Dagur - 08.01.1986, Side 12
M091
Akureyri, miðvikudagur 8. janúar 1986
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er
24222
„Það er alveg óhætt að segja
að það sé hundur í okkur
vegna þess hversu lítil sú upp-
hæð er sem við fáum til fram-
kvæmda við höfnina,“ sagði
Valtýr Sigurbjarnarson bæjar-
stjóri í Ólafsfirði er Dagur
ræddi við hann í gær.
„Við fáum 200 þúsund krónur
til framkvæmda við höfnina og
finnst alveg eins að það hefði
mátt sleppa þessu alveg, eins og
að vera með svona kjánaskap.
Það væri nær að safna saman
þessum tíköllum á einn stað til
þess að eitthvað væri hægt að
gera. Við ætluðum okkur að fara
í vinnu við smábátahöfn og hugs-
anlegt er að við reynum það þrátt
fyrir þessa afgreiðslu."
- Hvað um aðrar framkvæmd-
ir í bænum?
„Því miður er ekki útlit fyrir að
þær verði miklar að vöxtum. Ég
reikna þó með að við munum
reyna að malbika um 700 metra
kafla hér í bænum eins og gert
hefur verið undanfarin ár. Aðrar
stórframkvæmdir verður ekki um
að ræða eins og málin standa í
dag,“ sagði Valtýr. gk-.
Tilraunir gerðar með
blöndun villirefs og búrefs
- á Möðruvöllum - Refabúið í algerri einangrun
Á MöðruvöUum í Hörgárdal
hófust í vor tilraunir og rann-
sóknir á íslenskum villiref,
með kynblöndun í huga.
Ætlunin er að komast að því
hvaða liti íslenski refurinn, oft
nefndur melrakki, hefur upp á að
bjóða og leita að mismunandi
litaafbrigðum sem ekki hafa
komið fram annars staðar, því
allt sem kemur fram af nýjum lit-
um í þessari búgrein getur orðið
verðmætt.
Viðfangsefnið í fyrstu verður
að ná hvíta litnum úr villirefnum
yfir í bláref til þess að fá svokall-
aðan hvítref. Markmiðið er að
hvítrefurinn haldi feldgæðum og
öðrum framleiðslueiginleikum
blárefsins.
Síðan yrði hvítref og svo
kölluðum silfurref æxlað saman,
en þetta eru tvær mismunandi
tegundir. Þá fæst fram ófrjór teg-
undablendingur með skinnaaf-
brigði sem kallað er „golden
island" eða „gullna eyjan" en það
skinn er ákaflega verðmætt og
eftirsótt á alþjóðamarkaði.
Tilraunir- þessar eru unnar í
samvinnu á milli Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins
(RALA), Tilraunastöðvarinnar
á Keldum, veiðimálastjóra, Bún-
aðarfélags íslands og Sambands
íslenskra loðdýraframleiðenda.
Að sögn Stefáns Aðalsteinssonar
deildarstjóra hjá RALA taka
sumar þessara tilrauna langan
tíma.
„Blendingar milli blárefs og
villirefs munu væntanlega fæðast
í vor en fyrstu hvítrefirnir vorið
1987. Og það verður ekki fyrr en
árið 1988 sem við getum vænst
þess að fá „golden island“-
feldinn.“
Stefán sagði að í upphafi hefði
verið byrjað með 130 yrðlinga úr
íslenskum grenjum en síðan
hefði komið upp sjúkdómur,
smitandi lifrar-og heilahimnu-
bólga, sem hefði drepið á annan
tug dýra.
„Þetta er sjúkdómur sem er
landlægur í villiref hér á landi og
að öllum líkindum er a.m.k. einn
annar sjúkdómur í íslenska
refnum. Það er því stórhætta á
ferðum ef refabændur taka villt-
an ref inn á bú sín og gæti verið
dauðadómur yfir búinu. Við
þurfum að sjá til þess að þeir refir
sem við erum með verði sjúk-
dómalausir þegar við sleppum
þeim út til refabænda.
