Dagur - 31.05.1985, Síða 4
4 - DAGUR - 31. maí 1985
ÚTGfc-ANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 28 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÓRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: GYLFI KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR OG GESTUR E. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Alhliða uppbygging atmnulífs
í greinargerð sem Bjarni Ein-
arsson, framkvæmdastjóri
byggðadeildar Framkvæmda-
stofnunar, hefur sett saman
fjallar hann m.a. um nauðsyn
nýrrar byggðastefnu:
„Ríkisvaldið, sveitarfélög og
samtök þeirra geta haft áhrif á
þróun byggðar í landinu með
aðgerðum sínum. Þetta er kall-
að byggðastefna. Það orð hefur
hlotið þau örlög í opinberri um-
ræðu að verða samnefnari fyrir
allar opinberar aðgerðir sem
ekki er hægt að sýna með ein-
földum hætti að skili arði.
Á næstu 15 árum getur farið
svo að mynstur búsetu í land-
inu verði ákveðið til langframa.
Upp úr aldamótunum mun fólki
á því aldursskeiði þegar búseta
er ákveðin fara að fækka. Verði
meginhluti „ stóru árgang-
anna“ þá fluttur suður verður
erfitt að snúa við.
Mótun raunhæfrar byggða-
stefnu við þessar aðstæður er
vandaverk. Lausnin er ekki ein-
föld eins og að byggja upp ör-
fáa stóra kjarna úti á landi en
vanrækja smærri staðina.
Reynslan bendir eindregið til
þess að stórir staðir dafni best
í takt við velgengni smærri
staða og sveita í nágrenninu.
Að vísu er ljóst að auka verður
þjónustu fyrst og fremst á hin-
um stærri stöðum úti á landi en
fráleitt er að gera það með því
móti að hinum smærri og sér-
hæfðari stöðum hnigni. Miklu
skynsamlegra er að bæta sam-
göngur við þjónustumiðstöðvar
og stuðla þannig að vexti og
ákveðnum samruna þjónustu-
svæða. í byggð hvers lands-
hluta og reynar landsins alls er
ákveðið samhengi. Þetta sam-
hengi á ekki að rjúfa heldur
treysta það með ýmsu móti.
Skipta má landinu upp í rúm-
lega tuttugu þjónustusvæði.
Þessi svæði eru mjög misfjöl-
menn. Á strjálbyggðum svæð-
um eins og t.d. Strandasýslu og
Norður-Þingeyjarsýslu er erfitt
að byggja upp góða þjónustu.
Búseta á slíkum svæðum bygg-
ist á öðrum forsendum. Á flest-
um svæðum má með skipu-
legum aðgerðum ná árangri.
Mjög víða geta litlar þjónustu-
miðstöðvar haft stuðning af
öflugri þjónustumiðstöð heils
kjördæmis eða landshluta.
Byggðastefna næstu ára
verður að byggjast á öflugri al-
hliða uppbyggingu atvinnulífs
úti á landi. Einhæf atvinnuupp-
bygging í framleiðslugreinum
getur ekki leyst vandann. Sem
betur fer eru miklar auðlindir
enn ónýttar og flestar eru þær
á landsbyggðinni. Þetta á við
um orkulindirnar, jarðefnin og
landið sjálft sem ferðamanna-
land. En uppbyggingu iðnaðar,
ferðamannaþjónustu og ann-
arra grunngreina verður að
fylgja aukin þjónustustarfsemi.
Öll verður þessi atvinnuupp-
bygging að vera arðsöm því á
henni byggist ekki eingöngu
sókn til betra byggðajafnvægis
heldur líka hagvöxtur í landinu.
Mikilvægt hlutverk ríkisins til
þess að stuðla að hagkvæmri
þróun byggðar er að bæta sam-
göngukerfi landsins. Þetta á við
um allar greinar þess kerfis, allt
frá fjarskiptum til vegamála.
Stærsta átakið og það áhrifarík-
asta þarf að gera í vegamálum.
Vegakerfi með bundnu slitlagi
sem haldist getur opið mest allt
árið er eitt stærsta sameigin-
lega verkefnið sem þjóðin þarf
að vinna að næstu árin. Til þess
að allir þéttbýlisstaðir á íslandi
tengist slíku vegakerfi þarf um
4.000 km vega en þar af hefur
nú verið gengið frá 921 km. Það
að fullgera þá 3.000 kílómetra
sem eftir eru til að ná markinu
er mesta breytingin sem hægt
er að gera á þessu landi. Erfitt
er að segja nákvæmlega fyrir
um áhrif þessa en víst er að þau
verða mikil," segir Bjarni Ein-
arsson m.a. í greinargerð sinni.
