Dagur - 04.11.1985, Síða 5
—lesendahornið.
4. nóvember 1985 - DAGUR - 5
Það á að hrósa þeim
sem það eiga skilið
- Sleppi ekki útsendingum svæðisútvarpsins ótilneyddur
Ánægður útvarpshlustandi
hringdi:
Ég má til að koma á framfæri
þakklæti mínu til Jónasar Jónas-
sonar, útvarpsstjórans okkar á
Akureyri, og hans ágæta sam-
starfsfólks.
Mér hefur runnið það til rifja,
að lesa allt það „tuð“ út af smá-
munum, sm sjá hefur mátt í les-
endadálkum blaðanna að undan-
förnu, vegna svæðisútvarpsins.
Þar hafa bréfritarar fjargviðrast
út af smámunum, en þess er í
engu getið, sem vel er gert.
Raunar á þetta við um aðra þætti
þjóðfélagsins. Okkur er stundum
tamara að gagnrýna fólk, í stað
þess að hrósa þeim sem það eiga
skilið.
Og Jónas og hans fólk eiga
hrós skilið. Ég sleppi til dæmis
ekki útsendingum svæðisútvarps-
ins ótilneyddur og þannig er því
einnig varið með konu mína og
fleiri fjölskyldumeðlimi. Ég segi
ekki að það sé gallalaust, að öllu
má finna, en annmarkarnir eru
smáræði hjá því sem þar er vel
gert. Auk þess eru margir ágætir
þættir, sem koma frá Ríkisút-
varpinu á Akureyri. Ég ætla ekki
að tiltaka neinn sérstakan, því
í svipinn kem ég ekki fyrir mig
neinum þætti, sem hefði mátt
missa sín.
Ég vona að Jónas og lians
ágæta samstarfsfólk, láti órök-
stutt „tuð“ í blöðum ekki hafa
áhrif á sig. Þeir óánægðu láta allt-
af hæst, en hinir eru miklu fleiri,
sem una glaðir við það sem frá
Ríksútvarpinu á Akureyri
kemur.
RÚVAK-fólk, látið ekki órökstutt tuð á ykkur fá.
Kaupum við vömr frá S.-Afríku?
Húsmóðir hringdi til okkar og
vildi forvitnast um það hvaða
vörur frá S.-Afríku væru á boð-
stólum í verslunum á Akureyri.
Vildi hún styðja kúgaðan meiri-
hluta í S.-Afríku með því að
kaupa ekki vörur þaðan. Einnig
vildi hún hvetja fólk til að fara
eftir þeim óskum Desmönd Tut-
us biskups og fleiri sem berjast
fyrir réttindum þeldökkra í land-
inu að sniðganga vörur frá S.-
Afríku.
unarhringa að ræða sem ættu
pökkunarverksmiðjur víða um
heim. Til dæmis væru vörur sem
keyptar væru frá Evrópu pakkað-
ar þar, en væru i'rá S.-Afríku.
Þess vegna er best fyrir fólk að
lesa utan á umbúðirnar áður en
innkaup eru gerð. Þess er getið á
umbúðum hvar varan er fram-
leidd og pökkuð.
Reyklaust þing
hestamanna fyrirmynd
Þegar haft var samband við
þær heildverslanir sem selja þær
vörur sem helst koma frá S.-
Afríku, það eru ávextir nýir og
niðursoðnir, kom í ljós að engin
þessara heildsala átti vörur frá S.-
Afríku. Bar þessum innflutnings-
aðilum saman um að erfitt væri
að henda reiður á hvaða vara
kemur frá landinu þar sem í flest-
um tilfellum væri um stóra versl-
„Reyklaus“ skrifar:
Ég las í Degi, mér til mikillar
ánægju, frásögn af ársþingi hesta-
manna, sem haldið var á Akur-
eyri. Og það sem gladdi mig mest
var stórfrétt, sem fólst í þessari
frásögn. Sem sé, að þingið var
reyklaust. Hestamenn sam-
þykktu einróma í upphafi þings,
að reykja ekki í þingsalnum.
Þetta tel ég til mikillar fyrirmynd-
ar og mættu aðrir fylgja í fótspor
hestamanna. Ég hef sjálf setið
þing, ekki óáþekk þessu, en þau
hafa sum hver nær horfið í reyk.
Loftræsting er misjöfn og þegar
fjöldi fólks situr í sama salnum
allan daginn, þá er fljótt að
þykkna í lofti, ef kannski helming-
urinn af mannskapnum reykir.
Til hamingju hestamenn.
Jiögni.___________________
Nafli heimsins
Líkams- og heilsufræðin er
töluverf íhaldssöm, þegar um
er að ræða staðsetningu hinna
ýmsu líkamshluta. Hausinn, til
að mynda, er undantekningar-
lítíð, - á öllum venjulegum
mönnum, - efst á líkamanum
og iljar neðst. Þetta snýst svo
að sjálfsögðu við, standi maður
á haus. Engum heilvita manni
myndi koma til hugar að halda
því fram að t.d. hægri fótur
gangi út úr líkamanum rétt neð-
an við vinstra herðablaö. Slíka
vitleysu hlustaði enginn á.
