Dagur - 20.05.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 20. maí 1985
ffí
rn r
T í I 1EIGNAMIÐSTÖÐIN:
SÍMI24606 í
Skipagötu 14
3. Iiæð (Verkalýðshúsið).
OPIÐ ALLAN
DAGINN
Áshlíð:
5 herb. n.h. í tvíbýlishúsi ásamt
bilskur og lítilli ibúð í kjallara.
í nágrenni Akureyrar:
8 herb. húseign i nágrenni Akur-
eyrar, hæð, kjallari og ris. Til af-
hendingar strax.
Skarðshlíð:
4ra herb. ibuð á 2. hæð i fjölbýlis-
húsi, geymsla og þvottahús inn af
eldhúsi.
Verð kr. 1.500.000.
Smárahlíð:
3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlis-
húsi, geymsla og þvottahús inn af
eldhúsi.
Verslun:
Sérverslun með tískuvörur á Mið-
bæjarsvæðinu. Nánari upplýsingar
á skrifstofunni.
Kotárgerði:
150 fm einbýlishús á einni hæð á
besta stað í bænum. Frábært út-
sýni. Laust eftir samkomulagi.
Lerkilundur:
147 fm einbýlishús ásamt 32 fm
bílskúr. Góð elgn á góðum stað.
Verð kr. 3.500.000.
Reykjasíða:
135 ím einbýlíshús á einni hæð
ásamt grunni undir bílskúr. Húsið
er ekki fullgert en íbúðarhæft.
Skiptl á raðhusi mögulegt.
Verð kr. 2.400.000.
Birkilundur:
5 herb. einbýlishús á einni hæð
ásamt bilskúr.
Verð kr. 3.700.000.
Rimasíða:
160 fm einbýlishús á einni hæð
ásamt grunni undir bílskúr. Göðir
greiðsluskilmáiar.
Verð kr. 3.000.000.
Furulundur:
3ja herb. íbúð á n.h. í raðhúsi ca.
54 fm. Góð eign.
Verð kr 1.200.000.
Hjallalundur:
2ja herb. ibúð á 3. hæð í fjölbýlis-
húsi ca. 54 fm.
Verð kr. 950.000.
Skarðshlíð:
3ja herb. ibúð á 2. hæð i fjölbýlis-
húsi ca. 80 fm.
Verð kr. 1.200.000.
Tjarnarlundur:
2ja herb. ibúð á 2. hæð i fjölbýlis-
húsi ca. 48 fm.
Verð kr. 860.000.
Aðalstræti:
5-6 herb. parhús, kjallari, hæð og
ris, mikið endurnýjað. Ýmis skipti
möguleg.
Verð kr. 1.500.000.
Móasíða:
Rumlega fokheld raðhúsibúð með
biskúr ca. 167 fm. Laus strax.
Verð kr. 1.800.000.
Brekkuhús - Hjalteyri:
190 fm parhús á tveim hæðum.
Töluvert endurnýjað.
Verð kr. 1.300.000.
Heiðarlundur:
5 herb. raðhúsíbúð ca. 140 fm á
tveim hæðum til afhendingar eftir
sarnkomulagi.
Verð kr. 2.400.000.
Seljahlíð:
3ja herb. raðhúsíbúð á einni hæð.
Laus eftir samkomulagi
Kjalarsíða:
4ra herb. ibúð á 2. hæö í enda í
svalablokk.
Verð kr. 1.570.000.
Tjarnarlundur:
3ja herb. íbúð á 4. hæð í fjölbýlis-
húsi ca. 84 fm. Laus eftir sam-
komulagi.
Verð kr. 1.300.000.
Ath:
Höfum eignir i Reykjavik og á
Suðurnesjum í skiptum fyrir eignir
á Akureyri.
Opið allan daginn.
Síminn er 24606.
Sölustjóri:
Björn Kristjánsson.
Heimasími: 21776.
Lögmaður:
Ólafur Birgir Árnason.
Davíð Sverrisson.
