Dagur - 05.12.1984, Page 9
5. desember 1984 - DAGUR - 9
„Marka-
vél“
til
KA
Tryggvi Gunnarsson knatt-
spyrnumaður úr ÍR hefur
ákveðið að leika með KA
næsta keppnistímabii. Ekki
fékk Dagur þetta þó endanlega
staðfest, en heimildir blaðsins
má telja öruggar engu að síður.
Ti-yggvi er geysilegur marka-
skorari sem sést best á eftirfarandi
tölum: Hann lék í 4. deild með
ÍR sl. keppnistímabil og skoraði
þá hvorki fleiri eða færri en 46
mörk. Þá lék hann einnig með 2.
flokki félagsins og skoraði með
því liði 20 mörk. Afrakstur
Tryggva við mark andstæðing-
anna sl. sumar var því 64 mörk
og var hann langmarkahæsti leik-
maðurinn hér á landi.
Huginn
féll
ekki
Stjórn Knattspyrnusambands
íslands ákvað um helgina að
úrskurður dómstóls KSÍ varð-
andi leik Yals Reyðarfiröi og
Hugins Seyðisfirði skyldi vera
„ómerkur“.
Forsaga þessa máls er að Valur
kærði Hugin fyrir að hafa notað
ólöglegan leikmann í leik liðanna
í sumar. Var dæmt í málinu í hér-
aði og þar kveðið upp með að úr-
slit leiksins skyldu standa, en
Huginn vann sigur í leiknum.
Valsmenn áfrýjuðu og loks nú
fyrir skömmu er dómstóll KSÍ
dæmdi í málinu var dæmt Val í
vil sem þýddi að Huginn var fall-
inn í 4. deild.
Á ársþingi KSÍ um helgina
rakti Ólafur Már Sigurðsson frá
Seyðisfirði gang þessa máls. Kom
berlega í ljós í máli hans að sökin
varðandi félagaskiptin lá hjá
KSI og var því ákveðið að fjölgað
yrði um eitt lið í Norður- og
Austurlandsriðli 3. deildar.
Verða því 8 lið í deildinni næsta
sumar í stað 7 áður, en tvö lið
munu falla næsta haust í 4. deild.
Ný vaxtarræktarstöð:
Ciiújún Magniisson, Þór, i
kriippuni dansi negn Fylki uni
siðustu helgi. Itæði Akureyrar-
liðin i'ara suður uni lielgina, og
liæði leika þau gegn Armanni
og Grottu.
Ámi og Friðjón
voru felldir!
Árni Þorgrímsson varaformað-
ur KSI, Friðjón Jónsson gjald-
keri og Helgi Daníelsson
stjórnarformaður, voru ekki á
þeim lista sem uppstillingar-
nefnd á ársþingi KSÍ lagði
fram er að stjórnarkjöri kom
þar á sunnudaginn.
Áður en gengið var til atkvæða
lýsti Helgi Daníelsson því yfir að
hann væri ekki í kjöri, gæfi ekki
kost á sér til áframhaldandi
starfa. Þeir Friðjón og Árni gáfu
hins vegar kost á sér en féllu
báðir.
Þeir sem voru kjörnir í stað
þessara þriggja voru Þór Ragnar
Símonarson, Sveinn Sveinsson
og Sigurður Hannesson. Ellert B.
Schram var kjörinn formaður og
fyrir voru í stjórn Gylfi Þórðar-
son, Gunnar Sigurðsson og Helgi
Þorvaldsson. Fulltrúar landshlut-
anna voru kjörnir Kristján Jónas-
son Vesturlandi, Rafn Hjaltalín
Norðurlandi, Guðmundur
Bjarnason Austurlandi og Jó-
hann Ólafsson Suðurlandi. - í
uppstillingarnefnd voru Halldór
Jónsson, Stefán Gunnlaugsson
og Aðalsteinn Steinþórsson.
Fjölgað í
1. deild
„Þetta er hug-
sjónastarfsemi“
- segir Sigurður Gestsson
kvenna
Á ársþingi KSÍ um helgina var
ákveðið að breyta fyrirkomulagi
keppninnar í 1. deild kvenna.
Horfið var frá svæðisskiptingunni
sem viðhöfð var í fyrra, og
ákveðið að næsta sumar verði
leikið í einum riðli í 1. deildinni.
Deildin verður skipuð 8 liðum;
Akraness, Breiðabliks, ísafjarð-
ar, Keflavíkur, Þórs, KA, Vals
og annað hvort KR eða Súlunn-
ar. Tvö lið falla í 2. deild og tvö
efstu liðin þar koma upp.
sama verði og aðstaðan hér er
mjög góð. Allt ný tæki sem bjóða
upp á mikla möguleika, segir Sig-
urður Gestsson.