Nú, eins er þetta með
naflann. Hann á sinn fasta sess
og sæti á miðjum kvið og hvergi
annars staðar. Allar tilraunir til
að flytja þetta „líffæri“ eru fyrir-
fram dæmdar til að mlstakast.
Þetta getur hver maður prófað á
sjálfum sér.
Einhverra hluta vegna, hefur
heimurinn ekki tileinkað sér
neitt af líffærum mannslíkam-
ans, utan naflans. Það er aldrei
talað um haus heimsins eöa fót.
Aftur á móti er það löngu vís-
indalega sannaö að heimurinn
hefur nafla.
Aldrei hafa visindin þó tekið
af skariö með staðfestingu líf-
færisins, enda óþarfi. Það ætti
að vera löngu lýðum Ijóst, að
heimsnaflinn er við Eyjafjörð,
innan verðan. Ég geri mór þó
fulla grein fyrir því að um þetta
atriði eru eitthvaö Iftils háttar
skiptar skoðanir, en að öllu
metra- eða kílómetra stríði
slepptu, ætti flestum Islending-
um að vera Ijóst að naflinn er þó
óumdeilanlega á fslandi.
En því geri ég þetta að um-
talsefni, að undanfarið hefur
verið gerð gróf, og ég vil segja
dónaleg tilraun til að draga nafl-
ann af hans eina og rétta stað,
aila leið suður á Spán. Þetta er
því ósvífnara þegar haft er í
huga að það er (slenskur
maður, sem stendur að þessum
Itffæraflutningi, og notar til
þess sjálft íslenska ríkisútvarp-
ið.
Hér ( þá gömlu og góðu
daga, meðan naflinn var á sín-
um stað, frétti maður fyrir til-
verknað útvarpsins um hey-
skaparhorfur í Hreppum, afla
þilfarsbáta í Þorskafirði, fall-
þunga dilka í Flóanum og aðal-
fund kvenfólagsins í Hruna-
mannahreppi. ( dag aftur á
móti, verðum við að vera f al-
gerri óvissu um þetta allt. Hins
vegar erum við að verða, fyrir
tilstuðlan þessa sama ríkisút-
varps, sórfræðingar í öllu sem
viðkemur ættflokkaríg í fjalla-
héraði suður á Spáni. Og um
daginn voru fréttir stöðvaðar til
þess að við gætum fengið að
vita, að þeir eru farnir að rífast (
innanhúss knattspyrnusam-
bandi Spánar!
Hér duga engin vettlingatök.
Það gagnar ekkert minna en
þjóðarsamstaða í þessu mikla
máli. Við höfum áður þurft að
sækja dýrmæta þjóðareign i
greipar erlendra manna. Hand-
ritin heim, var krafan, sem varð
að veruleika. Krafa allra þjóð-
hollra (slendinga, er í dag: Nafl-
ann heim!
Högni.
Gleraugu - Gleraugu
Notar bamið þitt gleraugu?
Níðsterkar barna- og unglinga-
umgjarðir frá þekktum framleiðendum
Barnauleraimu crn scmrcin okkar.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7 - í miðbæ Akureyrar
Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 ■ Símar41534 • Sérleyfisferðir •
Hópferðir • Sætaferðir ■ Vöruflutningar
Húsavík - Reynihlíð - Laugar - Akureyri
VETRARÁÆTLUN 1985-86
S M Þ M Fl FÖ
Frá Reynihlíð kl. •k 08.00
Frá Laugum kl. 09.00
Frá Húsavík kl. 18.00 09.00 09.00 09.00
Frá Akureyri kl. 21.00 16.00 16.00 17.00
Frá Akureyri í Laugar og Mývatnssveit kl. 17.00
★ Vöruflutningab. á þriðjud. Brottför um kl. 15.00
frá Ríkisskip Akureyri.
Farþegar frá Mývatnssveit og Reykjadal eru sérstaklega hvattir
til að panta daginn fyrir brottför á Hóte! Reynihlíð sími 44170
eða hjá Flugleiðum Húsavík sími 41140.
Afgreiðsla Húsavíkur: Flugleiðir, Stóragarði 7, s. 41140.
Farþegaafgr. Akureyrar: Öndvegi hf., Hafnarstr. 82, s. 24442.
Öll vörumóttaka Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu s. 23936.
ATH. Vörur sem flytja á frá Akureyri þurfa að berast tímanlega.
Sérleyfishafi.
Framsóknarmenn
Akureyri__________________
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur mánudaginn 4. nóvember kl.
8.30 e.h. í Eiðsvallagötu 6.
Aðalefni fundarins verður æskulýðsmál.
Félagar fjölmennið.
FRAMSÓKNARFÉLAG
AKUREYRAR
Þau krefjast réttra viöbragða
ökumanna. Þeir sem að jafnaði
aka á vegum með bundnu slit-
lagi þurfa tima til þess að
venjast malarvegum og eiga
því að aka á hæfilegum hraða.
SKILVRÐI
Auglýsingadeild Dags