Dagur - 20.05.1985, Qupperneq 6
6-DAGUR-20. maí 1985
Sigurður Pálsson.
Sigurður
til liðs
viðKA
Sigurður Pálsson handboltamaður
úr Þór hefur gengið til liðs við KA
og mun klæðast búningi þess félags
í haust.
Sigurður hefur verið skæðasti
sóknarmaður Þórs undanfarin ár og
skorar yfírleitt mikið af mörkum.
Það er því slæmt fyrir Þór að missa
hann, en að sama skapi gott fyrir
KA sem hefur misst skyttuna Frið-
jón Jónsson sem mun dvelja er-
lendis.
Flogið hefur fyrir að fleiri leik-
menn Þórs hyggi á félagaskipti en
það hefur ekki fengist staðfest.
Leiftur
láá
Húsavík
Völsungar unnu fremur átakalítinn
sigur á nýliðum Leifturs í fyrstu
umferð 2. deildarinnar, en leikið
var á grasvellinum á Húsavík. Úr-
slitin 3:0.
Fyrsta mark leiksins kom á 9.
mín. Leiftursmenn fengu horn,
Gunnar Straumland markvörður
sió boltann frá til Kristjáns Olgeirs-
sonar sem lék upp allan völl. Krist-
ján gaf síðan á Wilhelm Fredriksen
sem skoraði auðveldlega, gott
mark.
Annað markið kom skömmu síð-
ar og var glæsimark. Góðri sókn
upp hægri kantinn lauk með fyrir-
gjöf Björns Olgeirssonar á höfuð
Kristjáns bróður hans sem skallaði
í slá og inn frá vítapunkti.
Síðasta markið kom á 79. mín.
Ómar Rafnsson með góða send-
ingu á Jónas Hallgrímsson sem
skoraði örugglega.
Leikurinn I heild þótti ekkert
sérstakur en þó komu góðir kaflar
hjá báðum liðum. Kristján Olgeirs-
son bestur heimamanna en Leift-
ursliðið sýndi þrátt fyrir tapið að
liðið getur bitið frá sér og á senni-
lega eftir að koma á óvart í sumar,
sérstaklega á heimavelli sínum.
AB-gk-.
„Við steinlágum, en leikurinn
sem slíkur var alls ekki eins
ójafn eins og tölurnar gefa til
kynna,“ sagði Völsungurinn
Kristján Olgeirsson eftir að Is-
firðingar höfðu unnið Völsung
4:0 í 2. deildinni á fsafirði í
gær.
Öll mörk ísfirðinga komu eftir
hornspyrnur eða löng innköst og
var vörn Völsunga illa á verði.
„Ég hélt að við værum komnir
með svo sterka vörn að svona
nokkuð kæmi ekki fyrir,“ sagði
Kristján.
ísfirðingar skoruðu eitt mark í
fyrri hálfleik. tvö fljótlega í síðari
hálfleik og eitt undir lokin.
Markaskorarar þeirra voru Örn-
ólfur Oddsson, Ragnar Rögn-
valdsson, Guðmundur Jóhannes-
son og Kristinn Kristjánsson.
Leikið var á slæmum malar-
velli, en við hlið hans var fagur-
grænn grasvöllur, vel sprottinn,
og var helst að skilja á Isfirðing-
um að hvorki mætti slá völlinn
né leika á honum á næstunni.
Jónas Róbertsson skoraði mark Þórs í Keflavík. Vinstra megin á myndinni
sést Helgi Bentsson, fyrrum Þórsari, en nú leikmaður ÍBK.
Markaregn á
„Við getum mun betur en í
þessum leik, og mér sýnist að
Skallagrímsliðið megi heldur
betur taka sig á ef það ætlar
ekki að falla í 3. deild,“ sagði
Karl Páisson formaður KS eft-
ir að Siglfirðingar höfðu unnið
4:1 sigur á Skallagrími úr
Borgarnesi í blíðunni á Sigló í
gær.
Þeir Mark Duffield og Hafþór
Kolbeinsson sem léku með KA í
1. deildinni í fyrra sáu um marka-
skorun fyrir Siglfirðinga að þessu
sinni og skiptu mörkunum reynd-
ar bróðurlega á milli sín.
