Dagur - 31.05.1985, Side 7
31. maí 1985- DAGUR-7
- Jónas Vigfússon í Litla-
Dal?
- Já, sá er maðurinn.
- Mér er sagt að þú sért for-
maður Hestamannafélagsins
Funa og það sem meira er, að
félagið hafi um þessar mundir
lagt fjórðung aldar að baki.
- Já, það er alveg rétt.
- Hvað ætlið þið að gera til
að fagna þessum tímamótum?
- Við ætlum að hittast í
Laugaborg á laugardaginn og
gera okkur glaðan dag. Þangað
eru allir velkomnir og þeir sem
mæta stundvíslega fá meira að
segja kokteil. Síðan verður rak-
in saga félagsins í stuttu máli og
nokkrir af stofnendum þess
heiðraðir. Auk þess verða
skemmtiatriði, sem hestamenn
flytja eins og þeim einum er
lagið, en að lokum verður stig-
inn dans fram eftir nóttu, við
undirleik Pálma Stefánssonar og
félaga. Og það eru allir vel-
komnir og eins og góðra hesta-
manna er siður, þá tökum við
vel á móti gestum.
- Hvar er ykkar félagssvæði?
- Það er nú erfitt að setja þar
einhver ákveðin mörk, en flestir
okkar félagsmenn eru hér í Inn-
firðinum, en einnig úti í Glæsi-
bæjarhreppi og jafnvel í Arn-
arneshreppi. Auk þess eigum
við nokkra trygga félagsmenn á
Akureyri, en í flestum tilfellum
er þar um að ræða hestamenn,
sem hafa flutt úr sveitinni á möl-
ina.
- Hvaða verkefni er félagið
að fást við á afmælisárinu?
- Við erum eignaraðili að
mótssvæðinu á Melgerðismel-
um, ásamt Létti og Þráni, og þar
bíða mörg verkefni, stór sem
smá. Þar var farið út í miklar
framkvæmdir sumarið 1983, í
tengslum við fjórðungsmót sem
þar var haldið. Þá lentum við í
skuld og við erum enn að berjast
við þann skuldahala. Við ætlum
að reyna að hrista hann af
okkur, en auk þess er ákveðið
að hefja skógrækt á svæðinu.
Fyrstu plönturnar verða gróður-
settar nú í vikunni og í sumar
verður plantað um 5000 plönt-
um á svæðinu. Aðallega er þar
um að ræða lerki, sem á að
mynda skjólbelti syðst á melun-
um, en einnig ætlum við að
gróðursetja víði umhverfis tjald-
stæðin.
- Nú eru þetta orðnar dýrar
framkvæmdir, en nýtast þessi
mannvirki ekki fyrir neitt annað
en hestamannamót?
- Jú, jú, það er inni í mynd-
inni að þarna verði alhliða úti-
vistarsvæði í framtíðinni og það
eru fleiri en hestamenn sem lagt
hafa hönd á plóginn, því félagar
í ungmennafélaginu Vorboðan-
um eru með íþróttavöll í bygg-
ingu á svæðinu og gera sér vonir
um að ljúka við hann í sumar.
Auk þess ætlum við að setja
þarna upp leiktæki fyrir börn og
einnig höfum við verið að gæla
við þá hugmynd að þarna verði
einhvers konar ferðaþjónusta
þegar fram líða stundir.
- Hvað ber hæst hjá ykkur á
Melgerðismelum í sumar?
- Um aðra helgi verða félög-
in með héraðssýningu kynbóta-
hrossa og íþróttamót á melun-
um og seinustu helgina í júlí
verður okkar árlega Melgerðis-
melamót. Það fer öll okkar orka
í Melgerðismela og við höldum
uppbyggingunni þar áfram, með
það fyrir augum að halda þar
landsmót hestamanna árið
1990. Næsta landsmót verður
hins vegar á Hellu og þangað
höldum við ríðandi suður yfir
fjöll.
- Eiga Eyfirðingar góð
hross?
- Já, Eyfirðingar hafa
löngum átt góð hross, það sýnir
sig þegar úrslit landsmóta
undanfarna áratugi eru skoðuð.
