Dagur - 25.11.1985, Qupperneq 3
25. nóvember 1985 - DAGUR - 3
„Vonlaust að fá
fullt verð fyrir
kartöflumar“
- Guðmundur Þórisson telur að það hafi verið rétt
að slá af verði til að forða framieiðslunni frá skemmdum
„Það er rétf, ég lýsti því yfír að
ég myndi ekki vinna að fram-
gangi þessarar tillögu, en ég
gerði það áður en hún var
samþykkt, einfaldlega vegna
þess að ég veit að það er von-
laust verkefni að ætla sér að fá
fullt verð, að viðbættum
vöxtum, fyrir innlegg haustið
1984.“
Þetta sagði Guðmundur Þóris-
son, bóndi í Hléskógum og for-
maður Félags kartöflubænda við
Eyjafjörð, vegna fréttar sem
höfð var eftir Sveinbergi Laxdal í
blaðinu á fimmtudaginn. Þar var
sagt frá fundi hjá Félagi kartöflu-
bænda, þar sem samþykkt var til-
laga frá Stefáni Kristjánssyni. í
henni var þess krafist, að stjórn
félagsins hlutaðist til um að kart-
öflubændur fái fullt verð, ásamt
áföllnum vöxtum, fyrir innlegg
frá haustinu 1984, en stjórn
Kaupfélags Svalbarðseyrar hefur
samþykkt að greiða 90% af
grundvallarverði.
„Þetta var ekki hitafundur,
eins og Sveinberg vill vera
láta,“ sagði Guðmundur. „Það
voru aðeins 5 manns, Sveinberg
og skyldulið, sem lögðu orð í
belg, og hygg ég að ágreiningur
þeirra við stjórnina sé fremur
persónulegur en málefnalegur.
Tillaga þeirra var að vísu sam-
þykkt með miklum meirihluta,
en hver vill ekki fá fullt verð fyrir
sína framleiðslu? Það er erfitt að
greiða atkvæði gegn slíku.
Það er hins vegar vonlaust að
vinna að framgangi þessa máls og
það vita Sveinberg og hans menn
ósköp vel. Þegar kartöflureikn-
ingurinn hjá Kaupfélagi 3val-
barðseyrar var gerður upp, þá
var það verk fjögurra manna. Þar
af voru tveir frá Félagi kartöflu-
bænda. Þeir sáu um að fá það
verð fyrir kartöflurnar, sem
mögulegt var. Það er því tómt
mál að taka þetta mál upp aftur
hjá félaginu. Hins vegar hefðu
Sveinberg og hans menn getað
kosið nefnd til að sjá um þetta
verkefni, en það gerðu þeir ekki.
Það virðist því ekki liggja mikil
alvgfa þarna að baki.
Vissulega höfum við orðið fyrir
vaxtatapi, en við fengum þó fulla
vexti á þá framleiðslu sem við
lögðum inn eftir 1. júní. Ástæðan
fyrir þessu vaxtatapi er sú, að það
lá fyrir offramleiðsla á kartöflum í
fyrrahaust. Þá áttu kartöflubænd-
ur um það að velja, að láta vinna
eins og hægt væri í kartöfluverk-
smiðjunni á Svalbarðseyri, til að
bjarga kartöflunum undan
skemmdum, eða þá áð framleiða
samkvæmt sölu, en þá hefði mik-
ið magn af kartöflum orðið ónýtt.
Fyrri kosturinn var valinn og þá
vissu allir, að það þýddi ein-
hverja lækkun á verði og vaxta-
tap. Þetta samþykktu nánast allir
þeir félagsmenn sem talað var
við. Ég held að þetta hafi verið
rétt tilhögun, því við höfum t.d.
mun hærri söluprósentu heldur
en kollegar okkar syðra. Þeir
fengu að vísu fullt verð fyrir þær
kartöflur sem þeir seldu, en stór
hluti af framleiðslu þeirra varð
ónýtur.
Auðvitað eru allir óánægðir
með að fá ekki fullt verð fyrir
sína vöru, en vegna offramleiðsl-
unnar 1984 urðum við að slá af.
Það var samþykkt þá, þannig að
r
Mikill
hiti á fundi
eyfirskra kartöflubænda
É
Neitar formaðurinn að fylgja eftir samþykkt aðalfundarins?
