Dagur - 07.12.1984, Page 6
6 - DAGUR - 7. desember 1984
Framtíðarmenn KA
— Litið inn á æfingu hjá 6. flokki
í handboltanum
- Pollarnir sátu í anddyri
íþróttahallarinnar er okkur
bar að garði. Klukkuna
„Voða
gaman“
Ekki er okkur kunnugt um
hvað Þorleifur Ananíasson
var gamall er hann hóf að
iðka handknattleik, en sonur
hans Leó Örn sem er 9 ára
byrjaði fyrir tveimur árum.
„Ég spila á línu og þaö er
voöalega gaman að vera í hand-
boltanum," sagöi Leó Örn er við
liittum hann á æfingu 6. flokks. -
Þegar við spurðum hann um
framtíðaráformin í handboltan-
um stóð heldur ekki á svarinu:
„Ég ætla auðvitað að reyna að
komast í meistaraflokk og það
væri gaman að spila 500 leiki þar
eins og pabbi.
Kristján Arason í FH er uppá-
haldshandboltamaðurinn minn
og Friðjón Jónsson í KA.“
Leó Örn Þorleifsson.
vantaði enn 15 mínútur í 6
svo þeir fengu ekki að fara
inn alveg strax til að hafa
„Mig bara
langaði“
„Ég er nýbyrjaður í hand-
bolta en cefði líka fótbolta
með KA í sumar, “ sagði
Baldvin Valgarðsson er við
tókum hann tali fyrir cefing-
una.
„Mig bara langaði," sagði hann
þegar við spurðum hann hvers
vegna hann hefði skellt sér í
handboltann og Baldvin bætti við
að það væri voða gaman. „Við
spilum og gerum æfingar og lær-
um hvernig á að gera þetta.
Ég fylgist vel með meistara-
flokki KA og mér finnst KA vera
frábært lið núna,“ sagði Baldvin.
Baldvin Valgarösson.
fataskipti en nokkrum
mínútum fyrir 6 var þeim
hleypt inn og þustu þá með
ópum og óhljóðum til bún-
ingsklefanna. Það er svo
gaman að vera aðfara á œf-
ingu.
- Tveir af þjálfurum 6. flokks
KA í handknattleik voru mættir
á æfinguna, þeir Hafþór Heimis-
son og Óskar Elvar Óskarsson,
en þann þriðja, Axel Björnsson
vantaði að þessu sinni. Við
spurðum Hafþór hvort þeir þjálf-
ararnir hefðu gaman af því að
fást við þjálfun piltanna.
„Já það er gaman, annars vær-
um við ekki að gefa okkur í
þetta. Það er að vísu stundum
erfitt að hafa stjórn á strákunum,
þeir eru margir á hverri æfingu og
kappið er á stundum fullmikið."
- Nú gegnið þið ábyrgðar-
miklu starfi því þið eigið að koma
undirstöðuatriðunum til skila.
Hvernig hagið þið æfingunum?
„Við höfum % af salnum hérna
í íþróttahöllinni og vegna þess
hversu margir strákarnir eru á
æfingum skiptum við hópnum.
Við látum strákana spila á tvö
mörk þvert í salnum og á meðan
erum við með hina afsíðis í bolta-
æfingum. Þeir eru látnir
„dribbla" boltanum, skjóta á
mark og við reynum að fara í þau
undirstöðuatriði sem þeir eru
færir um.“
- Nú eruð þið þjálfararnir allir
leikmenn í meistaraflokki KA og
einnig í 2. flokki. Er ekki nóg að
æfa sjálfur og keppa og stunda
nám eða vinnu þótt ekki bætist
við þjálfun?
„Það er í sjálfu sér alveg nóg
en þó finnst okkur allt f lagi að
leggja þetta á okkur því þetta er
gaman. Það má segja að hjá mér
sé lífið handbolti og vinna en hjá
Axel og Óskari er ’ að handbolti
og skólinn," sagði Hafþór að
lokum.
Allt á fullri ferö á æfingunni.