Líklega eru nú frændur vorir Norð-
menn farnir að jafna sig eftir áfallið
á dögunum þegar þeir slysuðust til
þess að vinna Eurovisionkeppnina
og binda þannig enda á einstaklega
glæsilegan feril sinn í keppni þess-
ari. Einhvern veginn getur maður
ekki annað en samhryggst þessum
frændum sínum vegna þess að eftir-
leiðis verður farið að taka framlag
þeirra alvarlega, og óneitanlega
verður öll keppnin miklu daufari
þegar norska núllið er ekki lengur
orðinn fastur liður. En maður kem-
ur í manns stað. Hver veit nefnilega
nema það verðum vér Frónbúar sem
reyndum að fá útrás fyrir þjóðar-
stolí okkar með því að uppskera
nokkur stykki af núllum á þessum
vettvangi. íþróttirnar eru því miður
ekki nóg því þar er alltaf hægt að
verða fyrstur þótt maður sé síðast-
ur. Kemur þar til hin gullvæga
höfðatöluregla.
Lillehammer og Akureyri
Það voru víst ekki liðnar margar
stundir frá því að úrslitin í fyrr-
nefndri söngvakeppni voru kunn,
þegar æði margar sveitarstjórnir í
Noregi voru búnar að funda og
bjóðast til að halda hana næsta vor.
Þannig mun til dæmis bæjarstjórnin
í Lillehammer sem mun vera litlu
stærri en Akureyri hafa boðist til að
reisa í snarheitum eitt stykki tón-
leikahöll fengist keppnin þangað.
Að líkindum mun þó víst Lille-
hammer ekki hreppa hnossið, en
ekki Osló heldur. Munu mestar lík-
ur vera á því að hún verði haldin í
Bergen, í tónleikahöll kenndri við
Grieg, og er vísast að gamli maður-
inn muni snúa sér við í gröfinni
vegna slíkra helgispjalla.
Það getur verið dálítið gaman að
ímynda sér hver yrðu viðbrögð
bæjaryfirvalda á Akureyri ef við Is-
lendingar myndum nú slysast til að
vinna þessa keppni eins og þeir hjá
Þjóðarstolt,
svo ojór
RÚV eru skíthræddir um. Gaman
væri að sjá hvort bæjarstjórn myndi
skjóta á skyndifundi þar sem sam-
þykkt yrði að reisa hér tónleika-
höll, og verða á undan Reykvíking-
uni ef keppnin fengist norður. Eg
hef áður minnst á þörfina fyrir slíka
byggingu hér í bæ, og að gefnu til-
efni vil ég taka það fram að auðvit-
að ætti gamli, góði Jóhann Sebastí-
an þar heima ef til vill öðrum
fremur, enda hefur hann samið þá
fegurstu kirkjutónlist sem um
getur, þó svo hann hafi einnig
kunnað vel að meta alþýðutónlist
síns tíma, en svo kaldhæðnislega
vill til að mikið af þessari þýsku al-
þýðutónlist er tengt bjórþambi.
En líkast til yrði nú þessi Euro-
visionskrautsýning fullstór biti fyrir
Akureyri að kyngja. En um ýmsa
aðra hliðstæða möguleika gæti vel
verið að ræða. Má.í því sambandi
nefna Olympíuskákmót eða 01-
ympíuleika smáþjóða sem Akur-
eyri gæti hæglega boðið í ásamt
öðrum byggðarlögum á Norður-
landi. Mætti meira að segja hugsa
sér eitthvað slíkt til að blása lífi í
Fjórðungssambandið sem kvað víst
vera í andarslitrunum eða þar um
bil. Og vísast yrði svona nokkuð
miklu áhrifaríkara en hin gengis-
fallna „Dómkirkjubyggðastefna“
hans Tómasar Inga. Auðvitað veit
hann eins vel og ég að þeir útgerð-
armenn og frystihúsaeigendur sem
hagnast myndu á rétta genginu fara
beina leið til fyrsta fasteignasalans
í Reykjavík til að kaupa íbúð
handa þeim Nonna og Gunnu sem
næsta haust verða send í Versló.
Að sjálfsögðu kann veruleg gengis-
felling að geta verið nauðsynleg til
að rétta við hag undirstöðuatvinnu-
veganna, en samhliða þarf þá að
gera verulegar ráðstafanir í tekju-
jöfnunarskyni, og því má svo sem
bæta hér við að sjálfsagt þykir hon-
um Tómasi Inga, rétt eins og sjálf-
um mér og öðru lágtekjufólki alveg
bráðnauðsynlegt að komast á gjald-
eyrisútsölu svona öðru hverju.