II hiti var í fundarmönnum
1i Fplaat kartnflu-
ist til um það að kartöflubændur I rar Guðmundur Þórisson for- | fylgja eftir samþvkktum aðal-
^^J^^g^^j^yjj^jj^^jjjjdur^glagsins^Ad^sogi^veii^^Lindai^^agd^winben^^^^
Landssamband iðnaðarmanna:
Varar við stórfelldri
hækkun vörugjalds
Fjármálaráðherra hefur nýver-
ið lýst þeirri stefnu, sem hann
hyggst fylgja á næstunni í fjár-
málum ríkissjóðs. Af þessu til-
efni vill framkvæmdastjórn
Landssambands iðnaðar-
manna koma á framfæri eftir-
farandi athugasemdum:
Landssamband iðnaðarmanna
telur áform fjármálaráðherra um
nokkurn niðurskurð á ríkisút-
gjöldum og erlendum lántökum
virðingarverð, þótt vart geti það
talist nema mjög lítið skref í bar-
áttu við sífellda útþenslu ríkis-
báknsins.
Landssamband iðnaðarmanna
lýsir hins vegar vonbrigðum sín-
um yfir, að þessi niðurskurður
skuli látinn bitna verulega á
framkvæmdum, þrátt fyrir fyrir-
sjáanlegan samdrátt í ýmsum at-
vinnugreinum, þar sem áhrifanna
gætir hvað mest.
Meðal þes, sent ætlunin er að
skera niður, eru framlög til vöru-
þróunar- og markaðsdeildar Iðn-
lánasjóðs. Landssamband iðnað-
arntanna bendir á, að ráðstöf-
unarfé sjóðsins er þegar það tak-
markað, að hann getur ekki sinnt
á viðunandi hátt álitlegum verk-
efnum iðnfyrirtækja á sviði vöru-
þróunar og útflutningstilrauna. í
þessum niðurskurði á framlögum
til sjóðsins felst því þversögn við
þá yfirlýstu stefnu ríkisstjórnar-
innar, að hvetja til nýsköpunar í
atvinnulífinu.
Áformaðar breytingar á tolla-
skrá eru í meginatriðum til bóta.
Framkvæmdastjórn Landssam-
bands iðnaðarntanna mótmælir
hins vegar harðlega ráðagerðum
unt stórfellda aukningu á skatt-
heimtu í fornti nýs vörugjalds.
Vörugjald er í eðli sínu afar
órökræn skattheimta, þar sem
það leggst á suma vörutlokka en
aðra ekki og hefur þannig óeðli-
leg áhrif á neysluval almennings
og samkeppnisstöðu hlutaðeig-
andi framleiðenda. Þannig er t.d.
óviðunandi, ef leggja á vörugjald
á brauðmeti, sem er viður-
kennd hollustuvara, en jafnframt
verði flest önnur matvæli án
vörugjalds hér eftir sent hingað
til.
Landssantband iðnaðarmanna
ntinnir á samþykktir 41. Iðnþings
íslendinga, sem haldið var ný-
lega, en þar kont m.a. fram, að
við endurskoðun á óbeinum
sköttum ríkissjóðs væri nauðsyn-
legt að líta á þá skatta í heild
sinni, til þess að skattheimtan
geti orðið rökræn og sanngjörn. í
þessu felst m.a., að breytingar á
tollskrá, sem m.a. fela í sér að
dregið verði úr mismunun milli
atvinnugreina, missa ntarks, ef
þeim fylgir stórfelld hækkun
vörugjalds, sent leggst á suntar
vörur en aðrar ekki.
það dugir ekki að kúvenda núna.
Þá kom fram önnur tillaga frá
Sveinbergi og félögum á þessum
fundi. Hún fól í sér vítur á stjórn
félagsins fyrir að gera samninga
við Einingu um kaup og kjör
unglinga við kartöfluvinnu. Þessi
tillaga var kolfelld. Eining óskaði
eftir því að þessi samningur yrði
gerður, þar sem margar kvartanir
hefðu borist um laun og aðbúnað
hjá Sveinbergi Laxdal og Hauki
Laxdal. Stjórn félagsins varð við
þessum óskum og samkomulag
náðist. Það hefur væntanlega
orðið til þess, • að í haust barst
ekki ein einasta kvörtun varðandi
kaup og kjör hjá kartöflubænd-
um,“ sagði Guðmundur Þóris-
son. - GS
Blomberq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup i nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
/^8^1 M ■ NÝLAGNIR
(®)Knr sr
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Yerslunarpláss
til leigu strax.
100 fm verslunarpláss til leigu að Hafnarstræti 88.
Ný standsett.
Upplýsingar gefur Stefán á Hótel Stefaníu
sími 26366.
Ping Pong
Ný tískuvöruv/erslun.
Mýjar vörur viKulega.
Ping Pong
Strandgötu 11, sími 26565.
Notendur
hitaveitu
Þeir aðilar sem ætla að setja upp hitahlutfallsmæl-
ana frá KOSAN - Brunata í janúar, þurfa að láta vita
fyrir 29. nóvember.
Pantanir verða afgreiddar í sömu röð og þær berast.
. j Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði
liiaUS sími 91-651585 og á kvöldin í síma 91-53114.