Hafþór skoraði það fyrsta strax
í upphafi, Mark kom með annað
á 15. mínútu og Hafþór með það
þriðja á 24. mínútu. í síðari hálf-
Magni - KA
Njáll Eiðsson.
- í Bikarkeppni
- Njáll Eiðsson
Þórsvöllur verður annað kvöld
vettvangur bikarleiks Magna
frá Grenivík og KA, en þá eig-
ast liðin við kl. 20 í 1. umferð
Bikarkeppni Knattspyrnu-
sambands íslands.
Þetta er heimaleikur Magna
sem leikur í 3. deild og er ekki að
efa að marga mun fýsa að sjá
hvernig Magnamönnum reiðir af
gegn 2. deildar liði KA sem hóf
KSI á Þórsvelli
er í leikbanni
keppnina í 2. deild með góðum
útisigri gegn Skallagrími rBorg-
arnesi.
Njáll Eiðsson fyrirliði KA
leikur ekki annað kvöld. Hann
lék heldur ekki með KA gegn
Skallagrími á fimmtudaginn.
Njáll er að taka út tveggja leikja
bann sem hann átti inni frá sl.
hausti og er því fjarri góðu gamni
annað kvöld.
Góður sigur hjá KA
KA-menn gerðu góða ferð til
Borgarness í fyrsta leik sínum
í 2. deild að þessu sinni. Þang-
að sóttu þeir þrjú stig með 3:0
sigri á heimamönnum og var
það gott hjá liðinu sem var án
Njáls Eiðssonar fyrirliða sem
var að taka út fyrri leik sinn í
tveggja leikja banni.
Markakóngur íslandsmótsins í
fyrra, Tryggvi Gunnarsson, sem
var að leika sinn fyrsta deildar
leik með KA gaf tóninn í fyrri
hálfleik. Hann skoraði fyrsta
mark leiksins eftir stungubolta
frá Þorvaldi Örlygssyni og síðar
var Tryggvi svo felldur í vítateig
og Þorvaldur Þorvaldsson skor-
aði úr vítaspyrnunni.
Þannig var staðan í hálfleik og
Steingrímur Birgisson skoraði
þriðja mark leiksins í síðari hálf-
leik, fékk stungubolta og eftir-
leikurinn var auðveldur. Bæði lið
fengu að auki góð marktækifæri
en fleiri urðu mörkin ekki og KA
því með óskabyrjun í mótinu,
sigur á útivelli.
leik náðu gestirnir að minnka
muninn í 3:1, en Mark Duffield
var ekki sáttur við það og skoraði
fjórða mark KS.
Siglfirðingar hefðu hæglega átt
að skora fleiri mörk að þessu
Hafþór Kolbeinsson.
Staðan
1. DEILD
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir lciki helgarinnar
er nú þessi:
IBK-Þór
ÍA-Víftir
FH-KR
Valur-Þróttur
Fram-Víkingur
Fram
KR
FH
Akranes
ÍBK
Þór
Valur
Víkingur
Þróttur
Víðir
Nunni Konn
og Bjami
- unnu í „Four ball - best bair
Gunnar Konráðsson (Nunni
Konn) og tengdasonur hans,
Bjarni Jónasson, urðu sigur-
vegarar í „Four ball - best
ball“ keppni hjá Golfklúbbi
Akureyrar í gær. Nokkur
fjöldi kylfinga mætti til ieiks í
blíðunni og tókst cngum þeirra
að sjá við Nunna og Bjarna
sem léku á alls oddi og 56
höggum, 18 holurnar.
Keppnisfyrirkomulag var
þannig að tveir léku saman sem
„lið“ og taldi árangur þess sem
betri var á hverri holu.
f öðru til þriðja sæti urðu ann-
ars vegar Guðjón E. Jónsson og
Brynjólfur Tryggvason og hins
vegar Guðni Jónsson og Bessi
Gunnarsson, en þessir heiðurs-
menn léku á 59 höggum. Þeir
máttu fara í aukakeppni um 2.
sætið og þá sigruðu þeir Guðni og
Bessi.
Næsta mót hjá GA er á
fimmtudag, þá er „Vélamót“ á
dagskránni, leiknar 9 holur með
forgjöf og ræst út kl. 16—19.
Völsungur
steinlá!