Dagur - 21.12.1984, Page 10

Dagur - 21.12.1984, Page 10
' 10 - DAGUR - 21. desember 1984 21. desember 1984 - DAGUR - 11 Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 • Fréttaannáll ársins 1984 hljóta að vera mjög ánægðir með ástandið því það er allt að tveimur mánuðum á undan miðað við síðasta ár,“ sagði Stefán Skaftason ráðu- nautur í Aðaldal í samtali við Dag. Ekki var nóg með að vorið væri gott, sumarið var það einnig og þá er óhætt að segja að haustið og það sem af er vetri hafi ekki látið sitt eftir liggja- „Allir ökumenn í Húnavatnssýslum án prófs,“ sagði í baksíðufyrirsögn Dags 30. apríl. Ekki var ástandið þó svo slæmt, heldur kom fram í yfirfyr- irsögn að fjöldi þeirra ökumanna sem misst hafa ökuleyfi sitt sl. 10 ár svaraði til þess að allir Húnvetningar væru próflausir. Við minntumst hér áðan á góða veðrið sl. vor. Því til sanninda má geta þess að í apríl voru eplatré á Akureyri í blóma í garði Arnórs Karlssonar. Maí: Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn á Akureyri í byrjun mán- aðarins. Þar kom m.a. fram að fé- lagsmenn fengu 10,5 milljón króna afslátt á árinu 1983. Rekstursreikn- ingur ársins 1983 sýndi 8,1 milljón króna hagnað og var honum að mestu ráðstafað til félagsmanna með einum eða öðrum hætti. Konur á Akureyri héldu „krútt- magakvöld" í Sjallanum og var þar mikið um dýrðir. Stofnað var svo- kallað karlavinafélag og eru ein- kunnarorð félagsins: „Betri er einn karl í bóli en frosin fruma í röri.“ Eru þessi einkunnarorð tilkomin vegna þess að sæðisbankar ryðja sér nú mjög til rúms og „hitt“ er á undanhaldi! Ákaflega léleg veiði var hjá togur- um á Sauðárkróki. Þegar komið var fram í miðjan maí höfðu togarar Út- gerðarfélags Skagfirðinga Hegranes, Drangey og Skafti ekki fengið nema 300-400 tonn af þorski hver og átti útgerðarfélagið því um 2.500 tonna þorskkvóta eftir. Úr þessu rættist hins vegar er lengra leið á árið og Sauðkrækingar hefðu þurft stærri kvóta eins og flestir aðrir. Sunna Borg leikkona hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Guð- mundsdóttur. Var þetta í fyrsta skipti að leikari utan Reykjavíkur hlýtur styrkinn og sagði Porsteinn Gunnarsson sem afhenti hann að auk þess sem hér væri um persónulega viðurkenningu að ræða til Sunnu Borg mætti Leikfélag Akureyrar líta á þetta sem viðurkenningu fyrir þróttmikið starf. Á aðalfundi Útgerðarfélags Akur- eyringa kom fram að hagnaður af rekstri frystihúss fyrirtækisins nam rúmum 22 milljónum króna. Hins vegar varð um 20 milljón króna tap á útgerð togara fyrirtækisins. Ágóði af skreiðarverkun nam um 3,6 millj- ónum króna og heildarútkoman varð því sá að um 2,5 milljón króna ágóði varð af rekstri fyrirtækisins árið 1983. „50 ökumenn hafa verið skotnir á Akurcyri" sagði í baksíðufyrirsögn Dags. - Málið reyndist sem betur fer ekki eins alvarlegt og ætla mætti við fyrstu sýn, því hér var um að ræða að viðkomandi ökumenn höfðu lent inn í geisla radarbyssu lögreglunnar sem hún notar við hraðamælingar sínar. Má því segja að ökumennirnir hafi sloppið með skrekkinn. Rekstur