Dagur - 04.11.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 04.11.1985, Blaðsíða 12
MCKJR Akureyri, mánudagur 4. nóvember 1985 Volkswagen Jetta árg. ’86 er kominn Þórsarar töpuðu naumlega fyrir Tý í spcnnandi leik í 3. deild handboltans á laugardag. Úrslitin 28-26 fyrir Tý. Besti maður Þórs var Sigurpáll Aðal- steinsson og á myndinni má sjá hann í baráttu við varnarmenn Týs. Mynd: KGA. Kartöflur og hrossakjöt: Verðlagning gefin frjáls - Urgur í bændum, Framleiðsluráð landbúnaðarins mótmælir Verðlagsnefndir landbúnaðar- ins ákváðu á miðvikudag að fella niður hámarksverð í heildsölu á hrossakjöti og kart- öflum og tók ákvörðunin gildi í gær. Með öðrum orðum er heildsöluverðlagning þessara landbúnaðarafurða gefín frjáls. Þetta er nýjung í verðlagningu búvara og telur verðlagsstjóri að þetta geti leitt til lækkunar þess- ara vara. Framleiðsluráð landbúnaðar- ins hefur nú mótmælt þessari ákvörðun og segir að hún standist ekki samkvæmt búvörulögum. Samtök framleiðenda óskuðu eftir því í haust að verðlags- nefndir búvara ákvörðuðu verð hrossakjöts og kartaflna. Sex- mannanefnd hækkaði þá verð til bænda hliðstætt því sem verð- lagsgrundvöllur landbúnaðarvara hækkaði 1. september. Hinar svokölluðu fimmmannanefndir hafa síðan unnið að því að verð- leggja vinnslu- og heildsölukostn- að varanna og frjáls álagning er niðurstaðan. Þétta telur Fram- leiðsluráð landbúnaðarins brot á lögum því verðlagsnefndunum beri skylda til að fylgja eftir ákvörðun Sexmannanefndar. Eiríkur Sigfússon bóndi á Síla- stöðum í Glæsibæjarhreppi sagði að þessi ákvörðun yrði bara til að auka á glundroðann í málefnum kartöflubænda og myndi bitna fyrst og fremst á hinum ýmsu sjóðagjöldum, sem heildsalan hefur áður skilað. Þetta gerði mönnum því hægara um vik að skjóta sér undan sínum skyldum. „Kartöfluverð miðað við laun hefur líklega aldrei verið lægra en nú og ef það á enn að lækka þýðir það bullandi taprekstur hjá kartöflubændum og þeir einfald- Iega leggja upp laupana unnvörp- um,“ sagði Sveinberg Laxdal bóndi í Túnsbergi á Svalbarðs- strönd. „Vaxtakostnaður á vél- væddu kartöflubúi er einna þyngsti liðurinn í rekstrinum og inni í núgildandi verði er ekki fimmeyringur til að mæta þeim kostnaði. Það er því tómt mál að tala um lækkun kartöfluverðs. Það er ekkert svigrúm til lækkun- ar.“ Það er þungt hljóð í bændum vegna ákvörðunar verðlags- nefnda og ekki öll kurl komin til grafar í máli þessu. BB. Vetur í bæ - alkominn. bryggju- Og vistin daufleg hjá bátunum við Höephners- Mynd: KGA Húsavík: Sex sóttu um sýslu- manns- embættið Umsóknarfrestur um sýslu- mannsembættið á Húsavík rann út 1. nóvember sl. Sex umsækjendur voru um em- bættið, en Sigurðu Gizurar- son lætur af því 1. desember nk. Umsækjendur ' voru þessir: Adólf Adólfsson, fulltrúi sýslumanns á Húsa- vík, Ásmundur S. Jóhanns- son, héraðsdómslögmaður Akureyri, Barði Þórhalls- son, bæjarfógeti Ólafsfirði, Freyr Öfeigsson, héraðs- dómslögmaður Akureyri, Halldór Kristinsson, bæjar- fógeti Bolungarvík og Ör- lygur Hnefill Jónsson, héraðsdómslögmaður Húsa- vík. IM Tölur úr umferðinni 1984: 7395 umferðarslys á land- inu þar af 310 á Akureyri - Bakkus oft meðal farþega 7395 umferðarslys urðu á land- inu árið 1984, þ.e. slys sem lögreglumenn gerðu skýrslu um. Þar af urðu 310 umferð- arslys á Akureyri, sem er 4,2% af heildarfjöldanum. Flest urðu slysin á Akureyri í janú- ar, 45, en fæst í ágúst, eða 16. Þessar upplýsingar er að finna í mjög ítarlegri skýrslu Umferðar- ráðs er fjallar um umferðarslys á íslandi árið 1984. Ekkert dauðaslys varð í um- ferðinni á Akureyri 1984. í 30 slysum urðu meiðsli á fólki en í 280 tilfellum var einungis um eignatjón að ræða. Á landinu öllu urðu 24 bana- slys, í 527 slysumm urðu meiðsli á fólki en í 6844 tilfellum varð ein- ungis eignatjón. Á Norðurlandi öllu voru 268 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur, þar af 140 á Akureyri. í 41 tilfella var kæra felld niður, í 72 tilfellum reyndist vínanda- magn í blóði við neðri mörk en í 141 tilfelli við efri mörk. í 14 til- fellum er niðurstaða ókunn. Á landinu öllu voru 2496 öku- menn teknir fyrir meintan ölv- unarakstur, þar af einungis 343 að ósekju. Þessar tölur segja meira en ótal orð um umferðar „menningu" landsmanna. En varðandi ölv- unarakstur segja þær ekki alla söguna, því eflaust hafa margir ekið í annarlegu ástandi en sloppíð með skrekkinn. BB. Umboðsmaður Bubba Morthens í mál við Dynheima? Hótar málsókn Umboðsmaður söngvarans Bubba Morthens hefur hótað því að farið verði fram á skaða- bætur við Dynheima á Akur- eyri vegna þess að forstöðu- maður hússins hafi misnotað upptöku með lögum Bubba er gerð var þar fyrir skömmu. Umboðsmaðurinn segir að forstöðumaðurinn hafi fengið leyfi til að taka hljómleikana upp á myndband með því skilyrði að opinber birting á efninu væri stranglega bönnuð, og í frétt í NT er sagt að farið verði út í málshöfðun ef skaðabætur fáist ekki greiddar. „Ég fékk munnlegt leyfi frá Bubba til þess að við mættum nota þetta efni í félagsmiðstöðv- um á Akureyri og í skólum,“ sagði Steindór Steindórsson for- stöðumaður Dynheima er við ræddum þetta mál við hann. „Um það hvort sýna mætti þetta efni í kapalkerfi í bænum var ekki rætt enda báðum við ekki um leyfi fyrir sltku.“ Umrætt efni var sýnd í kerfi Vídeólundar og við spurðum Steindór hver yrðu viðbrögð Dynheima við hótun umboðs- mannsins um málsókn ef skaða- bætur yrðu ekki greiddar. „Það var aldrei ætlun okkar að hafa neitt af Bubba og höfundar- laun átti að sjálfsögðu að greiða. Bubbi er væntanlegur hingað til tónleikahalds um næstu helgi og þá mun ég ræða þetta mál við hann og vonast til að frá því verði gengið. Við sýndum þetta efni sem kynningarmynd fyrir Dyn- heima og töldum ekkert athuga- vert við það,“ sagði Steindór. gk’-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.