Og við látum ekki deigan síga,
þannig að enn þann dag í dag
eigum við góða hesta, kynbóta-
hross sem gæðinga. Enda höfum
við leitast við að vera með bestu
fáanlegu stóðhestana hverju
sinni. Það hefur líka reynst auð-
velt, því stóðhestaeigendur hafa
sýnt því áhuga að koma hestum
sínum hingað, vitandi hversu
eyfirsku hryssurnar eru góðar.
- Getur hrossaræktin orðið
búgrein?
- Já, það tel ég, en það háir
framgangi hennar, að fæstir
ræktendur hafa tíma til að temja
og þjálfa hrossin sín, eins og
kröfur eru gerðar um í dag. Þess
vegna skapar ræktunin ekki þær
tekjur sem þarf. Þetta er í það
minnsta mín reynsla; ég hef ekki
efni á að eyða þeim tíma í hest-
ana mína sem þyrfti. Þess vegna
gefur mín hrossaræktun mér
ekki þær tekjur, að ég geti lifað
af henni. Þetta vekur þá spurn-
ingu, hvort við leggjum ekki of
mikla áherslu á tamninguna og
þjálfunina, á kostnað kynbóta
og uppeldis.
- Hvað er það sem heillar þig
mest við hestamennskuna ?
- Þetta er nú erfið spurning.
Upphaflega flutti ég út í sveit til
að hafa betri aðstöðu til að ríða
út. Reyndin hefur aftur á móti
orðið sú, að ég hef aldrei haft
minni tíma til þeirra hluta.
Hestamannamótin sem slík
heilla mig ekki, en þau eru
nauðsynleg til að fá samanburð
og til að sjá þróunina í ræktun-
inni. Langferðir á hestum um
byggðir sem óbyggðir eru heill-
andi ferðamáti, en því miður er
allt of lítill tími til slíkra ferða í
okkar stressaða nútímaþjóðfé-
lagi. Að öllu samanlögðu, held
ég að snertingin við náttúruna
og þau hrif sem hún skapar sé
það sem gerir hestamennskuna
svona eftirsóknarverða.
- Hjartanlega sammála.
Pakka þér fyrir spjallið Jónas og
góða skemmtun á laugardag-
inn.
- Þakka þér sömuleiðis.
- GS
Jónas Vigfússon, formaður Funa, á línunni
Konur - Konur
Stjómmál og
kvennabarátta
Opinn fundur veröur haldinn í Lárusarhúsi - Eiðs-
vallagötu 18, laugardaginn 1. júní kl. 13.30.
Málin reifuð og rædd af málsvörum Alþýðubanda-
lagsins og fundargestum.
Sérstakir gestir fundarins verða:
Guðrún Ágústsdóttir, borgarfulltrúi Reykja-
vík og Þuríður Pétursdóttir, bæjarfulltrúi Isa-
fírði.
Kaffiveitingar. Allar konur velkomnar.
Konur í Alþýðubandalaginu.
Orlof húsmæðra
Frá orlofsnefnd Arnarness-, Árskógs-, Glæsi-
bæjar-, Skriðu- og Öxnadalshrepps.
Nú í sumar er húsmæðrum boðin orlofsdvöl að Hól-
um í Hjaltadal síðustu vikuna í ágúst. Þátttöku þarf
að tilkynna fyrir 6. júní.
Nánari upplýsingar veita: Vilborg Petersen, Elín
Lárusdóttir, Ragnhildur Sigfúsdóttir, Sesselja Ing-
ólfsdóttir og Fjóla Rósantsdóttir.
SAMplast
auglysir
Getum afgreitt heita potta
með stuttum fyrirvara. Stærð 195x195 cm.
Vatnshæð 40 eða 80 cm í sama pottinn.
Verð aðeins kr. 29.000,-
Greiðsluskilmálar.
C A IVÍ nlílfif Höfðabrekku 27,
Húsavík, sími 41617.
KMMbmí
býður yður velkomin í heitan mat,
hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Nýbakaðar vöfflur m/rjóma
í síðdegiskaffinu alla daga.
Hótel KEA
Við bjóðum fjölbreyttar veitingar í veitingasal
sem er opinn alla daga fyrir hádegis- og kvöldverð
★ ☆ ★
Dansleikur
laugardagskvöldið 1. júní 1985
Hljómsveitin Árátta leikur
fyrir dansi frá kl. 22.00-02.00.
Kristján Guðmundsson leikur létt lög fyrir matargesti
frá kl. 19.00.
Borðapantanir í síma 22200.
Verið velkomin.
AKUREYRI