Dagur - 20.05.1985, Síða 12
vélastílliear
VÖNDUÐ VINNA — ö NÝ TÆKI
Þessir spræku krakkar úr Barnaskóla Akureyrar skruppu fram í Hóla í Öxnadal á laugardag til að sjá sauðburð,
halda á lömbunum, drekka kakó og fara í leiki. Var það viðeigandi endir á skólastarfinu að þessu sinni. Mynd: HS
Laxafóðurverksmiðja í Krossanesi:
Lokaviðræður
nú í vikunni
-17 sóttu um starf fóðurráðgjafa
„Menn frá norska fyrirtækinu
Skretting eru væntanlegir til
Akureyrar nú í vikunni til
lokaviðræðna við Akureyringa
um laxafóðurverksmiðju í
Krossanesi,“ sagði Finnbogi
Jónsson hjá Iðnþróunarfélagi
Eyjafjarðar í samtali við Dag
fyrir helgina.
í þessum viðræðum verður
endanlega gengið frá öllum mál-
um varðandi þessa verksmiðju og
m.a. tekin ákvörðun um það hve-
nær verksmiðjan muni taka til
starfa, að sögn Finnboga.
Á dögunum var auglýst starf
fóðurfræðings fyrir væntanlega
laxafóðurverksmiðju og var kraf-
ist góðrar menntunar. Alls sóttu
Banaslys í
Norðurárdal
Hörmulegt banasiys varð
við Hvamm í Norðurárdal
sl. miðvikudag. Bifreið á
suðurleið var ekið þar á
brúarstólpa og valt hún síð-
an út af veginum. Talið er
að ökumaðurinn hafi látist
samstundis.
Nafn hans var Ófeigur Bald-
ursson, en Ófeigur var rann-
sóknarlögreglumaður á Akur-
eyri. í bifreiðinni voru auk
hans fjórir farþegar og voru
tveir þeirra fluttir á sjúkrahús
í Reykjavík en meiðsli þeirra
munu ekki vera talin mjög al-
varleg.
Akureyri:
Bylting i hotel-
og veitingarekstri
Bylting er að verða í hótel- og
veitingahúsarekstri á Akur-
eyri, en hótelmálin hafa lengi
verið flöskuháls í ferðamanna-
þjónustu á staðnum, að
margra mati. Innan fárra ára
mun hótelherbergjum hafa
fjölgað úr 70 í 170, auk þess
sem nýir veitingastaðir spretta
upp.
Búið er að opna Hótel Stefan-
íu með 20 herbergjum, fyrstu
nýju herbergin á KEA verða tek-
in í notkun í vikunni og er þar um
12 ný herbergi að ræða eða 6 her-
bergja aukningu. Fyrir næsta vor
verða herbergi þar orðin 51 í stað
28 núna. Herbergjum á Hótel
Akureyri fjölgar næstu daga úr
15 í 18 og eftir 2 til 3 ár er hug-
myndin að opna Hótel Goðafoss
með 55 herbergjum. Hótel Varð-
borg er með 26 herbergi og nú
hafa þeir sem hafa með höndum
heimagistingu sameinast um
bókanir og fleira í litlu „Mogga-
höllinni“, en þar er um að ræða
110 rúm.
Nýr veitingasalur verður tek-
inn í notkun á Hótel KEA í
haust, nýr veitingasalur verður
opnaður eftir hvítasunnu á Hótel
Akureyri, byrjað er á innrétting-
um nýs veitingasalar í verkalýðs-
höllinni og mun Bjarni IngVars-
son annast þann rekstur, kjúkl-
ingastaður verður opnaður innan
skamms á jarðhæð Einingarhúss-
ins og skyndibitastaður á
Hvannavöllum.
Það er því greinilega mikið að
gerast í þessum málum á Akur-
eyri. HS
20 þús. stolið
- úr bifreið
Tuttugu þúsund krónum í pen-
ingum var stolið sl. miðviku-
dag úr bifreið sem stóð austan
við aðsetur fyrirtækisins Önd-
vegis við Hafnarstræti.
Eigandi peninganna lagði bif-
reið sinni sem er gullsanseruð af
Galant gerð, þar austan við húsið
um kl. 15, og er hann kom til
baka voru peningarnir horfnir.
Grunur' lögreglunnar beindist
fyrst að ákveðnum aðilum en sá
grunur reyndist ekki á rökum
reistur. Biður rannsóknarlögregl-
an á Akureyri þá sem geta gefið
upplýsingar sem varpað gætu
lirSsi á hptta tnál að pefa sip fram.
