Dagur - 21.02.1986, Síða 3
21. febrúar 1986 - DAGUR - 3
hjátrú eða hvað 2
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Enn um fugla
Fuglar hafa lengi verið manninum
ráðgáta, enda ekki einleikið að
þessir, stundum stóru líkamar geti
leikið á þyngdaraflið og svifið upp í
himininn, einkabústað guðanna, á
meðan hinn tvífætlingurinn, herra
jarðarinnar þarf að dúsa hlekkjaður
við móður jörð þar til dauðinn og
fagurt líferni sameina hann guðin-
um. Það er því mjög auðskiljanlegt að fuglar séu nátengdir hinu
guðlega og hafi hæfileika til að binda þessa tvo heima hvorum
öðrum.
Ef menn trúa því á annað borð að bústaður guðanna sé á
himnum, hvað verður þá um fuglinn sem tekur sig upp af jörðinni
og hverfur í bláa fjarskann, og er svo kominn aftur samdægurs.
Hann hlýtur að hafa átt viðkomu í sölum almættisins.
Salomon konungur
Því var trúað að vegna þessara miklu
ferðalaga sinna kynnu fuglarnir frá
ýmislegu að segja og voru eins konar
fréttaþjónusta fyrir þá snillinga sem
kunna að skilja mál þeirra. Þannig
varar hinn vísi konungur Salomon
sauðsvartan almúgann við því að
blóta röngum mönnum. „Bölvið
ekki konungum, nei, hugsið ekki á
þann hátt, bölvið ekki hinum ríka í svefnherbergi yðar, smáfugl
himins mun bera rödd yðar, og allt það sem á vængjum svífur
mun bera vitni.“ Á þessu er auðséð með hverjum fuglarnir héldu
á dögum Salomons.
Á ensku er orðatiltæki „A little bird told me“ segja menn þar
í landi þegar ekki er talin ástæða til þess að fara allt of nákvæm-
lega út í heimildir þær sem stuðst er við.
Mýmörg dæmi eru til úr þjóðtrúnni og hetjusögum um fugla
sem gefa mikilvægar upplýsingar sem oft hafa afgerandi áhrif á
gang sögunnar.
Sigurður Fáfnisbani
Sagan af Sigurði Fáfnisbana er vel
þekkt á íslandi. Þar koma fuglar
heldur betur við sögu. Sigurður ætlar
að drepa drekann Fáfni og öðlast
með því mikið ríkidæmi. En til þess
að hafa nokkra von til að vinna á
þykkum skrápnum þarf hann að láta
smíða handa sér forláta sverð. Það
gerðu engir betur en dvergar í þá
daga. Dvergurinn er hins vegar tvöfaldur í roðinu, svo ekki sé
meira sagt. Og þar koma fuglar til hjálpar og skýra Sigurði frá
þeim fyrirætlunum dvergsins að sölsa sjálfur undir sig auðæfin og
drepa kappann. En það fór allt vel.
Óðinn alfaðir hafði líka mikil not af fuglum, hrafnarnir hans
tveir færðu honum fréttir af heimsmálunum á hverjum morgni.
Svona með morgunkaffinu. Hann gat einnig brugðið sér í fugls-
líki eins og þegar hann komst á burt með skáldamjöðinn í maga
sér, þá brá hann sér í arnarham.
Sálin
Sem tákn hefur maðurinn notað þá
fiðruðu yfir flest þau andlegu og
náttúrlegu fyrirbæri sem gerast í
himninum s.s sólina, vindinn, óveð-
ur ódauðleika og svo að sjálfsögðu
sálina, sem sést best á því að heilög-
um anda þykir vera sýnd tilhlýðileg
virðing að tákna hann með hvítri
dúfu, sem fer auðvitað afskaplega
vel á. Fuglarnir virtust búa yfir ótakmörkuðum leyndardómum.
Eitt það furðulegasta var háttalag farfuglanna, sem í rauninni er
óútskýrt enn þann dag í dag.
Hinn fróði heimspekingur og náttúrufræðingur Aristoteles
braut mikið heilann um þetta vandamál á fjórðu öld fyrir Krist,
en varð lítið ágengt, sem vonlegt var. Á þessum tíma var því trú-
að í Grikklandi að fuglarnir gætu breytt sér úr einni tegund í aðra
og þar væri skýring fundin fyrir hvarfi þeirra á vetrum.
Áhugamenn um úrbætur í húsnæðismálum:
Vilja fá óréttmœtar
verðbœtur endurgráddar
Áhugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum efndu til fund-
ar sl. sunnudag í Háskólabíói.
Húsfyllir var og ríkti mikill
baráttuhugur meðal fundar-
manna. I lok fundarins var
eftirfarandi ályktun samþykkt
einróma.
