Dagur - 10.12.1984, Qupperneq 2
2 - DAGUR — 10. desember 1984
Ertu með aðventu
krans í stofunni
hjá þér?
Hrcinn Oskarsson:
Já, það held ég að ég megi
segja. Við höfum alltaf haft
aðventukrans.
Halla Björgvinsdóttir:
Ekki ennþá, ég á eftir að
hann.
Haraldur Gunnursson
Nei.
Gestur Traustason:
Ha? Nei, mér finnst of
snemmt að halda upp á jólin
núna.
Kristján Þorvaldsson:
Ég hef ekki komið heim til
mín svo lengi að ég veit það
ekki.
„Starfsmennirnir hér eru eiginlega ekki með neitt ákveðið
verksvið hver og einn, við erum allt í öllu eins og sagt er.
Reyndar má segja að það að sinna útköllum á vinnustöðum og
annast trúnaðarkerfi féiagsins eigi að vera mitt aðalstarf, en
reyndin hefur orðið sú að það fer jafn mikill tími í annað,“ seg-
ir Björn Snæbjörnsson starfsmaður Verkalýðsfélagsins Eining-
ar, en Björn er í Viðtali Dags-ins að þessu sinni.
„Þegar ég tala um að sinna út-
köllum á vinnustöðunum á ég við
að fara á þá staði þar sem einhver
mál koma upp sem þarf að leysa,
eða til þess að gefa upplýsin'gar
um hin ýmsu mál. Staðreyndin er
hins vegar sú að það fer sífellt
meiri tími hjá okkur á skrifstof-
unni í vinnu vegna atvinnuleysis-
bóta og fer því miður vaxandi."
- Þú talar um útköll á vinnu-
staði, vegna hvers er aðallega
kallað í ykkur?
„Það er oft sem kemur upp
ágreiningur á vinnustöðum um
túlkun á samningum og öðru
slíku. Trúnaðarmenn vilja fá
okkur til þess að spyrja okkur út
úr og þá er betra fyrir okkur að
hafa allt á hreinu. Yfirleitt eru
þetta smámál, túlkunaratriði, og
svo er alltaf eitthvað um að leysa
þurfi úr málum vegna bónusfyr-
irkomulags. Bónusinn getur ver-
ið erfiður viðfangs, það er tals-
vert um það t.d. í fiskvinnslunni
að verið sé að breyta í nýjar
pakkningar, og þá rekur fólkið á
eftir því að nýir staðlar séu
kornnir."
- Þú minntist á að vinna vegna
atvinnuleysisbóta taki sífellt
meiri tíma?
„Já, sú vinna tekur orðið gífur-
legan tíma og er þá á kostnað
þess að við getum verið eins mik-
ið úti á vinnustöðunum og við
vildum. Það eru miklir útreikn-
ingar varðandi atvinnuleysisbæt-
urnar, það þarf að undirbúa
hvert mál undir fund hjá nefnd
sem úrskurðar í þessum málum.
Þetta er allt keyrt út á tölvu sem
sparar okkur geysilega mikla
vinnu, en áður var allt hand-
reiknað. Ef það fyrirkomulag
væri enn viðhaft þá myndum við
ekki einu sinni komast yfir að sjá
um þennan málaflokk. Við sjáum
um þessi mál fyrir alla okkar
aðal- og aukafélaga sem eru tals-
vert á fimmta þúsund og erum
einnig með þessi mál fvrir önnur
félög eins og sjómannafélögin,
málmiðnaðarmenn og fleiri. Ekki
er allt upptalið, við þurfum að
búa þetta út fyrir Trygginga-
stofnunina sem fer yfir þessi mál,
það þarf svo að ganga frá öllum
ávísunum og greiða þær út.
Þessar bætur eru greiddar út
hálfsmánaðarlega og það má
segja að önnur hver vika fari al-
veg í það að ganga frá þessu. Á
sama tíma geta svo hrannast upp
mál sem ekki er hægt að sinna
þannig að maður er alltaf að elta
skottið á sér.“
— Er mikið um það að fólk telji
sig eiga rétt á atvinnuleysisbótum
en á svo ekki þann rétt?
„Það kemur fyrir og er ekki
skemmtilegt, við vitum að fólk er
í vandræðum og það er ekki gam-
an að fást við þau mál. Annars er
mjög gott að vinna fyrir það fólk
sem hingað sækir, það skilur
hlutina vel og er mjög þakklátt.
En því miður, það koma upp mál
sem við ráðum ekki við og þá eru
dagarnir ekkert skemmtilegir."
- Er þetta vinna sem þú tekur
með þér heim?
„Já, frístundirnar hafa ekki
verið miklar síðan ég byrjaði í
þessu starfi, það tekur nær allan
minn tíma. Það er ýmislegt sem
kemur upp á þótt komið sé kvöld
eða helgi, það þarf að sækja
fundi og það er mikið um það að
fólk hringi á þessum tímum og
sé að leita upplýsinga. Þetta fólk
hefur þá ekki möguleika á að
komast í síma í vinnutímanum.
Ég neita því sem sagt ekki að
þetta starf kemur niður á fjöl-
skyldunni, en ef ég á frístund þá
reyni ég að sinna fjölskyldunni og
á sumrin sprikla ég svolítið á eftir
fótbolta ef tækifæri gefst.“
- Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi?
„Ég byrjaði 1. maí 1982, byrj-
aði reyndar ekki að vinna fyrr en
2. maí eins og gefur að skilja en
var ráðinn frá 1. maí og það hitt-
ist skemmtilega á þar. Áður vann
ég verkamannavinnu hjá Tré-
smiðjunni Reyni.“
- Þú ert ekkert að hugsa um
að fá þér annað starf?
„Nei alls ekki. Maður reynir að
gera sitt besta og ef maður finnur
að maður stendur sig er gaman
að þessu. Þetta er spennandi
starf." gk-.
Björn Snæbjömsson.
SHNNALOFTSINS
„Skinnaloftið“
verslun Iðnaðardeildar
(í gömlu Gefjunarbúðinni)
Við bjóðum:
Góðar mokkaflíkur
á frábæru verði
Opið kl. 1-6 út desembermánuð.
Pá má ekki gleyma:
Mokkahúftinum og mokkalúffunum
Tilvalið í jólapakkann.
Þetta er tilboð sem erfitt er að hafria.
Sjáumst.
IÐNAÐARDEILD
SAMBANDSINS