Kísiliðjunnar í Mývatns- sveit gekk vel og sagði Hákon Björnsson framkvæmdastjóri í sam- tali við Dag að það væri efnahagsað- gerðum ríkisstjórnarinnar að þakka. „Við höfum fengið hækkandi verð á erlendum mörkuðum og peningarnir skila sér auðvitað betur þegar verð- bólgan er ekki til þess að éta þetta upp jafnóðum." Togarinn Björgvin frá Dalvík fékk óvenjulegan afla í trollið. Var það risasmokkfiskur sem var hvorki meira né minna en 4,3 metrar á lengd en meðalstærð smokkfiska er á bilinu 50-70 cm. Þegar hér var komið sögu bárust fregnir af góðum aflabrögðum á Húsavík. Afli var góður á netum og snurvoð og þá gengu rækjuveiðar togarans Kolbeinseyjar vel. Júní: „Við höfum miklar áhyggjur af því ef framkvæmdum við Kröfluvirkjun verður hætt og það mun hafa alvarleg áhrif á þetta samfélag hér við Mývatn," sagði Arnaldur Björnsson sveitarstjóri í Mývatnssveit í samtali við Dag. Heyrst hafði að jafnvel kæmi til álita að flytja aðra vélasam- stæðu virkjunarinnar suður fyrir heiðar og hugmyndir um jarðhita- orkuver og risastóra laxeldisstöð í tengslum við hana gaf þessum orð- rómi byr undir báða vængi. „Heyskaparútlit við Eyjafjörð er mjög gott og mér kæmi ekki á óvart þótt einhverjir bændur hér frammi í Firði myndu byrja slátt fyrir miðjan júní,“ sagði Ævarr Hjartarson ráðu- nautur í samtali við Dag. Það gekk eftir og mjög vel viðraði til heyskap- ar í Eyjafirði eins og reyndar um allt Norðurland í sumar. Enn var háskólakennsla á Akur- eyri til umræðu. „Ég fer í það að skoða álit nefndarinnar alveg á næst- unni,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra í samtali við Dag. Jón Benediktsson frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd tilkynnti í nafni systkinasjóðs að hann hyggðist færa Svalbarðsstrandarhreppi að gjöf 500 þúsund krónur og ætti að verja þeim peningum til eflingar skógræktar á Svalbarðsströnd. Fullkomið myndbandafyrirtæki var stofnað á Akureyri. Hlaut það nafnið Samver hf. Eigendur eru ýms- ir aðilar á Norðurlandi, félög, fyrir- tæki og einstaklingar. í fyrirtækinu er m.a. unnið við gerð auglýsinga fyrir sjónvarp auk þess sem hugmyndin er að vinna að hvers konar fræðslu- myndagerð fyrir fyrirtæki og sveitar- félög, kynningar- og heimildar- myndum svo eitthvað sé nefnt. Umræður um álver náðu nú há- marki. Andstæðingar álvers við Fjörðinn héldu næturfund í Frey- vangi og mótmæltu harðlega öllum álvershugleiðingum. Lögreglan sagði að ástand ungling- anna sem dvöldu í Vaglaskógi um hvítasunnuhelgina hefði verið „suddalegt“. Geysileg ölvun var á svæðinu og m.a. var bifreið ekið í Fnjóská sem tók bifreiðina, kuðlaði henni saman og skilaði síðan á land nokkru neðar, gjörónýtri. Sveitarfélög á Norðurlandi samein- uðust um kaup á malbikunarstöð. Er stöðin færanleg og tekur stuttan tíma að færa hana milli staða. Binda Norðlendingar miklar vonir við þessa stöð og vonandi verður hún til þess að malbikunarframkvæmdir á hinum ýmsu stöðum aukast. Enn hélt álversumræðan áfram. Meðmælendur stóriðju við Eyjafjörð og andstæðingar þeirra einnig voru komnir af stað með undirskriftalista til stuðnings sínum málstað. And- stæðingar stóriðjunnar hafa þegar skilað sínum listum til forsætisráðherra en hinir meðmæltu ætla sér að hinkra lengur við, segjast samt vera komnir með fleiri nöfn en hinir. Það var ekki seinna vænna að grill- staður yrði opnaður í Grímsey. Það gerðist um miðjan júní og hlaut hann nafnið „Pólar-grill". Þar er að sjálf- sögðu að fá hamborgara, pizzur og fleira nammi. 