Dagur - 05.12.1984, Blaðsíða 3
5. desember 1984 - DAGUR - 3
Eftirspum eftir
lóðum í Innbænum
- Deiliskipulagið auglýst eftir áramótin
Félag harmonikuunn-
enda við Eyjafjörð
Sunnudagskaffi félags harmonikuunnenda við
Eyjafjörð veðrur haldið í Lóni við Hrísalund 9. des-
ember kl. 2 e.h.
Fjölbreytt dagskrá. Mætum öll hress og kát.
Kaffinefnd.
„Skipulagsnefnd hefur tekið
afstöðu tit þeirra tiliagna sem
Hjörleifur Stefánsson gerði um
deiliskipulag Innbæjarins og
nú er unnið að endanlegum
teikningum, sem verða sýndar
bæjarbúum, jafnframt því sem
þeim verður gefinn kostur á að
gera athugasemdir,“ sagði
Finnur Birgisson, skipulags-
stjóri á Akureyri, í samtali við
Dag.
Það sem helst hefur verið horft
til í sambandi við nýja deiliskipu-
lagið af Innbænum, er hvort
leyfðar verða nýbyggingar í þess-
um elsta hluta bæjarins. Að sögn
Finns var samþykkt í skipulags-
nefnd, að leyfa íbúðarhúsabygg-
ingar á þrem stöðum; 7-8 hús
innst við Aðalstræti, 10-15 hús á
núverandi svæði Skautafélagsins
og þar fyrir sunnan, 4—5 hús í
Búðagili og einnig er reiknað
með íbúðarhúsabyggð sunnan og
austan við Fjórðungssjúkrahúsið.
Hins vegar hefur ekki verið tekin
endanleg afstaða til þess með
hvaða hætti það verður; hvernig
húsin verða eða hvort sjúkrahús-
Glerárprestakall:
Jólakortasala
Sóknarnefnd Glerárkirkju hef-
ur hafíð sölu á jólakortum, og
prýðir kortin mynd af hinni
nýju kirkju safnaðarins sem
nú rís í Glerárhverfí.
Hér er um fjáröflunarleið fyrir
söfnuðinn að ræða og verður
öllum hagnaði af sölu kortanna
varið til byggingar hinnar nýju
kirkju. Kortin eru seld í verslun-
um KEA í Sunnuhlíð og Höfða-
hlíð.
„Snjobolti i
saklausan“
í viðtali við Ómar Ragnarsson
í Degi í sl. viku var rætt um efri
hæðina á skemmtistaðnum
Sjallanum og fyrirkomulag
þar. Þar var m.a. haft eftir
Ómari:
„...Þetta virðist vefjast fyrir
mönnum og sá kerfiskarl sem
kom í veg fyrir að það sæist á
sviðið af efri hæðinni í Sjallanum
hann vissi ekkert hvað hann var
að gera. Það eru víðar kerfiskarl-
ar en í Reykjavík og þetta var
einhver „skipulagsfræðingur"... “
„Ég kastaði þarna stórum
snjóbolta og hann hafnaði því
miður í andlitinu á röngum
manni,“ sagði Ómar er hann
hafði samband við okkur og
harmaði að hann hefði þarna
borið sök á rangan aðila en skilja
mátti að þarna hefði skipulags-
fræðingur bæjarins átt hlut að
máli.
„Þær hugmyndir að byggja
palla á efri hæð Sjallans og
hækka þannig þakið hafa einfald-
lega aldrei komið fram og þar af
leiðandi hafa þær aldrei verið
stöðvaðar af neinum," sagði
Finnur Birgisson skipulagsstjóri
Akureyrar er við bárum þetta
mál undir hann.
Ekki sú fyrsta utan Reykjavíkur
„Ég sem einn af eigendum
JLJmferðarmiðstöðvarinnar hf.
á Akureyri, sem stofnuð var
14. júní 1969, vil gjarnan koma
á framfæri þeirri leiðréttingu
að sú umferðarmiðstöð sem
nýlega hefur verið sett á lagg-
irnar hér og nefnist Öndvegi er
ekki fyrsta umferðarmiðstöð
sem starfrækt er utan Reykja-
víkur,“ sagði Kristján Grant,
hópferðaleyfíshafí á Akureyri
í viðtali við Dag.
„Umferðarmiðstöðin hf. starf-
aði til ársins 1972, en síðasti
stjórnarfundur í félaginu var
haldinn 1979. f þessari miðstöð
voru sérleyfishafar sem keyrðu til
Siglufjarðar, Dalvíkur og Húsa-
víkur. Félagið lagði niður starf-
semi þar sem rekstrargrundvöllur
var ekki fyrir hendi. I þessu nýja
félagi eru sérleyfishafar og hóp-
ferðaleyfishafar með svipuðu
sniði og í gamla félaginu. Von-
andi gengur þetta betur nú en
þá,“ sagði Kristján Grant að
lokum. - HS
ið verður hugsanlega aðili að
þeim byggingum sem starfs-
mannabústöðum.
Auk íbúðarhúsalóðanna er
reiknað með lóðum fyrir bygg-
ingar undir léttan iðnað á svæð-
inu milli Hafnarstrætis og
Drottningarbrautar, sunnan Tul-
iníusarhúss, og þar er einnig
reiknað með gistihúsi. í skipulag-
inu er gert ráð fyrir vegi ofan af
brekkunni syðst í Aðalstræti,
sem fer yfir tjörnina og tengist
Drottningarbraut. Sunnan við
hann á að vera framtíðarsvæði
Skautafélags Akureyrar.
„Það er örugglega talsverður
áhugi á þessum lóðum,“ sagði
Finnur, en hann gat ekki sagt um
hvenær þær yrðu byggingarhæf-
ar. Uppdrátturinn af skipulaginu
verður væntanlega auglýstur og
sýndur í janúar. Hann á að sýnast
í 6 vikur, samkvæmt lögum, og
síðan hafa bæjarbúar 2 vikur til
að gera athugasemdir. Eftir það
þarf skipulagsnefnd og bæjar-
stjórn að taka skipulagið fyrir að
nýju, með athugasemdunum og
móta afstöðu til þeirra, og síðan
fer uppdrátturinn til Skipulags-
stjórnar ríkisins með ósk um
staðfestingu. - GS
Bændur - Norðlendingar
Graskögglar er gæðafódur.
Fyrsta uppskera af nýbrotnu landi tilbúin
til afgreiðslu.
Reynið viðskiptin.
VALLHÓLMUR HF.
FÓÐURVERKSMIÐJA, SKAGAFIRÐI.
SÍMI 95-6133 og 95-6233.
KAUPUM HREINAR
LÉREFTS-
TUSKUR
pob)
PRENTVERK
ODDS BJÖRNSSONAR