Tekur bústörfin
fram yfir mölina
- Rætt við Davíð Sverrisson á Skriðu í
Hörgárdal - verðandi búfræðing
„Við leggjum okkur stundum
eftir matinn, því það eru ansi
miklar vökur yfír sauðburð-
inn,“ sagði ungur maður sem
kom til dyra er við bönkuðum
upp á á Skriðu í Skriðuhreppi
í Hörgárdal.
Þessi ungi maður er Davíð
Sverrisson, einn fimm barna
hjónanna Sigurbjargar Sæmunds-
dóttur og Sverris Haraldssonar
sem búa á Skriðu.
„Ég var á leið upp í fjárhús
því það er allt á fullu í sauð-
burði,“ segir Davíð.
Við spyrjum hvort það sé til
óþæginda að bæjarfólk fái að
ganga með til fjárhúsa, og jafnvel
taka myndir. Slíkt er ekkert til
óþæginda að sögn unga bónda-
sonarins.
- En ætlar ungi maðurinn að
verða bóndi?
„Ég reikna fastlega með því.
Næsta ár fer ég að Hvanneyri og
verð þar vonandi tvo vetur við
nám og verð þar með búfræðing-
ur.“
- Ætlarðu þá að taka við bú-
inu hér í Skriðu þegar fram líða
stundir?
„Pað er ekkert sjálfgefið," seg-
ir Davíð og brosir. „Ég á fjórar
systur, og ef til vill hafa einhverj-
ar af þeim áhuga á því líka svo
það verður bara að koma í ljós
hvort það verður hér eða annars
staðar sem ég fer að búa.“
- Þurfa ekki ungir menn sem
ætla í búskap að hafa við hlið sér
konu, sem getur veitt þeim styrk
við bústörfin?
Davíð hlær. „Jú, það væri
áreiðanlega gott, en það er nú
kannski hægt að komast hjá því,
svona til að byrja með,“ segir
þessi dugnaðarlegi piltur sem'
verður 17 ára í október, svo það
er ástæðulaust af okkur aðkomu-
mönnum að fara að gifta piltinn
strax.
Davíð hefur verið við nám í
Þelamerkurskóla og lauk þaðan
námi frá 9. bekk í fyrravor. Fram
að síðustu áramótum var hann
síðan í Verkmenntaskólanum á
Akureyri. Eins og fyrr segir
stefnir hann að námi að Hvann-
eyri.
- Búskapurinn sem stundaður
er í Skriðu er blandaður bú-
skapur. Þar eru 140 fjár og 41
kýr. Hvort þykir verðandi bónda
skemmtilegra að vinna við, fé
eða kýr?
„Ég geri ekki upp á milli þess.
Mér þykir hvort tveggja mjög
skemmtilegt.“
- Telurðu nauðsynlegt fyrir
verðandi bændur að fara í
bændaskóla?
„Pað tel ég,“ segir Davíð.
„Þrátt fyrir að ég sé alinn upp í
sveit og þekki sveitastörfin mjög
vel, þá er nauðsynlegt að fara í
skólann."
- Hvað með tómstundir hjá
þér? Ferðu á böll og aðrar
skemmtanir?
„Auðvitað fer ég á böll og
skemmti mér. Ég fer þá inn á Ak-
ureyri, eða hér í nágrennið, það
er alltaf eitthvað um að vera í
svoleiðis málum.“
- Þú ferð til Akureyrar að
skemmta þér og einnig hefur þú
verið þar í skóla. Langar þig þá
ekki að flytja þangað og búa þar?
„Nei, mig langar ekkert að búa
þar, því mér líður miklu betur í
sveitinni. Hér er miklu friðsælla,
og einnig er nóg að gera, svo ég
mundi ekki vilja skipta á Akur-
eyri og sveitinni,“ segir hann
Davíð Sverrisson í Skriðu, sem
ætlar að taka bústörfin fram yfir
„rnölina". Og við þökkum hon-
um spjallið og óskum góðs gengis
í landbúnaðinum. gej
Því miður aðeins ein
Pað var með tilhlökkun mánu-
daginn 6. maí að ég beið eftir að
Dagur dytti inn um bréfarifuna
hjá mér. Alltaf er gaman að fá
Dag, en í þetta sinn var eitthvað
sérstakt sem ég beið eftir. Það
vildi svo til að ég var stödd laug-
ardaginn 4. maí á einni bestu
fjölskylduskemmtun sem ég hef
tekið þátt í þau 17 ár sem ég hef
búið á íslandi. Hér á ég við Tóna-
dyn Tónlistarskólans á Akureyri.