17. júní hátíðahöldin fóru mjög vel fram á Akureyri og Húsavík. Aðra sögu var að segja frá Sauðár- króki en þar lenti lögreglan í hinu mesta basli. Menn höfðu þar tekið tappa úr flöskum og létu illa. Var fangageymslan tvífyllt og dugði ekki til svo flytja varð nokkra til ge^mslu í fangageymslur á Blönduósi. I sam- tali við Dag stuttu síðar sagði Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn að fleiri væru búnir að gista fanga- geymslur á Sauðárkróki fram í miðj- an júní en gistu þar allt árið 1983. í annað skipti á árinu varð Piper Chieftain flugvél Flugfélags Norður- lands fyrir óhappi. Nú var um að ræða vél sem var að flytja 6 farþega frá Akureyri til Bíldudals. Vélin kom niður utan brautar og skemmdist talsvert. Var hún síðar flutt sjóleið- ina til Akureyrar, þar settur á hana vængur af vélinni sem hafði hlekkst á í Ölafsfirði fyrr á árinu og „Bíldu- dalsvélinni" síðan flogið til Evrópu til viðgerðar. Júlí: Ungur Akureyringur, fvar Bjarklind, vakti óhemju athygli á miklu knattspyrnumóti sem fram fór í Vestmannaeyjum. fvar, sem er að- eiiis 9 ára sýndi þar snilldartakta með boltann og hann var kjörinn með yfirburðum besti leikmaður mótsins en í því tóku þátt hátt í 400 piltar víðs vegar af landinu. Blönduósingar hófu í sumar fram- kvæmdir við nýja íþróttamiðstöð. Byggja á 22x44ra metra íþróttasal, útisundlaug, gufubaðstofu o.fl. „Það er ljóst að það verður ekki í allra nánustu framtíð sem lokið verður við þetta mannvirki. Þetta eitt sér væri alveg nóg verkefni fyrir sveitarfélag- ið næstu árin,“ sagði Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri á Blönduósi í samtali við Dag af þessu tilefni. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hafði til athugunar nýtingu á afgangsvarma frá hugsanlegu álveri sem reist yrði við Eyjafjörð. Áætlað er að afgangs- varmi frá 130 þúsund tonna álverk- smiðju yrði 130 gigawattstundir, sem nægði til upphitunar á 5 þúsund manna byggðarlagi. „Þetta er vissulega áhyggjuefni,“ sagði Valtýr Sigurbjarnarson bæjar- stjóri í Ólafsfirði er rætt var um „fólksflótta“ þaðan. „Að sjálfsögðu eru það atvinnumálin sem spila hér inn í, hér var mikið atvinnuleysi sl. vetur og hugsanlegt er að fólk óttist að slíkt gerist aftur næsta vetur,“ bætti Valtýr við. Enn var kennsla á háskólastigi á Akureyri að veltast fyrir mennta- málaráðherra. „Málið er til athugun- ar hér í ráðuneytinu og meira get ég ekki sagt á þessu stigi,“ sagði Ragn- hildur Helgadóttir menntamálaráð- herra. Innritun lauk fyrir fyrsta starfsár Verkmenntaskólans á Akureyri. Alls voru 748 nemendur innritaðir, en nemendur þeirra skóla sem Verk- menntaskólinn leysti af