Dagur - 08.01.1986, Blaðsíða 8

Dagur - 08.01.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 8. janúar 1986 LETTIfi Jtl Léttisfélagar! Árshátíðin okkar verður 1. mars. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefnd. Kylfíngar Skemmtikvöld _______________ Við byrjum árið með dúndrandi fjöri laugardaginn 11. janúar kl. 9 e.h. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Skemmtincfnd. Svæðamót í bridge - sveitakeppni Undankeppni fyrir íslandsmot. Spilað á Akureyri 31. jan., 1. og 2. febrúar og er þátttökugjald 2.500 krónur í sveit. Þátttökutilkynningar berist til Harðar Blöndal (23124) eða Arnar Einarssonar (21058) fyrir 24. jan. nk. Badminton er holl og skemmtileg íþrótt fyrir hvern sem er. Höfum nokkra lausa tíma á laugardögum. Upplýsingar í síma 25606 á daginn og 25817 á kvöldin. T.B.A. Orgelskóli Ragnars Jónssonar Innritun fyrir vorönn er hafin Hægt er að bæta við byrjendum bæði í yngri deildir og eldri deildir. Hringið og leitið upplýsinga í síma 26699. UMF Mývetningur sýnir ieikritið Margt býr í þokunni Miðgarði Skagafirði Laugaborg Eyjafirði Húsavíkurbíói 10. jan. kl.21.00. 11. jan. kl. 20.30. 12. jan. kl. 20.30. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Miðvikudaginn 8. janúar 1986 kl. 20-22 verða bæjar- fulltrúarnir Jón Sigurðarson og Freyr Ófeigsson til viðtals í fundarstofu bæjarráðs í Geilsagötu 9, 2. hæð. Bæjarstjóri. ^Jokdreifan „Þorskstofninn gæti veríð 25-30% stærri“ - ef farið hefði verið að tillögum fiskifræðinga sl. 2 ár, segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hvað er óhætt að veiða marga þorska árlega, án þess að hætta sé á hruni þorsk- stofnsins við landið? Um þetta eru skiptar skoðanir, enda er spurningin erfið. Hafrannsóknastofnun gefur út sínar skýrslur, en útgerðar- menn og sjómenn eru þeim ekki alltaf sammála. Og á undanförnum árum hefur niðurstaðan orðið sú, að veitt hefur verið verulega mikið meira af þorski, heldur en fískifræðingar lögðu til. í nýútkomnum Sjávarútvegs- fréttum er fróðlegt viðtal við Jakob Jakobsson, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, um þessi mál. Við birtum sýnis- horn af þessu viðtali. Hann er fyrst spurður um samskiptin við sjómenn; hvort viðhorf þeirra til Hafrannsóknastofn- unar hafí breyst með aukinni kynningu? - Ég vona að svo sé. Ég geri mér alveg grein fyrir því að við fjöllum um það erfið mál að það má alltaf búast við því að það verði skoðanamunur á milli stofnunarinnar og einhverra sjómanna og að sjálfsögðu er það út af fyrir sig ágætt. Ég er ekki að sækjast eftir neinum hallelújakór. Ég vil að fram fari málefnaleg skoðanaskipti í stað þess að menn kasti fram órök- studdum fullyrðingum. Það má einnig segja um okkur að við höfðum ekki nægileg tækifæri til að kynna okkar tillögur eða gerðum ekki nóg af því að út- skýra þær. Hugsanlega er ein skýringin líka sú að okkar til- lögur hafa ekki alltaf verið réttar, svona eftir á að hyggja enda þótt við reynum auðvitað á hverjum tíma að koma fram með þær tillögur sem við teljum skynsamlegastar. Slæm aflabrögð - lélegur stofn - Nýting fiskistofna við landið núna, er hún skynsamleg að þínu mati eða mætti haga henni með öðrum hætti? - Ef við tökum nú blessaðan þorskstofninn, þá finnst okkur að það sé sótt of hart í hann. Við teljum að það fengist betri nýting með því að aflinn yrði lægra hlutfali af stofnstærðinni. Núna er veitt um 30 til 40 prós- ent af veiðistofninum árlega, þ.e.a.s. af fjögurra ára fiski og eldri. Það fengist miklu jafnari og betri nýting ef þetta hlutfall væri lægra. Það yrði t.d. sótt minna í fimm og sex ára fisk með þeim afleiðingum að vetrarvertíðirnar yrðu miklu jafnari. Það yrðu ekki þessar sveiflur á vetrarvertíð sem verið hafa undanfarin ár og eins myndi þessi ráðstöfun gera okk- ur kleift að brúa bilið þegar lé- legir árgangar kæmu inn í veið- ina. Aflinn gæti því orðið nokk- uð jafn frá ári til árs þrátt fyrir sveiflur í náttúrunni. - En þyrfti ekki talsverðan aðlögunartíma til að koma þessu á? - Jú það þyrfti aðlögunartímabil