Ég hlakkaði til að sjá myndir og
lesa um allt sem fór þar fram.
En því miður var þarna aðeins
ein mynd, tekin í Hafnarstræti.
Ekkert annað um þessa frábæru
skemmtun. Hvað olli? Kannski
hefur verið svo tímafrekt að
vinna úr kaupfélagsfundinum að
þessir ágætu blaðamenn hafa
ekki haft tóm til að fjalla um ým-
islegt annað sem var á boðstólum
þennan sama dag.
En svo kom miðvikudagsblað-
ið. Því miður var það sama
sagan. Þessi stórkostlegi fjöl-
skyldudagur hefur að því er virð-
ist farið alveg framhjá frétta-
mönnum hér í bænum. Þó geta
þeir ekki borið því við að þessi
tónlistarkynning væri illa auglýst.
Ef dæma má eftir bílafjölda sem
stóð fyrir utan Dynheima og
Tónlistarskólann, hafa bæjarbúar
haft talsverðan áhuga á því að
koma, hlusta og læra eitthvað um
starfsemi Tónlistarskólans. Datt
engum blaðamanni í hug að
hérna væri verðugt fréttaefni - að
þessi börn sem gáfu svo mikið af
sjálfum sér hefðu kannski gaman
af að finna að einhver annar en
mamma og pabbi kynnu að meta
þá miklu vinnu sem fór í að æfa
og flytja svona tónleika. Ég held
að á ári æskunnar hefði ekki ver-
ið til of mikils mælst að kennar-
arnir fengju svolítið hrós fyrir vel
unnið starf. Að vekja áhuga hjá
þessum ungmennum og viðhalda
honum er svo sannarlega ekki
alltaf létt verk.
Ekki gat ég fylgst með öllu sem
fram fór, en það sem ég heyrði
vakti undrun mína á hæfileikum
margra þessara barna og fullorð-
inna. Allt frá yngstu strengja-
sveitinni upp í hið fræga „Big
Band“ hans Ebba, stóðu þessir
tónlistarmenn sig frábærlega vel.
Ég á sjálf tvö börn í Tónlistar-
skólanum og veit af eigin reynslu
hve mikilvægt þetta nám er fyrir
þau. Það er ekki bara áhugamál,
heldur jákvæð leið til þess að fá
útrás fyrir alla þá orku sem fylgir
börnum, sérstaklega á tánings-
aldrinum. Þau geta gripið til
hljóðfæranna sinna í blíðu og
stríðu - þegar litli bróðir er til
leiðinda, þegar mamma er að
skammast yfir ruslinu í herberg-
inu manns, geta 10 mínútur með
trommurnar eða fiðluna hjálpað
mynd
til að slaka á og safna kjarki til að
ráðast til atlögu við ruslið, en láta
litla bróður í friði!
Ég gæti eflaust skrifað miklu
meira í þessum dúr, en það er í
rauninni ekki mitt verk, heldur
blaðamannsins sem birtist aldrei.
Ég vil aðeins að lokum þakka
bæði nemendum og kennurum
fyrir skemmtilega stund og um
leið færa þeim kennurum sérstak-
ar þakkir sem hafa haft börn mín
undir sinni umsjón og lofað mér
að fylgjast með í tímum. Það eru
ekki allar mömmur sem kunna á
hljóðfærin sem börnin þeirra eru
að læra á, og mér finnst ómetan-
legt að geta lært með dóttur
minni og hjálpað henni þegar
þess þarf. Ég vona að kennararn-
ir njóti sumarleyfisins og komi
jafn hressir og áhugasamir til
baka næsta haust.
Helena Frances Eðvarðsdóttir,
Byggðavegi 134.