hólmi voru 610 árið áður þannig að um mikla aukningu var að ræða. Heyskapartíð var með afbrigðum góð. Á Ytra-Laugalandi lauk hey- skap um miðjan júlí, eða á sama tíma og heyskapur hófst þar árið áður! Bæjarstarfsmaður nokkur sem er- indi átti í hús á Akureyri varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að hundur í húsinu réðst á hann. Beit hundurinn manninn fyrst í handlegg- inn en reyndi síðan árangurslaust að komast að hálsi mannsins: Samkvæmt upplýsingum frá hag- deild Iðnaðarbankans höfðu innlán í banka á Akureyri minnkað stórlega í hlutfalli við þá þróun sem almennt hafði orðið í landinu. Vantaði 180 milljónir króna í bankakerfið á Ak- ureyri til þess að innlánin næðu sama hlutfalli af landsmeðaltali og var á ár- unum 1978 og 1979. Lyftingamaðurinn Gylfi Gíslason frá Akureyri var dæmdur í keppnis- bann fyrir að hafa tekið inn ólöglegt lyf fyrir Evrópumótið í lyftingum sem fram fór á Spáni. í Ijós kom að Gylfi hafði tekið inn bólgueyðandi lyf sem er löglegt, og tilkynnt það fyrir keppnina. Engu að síður var hann ásamt fjölmörgum öðrum dæmdur í keppnisbann. Ekki er enn séð fyrir endann á þessu máli. Rússneska skemmtiferðaskipið Estonia sigldi á togarann Harðbak frá Akureyri á Strandagrunni aðfara- nótt 21. júlí. Talsverðar skemmdir urðu á Harðbak og einnig á stefni skemmtiferðaskipsins. Læknar og lyfsalar skipuðu sér í öll efstu sætin í álagningaskrá í Norður- landskjördæmi eystra en skráin var lögð fram 25. júlí. Oddur C. Thorar- ensen lyfsali á Akureyri var hæstur einstaklinga en Kaupfélag Eyfirðinga var með langhæst gjöld félaga. Heljarmikið „karnival“ var haldið á Akureyri í lok mánaðarins. Ungir og aldnir brugðu sér í hin ýmisleg- ustu gervi og létu gamminn geysa í bænum í einn dag og reyndar fram á nótt. Allt fór vel fram og er fyrirhug- að að „karnival" verði árlegur við- burður á Akureyri í framtíðinni. Agúst: Málefni DNG voru mikið til umræðu á árinu. Lengi vel leit út fyrir að fyrirtækið flyttist úr landi en þann 1. ágúst segir Nils Gíslason í samtali við Dag: - í Noregi eru miklir styrkir veittir allri nýrri starfsemi á borð við þá sem DNG stendur að - „svoleiðis að maður verður alveg grænn“. En við erum íslenskir ennþá. Það væri hart að þurfa að gefast upp og flytja er- lendis, við reynum að vera hér áfram. Rætt er um að gera fyrirtækið að almenningshlutafélagi og Jón Sigurð- arson, formaður atvinnumálanefndar segir að það eina sem fyrirtækið vanti sé áhættufjármagn. Þann 1. ágúst var einnig opnað kvennaathvarf á Akureyri og krakk- ar í vinnuskólanum kröfðust þess að fá laun sín útborguð. Kartöflubændur voru með spræk- asta móti í byrjun mánaðarins. Nokkrir höfðu kíkt undir og Svein- björn Laxdal spáði 20-faldri upp- skeru sem síðar kom á daginn að var ekki fjarri lagi. Þann 7. ágúst héldu 11 valinkunnir Eyfirðingar áleiðis til Kanáda með „álfuglinum“ frá Alcan. Ferðalang- arnir skoðuðu álverksmiðjur ytra og landbúnaðarhéruð og hrifust mjög af öilu því sem fyrir augu bar. Helgina á undan bar mikið á um- ferðaróhöppum í nágrenni Gríms- staða. Átta voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur og franski sendiherr- ann fór á hvolf í bíl sínum. Það er að segja: Bíll hans valt. Flugleiðir byrja að selja „hopp- miða“ og loksins geta menn því hoppað á ódýran hátt á milli Akur- eyrar og höfuðborgarinnar. Ekki þarf þó að reyna verulega á ganglimi því hér er um að ræða sérstök far- gjöld í innanlandsflugi sem seld eru á hálfvirði. „Hættum ekki í bili að minnsta kosti,“ segir Valdimar Kjartansson stjórnarmaður í Árveri hf. á Ár- skógsströnd en honum líst ekki frek- ar en öðrum á blikuna varðandi sölumál á rækju. Annar kappi sem ekki lætur heldur deigan síga er Jón Gíslason sem endurbyggir Gamla Lund í trássi við DV og þjóðminjavörð. Og Jón byggði húsið upp og Gamli Lundur varð nýjasta húsið á Akureyri. „Hann er sprunginn þvers og kruss,“ segir í fyrirsögn í Degi 15. ágúst. Ekki er þó verið að ræða um ákveðinn stjórnmálaflokk, heldur er það klukknaturninn á Hólum sem er að gefa sig. Þann 20. ágúst greinir Dagur frá því að búið sé að stofna hlutafélag um seiða- og laxeldi í Kelduhverfi með þátttöku Eimskipafélagsins og Sambandsins. Nefnist hlutafélagið Krossdalur hf. og á að gera tilraunir með laxeldi í fersku vatni. „Verður endurhæfingarstöð Sjálfs- bjargar Iokað?“ spyr Dagur en ástæðan er slæm fjárhagsstaða Sjálfs- bjargar. Hallinn á rekstri stöðvarinn- ar var ein milljón kr. á síðasta ári, upplýsir Valdimar Pétursson, fram- kvæmdastjóri Sjálfsbjargar í viðtali við Dag þann 20. ágúst. Ékkert verð- ur þó af lokun stöðvarinnar því hún er opnuð aftur eftir sumarleyfi. „Þetta var draumatúr,“ segja eig- endur Akureyrinnar, nýja frysti- togarans um veiðiferð sem lauk svo sannarlega vel. Aflaverðmætið eftir túrinn var 15 milljónir króna sem er mesta verðmæti sem fiskiskip hefur fært að landi eftir eina veiðiferð hér á landi. Loksins berast fréttir af ákveðnum dagsetningum í sambandi við stein- ullarverksmiðjuna á Sauðárkróki. Samkvæmt upplýsingum fram- kvæmdastjórans á framleiðsla að hefjast um mitt ár 1985. Þann 22. ágúst gengu álversand- stæðingar við Eyjafjörð á fund for- sætisráðherra og afhentu honum undirskriftalista með mótmælum 3.300 manna. Ekkert bólaði hins vegar á listum stuðningsmanna stór- iðju. Miklar skemmdir urðu á Súlunni EA er eldur kom upp í skipinu í Slippstöðinni. Nýi bíll slökkviliðsins sannaði notagildi sitt við slökkvi- starfið. Thule-bjór er vakinn til lífsins hjá Sanitas á Akureyri. Heil 5,4% að styrkleika og aðeins fyrir útlendinga og ferðamenn. Þeir voru ekki aldeildis á kúpunni bændurnir á Árskógsströnd undir lok mánaðarins en þá fundust átta haus- kúpur er verið var að grafa fyrir vatnslögn við bæinn Hellu. Ólafsfirðingar héldu upp á 100 ára byggð í Ólafsfjarðarhorni og var það sannkölluð fjölskylduskemmtun. September: Menntamálaráðherra byrjar mánuð- inn vel með því að láta uppi tillögur þær sem nefnd um háskólakennslu skilaði í maí. í nefndarálitinu er lögð til umfangsmikil kennsla á háskóla- stigi á Akureyri og að bærinn verði efldur sem miðstöð mennta og vís- inda utan höfuðborgarinnar. Þegar líða