Dagur - 05.12.1984, Qupperneq 7
5. desember 1984 - DAGUR - 7
Myndir: Jón Klemensson.
held að við komum því til með að
einbeita okkur að framleiðslunni
á ferskum sveppum.“
- Ert þú bjartsýnn á framhald-
ið?
„Já ég er það. Það er geysileg
vinna við þetta, maður þarf að
vera vakandi og sofandi yfir
þessu ef vel á að vera, og það er
aldrei frí neinn dag. Það má
aldrei neitt fara úrskeiðis í þess-
ari framleiðslu. Mistök geta hæg-
lega kostað það að heil sáning
fari til spillis."
- Þetta er fjölskyldufyrirtæki?
„Já, dóttir mín Hanna Lára er
í þessu með mér og gengur í öll
störf, og konan mín Kristjana
Sigurjónsdóttir er með okkur í
tínslunni. Svo þarf að ganga frá
sveppunum í poka og koma þeim
á markað þannig að handtökin
eru mörg.
Það er nokkuð misjafnt hvern-
ig sveppir líta út þegar þeir eru
komnir upp í hillu í verslun. Þeir
eru ákaflega fallegir fyrstu dag-
ana eftir að þeir eru tíndir. Síðan
fara þeir að missa lit og verða
blettóttir og það eru margir sem
eru hræddir við að kaupa sveppi
sem líta þannig út, halda að þeir
séu orðnir ónýtir. En það er langt
frá því. Sveppirnir versna ekki
fyrr en þeir eru orðnir alveg
svartir, þá má líka henda þeim.
Ég hef boðið mínum kaupendum
að taka 'sveppina til baka þegar
þeir fara að láta á sjá og setja
nýja í staðinn þannig að það er
hægt að bjóða upp á góða vöru
frá mér og afföll verða engin í
verslununum." gk-.
Ingvar Gíslason alþingismaður:
Stefna ber að fjölbreyttu
atvinnulífi og efla einka-
framtak þar sem það á við
- Álbræðsla er ekki raunhæf í náinni framtíð
Dagur birti nýlega fróðlegt viðtal
við Finnboga Jónsson verkfræð-
ing, framkvæmdastjóra Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar. í viðtali
þessu komu m.a. fram eftirfar-
andi atriði, sem vert er að veita
athygli:
Álbræðsla stendur ekki
undir kostnaði
1. Finnbogi segir að því verði
ekki svarað með jái eða neii,
„enn sem komið er“, hvort ál-
verksmiðja við Eyjafjörð sé
„raunhæfur kostur" í atvinnu-
málum svæðisins.
2. Finnbogi bendir á, að áliðnað-
ur í heiminum sé í lægð og
hafi verið undanfarin ár. Orð-
rétt segir hann: „Markaðsverð
á áli er nú fjórðungi lægra en
það þyrfti að vera til þess að
standa undir kostnaði við nýja
álverksmiðju og tilheyrandi
virkjun.“
3. Finnbogi upplýsir, að lágt
verð á áli um þessar mundir
stafi af „umframframleidslu-
getu álfyrirtækja“. Auk þess
segir hann að „endurvinnsla"
á áli fari sívaxandi og heldur
síðan áfram orðrétt: „Af þess-
um sökum (þ.e. umfram-
framleiðslugetu og endur-
vinnslu) er mjög takmarkaður
áhugi hjá fyrirtækjum í áliðn-
aði á nýjum fjárfestingum á
allra næstu árum.“ (Letur-
breytingar eru mínar. I.G.)
Reyndar getur Finnbogi þess,
að „um eða upp úr 1990“ geti
skapast grundvöllur fyrir nýj-
um verksmiðjum.
4. Af öllu þessu dregur Finnbogi
eftirfarandi ályktun: „Er að
sjálfsögðu ljóst, að álverk-
smiðja er ekki raunhæfur
kostur til lausnar á atvinnu-
vanda Eyfirðinga á allra næstu
árum. Par verða aðrar lausnir
að koma til. “ (Leturbreyting-
ar eru mínar. I.G.)
5. Finnbogi Jónsson, sem er
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar, minnir
á, að það sé stefna félagsins að
kanna beri til hlítar allar leiðir
til að efla atvinnulífið í byggð-
um Eyjafjarðar, þar með
byggingu og rekstur álverk-
smiðju. Hann segir sem tals-
maður Iðnþróunarfélagsins,
að það væru „mistök“ að
hafna hugmyndum um álverk-
smiðju við Eyjafjörð sem
hugsanlegri leið í framtíðar-
þróun atvinnulífs á svæðinu,
áður en niðurstöður athugana
liggja fyrir og þar með hvort
þessi möguleiki er raunhæfur
eða ekki. M.ö.o.: Finnbogi
fullyrðir ekki (eins og fyrir-
sögn Dags gefur í skyn) að ál-
bræðsluhugmyndin sé nú þeg-
ar raunhæfur möguleiki í at-
vinnumálum á Eyjafjarðar-
svæðinu, en hann vill heldur
ekki hafna því fyrirfram að
hún geti orðið það síðarmeir.
Ég held að það væri gagn-
legt að þeir, sem þegar eru
farnir að sjá álbræðslu á Dys-
nesi rísa í hugarheimi sínum,
Ingvar Gíslason.
hugleiddu nánar viðtalið við
Finnboga Jónsson og áttuðu
sig á, hvað í því felst. Með
orðum sínum er hann - eins
og ég skil þau - að biðja menn
að trúa ekki á það sem gefinn
hlut, að álbræðslan sé á næsta
leiti. Ég skil Finnboga
þannig, að hann álíti að vísu
að rekstur álbræðslu sé hugs-
anlegur möguleiki eftir svo og
svo mörg ár. En þessi lausn í
atvinnumálum er óviss og óár-
sett. Því verða „aðrar lausnir"
í atvinnuþróun að koma til.
