Dagur - 31.05.1985, Qupperneq 3
Þessar vísur Jóhannesar Sigurðs-
sonar, Engimýri kunna að hafa ver-
ið birtar fyrir 3^1 áratugum en seint
mun góð vísa of oft kveðin.
Vorvísur:
Víkja um síðir verða skalt
vetrartíðin svala.
Vorið blíða vekur allt,
vermir hlíð og bala.
Sólin háum himni frá,
hlýju stráir víða.
Blómin smáu ekru á
öll úr dái skríða.
Roðna drangar, rósin grær,
rjóð á vanga tíðum.
Strýkur fangið blíður blær,
blómin anga í hlíðum.
Þá er yndi út að sjá
allt í lyndi falla.
Græna rinda geiminn blá
geisla á tindum fjalla.
Andans sjóður auðgast þá,
angar gróður víða.
Hlusta fljóð og fyrðar á
fugla óðinn blíða.
Eygló blíða yljar lund,
ei þarf kvíða parið.
Fíflar prýða græna grund,
gott er tíðarfarið.
Enginn kvarta ætti þá,
ekki er margt til baga.
Viðkvæmt hjarta værð mun fá,
vors um bjarta daga.
Á alþjóðamótinu á Húsavík á
dögunum kom Pálmi R. Péturs-
son andstæðingi sínum Guð-
mundi Sigurjónssyni stórmeistara
illilega á óvart í byrjuninni:
I. e4-e5 2. Rf3-Rc6 3. Bb5-a6
4. Ba4-Rf6 5. 0-0-Be7 6. Hel-b5
7. Bb3-Bb7 8. c3-d5!?
(frumleg og lítt þekkt peðsfórn)
9. exd5-Rxd5 10. Rxe5-Rxe5
II. Hxe5-Rf4 12. d4-Rxg2.
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson.
Svart: Pálmi R. Pétursson.
Stórmeistarinn hugsaði sig nú um
í einn og hálfan tíma og lék:
13. Bg5-f6 14. Bxf6-gxf6
15. Dh5+-Kd7 16. Df5+-Ke8.
Nú tekur hann sér enn dágóðan
umhugsunarfrest og á aðeins 2-3
mínútur eftir á klukkunni þegar
hann leikur:
17. Rd2-fxe5! 18. Df7+-Kd7
19. De6+, þráskák og jafntefli.
Skák þessi vakti mikla athygli
meðal keppenda og norski meist-
arinn Helmers sem tefldi gegn
Pálma síðar á mótinu eyddi
mörgum dögum í að finna fram-
hald sem hrakið gæti tafl-
mennsku svarts. Pegar þeir sett-
ust niður að tafli svaraði Pálmi
hins vegar kóngspeðsbyrjun
Norðmannsins með Sikileyjar-
vörn!
Fyrr á árum voru menn óprúttnari
í orðum á pólitískum fundum en
nú gerist, ekki síst þá mönnum
hitnaði í hamsi. Einhverju sinni er
Páll Þormar hafði orðíð á fram-
boðsfundi á Austurlandi, urðu
rauðliðar ókvæða við og kallaði
einhver kaupmanninn þjóf. Þá var
þetta kveðið:
Stökum mínum stilli í hóf
og stend mig við að gera það.
Eg kalla ekki Þormar þjóf,
þó hann kunni að vera það.
Ágætur maður hringdi og sagði mér
vísu eftir Starra í Garði, þar sem
skáldið leggur mat sitt á þrjár
merkar konur.
31. maí 1985 - DAGUR - 3
Ég er búinn allt að meta
og þvíget í hvelli lýst:
Svetlana er betri en Beta
Bína mín er einna síst.
Benedikt Sigurbjörnsson á Jarls-
stöðum var mikið hraustmenni.
Hann kvað litlu áður en hann dó, er
hann var spurður hvernig honum
liði:
Eins og sumir aldnir menn,
ekki laus við skjögur.
Ég hef lifað árin senn
áttatíu og fjögur.
Samdráttur varð milli manns og
meyjar á Sauðárkróki. Þessu neit-
aði karl nokkur að trúa og sagði að
stelpan væri bara bleðill. Þá kvað
Ólína Jónsdóttir:
Þó hann fengi ofurást
á einum litlum bleðli,
þýðir ekki um það að fást,
þetta er mannsins eðli.
Pá kemur sléttubandavísa eftir séra
Magnús Einarsson, Tjörn í Svarf-
aðardal (d. 1794).
Dyggðum safnar, varla vann
verkin ódyggðanna,
lygðum hafnar, aldrei ann
athöfn vondra manna.
laugardag og sunnudag frá kl. 13 til 18
Viö kynnum fjóra OPEL bíla á bílasýning-
unni hjá VÉLADEILD KEA um helgina:
OPEL KADETT sem valinn var bíll ársins
1985, OPEL ASCOWA sem fullnægir
flestum kröfum bílaáhugamannsins, OPEL
BEKOBD, bílinn sem sker siq hvarvetna úr,
oq OPEL COWSA smábílinn sem allir falla
fyrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta
í þýskri hönnun. Traustir og liprir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrir ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bílum á Opelsýning-
unni aö Óseyri 1. Ef þú átt góöan notaöan
bíl erum viö visir til aö vilja kippa honum
upp í einn nýjan og spegilgljáandi OPEL
til aö auövelda þér viöskiptin. Greiösluskil-
málar hjá okkur eru líka sveigjanlegri en
gengur og gerist.
BÍLVANGUR Sf=
Véladeild KEA
Óseyri I
Akureyri, sími 22997
TT»y'TTiiH r i i'i'i1, i i'11'-