tekur á árið er Ijóst að ekkert verður af háskólakennslunni - í bili a.m.k. Verkmenntaskólinn er settur í byrjun mánaðar með pompi og prakt. Þann 4. september hefst mesta eld- gosið á Kröflusvæðinu frá upphafi elda árið 1975. Um tíma var óttast að hraunstraumurinn rynni á Kröflu- virkjun en svo fór þó ekki. Gosið var það fjörugasta fram að þessu og því lauk ekki fyrr en nokkuð var liðið á mánuðinn. Mikill samdráttur er boðaður í dreifbýlisskólunum en í Reykjavík er samdrátturinn 9,4% aukning á stöðugildum. Kennarar og skólayfir- völd á landsbyggðinni deila hart á menntamálaráðherra. Menntamála- ráðherra gerði það heldur ekki enda- sleppt á Fjórðungsþingi Norðlend- inga. Þar var ráðherra með framíköll er það var upplýst að fyrir dyrum stæði að ríkið drægi úr greiðslum til dreifbýlisskólanna. „Sjöfn selur gólfefni til USA." seg- ir í frétt Dags þann 7. september og Aðalsteinn Jónsson, forstjóri segir að þetta geti skipt sköpum fyrir verk- smiðjuna. „Verða verkföll?" spyr Dagur á forsíðu þann 10. september. Svarið fæst sama kvöld en þá fara bókagerð- armenn í verkfall og blaðaútgáfa lamast. Síðan fylgja fleiri launþegar í kjölfarið eftir að bókagerðarmenn hafa verið í verkfalli í mánuð. Næsta tölublað af Degi kemur ekki út fyrr en 24. október. Október: Bókagerðarmenn semja loks við viðsemjendur sína mánudaginn 22. október, eftir sex vikna verkfall og fá 20-24% launahækkun á samnings- tímanum sem er til áramóta 1985/86. Ekki blæs þá byrlega í samningavið- ræðum BSRB og ríkisins en staifs- menn Dags senda Guðlaugi Þor- valdssyni 100 vindla, þegar þeir kom- ast að raun um að það séu helst vindlar sem halda mönnum gangandi í karphúsinu og að uppáhaldsvindlar sáttasemjara séu á þrotum. „Svældu þá til samninga," segir í bréfi Dags- rnanna til sáttasemjara og hvort sem það er vindlunum að þakka eður ei, þá fer að þokast í samkomulagsátt. Dagsmenn sátu ekki auðum hönd- um í verkfallinu. Starfrækt var út- varpsstöð FM-90 í samvinnu við góða menn og síðar eftir að sending- ar voru stöðvaðar að boði yfirvalda var gefinn út „fréttasnepill" sem nefndist Verkfallsdagur. Verkfall BSRB er ekki enn leyst þann 27. október en Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra segir á kjördæmisþingi Framsóknarflokks- ins á Húsavík að ef BSRB semji á svipuðum nótum og einstök sveitar- félög og aðrir fylgi í kjölfarið þá þýði það 25-30 prósent verðbólgu á næsta ári. Aðfaranótt 29. október kemur upp eldur í hlöðu að Reykjum í Fnjóska- dal og brenna þar um 1.200 hest- burðir af heyi. Samningar milli ríkisins og BSRB takast loks 30. október. Samið er á svipuðum nótum og við bókagerðar- menn. Launahækkanir eru rúm 20 prósent á samningstímabilinu og ríkisstarfsmenn fá launauppbót. Nóvember: „Stöðvast útskipun í Dalvíkurhöfn?" spyr Dagur í byrjun mánaðarins. Ástæðan er sú að Ríkismat sjávaraf- urða hefur gefið hafnaryfirvöldum á Dalvík alvarlega áminningu vegna útskipunaraðstöðu. Bæjaryfirvöld lofa bót og betrun fái þau umbeðna fjárveitingu. Hitaveitumálin eru enn til um- ræðu. Nú samþykkir stjórn hitaveit- unnar