Dagur - 08.01.1986, Blaðsíða 1

Dagur - 08.01.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 8. janúar 1986 4. tölublað Álversrannsóknir við Eyjafjörð: Lokaskýrsla frá Staðarvalsnefnd - skýrsla um áhrif mengunar á gróður og búfé væntanleg í þessum mánuði Staðarvalsnefnd um orkufrek- an iðnað hefur sent frá sér lokaskýrslu Norsk institut for luftforskning (NILU) um loft- mengun frá hugsanlegu álveri við Dysnes í Eyjafirði. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá bráðabirgðaskýrslunni, sú helsta að hlutfall loftkennds flúors í heildarmagni hans hef- Akur- eyringum fjölgar „Þær tölur sem ég gef þér upp eru með miklum fyrirvara, því ekki hafa okkur borist allar tölur ennþá,“ sagði Úlfar Hauksson hagsýslustjóri Akur- eyrar, er hann var spurður um fjölda íbúa með lögheimili á Akureyri um áramótin síðustu. Áreiðanlegustu tölur eru að íbúar á Akureyri séu 13801. Það er fjölgun miðað við síðasta ár, en þá voru íbúarnir 13717 og hafði fækkað frá árinu 1983. Að- fluttir voru 622 en brottfluttir 520. Mun þessi fjölgun vera ná- lægt því sem er á landsvísu. „Þetta sýnir okkur að við erum á réttri leið eftir þá lægð sem bær- inn hefur verið í undanfarin ár, þegar veruleg fækkun varð hér,“ sagði Úlfar. Fæðingar á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri voru 303 á síð- asta ári. Það er nánast sami fjöldi fæðinga og varð árið 1984, en þá urðu fæðingar 305 og hafði þeim fækkað verulega frá árinu 1983. Þá voru þær 394. Ljósmóðirin sem gaf okkur upp þessar tölur reiknaði ekki með því að fæðing- um fjölgaði aftur á ársvísu. Eða eins og hún sagði: „Ætli það sé ekki þjóðfélagið sem skapar það að ekki verður aukning frá því sem nu er. gej- ur verið lækkað. Má því segja að nefndin hafi að nokkru leyti dregið í Iand vegna þeirrar gagnrýni sem fram kom um að mengunin væri of hátt metin. Bætt hefur verið við útreikn- ingum og skýringarmyndum verið fjölgað. Meginniðurstöður eru þær, að þegar miðað er við hæsta styrk mengunarefna í útblæstri gæti svæði með of mikilli loftmengun náð allt að 20 km til norðurs, um 10 km til suðurs og um 5 km til austurs og vesturs. Þegar miðað er við lægsta styrk mengunarefna gæti áhættusvæðið náð um 10 km til norðurs, 5 km til suðurs og 3 km til austurs og vesturs. Óvissa er talin 10-50% og vegna ónógr- ar þekkingar á þessum efnum hefur verið gert ráð fyrir að mengun geti verið 2-5 sinnum meiri en viðmiðunarmörkin gefa til kynna, áður en með fullri vissu megi halda því fram að um skað- leg áhrif sé að ræða. Þess vegna má ekki túlka viðmiðunarmörk þannig að styrkur yfir mörkum sé örugglega hættulegur og ekki heldur þannig að minni styrkur sé skaðlaus. Staðarvalsnefnd gerði samning við Rannsóknastofnun landbún- aðarins um að leggja mat á af- leiðingar loftmengunar á gróður og búpening í Eyjafirði í fram- haldi af dreifingarspánni. Er sú skýrsla í burðarliðnum og vænt- anleg í þessum mánuði. Ætlunin var að Staðarvalsnefnd héldi fund með samráðshópnum svo- kallaða um skýrslu RALA, þar sem iðnaðarráðherra lagði nefnd- ina niður frá og með áramótum, með bréfi 11. des., getur ekki af þessu orðið. Skýrslu RALA verður væntanlega dreift engu að síður, segir í frétt frá nefndinni, sem eins og áður sagði hefur nú verið lögð niður. HS Það var þá snjór á Akureyri. Af auðri jörð í Reykjavík komu ferða- langarnir ■ norðlenskan vetur, snjó og jafnvel frost. Mynd: KGA Viðræðum Útgerðarfélags N.