Dagur - 20.05.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 20. maí 1985
í starfskynningu - í starfskynningu í starfskynningu - í starfskynningu
María Þorláksdót tir. Baldvin G. Baldvinsson.
Friðríka Tómasdóttir og Jónína Mjöll Þormóðsdóttir.
Eftir þetta röltum við niður að
gullsmíðastofu Sigtryggs og
Péturs. Þar hittum við tvær
ungar stúlkur.
- Hvað heitið þið?
„Friðrika Tómasdóttir og Jón-
ína Mjöll Þormóðsdóttir."
- Hvað hafið þið nú lært á
þessu?
Jónína hafði orðið: „Við
höfum séð hvernig grafið er á
verðlaunapeninga, svo höfum við
líka séð hvernig hringur er
minnkaður."
- Hvað eruð þið að gera
núna?
„Við erum að búa til víravirk-
isarmbönd. Ég myndi segja að
gullsmíði sé mikil þolinmæðis- og
nákvæmnisvinna. “
- Hvernig finnst ykkur að
vinna við þetta?
„Það er bara gaman.“
„Ja, það fer mikið eftir því
hvernig gengur," skýtur Friðrika
inn í.
- Gætuð þið hugsað ykkur að
vinna við þetta í framtíðinni?
„Nei! Eða ég veit það ekki.“
„Ja, þetta er fjögurra ára nám
og mér finnst það svolítið mikið.
Ég meina, þetta er flest innflutt.
Maður gerir svo lítið sjálfur.
Bara að grafa, minnka hringa og
svoleiðis. Ég vil skapa sjálf. “
„Eg fæ að búa til hamborgara
og svo fæ ég að elda svolítið“
Tvö ungmenni úr Glerárskóla,
Kristín M. Jóhannsdóttir og
Olgeir Þór Marinósson, voru í
starfskynningu hjá okkur á
Degi fyrir skömmu. Þau
kynntust starfi blaðamanna og
ljósmyndara og unnu talsvert
sjálf. Meðal þess efnis er þau
unnu eru viðtöl þau er hér fara
á eftir, Kristín handlék penn-
ann og fór síðan fimum hönd-
um um ritvélina en Olgeir var
myndasmiðurinn. Lítum hér á
grein og myndir er þau unnu
einn góðviðrisdaginn fyrir
skömmu.
Við löbbuðum niður í bæ í
góða veðrinu og lögðum leið
okkar niður á Bauta, þar sem við
hittum krakka í starfskynningu.
Þau höfðu lítið að gera þessa
stundina svo þau gáfu sér tíma til
að spjalla svolítið við okkur.
- Hvað heitir þú?
„María Þorláksdóttir.“
- Þú ert á Bautanum, María.
Hvað ertu látin gera?
„Það er nú ýmislegt. Ég er lát-
in taka við pöntunum, taka af
borðum og svo þjóna ég fólki.“
- Er þetta gaman?
„Já, mjög gaman.“
- Geturðu hugsað þér að
starfa við þetta í framtíðinni?
„Já, ég get vel hugsað mér
það.“
- Hvað heitir þú?
„Baldvin G. Baldvinsson.“
- Þú ert „kokkur“, Baldvin.
Færðu að malla eitthvað?
„Já, ég fæ að búa til hamborg-
ara, svo fæ ég að elda svolítið.
Síðan er ég látinn þvo upp.“
- Hvernig er að vera hér?
„Það er alveg ágætt.“
- Geturðu hugsað þér þetta
sem framtíðarstarf?
„Já.“
KMJ
í starfskynningu - í starfskynningu í starfskynningu - í starfskynningu