Dagur - 21.02.1986, Síða 11
21. febrúar 1986 - DAGUR - 11
,JMkmmhák
ab loðdýrmkt
væri bwa bck“
- segir Þorsteinn Aðalsteinsson loðdýrabóndi
Mikið hefur verið ritað og
rætt um stöðu bænda vegna
hins nýja kvótakerfis sem hef-
ur verið lagt á bœndur. Tala
margir bændur um að verið
sé að ganga af hinni hefð-
bundnu búgrein dauðri. En
hvernig er staðan hjá mönn-
um sem stunda nýrri búgrein-
ar eins og loðdýrarækt? Þeg-
ar blaðamaður Dags var á
ferð á Dalvík í vikunni blasti
við á leið í bæinn gífurlega
stór bygging. Við nánari eftir-
grennslan kom í Ijós að þarna
er eigandi Pólarpels, Þor-
steinn Aðalsteinsson að
byggja refabú í landi Ytra-
Holts og er hús þetta það
stœrsta sinnar tegundar í
heiminum að best verður
vitað.
Undirritaður náði tali af Þor-
steini og spurði hann fyrst hvort
rekstur minkabúsins gengi svo
vel að það væri ástæðan fyrir hin-
um miklu framkvæmdum.
„Reksturinn gengur bærilega í
dag, ég er nýbúinn að skipta um
minkastofn, því reksturinn eins
og hann vár gekk ekki nógu vel.
Það kom upp sjúkdómur hjá mér
og skinnin voru ekki nógu góð.
Það gengur kannski ekki alveg
eins vel og það lítur út fyrir mið-
að við framkvæmdir en ég hef
mínar ástæður fyrir því.“
Aðeins þrír af átta
lifðu fyrstu árin af
- Hvað ástæður eru það helst?
„Þegar loðdýrarækt hófst í
kringum ’70 vorum við átta sem
hófum þennan búskap. Við vor-
um aðeins þrír sem lifðum af í
gegnum þessi erfiðu ár þegar
fyrirgreiðsla var lítil sem engin.
Við börðumst fyrir því að mönn-
um væri gert auðveldara með að
hefja þessa búgrein og höfum í
gegnum árin náð því fram sem til
boða er í dag.
Þeir sem eru að byggja ný hús í
dag fá mikla fyrirgreiðslu vegna
þeirra bygginga. Við sem hófum
þessa búgrein fengum enga slíka
fyrirgreiðslu og fáum enga leið-
réttingu aftur í tímann. Það er
þess vegna sem ég hef farið út í
þessa miklu byggingu. Það gerir
mér auðveldara að koma upp
stóru búi og það verður auðveld-
ara fyrir mig að reka það og getur
það hjálpað mér að reka gamla
búið sem var byggt við miklu
erfiðari skilyrði. Ekki það að við
séum óánægðir með það að nýir
menn njóti þessara* fyrirgreiðslu,
heldur þykir mér verst að við
fáum ekki leiðréttingu aftur í
tímann.
Héldu að loðdýrarœkt
vœri bara bóla
Þegar við þessir menn hófum
þennan búskap héldu flestir að
þetta væri bara bóla sem myndi
hjaðna og þar af leiðandi fengum
við þessa litlu aðstoð. Allir þeir
peningar sem runnu til landbún-
aðar fóru til bænda með þessar
hefðbundnu búgreinar þó menn
vissu það að allt var komið í óefni
í þeim greinum eins og sést best í
dag. Ef við þessir þrír sem lifðum
af þessi fyrstu ár hefðum gefist
upp er ekki víst að loðdýrarækt
væri jafn hátt skrifuð og hún er í
dag. Því finnst mér hálfpartinn sé
verið að refsa okkur fyrir það að
vera frumkvöðlar á þessu sviði,
með því að við fáum ekki leið-
réttingu aftur í tímann vegna bú-
skapar okkar.“
Hvernig lítur dæmið út hjá loð-
dýrabændum hvað framtíðina
varðar?
Megi ekki fara of geyst
í hlutina
„Ja hvað mig varðar þá hef
ég alltaf horft til framtíðarinnar
þegar framkvæmdir og annað
hafa verið á döfinni hjá mér. Ég
er ánægður með það að menn eru
farnir að viðurkenna það að loð-
dýrarækt sé bjargvættur í land-
búnaði á íslandi í dag. Þeir menn
sem koma til með að stunda
þessa búgrein í framtíðinni verða
bæði með ref og mink. Verð fyrir
minkaskinn er rniklu stöðugra
heldur en á refaskinnum og er
það mikið öryggi fyrir bændur að
hafa þá minkinn til að hjálpa til
við reksturinn á refabúum vegna
verðsveiflna á þeim markaði.
Menn verða samt að passa sig
að fara ekki of geyst í þessa hluti.
Við höfun allt of mörg dæmi fyrir
framan okkur sem sýna það að
farið hefur verið of geyst í hina
ýmsu hluti. Samt þarf að halda
þessu starfi vel áfram," sagði
Þorsteinn að lokum.
Það má geta þess að Þorsteinn
reiknar með að taka nýja húsið í
notkun eftir um það bil tvo mán-
uði. Húsið mun geta hýst á sjö-
unda þúsund refi og verður búinu
þá skipt, refir í nýja húsinu en
minkar í því gamla.
Húsið sent Þorsteinn er að láta byggja er engin smásmíði.
Myndir og texti: Kristján Kristjánsson
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ
Kvihsandur
Höfundur: Michael V. Gazzo.
Þýðing: Ásgeir Hjartarson.
Leikstjóri: Þráinn Karlsson.
Sýningar í Freyvangi
föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30.
Miöapantanir í síma 24936. Miðasala við innganginn.
UMF Árroðinn býður öldruðum á Akureyri
á sýningu á leikritinu KVIKSANDUR
í Freyvangi á mánudagskvöldið 24. febrúar
kl. 20.30.
Ferð verður frá Húsi aldraðra kl. 19.45.
Miðaverð og akstur kr. 350,-
Pantanir eru teknar hjá Helgu Frímannsdóttur í Húsi
aldraðra, sími 23595 eða heima i síma 22468.
Akureyringar - Bæjargestir
Komið og njótið góðra veitinga og skemmtunar
í nýjum glæsilegum veitingastað á Hótel KEA.
Laugardagskvöldið 22. febrúar
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19.00.
Ath! Nokkur sæti laus fyrir matargesti.
Stordansleikur
Hljomsveitin Casablanca leikur fýrir dansi til
kl. 03.00.
Húsið opnað fyrir dansgesti kl. 10.30.
★
Leikhusgestir athugið við opnum matsalinn
okkar, Höfðaberg öll sýningarkvöld kl. 18.00.
Borðapantanir (aðeins fyrir matargesti)
í stma 22200.