Dagur - 03.12.1984, Blaðsíða 7
3. desember 1984 - DAGUR - 7
Everton tapaði stigi á heima-
velli og þar sem Manchester
United og Arsenal sigruðu í
sínum leikjum er forusta
Everton nú einungis eitt stig.
Sparkunnendur sáu beinu út-
sendinguna frá Goddison Park
þar sem Sheffield Wednesday
var í heimsókn. Mike karlinum
Lyons fyrirliða Wednesday var
vel fagnað, en um langt árabil
var hann einn allra besti leik-
maður Everton. Eftir 8 mín-
útna leik náði Sheffield forust-
unni með marki Andy Blair.
Á 30. mínútu náði Everton að
jafna er Graham Sharp skoraði
úr vítaspyrnu.
Tottenham átti góðan mögu-
leika að komast í 2. sætið með
sigri á Coventry. Clive Allen
sendi Mark Falcoe hárfínan bolta
á 35. mínútu og sá var ekki í
vandræðum með að snúa á varn-
armann Coventry og senda bolt-
ann í netið. Glenn Hoddle átti
frábæran leik með Spurs og var
nánast alls staðar á vellinum.
Þegar nokkrar sek. voru til leiks-
loka náði Cyrille Regis að sparka
Forskot Everton er
nú aðeins 1 stig
að marki Spurs og inn fór
boltinn. Þar með missti Totten-
ham af tveimur dýrmætum
stigum.
Bæði Manchester United og
Arsenal sigruðu í leikjum sínum.
Arsenal vann Luton á Highbury
með þremur mörkum gegn einu.
Ian Allison byrjaði á því að skora
fyrir Arsenal, Tony Woodcock
og Viv Anderson bættu við
mörkum en Brian Stein skoraði
mark Luton.
Manchester United vann góð-
an sigur í Norwich. Brian Rob-
son skallaði inn sendingu Mark
Huges á 13. mínútu. John Dehan
meiddist á þeirri 18. og eftir hálf-
tíma leik náði Huges að bæta við
öðru marki fyrir United. Litlu
munaði að Asa Hartford næði að
minnka muninn fyrir Norwich í
síðari hálfleik.
Gengi Southampton er mikið
þessa dagana. Á laugardag heim-
sótti liðið Ipswich og vann með
einu marki gegn engu. Það var
hinn lunkni Dave Armstrong sem
skoraði eina mark leiksins á 30.
mínútu eftir mikinn einleik.
Aston Villa vann Sunderland
með marki Paul Redeout. New-
castle vann botnliðið Stoke með
tveimur gegn einu. John Ander-
son skoraði fyrst úr vítaspyrnu en
gamli „selurinn" Sammy Mclll-
roy jafnaði fyrir Stoke. Chris
Woddle náði síðan að koma
Newcastle yfir og Stoke er fyrir
vikið mörgum stigum á eftir
næstu liðum, eitt og yfirgefið á
botni deildarinnar.
Leicester hreinlega rúllaði
QPR upp og er síðarnefnda liðið
gjörsamlega heillum horfið undir
stjórn Allan Mullery. Tvö urðu
mörkin í fyrri hálfleik. Gary
Lineker og Álan Smith skoruðu.
í síðari hálfleik bættu Steve Lyn-
ex og Ian Banks við mörkum.
West Ham tapaði óvænt á
heimavelli gegn WBA sem nú
vann sinn annan sigur á útivelli í
vetur. Steve Hunt og Garry
Thompson sáu um mörkin.
Það er greinilegt að Liverpool
er ekki sama liðið og löngum
áður. Chelsea vann góðan sigur
á Liverpool í London. Hinn gíf-
urlega markheppni Kerry Dixon
skoraði fyrst á 10. mínútu og var
það hans 20. mark í vetur. Jan
Mölby jafnaði fyrir Liverpool
með óhemju föstu skoti. Paul
Cannovill, sá snjalli leikmaður,
sendi því næst snilldarbolta á
kollinn á Joe McLaughaly sem
skallaði í markið. David Speedy
átti síðasta orðið er hann skoraði
þriðja mark Chelsea.
í 2. deild kom á óvart ósigur
efsta liðsins Oxford gegn Notts
County sem vermt hefur botnsæt-
ið í deildinni. Dave Hunt og All-
an Young skoruðu mörkin.