Það er óhætt að taka undir það
með Sigurði að tækin eru glæsileg
og ekki verður undrun blaða-
manns minni þegar í ljós kemur
að Sigurður hefur smíðað þau öll
sjálfur.
- Það er ein höfuðástæðan fyr-
ir því að við fluttum hingað niður
að ég sætti mig ekki við það að
smíða þessi tæki fyrir ekki neitt
og láta svo nemendur skólanna
sem hafa gengið mjög illa um sal-
inn uppi, eyðileggja tækin. Það
liggur í þessu hálfs ’árs vinna og
ég get fullyrt að þau eru sambæri-
leg við bestu erlendu tækin á
vaxtarræktarstöðvunum í
Reykjavík.
- Það hefur þá ekki komið til
tals að þú færir út í framleiðslu?
- Það var alveg inni í mynd-
inni en nú þegar virðist eiga að
rífa DNG, fyrirtækið sem ég vinn
hjá, upp þá helga ég því starfs-
krafta mína.
Þess má geta að æfingasókn í
vaxtarræktinni ,er mjög góð. Um
50 til 60 manns koma þar að með-
altali á dag og nú eru einmitt haf-
in kvennanámskeið sem Einar
Guðmann vaxtarræktarmaður og
starfsmaður stöðvarinnar leið-
beinir á.
Spyrjum Sigurð að lokum
hvort vaxtarræktarstöðin sé mik-
ið gróðafyrirtæki.
- Gróðavon er engin. Ég hef
lagt fram mikið fé í þetta og þetta
er hugsjónastarfsemi hjá mér. Ég
má sennilega þakka fyrir að
sleppa sléttur út úr þessu, segir
Sigurður Gestsson. - ESE
Vaxtarræktarmenn á Akureyri
fluttu sig um set um helgina.
Þeir öxluðu þá lóð sín og héldu
niður í kjallara íþróttahallar-
innar en fram að þessu hefur
aðstaða til vaxtarræktar verið
á fyrstu hæð hússins.
Það er Sigurður Gestsson,
fremsti vaxtarræktarmaður Ak-
ureyrar sem rekur hina nýju stöð
í eigin nafni en vaxtarræktarsal-
urinn á fyrstu hæðinni verður í
framtíðinni notaður fyrir skólana
og íþróttafélögin.
- Það er mikill munur fyrir
okkur að komast hingað. Við
fáum hér helmingi stærri sal á
1—X—2
Jón Bjarni Stefánsson.
„Astæða
til
bfartsýni“
- Þessa vikuna sækjum við okk-
ur spámann alla leið suður á
Eyrarbakka. Þar býr Jón Bjarni
Stefánsson Chclsea-aðdáandi,
einn sá harðasti hérlendis. Hann
byjaði að halda með liðinu árið
1966, og við spurðum hann hvers
vegna.
„Ég var á Samvinnuskólanum
að Bifröst og skólabróðir minn
einn þar hafði kynnst þessu liði
er hann var við nám í London.
Þetta varð til þess að ég fór að
gefa liðinu gætur og það var ekki
erfitt á þessum árum að hrifast af
því lidi seni þar var á ferðinni. í
liðinu voru margir snjnllir kappar
eins og Bonetti markvörður, Pet-
er Osgood og ekki má gleyma
„H-mönnunum" Hollins, Hogd-
son og Hutchinson."
- Hvernig list þér svo á liðið í
dag?
„Eg er ánægður með þróun
mála á Stantford Bridge. Eftir
erfitt timabil þar sem fjárhags-
örðugleikar urðu til þess að selja
varð marga fræga leikmenn er
nó búið að byggja aftur upp gott
og skemmtilegt lið. Framlinan er
afar aðgangshörð með marka-
skorarann mikla Dixon í farar-
broddi og ég sé ekki ástæðu til
annars en bjartsýni varðandi
Hðið."
Getraunaseðill yikunnar virð-
ist nokkuð súinn en hér kemur
spá Jóns Bjarna:
Luton-A. Villa x
Nonvich-West Ham 1
N. Forest-Man. IJtd. 2
QPR-Everton x
Sheff. Wed-Chelsea 2
Southampton-Arsenal x
Stoke-Ipswich x
Brighton-Grimsby x
Carlisle-Portsmoutli 2
Huddersfield-Wolves 1
Schrewsbury-Leeds 2
Wimbleton-Bamsley 1
Þráinn með
4 rétta
Þráinn Stefánsson spámaður síð-
ustu viku var með 4 leiki rétta og
er Ijóst að hann er úr leik. Sig-
urður Pálsson er enn bcstur með
6 rétta, en allir aðrir en hann og
Þráinn sem spáð hafa til þessa
eru með 5 rétta.
1—X—2