Dagur - 07.12.1984, Síða 16
Akureyri, föstudagur 7. desember 1984
Afgreiðum jólaglögg
alla daga til jóla
bæði á Bauta og í Smiðju.
Þessi gjaldskrárbreyting er
hvorki til hækkunar eða lækk-
unar í heildina, hún er til að
einfalda gjaldskrána og sam-
ræma hana gjaldskrám ann-
arra rafveita,“ sagði Sigurður
Jóhannesson, formaður stjórn-
ar Rafveitu Akureyrar, í sam-
tali við Dag.
„Við fækkum töxtum verulega
og einföldum gjaldskrána, þannig
að það getur verið að um ein-
hverja hækkun verði að ræða hjá
einstökum neytendum og lækkun
hjá öðrum. Hins vegar breytist
ekki sá taxti sem snertir almenn-
ing mest, það er heimilistaxtinn,
sem hvergi er lægri heldur en hér
á Akureyri,“ sagði Sigurður Jó-
hannesson.
Þessi nýja gjaldskrá Rafveitu
Akureyrar var til fyrri umræðu í
bæjarstjórn Akureyrar í gær, en
gjaldskráin á að taka gildi um
næstu áramót. - GS
„Hálfgerður vítahringur“
- segir Steingrímur Hermansson um fjárfestingu landsbyggðafólks í höfuðborginni
„Það sjónarmið kom fram hjá
einum ræðumanna á fundi
Samtaka um jafnrétti milli
landshluta á Hvammstanga, að
menn mættu ekki aðeins gera
kröfur heldur þyrftu þeir að líta
í eigin barm. Hann nefndi sem
dæmi að menn utan af landi
fjárfestu í íbúðum í Reykjavík
og ég held að það sé mjög mik-
ið um þetta,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson, forsætisráð-
herra, í viðtali við Dag.
Forsætisráðherra var á áður-
nefndum fundi og haft var eftir
honum í útvarpsviðtali að þetta
sjónarmið hefði komið fram og
hann tók undir það. Steingrímur
sagði í viðtali við Dag að þetta
yrði til þess að spenna skapaðist
í framkvæmdum á höfuðborgar-
svæðinu og að minna væri byggt
á landsbyggðinni fyrir vikið.
Hann var spurður að því hvort
hann teldi þetta orsök eða afleið-
ingu.
Nýsköpun í
atvinnulífi
- Ég bind talsverðar vonir við
að þetta framtak okkar verði
til þess að nýjar hugmyndir um
nýsköpun í atvinnumálum
komi upp á borðið og að þátt-
taka verði góð af öllu Iandinu,
sagði Jón Sigurðarson, for-
maður Atvinnumálanefndar
Akureyrar, í samtali við
blaðamann Dags, er hann var
spurður um auglýsingu frá
nefndinni sem birtist í blöðum
nú í byrjun vikunnar.
í auglýsingunni er óskað eftir
hugmyndum um nýsköpun í at-
vinnulífi, frá fyrirtækjum eða
einstaklingum. Litið er á hug-
myndirnar sem eign þess sem þær
leggur fram og verður farið með
þær sem trúnaðarmál sé þess
óskað. Allar hugmyndirnar á að
rannsaka ítarlega og nefndin
mun kanna arðsemi þeirra og
hvernig þeim verður best hrint í
framkvæmd.
Upplýsingar gefur Úlfai
Hauksson, hagsýslustjóri Akur-
eyrarbæjar. - ESE
„Þetta er góð spurning. Ég
íeld að þetta sé orðinn hálfgerð-
ir vítahringur og þegar þannig er
;etur verið erfitt að greina upp-
íafspunktinn. Fólk gerir þetta
ekki til að græða hygg ég, heldur
til að tryggja sig í framtíðinni.
Það hugsar um börn sín og skóla-
göngu þeirra og margir telja að
betra sé að eyða elliárunum í
Reykjavík," sagði Steingrímur
Hermannsson.
Margir telja að skýringin á
þessu liggi í því að þar sem
íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
sé svo miklum mun hærra en úti
á landi fjárfesti fólk sem eignast
einhverja peninga í íbúðum í
Reykjavík. Svo hafi a.m.k. verið
á undangengnum verðbólguár-
um, áður en verðtrygging spari-
fjár varð almenn. Þetta stafi hins
vegar af því að ekki hafi verið
nægilega gætt að skapa fólki
jafna aðstöðu, m.a. til náms og
þjónustu ýmiss konar. HS
Vörubfllinn sá arna gerðist heldur nærgöngull við afturendann á Volvonum, og er ástæða til að vara ökumenn við
hálkunni sem leynist á götum bæjarins þessa dagana. Mynd: KGA
„Það er ekki hægt að
sniðganga gjöful mið“
- Það er ekki mögulegt fyrir
menn að sniðganga mið þar
sem þeir þurfa ekki annað en
að sökkva nótinni til að fá full-
fermi, en það má vel vera að
menn reyni aftur fyrir Norður-
landi eftir áramótin, sagði
Gísli Elíasson hjá Sfldarverk-
smiðjum ríkisins á Siglufirði er
við forvitnuðumst um gang
mála á yfirstandandi loðnu-
vertíð.
Er haft var samband við Gísla
var allt tómt á Siglufirði en von
var á nokkrum fáum en stórum
skipum inn með afla. T.d. hafði
Eldborgin úr Hafnarfirði tilkynnt
um 1.400 tonna afla og Hilmir
var með ein 1.100 tonn og á leið
til lands.
Það sem af er vertíðinni hefur
verið landað um 48 þúsund tonn-
im af loðnu á Siglufirði en mest
hefur þar verið landað 107 þús-
und tonnum á einni vertíð, árið
1981.
Að sögn Gísla hefur veiðst
mjög vel á loðnumiðunum og það
væri skiljanlegt að menn reyndu
ekki fyrir sér annars staðar á
meðan allt væri vaðandi í loðnu
fyrir Austfjörðum.
- Ég hef trú á því að það sé
talsvert um loðnu úti fyrir Norð-
urlandi. Sögusagnir benda til
þess að svo sé og eins má benda
á að Grindvíkingur fékk ein
1.100 tonn þar eftir tvær nætur og
landaði síðan í Krossanesi. En
það tekur enginn séns á því að
reyna frekar, hvað svo sem verð-
ur eftir áramótin. Það styttist í
jólafríið, sagði Gísli Elíasson.
- ESE
Það verður norðanátt í
dag og á morgun á
Norðurlandi og þessari
norðanátt á að fylgja
éljagangur að sögn
veðurfræðings í
morgun. Á sunnudag er
hins vegar gert ráð fyrir
að suðvestanátt taki
völdin að nýju og þá
hlýnar og birtir til.
JóhOboð
Loðfóðraðir barnastakkar frá nr. 1-8
Ný sending af náttsloppum frá nr. 2-10. — ^
Náttföt og náttkjólar.
Nærfatnaður frá Nieland og Schiesser.
Bamafatnaður frá Cartes.
Tvískiptir útigaUar frá nr. 91-105.
Samfestingar frá nr. 2-14.
Barnabuxur frá nr. 2-14. Póstsendum.
Peysur í úrvaU.