Bjór í þágu aldraðra
Byggðamálin sem talsvert voru í
brennidepli fyrir nokkrum vikum
hafa nú um sinn að minnsta kosti,
orðið að þoka fyrir umræðum um
þetta eilífa vandræðabarn þing-
manna, það er að segja bjórinn, og
er ekki annað hægt að segja en að
mikið fjör hafi færst í þá umræðu
núna síðustu dagana. Menn hafa
allt í einu uppgötvað það að þing-
menn séu beittir þrýstingi, jafnvel
mútum, þótt slíkt hafi í raun alltaf
viðgengist, og í sambandi við bjór-
málið sérstaklega, þá getur orðið
erfitt um það að dæma hvorir hafa
beitt meiri þrýstingi templarar eða
Ríki-Rolf. Og það þarf enginn að
segja mér að forráðamenn Ríkisút-
varpsins hafi ekki beitt þrýstingi til
að bjarga lífi óskabarnsins Inn-
heimtudeildar, sem í framfærslu
mun víst kosta andvirði þó nokk-
urra Stikluþátta. Fyrirbærið er
raunar víðar þekkt en hér og
gengur til dæmis í engilsaxneskum
löndum undir nafninu „Iobbying“.
En víkjum aftur að bjórmálinu.
Umræðan um það hefur á stundum
tekið á sig næsta kátlegan blæ, eins
og þegar menn jafnvel háskóla-
menntaðir, hafa deilt allt að því um
það hvort meiri vínandi sé í einni
kvartlítraflösku af 4 til 5 prósentu-
stiga sterkum bjór eða einu glasi af
40 prósent sterku brennivíni sem að
vísu verður eitthvað svolítið veik-
ara ef það er blandað með vatni.
Hitt er þó öllu verra að þessi deila
um keisarans skegg hefur dregið at-
hygli þjóðarinnar frá mörgum
miklu mikilvægari málum þar á
meðal byggðamálunum. Að vísu
komu byggðamálin dálítið inn í
bjórumræðuna á dögunum þegar
Hjörleifur Guttormsson vakti rétti-
lega athygli á þeim vandræðum sem
skapast myndu vegna bjórsins á
stöðum þar sem áfengisútsölur eru
ekki. Hefur hann vaíalaust þarna
haft í huga heimabyggð sína Nes-
kaupstað þar sem bæjarstjórnin
hafði lagt til að bjórfrumvarpið yrði
fellt, sjálfsagt vegna þess hversu
samgöngurnar við Seyðisfjörð geta
oft verið erfiðar á vetrum. Sjón-
armið sem vissulega verður að taka
tillit til.
Annars flutti fyrrnefndur Hjör-
leifur Guttormsson ef til vill þá
skynsamlegustu tillögu í bjórmál-
inu sem komið hefur fram til þessa.
Hann leggur til að ágóðanum af
bjórsölunni verði varið til öldrunar-
mála. Þessir peningar myndu án efa
nægja til að bæta talsvert úr því
ófremdarástandi sem í þeim málum
ríkir, eins og glögglega kom fram í
nýlegum þætti sem auðvitað var
frá RÚVAK eins og flest bitastætt
efni Ríkisútvarpsins. Það er sann-
arlega ekki vansalaust hvernig við
höfum hagað okkur gagnvart þeirri
kynslóð sem skapað hefur íslenska
velferðarþjóðfélagið til dæmis með
því að telja þá peninga sem dregnir
hafa verið af launum þess í svokall-
aða lífeyrissjóði, til tekna þegar
ellilaunin eru reiknuð. Þessa tillögu
Hjörleifs ættu allir þingmenn að
samþykkja með lófataki, og stuðla
þannig að þjóðarsátt í miklu við-
kvæmnismáli svo menn geti loks
snúið sér að mikilsverðari hlutum
en bjórþrasi. Það tökst á dögunum
að skapa þjóðarsátt um afvopnun-
armál og þróunaraðstoð, og því
ætti það ekki að vera hægt þarna
líka. Því miður er það nú ekki mjög
líklegt a.m.k. ekki í vor þar sem
Haraldur Ólafsson mun sjálfsagt
syngja vögguvísu sína yfir þessu
ásamt útvarpslagafrumvarpinu al-
ræmda. En það kemur þing eftir
þetta þing.