-Þingeyinga og Fiskveiðasjóðs lokið: Málið fer fyrir stjóm sjóðsins „Yiðræðum okkar manna við starfsmenn Fiskveiðasjóðs er lokið og málið fer nú fyrir stjórn sjóðsins,“ sagði Gunnar Hilmarssn sveitarstjóri á Rauf- arhöfn og stjórnarmaður í Út- gerðarfélagi N.-Þingeyinga í samtali við Dag í gærkvöld. Þrír menn frá Útgerðarfélagi N.-Þingeyinga, þeir Jóhann A. Jónsson og Grétar Friðriksson frá Þórshöfn og Hólmsteinn Björnsson frá Raufarhöfn, voru í gær og fyrradag í viðræðum við Kolbeinsey ÞH-10. Verður Útgerðarfélag N.-Þingeyinga eigandi togarans? Mynd: IM/Húsavík. Hitaveita Akureyrar: Samkomulag við Öngulsstaðahrepp Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar Hitaveitu Akur- eyrar og hreppsnefndar Öng- ulsstaðahrepps vegna þess ágreinings sem verið hefur um hitastig og verðlagningu hita- veituvatnsins í hreppnum. í samkomulaginu felst að Hita- veitan skuldbindur sig til að halda uppi 65° vatnshita á endum kerfisins við Arnarhól, Sigtún og Stóra-Hamar. Afsláttur vegna kólnunar verður miðaður við reiknað hitastig í brunni sem væri 100 metra frá viðkomandi húsi. Samkomulag þetta er aftur- virkt, þannig að það gildir fyrir tímabilið júlí til desember 1985. Afsláttur vegna kólnunar verður veittur eftir þeim afsláttarreglum sem notaðar eru á Akureyri. „Til þess að halda uppi 65° hitastigi á endunum, verðum við að láta vatnið renna beint út úr kerfinu, þannig að við erum að henda þarna verulegu vatns- magni. Mér sýnist það vera tvö- falt til þrefalt það vatnsmagn sem þyrfti til eðlilegrar upphitunar í hreppnum. Hins vegar þegar kemur fram á vorið og dregur úr vatnsnotkun fólks, verður enn erfiðara að halda uppi þessu hita- stigi. Auk þessa verðum við að gefa afslátt vegna kólnunar í löngum leiðslum frá brunni til bæjar,“ sagði Wilhelm V. Stein- dórsson hitaveitustjóri. Hann sagðist telja að þarna væri um að ræða dæmigert kerfi sem ætti að vera tengt rafmagni en alls ekki hitaveitu. Samkomulag þetta verður væntanlega endurskoðað eftir hálft ár. BB. starfsmenn Fiskveiðasjóðs, en Útgerðarfélagið átti sem kunnugt er hæsta tilboðið í togarann Kol- beinsey sem Fiskveiðasjóður auglýsti til sölu á dögunum. Þess- um*'iðræðum lauk sem fyrr sagði í gær og stjórn Fiskveiðasjóðs mun í vikunni taka ákvörðun um það hvort Útgerðarfélag N.-Þing- eyinga verður hinn nýi eigandi Kolbeinseyjar. Nokkuð hefur verið um það rætt að Útgerðarfélag N.-Þingey- inga myndi ekki geta staðið við tilboð sitt sem nam um 180 millj- ónum króna, og m.a. var sagt frá því í Ríkisútvarpinu að allar lýk- ur væru á því að Húsvíkingar myndu halda togaranum vegna þess að tilboð N.-Þingeyinganna væri ekki raunhæft. Við spurðum Gunnar Hilmarsson álits á þessu. „Þessar raddir hafa ekki komið frá Fiskveiðasjóði, ég hef vissu fyrir því. Þær hafa að sjálfsögðu ekki komið frá okkur og menn verða bara að leggja saman tvo og tvo ef þeir vilja svar við þess- ari spurningu." - Hefur eitthvað verið rætt við ykkur um að leysa þetta mál þannig að þið fáið raðsmíðabát frá Akureyri og Húsvíkingar haldi Kolbeinsey? „Það er ekkert nýtt mál en hef- ur ékki verið rætt nú upp á síð- kastið. Raðsmíðabátur er ekki heppilegast kosturinn fyrir okkur því þetta dæmi byggist upp á því að Stakfellið er frystiskip ef gerð- ar eru á því örlitlar breytingar, og það sem okkur vantar er ísfisk- skip og það er slíkt skip sem við erum að leita að, raðsmíðaskip er ekki heppilegt fyrir slíkar veið- ar." gk-.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.