Það er þó nokkuð erfitt viðfangs-
efni, en búið á Möðruvöllum er í
algerri sóttkví og um það er
gengið nánast eins og um svarta-
dauðabæli væri að ræða“, sagði
Stefán Aðalsteinsson að lokum.
BB.
Aðaldalsflugvöllur:
Nýja flugstöðin
senn í notkun
Nú styttist óðum í það að nýja
flugstöðin við Aðaldalsflugvöll
verði tekin í notkun, en bygg-
ingarverktaki hennar er að
skila verkinu af sér þessa dag-
ana.
Að sögn Rúnars Sigmundsson-
ar umdæmisstjóra Flugmála-
stjórnar sem hefur aðsetur á Ak-
ureyri, er stefnt að því að taka
flugstöðina í notkun sem fyrst og
sagðist hann reikna með að það
Engu er logið þótt sagt sé, að starfsmenn Slippstöðvarinnar fáist við stórverkefni. Að minnsta kosti er þetta verkefni
töluvert stærra en maðurinn. Mynd: KGA
gæti orðið um næstu mánaðamót
eða um miðjan febrúar.
„Flugmálastjórn á eftir að
vinna þarna við frágang og flutn-
inga á öllum tækjum, fjarskipta-
tækjum og stýribúnaði fyrir flug-
brautarljós og þess háttar. Þá er
verið að bjóða út húsgögn í stöð-
ina, flugvélastæðið við stöðina er
tilbúið og einnig vegur að stöð-
inni.
Viðbrigðin verða eflaust mikil
á Aðaldalsflugvelli enda er ekki
hægt að segja að þar hafi verið
flugstöð, aðeins kofaræfill sem
svo sannarlega er kominn tími til
að verði leystur af hólmi. gk-.
Húsavík:
Skilaði hluta
þýfisins
Hjón sem búa í fjölbýlishúsi á
Húsavík brugðu sér á áramóta-
dansleik í boði bæjarsjóðs
ásamt fjölda annarra Húsvík-
inga.
A meðan laumaðist einhver
inn um svalardyr á íbúð þeirra og
hnuplaði myndavél og hljómplöt-
um. Þegar hjónin urðu þess vör
kærðu þau hvarf munanna til lög-
reglu sem hóf rannsókn málsins.
Það sem gerðist næst var að sá
fingralangi laumaðist sömu leið
inn í íbúðina og skilaði mynda-
vélinni og hluta af hljómplötun-
um. Nú bíða hjónin og vona að
„fingralangur" skili þeim plötum
sem hann hefur enn í fórum
sínum. - IM
Siglufjörður:
Ekkert slys
í umferðinni
Siglfirðingar eru eflaust í hópi
fárra sem verða ekki illa fyrir
barðinu á bflaumferð. Þeir
voru svo heppnir, að ekkert al-
varlegt umferðarslys varð þar í
bæ á nýliðnu ári.
Þetta þýðir samt ekki að Sigl-
firðingar eigi ekki eins marga bíla
og aðrir landsmenn, heldur virð-
ast þeir fara gætilegar í umferð-
inni en margir aðrir. Vegalengdir
eru ekki mjög miklar í bænum
svo margir fara fótgangangandi
til vinnu sinnar. Einnig er há-
markshraði 35 km á klukkustund
og segja menn að það sé megin-
ástæða þess að svo fá slys verða.
Einnig þurfa ökumenn að taka
mikið og gott tillit til fótgangandi
vegfarenda á veturnar, því oft er
mikill snjór á þeim árstíma á
Siglufirði og erfitt að hreinsa
gangstéttar svo gott þyki. Þurfa
því fótgangendur að vera á
götunum og verða því ökumenn
að gæta sín vel, eins og sýnir sig í
því að ekkert alvarlegt urnferð-
arslys varð þar í bæ á síðasta ári.
Engu að síður verða óhöpp í um-
ferðinni þar eins og annars
staðar. Sem betur fer er um að
ræða minni háttar óhöpp, þar
sem aðallega verða skemmdir á
ökutækjum. gej-