Dagur - 21.02.1986, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 21. febrúar 1986
1 -DODDSÍöan.
Glæsilegur veitingasalur
Heppilegur fyrir veislur og árshátíðir
fyrir allt að 60 manns.
Tökum einnig að
okkur köld borð
' 1 i fyrir fermingarveislur.
L j KKSTAUKANT UHL r Restaurant Laut
HlfjlliM ' sími 22527.
Verslun til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu góð 5 ára sérverslun á
Akureyri. Áætluð velta ’86. Lámark 7 milljónir. Starfs-
mannaþörf Wi-2. Verslað er með skemmtilegar vörur og
góðir möguleikar að útvíkka vöruval. Verslunin er í góðu
leiguhúsnæði (ekki Sunnuhlíð).
Hægt er að útvega lán fyrir verulegum hluta kaupverðs.
Þeir sem vilja frekari upplýsingar sendi nafn og síma-
númer, sem farið verður með sem algjört trúnaðarmál, til
afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, merkt: „Verslun ’86“.
AKUREYRARBÆR
Skrifstofustarf
á bæjarskrifstofunni (launadeild) er laust til um-
sóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í
skrifstofustörfum og/eða menntun á sviði verslun-
ar eða viðskipta.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður eða
launafulltrúi bæjarins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur
og fyrri störf þurfa að berast á bæjarskrifstofuna
fyrir 25. febrúar nk.
Bæjarritari.
ódmyn
AKUREYRI
Er eitthvað um að vera?
Viltu eiga það á myndbandi?
T.d. brúðkaup, afmæli, hátíðir og margt fleira.
Gerum einnig stutta skemmtiþætti, fræðslumyndir
og kynningarmyndir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Gerum föst verðtilboð ef óskað er. Fjölföldum og
vinnum úr efni sem þú hefur tekið.
Opið virka daga frá kl. 17-19, sími 26508.
jóðmyn
dj^
Furuvöllum 13
Skrifstofan opin þriðjudaga og miðvikudaga
kl. 13.30-19. - Sími 26508.
- Spandau Ballet, sem legið hel- - l-'rankie goes to Hollywood er Warwick. í æsku voru það hins
ui* í hvði í rúmt ár. hefur nú senl mi í hljóðveri að taka upp sína vegar ál'orin Whilneyjar Llísa-
frá sér nýja smáskífu með laginu aðra hreiðskílu, ásaml upptöku- hct;lr að leggja fyrir sig harna-
.,(Every hody) Fight lor our- manni sínum, Trcvor Horn. Plat- kennslu eða skurðlækningar, en
út- aii rnun eiga að kpnia út með söngurinn varö aö lokum ofan á.
til að setjá U]
kjallara Buckinghamhallár.
Hvemig líst Íslending'um |§e
„Studio Bessastaðir”??
Howard Jones
Það eru varla liðin nema 5 ár frá
því að Howard Jones tilkynnti
vinnufélögum sínum í pappírs-
verksmiðjunni þar sem hann
vann, að hann ætlaði að verða
frægur popptónlistarmaður. Að
sjálfsögðu var bara hlegið að
honum. En Hávarður stóð við
sitt og í dag er hann talinn vera
í hópi bestu popptónlistar-
manna, jafnt af gagnrýnendum
sem og öðrum sem hlusta á
popptónlist.
Strax með fyrsta laginu „New
Song“ komst Howard á
toppinn. Á eftir fylgdu lög eins
og „What is love“, hið gullfal-
lega lag „Hide and Seek“, og
„Pearl in the Shell“. Öll þessi
lög voru síðan á fyrstu breið-
skífu Howards, Human’s Lib
sem kom út árið 1983.
Enn jók Howard Jones á vin-
sældir sínar með lögunum „Like
to get to know you well“ og
„Life in one day“ og árið 1984
kom svo út önnur breiðskífa
hans Dream into action.
Eftir útkomu hennar hélt
hann í heilmikla hljómleikaferð
um heiminn sem hófst 11. nóv.
1984 og lauk 20. des. 1985. Á
flestölium tónleikunum tróð
Howard upp einn síns liðs
ásamt fimbulorgelum sínum og
hreyfilistamanni sem verið hef-
ur með honum frá upphafi, en
stundum hafði hann þó aðstoð-
arhljóðfæraleikara.
í dag er Howard Jones mjög
eftirsóttur tónlistarmaður.
Hann tók þátt í Live Aid tón-
leikunum og nú nýverið söng
hann eitt laga sinna inn á plötu
með aðstoð Phil Collins. Petta
var lagið „No one is to blame“
af breiðskífu númer 2 „Dream
into action".
Á aðeins 3 árum hefur How-
ard Jones tekist að komast á
toppinn og situr þar sem fastast,
og virðist hann ekkert á þeim
buxunum að víkja þaðan í bráð.
En Howard hefur ekki látið
frægðina stíga sér til höfuðs.
Hann hefur lítið breyst þrátt
fyrir alla velgengnina, er harð-
giftur og verður reyndar pabbi
með sumrinu.
Fyrir þá sem áhuga hafa fylgir
hér heimilisfang aðdáendak-
lúbbs Howard Jones.
The Howard Jones fan club,
P.O.box 185 High Wycombe
Buckinghamshire HP 11 2 EZ,
England.
- Ný breiðskífa frá Culture Club
kemur út í mars. Hún á að hcita
„Poison of the Poet“. Hins vegar
vefst eitthvað fyrir þeim félögum
að velja lag af plötunni á smá-
skífu. Þeim finnst lögin öll svo
góð að þeir geta ekki gert upp á
milli þeirra, þannig að smáskífu-
lagið er óákveðið. Sannarlega
óvenjuleg klípa sem „menningar-
klúbburinn" er í.
- George Michael úr Wham var
sem kunnugt er einn af Band Aid
hópnum sem söng lagið „Do they
know it’s christmas“ til hjálpar
bágstöddum í Afríku.
Eftir upptökurnar hafði hann
eftirfarandi til málanna ieggja.
„Það var stór hópur milljónera í
hljóðverinu. Fólkið söng um að
gefa öllum í heiminum nægan
mat og sagði að þetta væri það
gagnlegasta sem það hefði gert á
ævinni. Ég þori hins vegar að
veðja að fæstir þarna inni keyptu
plötuna." Ekki svo vitlaust hjá
Gogga.
- Norðmenn hafa heldur betur
verið í sviðsljósinu undanfarna
mánuði, fyrst Bobbysocks og nú
síaðst A-HA. Þessi þrír norsku
„sjarmörar“ hafa lagt Bretland
algjörlega að fótum sér, fyrst
með laginu „Take on me“ og nú
síðast „The sun always shines on
t.v.“.
A-Ha, eða „The Scandinavian
secret“ eins og þeir eru stundum
kallaðir eru heiðursgestir í öllum
meiriháttar boðum, nú síðast hjá
sjálfri drottningunni. Auk þess
birtast myndir og viðtöl við þá
félaga á hverjum degi í enskum
blöðum. Norömenn ntega því
vera stoltir af sínum mönnum.