„Á liðnum misserum hefur
stöðugt verið gengið á mann-
réttindi tugþúsunda manna á ís-
landi. Ráðamenn hafa gengið
milli bols og höfuðs á húsnæðis-
kaupendum. Engu er líkara en
þeir hafi ákveðið að þessi þjóð-
félagshópur ætti að gjalda hús-
næðiskaupa með byrðum sem eru
öllu venjulegu fólki ofviða.
Efnahagsstefna ríkisstjórnar-
innar og samningar á vinnumark-
aði hafa viðhaldið lágtaxtaþjóð-
félagi, þar sem samningsbundin
laun liggja frosin niðri meðan
verðtryggð lán hafa rokið upp í
óðaverðbólgu. Enginn venjuleg-
ur húsnæðiskaupandi hefur getað
risið undir þessari byrði. Við hafa
bæst óeðlilega háir vextir bæði á
almennum markaði og á hús-
næðislánum lífeyrissjóðanna.
Afleiðingarnar eru m.a. þær að
fólk hefur orðið gjaldþrota, efnt
hefur verið til nauðungarupp-
boða og þúsundir manna hafa
lent í hringiðu bankaviðskipta og
rándýrrar lögfræðiþjónustu.
Hlutskipti margra er tvöfaldur
vinnudagur, stöðugar fjárhags-
áhyggjur og börnin og fjölskyldu-
lífið gjalda vinnuþrælkunarinnar
og fjárhagsástandsins. Það hefur
komið til örvæntingar, félagslegr-
ar upplausnar og persónulegrar
ógæfu.
Öll þessi atriði eru til komin
vegna pólitískra ákvarðana
valdamanna í íslensku þjóðfé-
lagi. Og stundum hafa þeir sem
síst skyldu meðtekið þessa
stefnu. Þannig hafa t.d. lífeyris-
sjóðirnir hækkað vexti á verð-
tryggðum lánum verulega. Við
viljum borga raunvirði þess sem
við kaupum en við viljum láta
reikna rétt. Launafólk berst í
bökkum og getur ekki meira.
Eftir ríkisstjórnina stendur
minnisvarði svikinna loforða í
húsnæðismálum. Það sem stjórn-
völd hafa tekið af launafólki og
skuldugum húsnæðiskaupendum
á undanförnum árum á ekki að
vera samningsatriði aðila vinnu-
markaðar á kostnað kauptaxta.
Við viljum fá aftur það sem tekið
hefur verið frá okkur með mis-
gengi og óeðlilega háum vöxtum.
Við hljótum að leggja áherslu
á eftirfarandi:
1. Það verður að stöðva nauð-
ungaruppboðin.
2. Það verður að greiða til
baka það sem tekið var af fólki
með óréttmætum hætti á síðustu
árum.
3. Verði lán húsnæðisstofnun-
ar hækkuð og aðrar breytingar
gerðar til bóta, þá verður að
tryggja það að þeir sem festu
kaup á húsnæði á undanfömum
árum geti gengið inn í þetta nýja
kerfi.
4. Vexti af húsnæðislánum
verður að lækka í 2% a.m.k.
Þessu beinum við til ríkisstjórn-
arinnar, stjórnmálaflokkanna,
samtaka launafólks og atvinnu-
rekenda sem stjórna lífeyrissjóð-
unum okkar.
5. Það verður að hækka hús-
næðislánin þannig að allir hafi
möguleika á að koma :sér upp
húsnæði. Húsnæði heyrir til
mannréttinda.
6. Kaupmáttur samningsbúnd-
inna launa verður að hækka
þannig að venjulegt fólk getl
staðið undir eðlilégum fjárhagsr
legúm skuldbindingum vegna
húsnæðiskaupa. Og þessu er
beint til þeirra sem semja um
launin fyrir okkur.“
15%
Vegna hagstæðra innkaupa á kjúkl-
ingum bjóðum við nú 15% afslátt á
kjúklingabitum um helgina, föstudag,
iaugardag og sunnudag, 21.—23.
febrúar.
Áður kr. 70,
— Nú kr. 60,—
jf.t
20%
verðlækkun
Nú bjóðum við 3 gerðir
af fjölskyldupökkum
Lumum á
einhverju
fyrir
smáfólkið.
6 bitar af kjúklingum,
3 sk. franskar,
3 sk. sósa,
3 sk. salat.
Verð kr. 595,—
8 bitar af kjúklingum,
4 sk. franskar,
4 sk. sósa,
4 sk. salat.
Verð kr. 795,—
10 bitar kjúklingar,
5 sk. franskar,
5 sk. sósa,
5 sk. salat.
Verð kr. 995,—
Lítið inn,
þ að
borgar sig!
Skipagötu 12, Akureyri.
Sími 21464.