Trúaratriði en ekki
raunhæfur möguleiki
Álbræðsla við Eyjafjörð hefur
verið gerð að trúaratriði. Þessari
trú er sífellt haldið við með ein-
hæfum áróðri á hæpnum forsend-
um. Sú trú að sæluríki álbræðsl-
unnar sé í nánd (sem það ekki er)
er til skaða fyrir atvinnuþróun
Eyjafjarðarsvæðisins vegna þess
að um leið og menn horfa á þetta
eitt loka þeir augunum fyrir
öðrum lausnum, sinna ekki þeim
verkefnum í atvinnuþróun og
uppbyggingu bæjar og héraðs,
sem bæði eru nærtækari og kostn-
aðarminni og veita fleira fólki at-
vinnu við fjölbreytt störf en ál-
bræðsla myndi gera. Það er ekki
einasta að álbræðsla sé fjarlægur
kostur og eigi langt í land, heldur
er og ljóst, að hún leysir ekki
þann vanda að sjá uppvaxandi
kynslóðum fyrir atvinnu nema að
litlu leyti. Einhæfnin í álbræðslu-
áróðrinum er til stórskaða og
kemur niður á einkaframtaki
heima fyrir um fjölbreytta iðn-
þróun og aðra uppbyggingu at-
vinnulífsins.
Orkar lamandi á
framtak manna
Áldraumarnir orka lamandi á
framtak og sjálfsbjargarviðleitni
einstaklinga. Álbræðsluhug-
myndina eiga Eyfirðingar (og
Akureyringar) undir öðrum en
sjálfum sér og sínu framtaki. Ey-
firðingar hafa þetta mál ekki í
hendi sér. í þessu efni eiga þeir
ekki einasta undir högg að sækja
hjá Reykjavíkurvaldinu, heldur
alþjóðlegu auðvaldi og öðrum
framandi öflum. Hollara væri að
stuðla að framtaki dugmikilla
einstaklinga í atvinnulífinu, ekki
einhverra stórkarla, heldur
manna sem vilja neyta krafta
sinna og kunnáttu við rekstur
hæfilega stórra fyrirtækja eða
efla félög og samtök til að stofna
ný iðnfyrirtæki eða þjónustu-
stofnanir, sem svara kröfum
framtíðarinnar um fjölbreytt at-
vinnulíf og fleiri störf í vaxandi
samfélagi. Þar kemur fleira til og
reyndar flest annað en álbræðsla
á vegum útlendra auðfélaga. Því
mikla fjármagni, milljörðum
króna, sem þarf til að reisa álver
og orkuver yrði betur varið til
annarrar atvinnuuppbyggingar á
Akureyri og í Eyjafirði. Nú ríður
á að virkja framtak og hugvit ein-
staklinga í bæ og byggð og skapa
samstöðu og samtök, þegar þess
er þörf, um að hrinda af stað nýj-
um atvinnufyrirtækjum í hæfilega
stórum einingum, fjölskyldufyr-
irtækjum og fyrirtækjum, sem að
mestu eru í eigu starfsmanna.
Stóriðjusamfélagið er ekki eftir-
sóknarvert.
Framtak sem virða ber
Synir Gísla Eiríkssonar, hins
kunna þúsundþjalasmiðs, hafa
sýnt að hugvit og framtak er til
meðal ungra, eyfirskra athafna-
manna og að ekki er þörf að láta
allt hjakka í sama farinu. En
dæmi þeirra sýnir - og er ekki
eindæmi - að hugvitssamir dugn-
aðarmenn eru ekki einasta heftir
af landlægri skriffinnsku og ófull-
nægjandi fyrirgreiðslu við ný-
sköpun atvinnulífsins hér á landi,
ekki síst úti um landsbyggðina,
heldur af heimaalinni vantrú á
ferskar hugmyndir, ef þær koma
ekki rétta boðleið eða lúta ekki
viðurkenndri forsjá og falla ekki
í fyrirfram ákveðna farvegi.
Sérstök ástæða er til að óska
þeim Davíð Gíslasyni og Nils til
hamingju með þann áfanga, sem
þeir hafa náð í uppbyggingu
fyrirtækis síns. Einnig ber að
flytja heillaóskir hinum nýja
framkvæmdastjóra, Kristjáni Jó-
hannessyni verkfræðingi, sem
ekki mun láta sitt eftir liggja að
efla þessa merku starfsemi. Mikl-
ar vonir eru bundnar við framtak
þessara ungu manna, ekki síst sú
von að hugvitssemi þeirra og
dugnaður verði öðrum ungum
mönnum hvatning til skapandi
starfa á sviði atvinnuþróunar á
Eyjafjarðarsvæðinu. Þar kemur
reyndar ótal margt til greina:
Frumframleiðsla til lands og
sjávar, eins og verið hefur, nýjar
búgreinar, hvers kyns iðnaður og
úrvinnsla, ferðaútvegur og önnur
þjónusta sem hlýtur að vaxa í
samræmi við þróun nútíma þjóð-
félagsgerðar, nýmæli og vöxtur
skólastarfsemi, þ.á m. háskóla-
kennsla á Akureyri og aukin vís-
inda- og rannsóknastarfsemi. í
þessu skyni verður að virkja op-
inbert og félagslegt framtak, og
þá ekki síður einstaklingsfram-
takið, hugvit manna og athafna-
semi, sem nauðsynlegt er að fái
að njóta sín með eðlilegum hætti,
þar sem það á við.
Ótal möguleikar bíða ungra
framtaksmanna á Akureyri og í
öðrum eyfirskum byggðum.
Ingvar Gíslason.