Dagur - 21.02.1986, Page 16
Konudagstilboð Bautans og Smiðju
sunnudaginn 23. febrúar
Rjómalöguð kalkúnsúpa * Sykurgljáður grísakambur með rauðvínssósu.
Frír hamborgari fyrir börn 10 ára og yngri í fylgd foreldra.
Verð á Bauta kr. 390.- Gildir bæði í hádeginu og um kvöldið.
Verð kr. 450.- í Smiðju. Gildir í hádeginu.
Siglufjörður:
Viljum að
mtt sé
Kaupfélag Eyfirðinga hefur nú
boðið kartöflubændum að
leggja verksmiðjukartöflur sín-
ar inn hjá útibúi Kaupfélags
Eyfirðinga á Svalbarðseyri á
lægra verði en hingað til hefur
verið í gildi.
Að sögn Bjarna Hafþórs
Helgasonar, sem annast skipu-
lagningu og eftirlit með rekstrin-
um fyrir hönd kaupfélagsstjóra,
var gripið til þessa ráðs til aö
bæta samkeppnisstöðu vörúnnar
og koma í veg fyrir að Fransman-
kartöflur falli út .af íslenska
neysluvörumarkaðinum með
þeim afleiðingum að langtíma-
tjón verði á rekstri kartöfluverk-
smiðjunnar.
Innkaupsverð á kartöflum til
verksmiðjunnar verða eftir lækk-
un þessi: 1. flokkur 20 kr. í stað
Blönduvirkjun
frestað um
tvö ár
Stjórn Landsvirkjunar ákvað í
gær að fresta framkvæmdum
við Blönduvirkjun, sem þýðir
að verklok verða tveim árum
síðar en áætlað var. Þessi
seinkun hefur það jafnframt í
för með sér, að fækka verður
starfsfólki við virkjunina.
í frétt um þetta mál frá
Landsvirkjun segir orðrétt:
Á fundi stjórnar Landsvirkjun-
ar í dag var fjallað um tímasetn-
ingu Blönduvirkjunar með tilliti
til áætlaðrar orkueftirspurnar á
næstu árum samkvæmt hinni nýju
orkuspá frá síðastliðnu ári og
möguleika á aukningu í orku-
frekum iðnaði. Á fundinum kom
fram að án slíkrar aukningar
þyrfti Blönduvirkjun ekki að
vera komin í rekstur fyrr en 1991.
Með hliðsjón af því samþykkti
stjórnin að miða framkvæmdir
við Blönduvirkjun í ár við að
fyrsta vél virkjunarinnar verði
ekki gangsett fyrr en 1991. í
þessu felst að ekki verður um að
ræða aðrar framkvæmdir á þessu
ári á virkjunarsvæði Blöndu en
við jarðgöng og neðanjarðar-
stöðvarhús virkjunarinnar.
Vegna hugsanlegrar aukningar
í orkufrekum iðnaði á næstu
árum var hins vegar jafnframt
samþykkt að halda þeim mögu-
leika opnum til 1. júlí 1987 að
flýta verklokum til 1990 eftir því
sem orkusala til fyrirhugaðs
reksturs Kísilmálmvinnslunnar
hf. eða annars orkufreks iðnaðar
kynni að gefa tilefni til.
Stillt
en kalt
Það verður stillt veður áfram og
engin teikn á lofti um breyting-
ar, samkvæmt upplýsingum
Braga Jónssonar, veðurfræð-
ings. Eitthvað kólnar þó, frostið
gæti farið í ein 14 stig, en það
þarf ekki nema örlitla skýja-
slæðu til að lækka þá tölu um
helming.
25,23 kr. áður, 2. flokkur 15 kr. í
stað 17,34 kr. áður og 3. flokkur
7 kr. í stað 8,46 kr. áður.
Bændum var sent bréf um
verðbreytinguna í gærmorgun og
þeim boðið að leggja inn kartöfl-
ur á nýja verðinu eftir helgi.
Nokkrir bændur vissu að þessi
verðbreyting væri í aðsigi og eru
þegar farnir að leggja inn kartöfl-
ur á hinu nýja verði.
„Bændur hafa tekið þessu með
skynsemi og skilja mætavel
hvernig þetta vandamál er vaxið,
ekki síst með tilliti til sam-
keppnisstöðu vörunnar á neyt-
endamarkaði. Verðsamkeppnin
við innfluttar franskar kartöflur
hefur verið erfið en neytendur
virðast vera á einu máli um að
gæði okkar kartaflna séu mun
meiri,“ sagði Bjarni Hafþór.
Hann sagði að næsta skref væri
að gera átak í markaðs- og sölu-
málum. Verið væri að hanna
auglýsingar og athuga nýja
möguleika varðandi dreifinguna.
„Hvað kjötvinnsluna varðar er
unnið að því að ná upp góðum
vinnuhraða og nýta afkastaget-
una til fulls. Það hafa ýmsar
dreifileiðir skaddast á þessum
síðustu mánuðum, einkum vegna
tilfallandi vöruskorts og þeim
málum erum við að kippa í
liðinn."
Þórður Stefánsson hefur verið
ráðinn til að annast daglegan
rekstur útibús KEA á Svalbarðs-
eyri. Um næstu mánaðamót
verður tekin ákvörðun um fram-
tíðarstefnu varðandi rekstrar-
fyrirkomulag og starfsmannahald
út leigutímabilið sem er til 1.
ágúst n.k. BB.
Áfram hærra, áfram hærra; upp við skulum ná.
