Dagur - 21.02.1986, Page 8
8 - DAGUR - 21. febrúar 1986
i:c: c Toppurinn
7 7 cr New
York og þar eru
pening-
armr.
99
Q m Langaði
7 7 ekki í
afmæli til Boy
George . . .
. . . kókaín
er vinsælt í
partíum.
99
m m Sorglej
horfa i
14—15 ára st
taka þátt í
svall- fg
inu . . .
Æ | A Get ekki
hugsað mér
að eiga heima
annars stað-
ar en á ís-
landi.
„Petta byrjaði alltsaman þegar ég var
17 ára, en þá var ég beðin um að taka
þátt í keppninni um Ungfrú Útsýn,
sem haldin var á Hótel Sögu. Ég vann
þá keppni og í kjölfarið fór ég til
Spánar og Ítalíu og vann þar við
fyrirsætustörf um tíma. “ Við erum
stödd í húsinu númer eitt við Oddeyr-
argötu á Akureyri. Þar býr lnga
Bryndís Jónsdóttir ásamt sambýlis-
manni sýnum, Birgi Arnarsyni. Inga
Bryndís hefur unnið sem módel í
New York og hún segir okkur frá
þeirri reynslu sinni íþessu helgarvið-
tali.
„Pað var mjög gaman að vinna á Spáni. Við
vorum þarna nokkrar stelpur og unnum við
gerð sjónvarpsauglýsingar og bæklings. Þetta
var allt öðruvísi starf en það fyrirsætustarf sem
ég síðar kynntist. Þarna voru eingöngu íslend-
ingar og andrúmsloftið var afslappað.“
Árið 1982 sendi Inga Bryndís myndir af sér í
keppnina um „andlit níunda áratugarins", sem
haldin var á vegum Ford Models í New York.
Ford Models er ein stærsta og þekktasta um-
boðsskrifstofa í heiminum. Tugir mynda
bárust, en um 20 stúlkur voru valdar til að taka
þátt í keppninni.
„Um vorið kom hingað til lands, Lacy Ford
en hún er dóttir Eiline Ford sem er aðaleigandi
gerður sjónvarpsþáttur um keppnina, við vor-
um að æfa dansa og svo voru eilífar myndatök-
ur. Við vorum að allan daginn, aldrei slakað á.
Þetta var rosalega erfitt og mér leiddist allan
tímann.
Pað sem gildir í svona keppni þar sem verið
er að auglýsa andlit er framkoman. Að vera
brosandi, hlæjandi, ægilega jákvæður og opinn
við alla. Ég er svo mikill íslendingur í mér, að
mér féll þetta illa. Við erum ekki vanir því ís-
lendingar að segja ævisögu okkar á götuhorn
um. Vegna þessa lenti ég upp á kant við Eiline
Ford. Henni fannst ég ekki vera nógu ánægð og
ekki leggja mig nógu mikið fram við að brosa
framan í myndavélarnar. Hún er skapmikil og
lítur á sig sem „Guð almáttugan“. Það var
mjög erfitt að vinna fyrir hana. Mér bauðst að
vera áfram, en ég fór strax heim. Gat ekki
hugsað mér að vera þarna. Ég vildi vera ég
sjálf, en fékk það ekki.“
Inga Bryndís hefur farið þrisvar sinnum til
New York. í annað sinn var hún með tilboð
frá Elite upp á vasann. Hún heimsótti fjölda
umboðsskrifstofa í heimsborginni og fékk ótal
tilboð. „Ég ákvað að vera hjá Ford. Því
miður,“ sagði Inga Bryndís. En af hverju tók
hún tilboði Ford Models?
„Það hefur kannski að einhverju leyti verið
stolt. Þær sögur gengu hér heima að Eiline vildi
ekkert með mig hafa og ég lét þessar sögur hafa
áhrif á mig. Nafnið hafði einnig mikið að segja,
býst ég við.
Ég sem sagt ákveð að vinna hjá Ford og var
send til Spánar. Stelpur verða að hafa unnið í
Evrópu og koma sér þar upp möppu áður en
þær fá tækifæri til að vinna í New York. Topp-
Þettaerafitt
stari; foefjandi og
umboðsskrifstofunnar. Við sem valdar höfðum
verið til að taka þátt í keppninni fórum í viðtal
við Lacy. Okkur var stefnt í ákveðið hús í
Breiðholtinu og nokkrar spurningar lagðar fyrir
okkur. Mér fannst þetta frekar ópersónulegt
viðtal. Að afloknum þessum viðtölum skrifaði
hún nafn á einni okkar og setti í innsiglað
umslag, sem geymt var hjá borgarfógeta þar til
að úrslitastundin rann upp. Um verslunar-
mannahelgina voru úrslitin kunngjörð á hófi á
Hótel Holti. Jú, það var mikil spenna í loftinu,
eða mér fannst það þá. Umslagið var opnað og
í ljós kom að ég hafði unnið. Eg hafði alls ekki
átt von á að sigra, þetta kom mér mjög á óvart.
En þetta brcytti mínu lífi algjörlega. Ég fékk
að fara til Akureyrar í nokkra daga að undir-
búa mig fyrir keppnina sem haldin var í New
York skömnru síðar.
Áður en ég fór út var ég í tvo daga upp við
Landmannalaugar við myndatökur, og þar sem
þetta var í fyrsta skipti sem ísland átti fulltrúa í
þessari keppni var ég í stöðugum blaðaviðtöl-
um. Ég hafði ekki tíma til að átta mig á hvað
var í rauninni að gerast.
