í eins leiks banna nema réttmætar varnir komi til. ítrekuð brottvísun þýðir á sama hátt tveggja leikja bann og fleiri brottrekstrar þýða að aganefnd fjallar sérstaklega unt málið. Fyrir særandi eða ruddalegt orðbragð sem dómari þarf að víkja manni af velli fyrir getur refsing verið allt að 6 leikja banni og ef um ítrekun er að ræða verð- ur refsingin minnst 6 leikir. Þetta eru aðeins nokkrar af þeim breytingum sem liggja fyrir varðandi starfsreglur aganefndar. Hins vegar er engar breytingartil- lögur að sjá um 3ja stiga regluna svokölluðu og bendir því allt til þess að hún eigi að verða í gildi áfram óbreytt. Golfarar Golfklúbbur Akureyrar heldur Árshátíð aö Jaðri nk. laugardag 1. des. og hefst hátíðin með borðhaldi kl. 20. Skemmtiatriði. Verð aðeins kr. 400 með mat. Fjölmennið. Skemmtinefnd. Ársþing KSÍ um helgina 1—X—2 Þráinn Stefánsson, Búningarnir vom eins „Ég er búinn að halda með Sheflield Wednesday síðan ég fór að fylgjast með enska boltan- um, en þá var ég 10 eða 11 ára,“ segir Þráinn Stefánsson spámað- ur okkar þessa vikuna. „Það kom þannig til að skóla- lið sem ég var í keypti búninga sem voru eins og búningar Wednesday og það var nóg. Lið- ið var þá í 2. deild en það skipti ckki máli og ég hef fylgt því síðan.“ - Tekur þú þátt í getruunum? „Ég tippa alltaf ■ hverri viku, er ekki með marga seðla eða kerfi en er alltaf nteð. Mcr hefur gengið ágætlega og hef unnið nokkra smávinninga.“ - Og þá lítum við á spá Þráins, hunn spáir auðvitað sínuin mönnum útisigrí gegn Everton, cn hvort sú spá gengur eftir fáum við að sjá því leiknuin verður sjónvarpað beint á laugardag. A.Villa-Sunderland 1 Chelsea-Liverpool 2 Coventry-Tottenham 2 Everton-Shcff.Wed. 2 Ipswich-Southampton x Leicester-QPR 1 Watford-N.Forest 1 Barnsley-Fulham x Carditt-Birmingham 2 N.County-Oxford 2 Oldham-Mun.City 1 Portsmouth-Blackburn 1 Spáin hljóðar því upp á 5 heima- sigra, tvö jafntefli og 5 útisigra. Stefán með 5 rétta Það virðist ætla að vera vinsælt ineðal spámanna okkar að standa uppi með 5 leiki rétta. Af þeini 6 sem spáð hafa til þessa hafa fimni verið með 5 leiki rétta og Stefán Gunnlaugsson sem spáði í síðustu viku er einn þeirra. Sigurður Pálsson Arsen- aiinaður er hins vegar með best- un árungur til þessa, hefur 6 rélta. Nú þurfum við að komast í samband við einhvern áhang- enda botnliðsins Stoke i I. dcild cf hann finnsl þá. Ef einhver heldur með þessu liði ætti sá hinn sami að liafu sumbund við íþróttasíðu Dags. 1—X—2

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.