til að koma þessu í kring og það sem við höfum lagt til nú í okkar nýjustu skýrslu er að við notum árganga sem við vonum að verði stærri en í meðallagi, þ.e. 1983 og 1984 árgangana, til þess að ná stofninum dálítið upp án þess að það þurfi að draga úr afla frá því sem nú er. - Nú kom það einmitt fram á fundinum þegar þið kynntuð tillögur ykkar um stjórn fisk- veiðanna fyrir næsta ár, að menn bentu á að það væri orðið ‘ nokkurs konar náttúrulögmál að veitt væri um 100 þúsund tonnum meira af þorski á ári en þið legðuð til. Hvernig finnst þér stjórnvöld hafa tekið ykkar tillögum ef miðað er við það aflamagn sem þið lögðuð til og þess sem síðan var veitt? - Þetta skiptist alveg í tvö horn. Á meðan skrapdagakerf- ið var við líði, lá yfirleitt fyrir ákveðin vilj ayfirlýsing frá stjórnvöldum um að stefnt skyldi að ákveðnu marki. Síðan ef vel fiskaðist og þessu marki var náð, kom í ljós að það var ekki hægt að stöðva flotann. Á þessum árum 1977 til 1982 var ekki í raun til neitt kerfi hjá stjórnvöldum til þess að tak- marka aflann við það magn sem þau höfðu þó sjálf ákveðið. Heildaraflinn var í samræmi við aflabrögð og gæftir. Haustið 1983 vorum við mjög hræddir um ástand þorskstofnsins. Ver- tíðin hafði gjörsamlega brugðist og aflabrögð voru ákaflega léleg. Miðað við þær aðferðir sem við höfum notað við stofn- mælingar þá þýða léleg afla- brögð lélegan stofn og þess vegna lögðum við auðvitað til mjög lágan aflakvóta eða um 200 þúsund tonn. Stjórnvöld treystu sér ekki til þess af ýms- um ástæðum að fara eftir þess- um tillögum og það var ákveðið að leyfa að veiða meira. í árs- byrjun 1984 kom svo í Ijós að skilyrðin í sjónum voru að breytast til batnaðar og fiskur- inn þyngdist örar en hann hafði gert um hríð. Þá var enn bætt við og ef ég man það rétt var út- hlutað eitthvað um 260 þúsund tonnum. Það kerfi sem enn er við líði gefur ákveðinn sveigjan- leika þannig að heildaraflinn varð eitthvað nálægt 290 þús- und tonn. Það má því segja að stjórnvöld hafi ákveðið að fara 30 til 50 þúsund tonn fram yfir það sem við lögðum til en af- ganginn má rekja til nýrra upp- lýsinga sem fram komu eftir að við skiluðum okkar tillögum. Það má segja að það sama hafi endurtekið sig fyrir þetta ár. Vertíðin var léleg 1984 og það sem við gerðum var að leggja einungis fram tillögur fyrir eitt ár, þ.e.a.s. 1985. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væru að koma lélegir árgangar inn og ef veitt yrði meira en 200 þúsund tonn, yrði það til þess að stofninn myndi minnka á þessu ári. Að vísu voru vakn- aðar hjá okkur vonir um að 1983 og 1984 árgangarnir væru í betra meðallagi en við tókum ekki tillit til þess í okkar tillögu- gerð haustið 1984. Þetta er skýringin á því af hverju við lögðum til svo lága tölu. Stjórn- völd treystu sér ekki til þess að fara að okkar tillögum. Við gef- um okkar ráðleggingar eftir þeim forsendum sem við höfum og teljum bestar. Það er stjórn- valda að taka ákvörðun um hvort þau þurfi að taka tillit til fleiri forsenda en þeirra líf- fræðilegu sem við byggjum til- lögur okkar á. - Má rekja þessa aflaaukn- ingu sem orðið hefur til þess að meðalþyngd hafi aukist fremur en að verið sé að veiða fleiri fiska? - Það er hvort tveggja. Ef við tökum þetta ár þá hefur þorskurinn haldið áfram að þyngjast mjög ört vegna góðær- is í sjónum og einnig vegna þess að einn árgangur hefur skilað sér mun betur en við áttum von á en það er ’79 árgangurinn. Við erum ekki með neina ör- ugga skýringu á því hvernig á þessu stendur en það á svo eftir að koma betur í ljós hvort mat okkar er rétt eða ekki. - Hvað myndir þú telja að stofninn væri nú mikið stærri ef farið hefði verið eftir ykkar til- lögum í einu og öilu og miðað við þær viðbótarupplýsingar sem fram hafa komið eftir að þið skiluðuð tillögum ykkar, í stað þess að láta pólitískar for- sendur ráða aflamagninu? - Ef miðað er við tvö sl. ár þá gæti ég trúað því að hann væri um 25 til 30 prósent stærri en nú er.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.