Dagur - 06.11.1985, Síða 9
Jþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
6. nóvember 1985 - DAGUR - 9
islandsmótið í handknattleik 1. deild:
KA sigraði FH í jöfnum
og spennandi leik
- Stórgóð markvarsla Sigmars KA markvarðar
„Það var fyrst og fremst góð
barátta sem skóp þennan
sigur. Að vísu lentum við í
basli þegar búið var að útiloka
þá Erling og Loga, en þeir
höfðu spilað allan leikinn. En
við áttum þennan sigur fylli-
lega skilinn. Þá langar mig að
koma á framfæri þakklæti til
áhorfenda, sem stóðu mjög vel
við bakið okkur í lokin,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson
leikmaður KA, eftir frækileg-
an sigur gegn FH í 1. deild Is-
landsmótsins í handknattleik í
gærkvöld.
ryrri hálfleikur var jafn og
spennandi framan af. Um miðjan
hálfleik var staðan 7:5 FH í vil,
en þá skoruðu KA-menn 4 mörk
í röð og breyttu stöðunni í 9:7 sér
STAÐAN
Staðan í 3. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik eftir leiki
helgarinnar er þessi:
Selfoss-ÍH 21:26
Skallagr.-Reynir 23:28
ÍA-Fylkir 22:20
Völsungur-Týr 22:30
Þór-Týr 26:28
Ögri-UMFN 15:35
Týr 6 4-0-2 158:128 8
ÍA 4 3-1-0 96: 76 7
Reynir 4 3-1-0 90: 80 7
UMFN 4 3-0-1 122: 95 6
ÍH 4 3-0-1 111:104 6
Þór 5 2-1-2 109:104 5
ÍBK 3 2-0-1 80: 54 4
Se'Ifoss 4 1-2-1 118:111 4
Fylkir 5 2-0-3 96: 88 4
Völsungur 5 1-0-4 114:127 2
Skallagrímur 4 1-0-3 85:103 2
UFHÖ 4 0-1-3 106:130 1
Ögri 4 0-0-4 50:128 0
í vil. KA-menn skoruðu síðan 3
mörk gegn 2 mörkum FH-inga
fyrir leikhlé og leiddu í hálfleik
12:9.
Erlendur Hermannsson er lék
að nýju með KA skoraði fyrsta
markið í síðari hálfleik og skipt-
ust liðin síðan á um að skora allt
fram á 23. mínútu síðari hálf-
leiks, en þá var Erlingur Krist-
jánsson útilokaður er hann fékk
sína þriðju brottvísun í leiknum.
Þá var staðan 21:17 KA í vil, Þor-
leifur bætti við 22. marki KA úr
horninu og KA-menn virtust yera
með unninn leik í höndunum.
Þá gripu FH-ingar til þess ráðs að
færa vörn sína fram að miðju.
Við það ruglaðist sóknarleikur
KA-manna algjörlega og FH-ing-
ar jöfnuðu leikinn á rúmlega
tveimur mínútum, 22:22. En það
var svo gamla kempan Þorleifur
Ananíasson sem innsiglaði sigur
KA með marki skömmu fyrir
leikslok úr horninu. Rétt áður
hafði Logi Einarsson verið úti-
lokaður frá leiknum er hann fékk
einnig sína þriðju brottvísun.
KA-liðið er lék án þeirra Jóns
Kristjánssonar og Sigurðar Páls-
sonar átti mjög góðan leik. Sér-
staklega voru þeir Erlingur Krist-
jánsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Logi Einarsson að
ógleymdum Sigmari Þresti mar-
kverði mjög góðir, en Sigmar
varði 18 skot í leiknum. Þá var
Hafþór Heimisson sterkur í vörn-
inni.
í liði FH voru þeir bestir Þor-
gils Óttar Mathiesen, Óskar Ár-
mannsson og Sverrir Kristinsson
markvörður.
Mörk KA: Þorleifur Ananías-
son 4, Logi Einarsson 4, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Erling-
ur Kristjánsson 4 (1), Pétur
Bjarnason 2 og Hafþór Heiinis-
son 1.
Siglufjörður:
Áhugi á stofnun
íþróttafélags fatiaðra
A Siglufírdi er hafin undirbún-
ingur aö stofnun íþróttafélags
fatlaðra. Er hugmyndin sú aö
þetta verði einnig félag fyrir
aldraða og verði opið fyrir
hverja þá er áhuga hafa á
íþróttum.
Dagur hafði samband við
Guðrúnu Árnadóttur sem sæti á í
undirbúningsnefnd vegna stofn-
unar hins nýja félags og spurði
hana nánar út í þá hugmynd að
stofna íþróttafélag á Siglufirði?
„Það var haldin kynningar-
fundur urn miðjan október, þar
sem fólk frá íþróttafélagi fatlaðra
í Reykjavík kom og kynnti starf-
semi sína. Og á þeim fundi kom
fram áhugi fyrir því að þetta félag
yrði einnig fyrir aldraða. Þá var
skipuð þessi undirbúningsnefnd
sem ég á sæti í ásamt þeim Reg-
ínu Guðlaugsdóttur, Kristjáni
Möller, Jónasi Björnssyni, Viðari
Jóhannssyni, Boga Sigurbjörns-
syni og Birni Þór Haraldssyni.
Þessi nefnd mun síðan gera til-
lögur og senda þær til fram-
kvæmdastjóra svæðisstjórnar.
Við fengum fólk frá Sjálfsbjörg,
Þroskahjálp og Félagi eldri borg-
ara, til að fá þeirra álit á því að
hafa þetta félag einnig fyrir aldr-
aða. Því fólki leist mjög vel á þá
hugmynd, því það er erfitt að
vera með mörg félög í svona litlu
bæjarfélagi. Við höfum áhuga á
að gefa þessu félagi eitthvert nafn
og að það starfi undir kjörorðinu
„íþróttir fyrir alla“. Er þá átt við
að félagið sé jafnt fyrir fatlaða,
aldraða sem og alla aðra er áhuga
hafa á íþróttum, unga sem
gamla.
Mörk FH: Óskar Ármannsson
9 (4), Þorgils Óttar 6 (1), Stefán
Kristjánsson 3, Héðinn Gíslason
3 og Valgarður Valgarðsson 1.
Dómarar voru þeir Gunnar
Kjartansson og Rögnvaldur Erl-
ingsson og voru þeir slakir. Ráku
menn út af af minnsta tilefni. Er
það orðið hálf einkennilegt hvað
dómarar eru mikið fyrir það að
reka leikmenn út al'. Það er
nefnilega stór galli á íslenskum
dómurum hvað þeir vilja dæma
mikið eftir eyranu, en ekki aug-
anu.
Erlendur Hermannsson hefur sent knöttinn í mark FH nieð glæsilegu skoti. Mynd: KGA.
I a3 ■ ■ ðaáætlu nóv. ’85 til 1. apríl ’86. in
Brottför frá Akureyri til:
Hríseyjar Ólafsfjarðar Siglufjarðar Grímseyjar
Mánudaga 11.00 11.00
Þriöjudaga 08.00
Miðvikudaga 11.00 11.00
Fimmtudaga 08.00 7/11 ogsíðan annan
Föstudaga 08.00 08.00 hvern fimmtudag
Vörur þurfa að hafa komið á afgreiðslu klukkustund fyrir auglýsta brottför
og fyrir kl. 16 daginn fyrir auglýsta brottför kl. 8 að morgni.
Ath.: Vörumottaka opin alla
virka daga frá kl. 08-17.
Sími 96-24088.
Flóabáturinn Drangur hf.
Oddeyrarskala - sími 96-24088.