17 aðilar um starfið og stangast
það nokkuð á við þær fullyrðing-
ar sumra að ekki sé vænlegt að
staðsetja fyrirtæki sem þetta úti
á landsbyggðinni vegna þess að
ekki fáist menntaðir menn til
starfa þar. gk-.
Hitaveitan Dalvík:
Mælar í
stað hemla
„Við erum að þessu fyrst og
fremst til að ná fram sparnaði
í vatnsnotkun, þetta er ekki
spurning um að auka tekjur
hitaveitunnar. Fyrirtækið er
traust og hagur þess með
blóma. En með þessari breyt-
ingu gerum við okkur vonir um
að ná fram 10% orkusparn-
aði,“ sagði Guðmundur Arna-
son, veitustjóri á Dalvík, en
þar er fyrirhugað að breyta
gjaldskrá hitaveitunnar á þessu
ári. Hætt verður að nota hemla
en mælar teknir upp í staðinn.
„Útboð eru í gangi og það eru
tvær gerðir mæla sem helst koma
til greina. Annars vegar eru það
mælar eins og búið er að setja
upp á Akureyri og hins vegar
erum við með aðra gerð mæla í
huga og þeir eru mun ódýrari.
Við getum fengið þrjá slíka mæla
fyrir sama verð og einn af hinni
gerðinni og ég hygg að þessi
verðmunur komi til með að vega
þungt, en endanleg ákvörðun um
hvaða mæla við kaupum liggur
ekki fyrir. Starfsmenn hitaveit-
unnar munu að öllum líkindum
annast uppsetningu mælanna
þegar þar að kemur.
Oll þessi umræða um hitaveit-
una á Akureyri gerir okkur
róðurinn óneitanlega miklu
þyngri, en við hér á Dalvík búum
við allt aðrar aðstæður en þar,
hér er lágt orkuverð og hagur
veitunnar stendur með blóma.
Við erum því að þessu fyrst og
fremst til að ná fram sparnaði,"
sagði Guðmundur. - mþþ
Veðurstofan spáir
hægum vindi og létt-
skýjuðu veðri í dag. Á
morgun verður sama
blíðan, ef til vili sval-
ara.
# Húsnæðis-
hópur í
framboð?
Mikil óánægja mun nú vera
meðal áhugahópsins um
húsnæðismál vegna ráðstaf-
ana stjórnvalda. Telja margir
meðlimir hópsins að vart sé
hægt að tala um neinar ráð-
stafanir og að alla vega séu
þær ráðstafanir sem þegar
hafi verið gerðar ófullnægj-
andi. Það hefur komið til tals
að gera úr öllu saman pólit-
ísk landssamtök, sem byðu
fram í næstu kosningum.
Hugmyndin kom fram í
Reykjavík og hefur að sögn
fengið býsna jákvæðar undir-
tektir víðar út um landið, m.a.
á Akureyri.
# Svæðisút-
varp slítur
barnsskónum
Ríkisútvarpið á Akureyri,
svæðisútvarp, hefur tæplega
slitið barnsskónum ennþá,
enda ekki búið að starfa til-
raunatímann, sem átti að
vera þrír mánuðir. Minna hef-
ur raunar farið fyrir tilraunun-
um þennan tíma, því strax á
fyrsta degi fékk svæðisút-
varpið sinn eigin blæ og hef-
ur haldið honum síðan.
Bendir það til þess að for-
ráðamenn stöðvarínnar séu
hæstánægðir með hvernig til
hefur tekist. Þrátt fyrir þann
velvilja sem stöðin hefur
meðal Akureyringa og fleiri
eru þó farnar að heyrast
raddir um það, að líklega
væri ekki veruleg hlustun á
stöðina ef hún nyti þess ekki
að tengjast beint öðrum út-
sendingum Ríkisútvarpsins.
Fáir yrðu til að kveikja gagn-
gert á útvarpi og færa stilli-
takkann til að hlusta á svæð-
isútvarpið. En allt stendur
þetta sjálfsagt til bóta eftir
sumarhlé og endurmat á
starfseminni.
# „Flugbolti“
Knattspyrnuáhugamenn á
Akureyri geta ekki keypt sér
aðgöngumiða að landsleik
íslands og Skotlands nema
kaupa um leið flugmiða til
Reykjavíkur, en það er Ferða-
skrifstofa Akureyrar sem
annast þá sölu fyrir Flugleið-
ir. - Knattspyrnusamband ís-
lands segir að það eigi að
vera hægt að kaupa miða og
svo geti menn ekið suður, en
Flugleiðir segja að flugmiði
verði að fylgja með í kaupun-
um. „Boltaflug, flugbolti, hjá
Flugleiðum heitir það flug-
bolti.“!