Dagur - 05.12.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 5. desember 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Almenn iönþróun
í miðstjórnarályktun Framsóknarflokksins
um nýsköpun atvinnulífs og sókn til betri lífs-
kjara er meðal annars fjallað um almenna iðn-
þróun.
Þróun almenns iðnaðar hefur verið hæg og
nokkuð tilviljanakennd. Eigi léttur iðnaður að
verða veigamikil undirstaða íslenskrar at-
vinnuþróunar á komandi árum er nauðsyn-
legt að iðnþróunin verði mun örari og nái til
allra landshluta. Aðstaða íslendinga til al-
mennrar iðnþróunar er mun erfiðari en var til
þróunar fiskveiða og fiskvinnslu á liðnum
árum. Þar var byggt á mjög gjöfulum eigin
auðlindum og þekkingu til jafns við, eða jafn-
vel umfram flesta keppinauta.
Á flestum sviðum iðnaðar er á brattann að
sækja. Alþjóðleg samkeppni er mikil og vax-
andi, þekkingu skortir á mörgum sviðum,
m.a. vegna of lítillar rannsóknastarfsemi. Ör
þróun nýs iðnaðar krefst nýrra vinnubragða
og hugarfars. Vart er við því að búast að létt-
ur iðnaður geti á allra næstu árum vaxið svo
mikið, að hann leysi vandamál íslensks at-
vinnulífs einn síns liðs. Auk þess benda líkur
til þess að samdráttur verði í nokkrum grund-
vallargreinum iðnaðar, svo sem í byggingar-
iðnaði og skipasmíðum.
Sá iðnaður sem fyrir er í landi getur ekki
tekið við fyrirsjáanlegri mannaflaaukningu. í
mörgum greinum iðnaðar verður þvert á móti
að fara fram endurskipulagning, sem í fyrstu
dregur úr vinnuaflsþörf. Víða í þjónustuiðnaði
er framleiðni allt of lítil og í sumum greinum
framleiðsluiðnaðar er samstarf eða samruni
fyrirtækja nauðsynlegur til þess að betri ár-
angur náist. Hönnunarþátt fjölmargra iðnfyr-
irtækja verður að stórefla og sums staðar að
byggja upp frá grunni. Einnig verður að gera
átak í markaðsstarfsemi, sem í mörgum til-
fellum er lítið sinnt. Nauðsynlegt er að auka
verulega starfsemi Iðntæknistofnunar ís-
lands.
Hlutverk stjórnvalda er að stuðla að iðn-
þróun í landinu, þannig að frumkvæði ein-
staklinga og fyrirtækja nýtist sem best. Iðn-
þróun ofan frá, sem kalla mætti skrifborðsiðn-
þróun, kemur að takmörkuðu gagni. Leggja
ber áherslu á að samkeppnisaðstaða inn-
lends iðnaðar gagnvart innflutningi sé eðli-
leg. Iðnaðinum verði þannig ekki íþyngt með
aðflutningsgjöldum á aðföngum, sköttum
sem samkeppnisiðnaður í öðrum löndum
greiðir ekki verði aflétt, t.d. aðstöðugjaldi og
launaskatti, orkukostnaður verði sambæri-
legur og í samkeppnislöndunum. Þá er mikil-
vægt að gengisskráning íþyngi ekki iðnaðin-
um. Orva þarf útflutning innlendra iðnaðar-
vara og í því sambandi þarf hið opinbera að
aðstoða við markaðsleit, markaðssetningu og
tilraunasölu. Hlutverk stjórnvalda á einnig að
vera að vinna að því að íslensk iðnfyrirtæki
auki sölustarfsemi og að vernda íslenskan
iðnað gagnvart ríkisstyrktum iðnaði í öðrum
löndum.
Byggðastefna VI
Fiskiskipastóllinn er of stór að al-
mannadómi. Kostnaður þjóðar-
innar við veiðar er of mikill.
Hvernig atvikaðist það að fiski-
skipastóllinn varð of stór og hvað
tefur það að hann sé takmarkað-
ur?
Hér hafa rekist á almennir
hagsmunir þjóðarinnar og brýnir
hagsmunir hvers einstaks útgerð-
arstaðar sem er stefnt í voða, ef
útgerðin dregur saman seglin.
Kostnaðurinn af of stórum fiski-
skipastóli dreifist á allt þjóðfélag-
ið með gengisskráningu og
öðrum aðgerðum í þágu sjávarút-
vegsins.
Það stoðar lítið að benda á að
fjárfesting sé of mikil, það þarf
að koma á því skipulagi og regl-
um við ákvarðanatöku að fjár-
festing verði hæfileg á hvaða sviði
sem er. Hér í Reykjavík hafa
menn hamrað á nauðsyn þess að
stilla fjárfestingu í sjávarútvegi í
hóf. Reykvíkingar ættu að vera
þjóðinni til fyrirmyndar í fjárfest-
ingu og móta reglur sem tryggðu
heildarhagsmuni. Ég vil því taka
dæmi héðan úr Reykjavík um
þann vanda sem við er að etja.
Verslunarhúsnæði í Reykjavík
er nú þegar langt úr hófi að mati
sérfróðra manna. Hefur það ver-
ið rökstutt af starfsfólki Borgar-
skipulags með samanburði við
aðrar borgir. Samt er stöðugt
verið að bæta við það og nýjar
byggingar enn í undirbúningi.