að selt skuli eftir mæli. Er bú- ist við því að hið nýja sölufyrirkomu- lag komi til framkvæmda um mitt næsta ár. Þann 7. nóvember segir deildar- verkfræðingur Pósts og síma að stefnt sé að því að bjóða Norðlend- ingum Rás 2 fyrir jól. Þegar þessi annáll var ritaður skömmu fyrir jól hafði hins vegar ekki heyrst múkk í útvarpinu en vonandi taka mennirnir sig á og gera Rás 2 að jólagjöf til þess hluta þjóðarinnar sem ekki nýtur þessarar þjónustu Ríkisútvarpsins. Það er greinileg framtíð í plastinu. Dagur skýrir frá því 12. nóvember að Plasteinangrun á Akureyri sé orðið það stórtækt fyrirtæki á þessum vett- vangi að fyrirtæki í Noregi séu farin á hausinn af þess völdum. Akureyringar bölva nýju varma- dælunum. Þær eru nefnilega svo frekar til vatnsins að ekkert afgangs- vatn er til þess að hita upp göngugöt- una. Það verður úr ráði að hitaveitu- stjóri hættir keyrslu dælanna og kaupmenn og göngugötugestir taka gleði sína. þ.e.a.s. þeir sem ekki liggja beinbrotnir á sjúkrahúsinu. Kerfið lætur ekki að sér hæða. Á sínum tíma var fleyið Sjóli stytt um metra við komuna til landsins, til þess að teljast bátur en ekki togari. Nú hefur Slippstöðin hins vegar feng- ið það verkefni að lengja Sjóla um hcila níu metra og verður hann þá orðinn að skipi. Gunnar Hilmarsson. sveitarstjóri á Raufarhöfn lýsir því yfir í viðtali við Dag um miðjan mánuðinn að Raufarhafnarbúar vilji byggja nýtt frystihús. Gamla frystihúsið standi þeim hreinlega fyrir þrifum. Rætt er um stofnun nýs hlutafélags í þessu sambandi. „Nýtt bíó í Miðbæinn?" spyr Dag- ur eftir að aðstandendur kvikmynda- félagsins Nýtt líf hf. sækja um lóð undir kvikmyndahús á Akureyri. Bygginganefnd er þessu samþykk sem og bæjarstjórn og þá virðist því ekkert til fyrirstöðu að kvikmynda- húsin á Akureyri verði tvö áður en langt um líður. Verður Akureyri „Detroit norð- ursins"? spyrja menn sig eftir að fréttir kvisast út að erlendir aðilar vilji byggja hér samsetningarverk- smiðju fyrir sportbíla. Sumir eru hrifnir af hugmyndinni en aðrir ekki því bílaiðnaður er láglaunaiðnaður og stefnt er að því að Akureyri verði ekki „Singapore norðursins”. íslenskir húsgagnaframleiðendur sýndu útboði Verkmenntaskólans um húsgögn fvrir bóknámsálmu lít- inn áhuga. Aðeins fjórir af átján sern leitað var til svöruðu og þar af bjóða þrír innflutta vöru. Ýfingar eru með bókagerðar- mönnum á Akureyri og fyrirtækinu HS-vörumiðar. Neita bókagerðar- menn að vinna fyrir fyrirtækið vegna þess að eigandi og aðstoðarstúlka eru ekki í fagfélagi. Var deilan enn óleyst í lok ársins. Nýtt skip - Arnþór EA bætist í Eyjafjarðarflotann. Skipið er gert út frá Árskógssandi og eigendurnir eru hvergi bangnir þrátt íyrir kvóta og kreppu. í nóvember er það upplýst í miklu hófi Náttúrulækningafélagsins að Steindór Pálmason fyrrum bóndi á Þelamörk hefur gefið félaginu rúrnar tvær milljónir kr. sl. haust. Pening- unum var varið til byggingar heilsu- hælisins í Kjarnaskógi en það lætur nærri að um þriðjungur þessa glæsi- lega húss hafi verið byggt fyrir gjöf- ina. Frystitogararnir eiga