Ég hélt eins og aðrir að fyrirsætustarfið væri
skemmtilegt ævintýri, ferðalög, frægð og frami
og nóg af peningum. Sem sagt algjör himna-
sæla. En þetta er glansmvnd sem gefin er af
þessu starfi. í þessari fyrstu ferð minni til New
York komst ég að því að þetta er erfitt starf,
krefjandi og ofboðslega slítandi. Enda er
starfsaldur fyrirsætna yfirleitt ekki langur. Það
eru nokkrar sem hafa klassískt útlit og eru á
toppnum, en sjaldan er talað um hinar. Þessar
sem lepja dauðann úr skel og þurfa að beita öll-
um aðferðum til að koma sér áfram.“
- Hvernig gekk lífið fyrir sig í New York?
„Þetta var enginn dans á rósum. Reyndar
mjög erfitt. Við vöknuðum yfirleitt um 6 leytið
á morgnana og stundum fyrr. Förðun og hár-
greiðsla tók oft um tvær klukkustundir. Það var
urinn er New York og þar eru peningarnir.
Hins vegar eru bestu ljósmyndararnir á Ítalíu
og Frakklandi, en þar eru litlir peningar. í
Evrópu fer helmingur launa fyrirsætna til um-
boðsskrifstofanna, en í New York eru það
25%.“
- Þá er það stóra spurningin, hver eru laun-
in?
„Það er óskaplega misjafnt hver launin eru.
Fer alveg eftir því við hvað er unnið. Það er
hægt að hafa mikil laun, en stundum ber maður
ekki mikið úr býtum þó mikil vinna liggi að
baki. Það kom fyrir að ég fékk 10 þúsund krón-
ur fyrir klukkutíma vinnu.“
- Við vorum á Spáni. Segðu okkur nánar af
því?
„Já, ég entist þar í hálfan mánuð. Það var allt
svikið sem um hafði verið samið. Þegar við
komum var enginn á flugvellinum að taka á
móti okkur. Við vorum á Barcelona og þurftum
að koma okkur sjálfar á milli staða. Það var
erfitt að gera sig skiljanlegan, Spánverjarnir
voru lítið fyrir að tala ensku. Vegna þessa var
oft svindlað á okkur, við eyddum öllum okkar
peningum í leigubíla, hótel og uppihald. Við
þurftum að borga allt slíkt úr eigin vasa. Það
var ekkert verið að ausa í mann peningum. Við
þurftum að hafa fyrir því sem við gerðum. Við
vorum tvær saman, ég og stelpa frá New York.
Hún var mjög ólík mér, við áttum ekki vel
saman. Þarna á Spáni veiktist ég líka, þannig
að ég fór upp í næstu flugvél og beint heim. Ég
gat ekki hugsað mér að standa í þessu. Og
þarna ákvað ég að fara aldrei út í neitt þessu
líkt framar."
- En samt... Þú fórst aftur?
„Já, ég fór aftur. Mér voru alltaf að berast
alls konar tilboð og þar á meðal eitt frá umboðs
skrifstofunni Click í New York. Ég hugsaði
með mér að allt væri þegar þrennt væri. Mér leist
vel á skrifstofuna og ákvað að skella mér út í
þriðja sinn. Ég hafði verið í Verkmenntaskólan-
um um veturinn og í lok maí árið 1985 flaug ég
út.
Ég var í New York allt sumarið og það gekk
mjög vel. Ég vann til að mynda fyrir tískublað-
ið Vouge, en það þykir algjör toppur.
En þrátt fyrir að vel gengi, þá finnst mér
þetta starf mjög erfitt. Ég er í eðli mínu frekar
feimin og lokuð, en það hefur svo mikið að
segja í þessu starfi að vera opin. Ég get ekki
verið nógu opin og hlegið og brosað eftir
pöntunum. Einu sinni var ég að vinna fyrir
Ralph Loren sem er einn af frægustu tísku-
hönnuðum Bandaríkjanna. Það var verið að
auglýsa ballettfatnað og við vorum að taka
myndir í Central Park. Þetta var um hábjartan
dag og mikið af fólki á ferli. Þetta átti að vera
afskaplega rómantískt, við vorum niðri við vatn
og ég þurfti að vera í alls konar stellingum. Méi
fannst þetta alveg hryllilega erfitt. Mér fannst
ég alltaf vera svo hallærisleg, en myndirnar
voru ágætar og þær voru notaðar. Samt sást að
ég var hrædd. Það er svo margt sem þarf að
passa í myndatökum. Ég held að það væri mjög
gott að fara í leiklistarskóla áður en farið er út
í svona starf.“
- Þurfa fyrirsætur ekki að vera gífurlega
þolinmóðar?
„Jú, þetta er mikil nákvæmnisvinna og krefst
þolinmæði. Mig langaði oft að rjúka í burtu
þegar illa gekk. Gefast upp og fara heim. En ég
lét það ekki eftir mér. Ég held ég hafi þroskast
mikið í þessari ferð. Það gerist ósjálfrátt þegar
maður þarf að stóla algjörlega á sjálfan sig.
Ég bjó hjá íslenskri konu og ætli það hafi
ekki bjargað mér. Hún fór með mér í viðtöl til
að byrja með, á meðan ég var að læra að rata.
Ég var samt fljótlega farin að fara allra minna
ferða ein.“
- Ekkert hrædd að ferðast ein um New
York?