Samtök kaupmanna hafa bent á
að bygging stórra verslunarmið-
stöðva rýri nýtingu hverfisversl-
ana. Hinar stóru versiunarmið-
stöðvar henta þeim sem eiga auð-
velt með aðdrætti á eigin bíl.
Verslanirnar í hverfunum eru í
þágu þeirra sem ekki komast
langt og með þeim helst mannh'f
í íbúðarhverfum á daginn. Þó
að verslunarmiðstöðvarnar bjóði
lægra verð en aðrar verslanir, er
ekki þar með víst að þær séu hag-
kvæmar heildinni. Til þeirra er
yfirleitt langt að sækja og þær
draga úr nýtingu verslana í hverf-
unum, sem bregðast við því með
minna vöruvali. Það beinir enn
fleira fólki til viðskipta í stór-
verslununum og dregur enn frek-
ar úr nýtingu hverfisverslana og
svo koll af kolli.
Slíkar röksemdir um hagræði
og hagkvæmni ráða ekki ferð-
inni. Kaupmenn ráða ekki lengur
í borgarstjórn, þegar nýting lands
undir verslanir er skipulögð. Al-
Björn S. Stefánsson.
menningur sem skynjar gildi
hverfisverslananna fyrir þá sem
lítið komast og fyrir hversdagslíf-
ið í hverfunum, hefur ekki áhrif,
heldur ræður stríðið milli versl-
unarjötnanna ferðinni. Kaupfé-
lagsfólkið, sem hefur dregið sig
út úr rekstri almennra hverf-
isverslana, spennti bogann og
kom upp Miklagarði til sam-
keppni við stórverslanir í einka-
eign og naut til þess fyrirgreiðslu
borgarstjórnar um lóð. Svo tók
ný borgarstjórn við og hjálpaði
Hagkaupum að spenna bogann
gegn Miklagarði með því að út-
hluta þeim lóð gegn vilja samtaka
kaupmanna og ráðum Borgar-
skipulags vegna hagsmuna alls al-
mennings.
Málið liggur þannig fyrir, rétt
eins og í sjávarútvegi, að almenn-
ir hagsmunir eru dreifðir og þeir
sem vilja gæta þeirra hafa ekki afl
á móti þeim sem eiga sterkra sér-
hagsmuna að gæta.
í næstu grein verður fjallað um
hvernig breyta megi lýðræðis-
skipulaginu til að ná betra jafn-
vægi milli almennra hagsmuna og
sérhagsmuna.
Björn S. Stefánsson.
Tvö námskeið um
málefni fatlaðra
í nóvember síðastliðnum voru
haldin tvö námskeið um mál-
efni fatlaðra.
Fyrra námskeiðið var fyrir „að-
standendur fatlaðra barna“. Var
það haldið í Ölfusborgum við
Hveragerði, helgina 2.-A. nóv-
ember. Fluttir voru fyrirlestrar
um ýmiss konar fatlanir, sagt var
frá hjálpartækjum, tryggingamál
og önnur réttindamál fatlaðra
rædd, og talað var um atvinnu-
mál fatlaðra. Fjallað var um
„fjölskylduna og fatlaða barnið"
frá félagslegu og sálfræðilegu
sjónarhorni og unnið í hópvinnu.
Námskeiðið sóttu 22 fullorðnir
og 20 börn þeirra á ýmsum aldri,
jafnt fötluð sem ófötluð. Meðan
foreldrar voru við störf, voru
börnin í umsjá hjálparfólks. Fé-
lagar úr Sjálfsbjörg, félagi fatl-
aðra í Árnessýslu, og Kvenfélagi
Hveragerðis önnuðust þau af
stakri prýði. Á kvöldin var sung-
ið og rabbað saman.
Námskeiðið var haldið í sam-
vinnu Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra og Lands-
samtakanna Þroskahjálpar. Þar
sem í Ijós kom mikil þörf á slík-
um námskeiðum, hafa samtökin
fullan hug á að halda þeim áfram.
Er miðað við, að námskeið verði
framvegis haldin víðar um
landið.
Seinna námskeiðið var haldið
á vegum Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra og bar heitið
„fatlaðir og kynlíf". Fór það fram
dagana 8.-11. nóvember í Ölfus-
borgum. Þátttakendur voru 23
talsins og var helmingur þeirra
fatlaður, en helmingur starfsfólk
af stofnunum, þar sem fatlaðir
dvelja.
Elísabet Jónsdóttir stjórnaði
námskeiðinu, en Ragnar Gunn-
arsson, sálfræðingur, og Niels
Anton Rasmussen, læknir, sáu
um leiðbeiningar og fræðslu.
Ragnar og Niels búa í Danmörku
og styrkti Lionsklúbburinn
Njörður í Reykjavík námskeiðið
með því að greiða fargjald
þeirra.
Auk kynlífs og fötlunar var
fjallað um viðhorf til fatlaðs fólks
og ýmsa fordóma og ranghug-
myndir í garð þeirra. Námskeiðið
byggðist upp á fyrirlestrum og
hópvinnu, þar sem sérstaklega
var leitast við að nýta reynslu
þátttakenda sjálfra af þeim
málum, sem rædd voru.
Stefnt er að því að námskeið
um þessi efni verði haldin árlega
á vegum Sjálfsbjargar.