framtíðina fyrir sér. Togarinn Siglfirðingur fékk t.a.m. sem svarar 70 tonnum af frvst- um flökum í reynslutúrnum en afla- verðmætið var um fjórar milljónir kr. Matvörudeild Sambandsins hefur ákveðið að fella niður flutnings- kostnað á vörum sínum. Þessi ákvörðun var kynnt á kaupfélags- stjórafundi í Reykjavík en aBeiðing- arnar verða þær að vöruverð til kaupfélaganna stórlækkar utan Reykjavíkur. Énginn vill veitingareksturinn í verkalýðshöllinni og varla nerna von. Dagur greinir frá því að sögusagnir séu á kreiki um að krafist sé 4.5 millj. kr. fyrirframgreiðslu og það kosti ekki minna en 3 millj. að korna hús- næðinu í viðunandi horf. Miðað við þetta þyrfti hamborgari með frönsk- um sennilega að kosta einn fjólublá- an. Það er ekki á hverjum degi sem Vegagerðin dettur í lukkupottinn, en það gerði hún í nóvember. Þá buðust greiðviknir menn til þess að vinna við næsta áfanga Leiruvegarins ívrir 45,5% af þeirri upphæð sem kostn- aðaráætlun hljóðaði upp á. Nýtt hótel verður byggt í Skipa- götu og öðru verður valinn staður í Hafnarstræti. Þessar fréttir má lesa rneð stuttu millibili í Degi í lok nóv- ember og byrjun desember. Jóhann Svarfdælingur er látinn 71 árs að aldri. Bergfurutré komast í fréttirnar. Hafa menn Seðlabankann grunaðan um að vilja kaupa trén fyrir nýbygg- ingu sína enda hafi J. Nordal komist að því að þetta séu peningatré sem á vaxi sérstök dráttarréttindi. dollarar og pund. Desember: Loðnan bjargar sköttum og jólum á Raufarhöfn. segir í frétt Dags í byrj- un desember en aðeins viku síðar verða Raufarhafnarbúar fyrir miklu áfaili er frystihúsið brennur. Talið er að þar hafi um 10 millj. brunnið á skömmum tíma. Framkvæmdastofn- un ákveður að aðstoða við uppbygg- ingu. Umferðarmiðstöðin Öndvegi er opnuð í bvrjun mánaðarins á Akur- eyri. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti einróma að mælast til þess að nýju þróunarfélagi verði fundinn staður á Akureyri. Forsætisráðherra telur sjálfsagt að skoða það mál. Á bæjarstjórnarfundi kemur fram tillaga urn að nýtt útgerðarfélag verði stofnað um raðsmíðabátana svo- kölluðu. Á sama fundi gerir formað- ur atvinnumálanefndar grein fyrir hugmyndum um iðnaðarsamstarf við Grænlendinga. „Skuldugustu skip flotans" eru til umræðu. Það kemur í Ijós að skuldir þeirra eru meiri en sem nemur and- virði og því fá þau ekki skuldbrevt- ingu. Rætt er um að bjóða skipin upp og ríkisstjórnin beinirþeim tilmælum til Fiskveiðasjóðs að finna viðmiðun- arverð á skipin og selja þau síðan fyrri eigendum. Útsýn gerist aðili að Ferðaskrif- stofu Akureyrar. Kröflueldar. Hafa sennilega aldrei verið tilkomumeiri Hér er vindlunum góou sem starfs- menn Dags sendu ríkissáttasemjara, pakkað inn. Karnivalölið þótti Ijúffengt og betur heppn að en sjálf hátíðin. FM-90. Ut- varpsstöð Dagsmanna o.fl. var al- mennt vel tekið en for- ráðamenn Pósts og síma og Ríkisút- varpsins voru ekki eins hrifnir. m Hótel KEA. Skipað upp úr Akureyr- inni eftir mettúrinn. Kanadafararnir fyrir utan „álfuglinn"

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.