Hörkuleikur var í Portsmouth
þar sem Blackburn var í heim-
sókn. Blackburn komst í 2:0 með
tveimur sjálfsmörkum leikmanna
Portsmouth. í síðari hálfleik
snerist dæmið við og Portsmouth
jafnaði metin. Engu munaði að
Neil Webb næði að skjóta Ports-
mouth yfir. Barnsley er enn í
toppbaráttunni eftir 1:0 sigurinn
á Fulham. Gordon Oven skoraði
mark Barnsley.
Aston Villa-Sunderland 1:0 1
Chelsea-Liverpool 3:1 1
Coventry-Tottenham 1:1 x
Everton-Sheff. Wed. 1:1 x
Ipswich-Southampton 0:1 2
Leicester-QPR 4:0 1
Watford-N. Forest 2:0 1
West Ham-WBA Arsenal-Luton Man. Utd.-Norwich Newcastle-Stoke Barnsley-Fulham Cardiff-Birmingham Notts C.-Oxford Oldham-Man. City Portsmouth-Blackburn 0:2 3:1 2:0 1:2 1:0 1:2 2:0 0:2 2:2 1 2 1 2 x
Staðan í 1. deild: Everton 17 10 3 4 35:23 33
Man. Utd. 17 9 5 3 36:19 32
Arsenal 17 10 2 5 34:24 32
Tottenham 17 9 3 5 34:17 30
Sheff. Wed. 18 8 5 5 32:22 29
Southampt. 17 7 7 3 21:17 28
West Ham 17 7 5 5 23:24 26
Chelsea 17 7 5 5 29:18 26
WBA 17 7 4 6 30:23 25
Liverpool 17 6 6 5 21:18 24
N. Forest 17 7 3 7 26:25 24
Newcastle 17 6 6 5 30:31 24
Sunderland 17 6 5 6 25:23 23
Norwich 17 6 5 6 25:25 23
Watford 17 5 6 6 35:34 21
A. Villa 17 5 5 7 21:32 20
QPR 17 4 6 7 21:29 18
Leicester 17 5 3 9 27:35 18
Ipswich 17 3 7 7 17:24 16
Coventry 17 4 4 9 16:29 16
Luton 18 3 5 10 22:40 14
Stoke 16 1 4 11 13:38 7
A.B.
Erfitt hiá KA
„ÍS-stelpurnar eru einfaldlega
miklu betri en KA-stelpurnar
og þær yfirspiluðu KA algjör-
lega í þessum leikjum,“ sagði
Halldór Jónsson þjálfari blak-
liðs kvenna hjá KA eftir tvo
ósigra KA gegn ÍS á Akureyri
um helgina.
Það verður að segja það eins
og það er að KA átti aldrei neina
glætu í þessum leikjum, stúdín-
urnar svo miklu fremri á öllum
sviðum og var þó ekki laust við
að þær tækju lífinu létt. Tölurnar
segja allt sem segja þarf og í fyrri
leiknum voru þær 4:15, 3:15 og
0:15. í seinni leiknum 1:15, 2:15
og 7:15.
NÖTOLACT orkugjafi fyrir kýr, til að
fyrirbyggja súrdoða og auka sykurmagn í
blóðinu. Einn pakki 21 kg. hæfilegur skammtur
fyrir eina kú, daglega fyrir og eftir burð (6
vikur).
NÖTACÉT (fljótandi) til að eyða súrdoða sem
þegar er fyrir hendi og hækka blóðsykur
magnið. Fljótvirkt og árangursríkt. Einn brúsi
1.8 lítrar hæfilegur skammtur fyrir eina kú.
GAMATOX baðduft, eyðir tilteknum
sníkjudýrum úr húð og hári húsdýra.
í ár er baðár, eigum baðduftið til í 500 g
pökkum og er það sérstaklega ætlað til
böðunar sauðfjár.
Einnig NUTRICHIP vítamín fyrir hesta og
saltsteinar, hvítir, rauðir og bláir.
Selt í kaupfélögunum um land allt og í verslun
okkar Ármúla 3.
Leiðbeiningar á íslensku fyrir öll þessi efni.
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900