Mynd: KGA.
daglega
„Það sem við viljum er að veg-
urinn verði opnaður daglega.
Við höfum farið fram á það við
samgönguráðherra að hann*
hlutist til um að þessum málum
verði kippt í lag og áætlunum
verði breytt í samræmi við
það,“ sagði Jón Pálmi Pálsson
bæjarritari á Siglufirði. En þar
í bæ eru menn óhressir með að
aðeins skuli rutt tvisvar í viku.
skuli rutt tvisvar í viku.
Jón Pálmi sagði að lítið hefði
komið út úr fyrirspurnum til
ráðuneytisins. „Það er með þetta
mál eins og mörg önnur að kerfið
gleypir og gleypir og síðan kemur
ekkert út úr því. Hins vegar eru
vegagerðarmenn á Sauðárkróki
tiltölulega jákvæðir í þessu máli,
en benda á sína yfirboðara.
Snjóruðningur á Siglufjarðarvegi
tilheyrir Vegagerðinni á Sauðár-
króki og þarf að senda mann það-
an í Ketilás, þar sem ruðnings-
tæki er geymt. Jón Pálmi sagði að
oft væri um lítilsháttar höft á veg-
inum að ræða, en nóg til að
stöðva umferð. „Þess vegna vilj-
um við hafa ruðningstæki á Siglu-
firði sem getur farið héðan og
rutt, í stað þess að við bíðum eft-
ir mönnum frá Sauðárkróki sem
vinna verkið við bæjardyrnar hjá
okkur. Enda er oft um að ræða
tafir á 20 km kafla út frá bænum
og autt það sem eftir er. Þess
vegna teljum við að ódýrara sé að
staðsetja tæki á Siglufirði," sagði
Jón Pálmi Pálsson. gej-
Gleöifrétt fyrir skákunnendur á Akureyri:
Stórmeistaramót eftir helgi
- Bent Larsen og fleiri þekktir stórmeistarar meðal keppenda?
Ákveðið hefur verið að halda
alþjóðlegt skákmót á Akureyri
og mun mótið hefjast um
miðja næstu viku.
Samkvæmt heimildum Dags er
hér um mjög sterkt mót að ræða,
svo kallað stórmeistaramót. Þátt-
takendur verða 8 talsins, allt stór-
meistarar að Jóni L. Árnasyni
undanskildum, en hann er al-
þjóðlegur meistari. Tefld verður
tvöföld umferð þar sem allir
keppa við alla. Ekki er endanlega
búið að ákveða hvaða stórmeist-
arar tefla á þessu móti en ef allt
gengur samkvæmt áætlun verður
þetta mót í 11.-12. styrkleika-
flokki. Þar með yrði þetta mót
eitt af 4-5 sterkustu skákmótum
sem haldin verða í heiminum í
ár.
Jafnhliða stórmeistaramótinu
er stefnt að því að halda annað
mót, ekki nándar nærri eins
sterkt. Þar tækju þátt 3 alþjóð-
legir meistarar og nokkrir útlend-
ingar auk íslenskra skákmanna.
Á því móti gæfist keppendum
kostur á að ná alþjóðlegum ár-
angri á skáksviðinu.
Skákfélag Akureyrar mun
halda þessi mót í samvinnu við
Tímaritið Skák. Þessir aðilar
munu njóta stuðnings bæjar-
stjórnar Akureyrar og ýmissa
fyrirtækja á Akureyri. Teflt verð-
ur í Alþýðuhúsinu. BB.
Lögreglurannsókn
er haldið áfram
„Þetta mál er í rannsókn enn
og verður það eitthvað
áfram. Ég veit ekki hvenær
henni lýkur, það er ekki hægt
að nefna neina dagsetningu í
því sainbandi.”
Þetta sagði Elías I. Elíasson,
bæjarfógeti á Akureyri,
aðspurður um hvað liði rann-
sókn „Sjallamálsins“ svo-
nefnda, í samtali við Dag í
gærkvöld. Rannsóknin hefur
staðið nær sleitulaust allt síðan
snemma á þriðjudaginn. Margir
hafa verið kallaðir til yfir-
heyrslu, þar á meðal flestir
starfsmenn Sjallans.
Eins og fram hefur komið í
Degi undanfarna daga, þá hefur
gengið þrálátur orðrómur um
ýmiss konar misferli í rekstri
Sjallans. Heimildarmenn
blaðsins, þar á meðal fyrrver-
andi starfsmenn þess, fullyrða
að húsið hafi tvíselt aðgöngu-
miða, auk þess sem þar hafi ver-
ið selt smyglað vín og kjöt.
Aðrir starfsmenn hússins full-
yrða hið gagnstæða, þar á með-
al Dana Jóhannsdóttir, bar-
þjónn og trúnaöarmaður fram-
reiðslufólks í Sjallanum, sem
fullyrðir að sögusagnir um sölu
á smygluðu víni í húsinu séu
ósannar. í yfirlýsingu frá stjórn
Akurs hf., sem rekur Sjallann,
telja stjórnarmenn að rekstur
hússins hafi verið með eðlileg-
um hætti. Þar kemur einnig
fram, að bókhaldið sé í höndum
löggiltra endurskoðenda. Sem
sagt, fullyrðing gegn fullyrð-
ingu, en yfirstandandi lögreglu-
rannsókn . leiðir vonandi í ljós
sannleikann. Það er enginn sek-
ur fyrr en sekt er sönnuð.
Kaitöfluverð til
bænda lækkar