Dagur - 07.05.1986, Qupperneq 11
7. maí 1986- DAGUR - 11
Alþýðusamband Norðurlands:
Ráðstefna um
vinnuvernd og
ástand vinnustaða
Vinnuvernd og ástand vinnu-
staða á Norðurlandi er við-
fangsefni ráðstefnu, sem
Alþýðusamband Norðurlands
heldur 9. og 10. maí að Illuga-
stöðum. Ráðstefnan er haldin í
samvinnu við Menningar- og
fræðslusamband alþýðu.
Á ráðstefnunni verður gerð
grein fyrir ástandi vinnustaða á
Norðurlandi með tilliti til aðbún-
aðar, öryggis og hollustuhátta, en
að undanförnu hefur farið fram
nokkur könnun í þessu efni. Rætt
verður hvað einkum virðist
ábótavant og um leiðir til úrbóta.
Sérstök áhersla verður lögð á
hlutverk öryggistrúnaðarmanna
og öryggisvarða.
Erindi á ráðstefnunni munu
flytja þeir Ásmundur Hilmarsson
starfsmaður Sambands bygg-
ingamanna og Snorri S. Konráðs-
son starfsmaður MFA. Þá mun
Eyjólfur Sæmundsson forstjóri
Vinnueftirlits ríkisins ræða um
Allar stærðír og gerðir af raf-
hlöðum t.d. fyrir leiktæki og
tölvur.
Heildsala -
smásala
Óseyri 6, sími 24223
Brekkugötu 7, sími 26383.
stofnunina og mikilvægustu verk-
efni hennar, sem eru framundan.
Hörður Bergmann fræðslufulltrúi
og Sigmundur Magnússon vinnu-
eftirlitsmaður ræða um fram-
kvæmd vinnueftirlits og upplýs-
ingastarf. Ráðstefnustjóri verður
Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
Gert er ráð fyrir að um 60
manns sæki ráðstefnuna frá
aðildarfélögum Alþýðusambands
Norðurlands, allt frá Hvamms-
tanga til Þórshafnar.
Ráðstefnan hefst um hádegi
föstudaginn 9. maí og lýkur síð-
degis á laugardag.
Kristnes-basarínn
verður í Blómaskálanum Vín
fímmtudaginn 8. maí kl. 14.
Á boðstólum verður alls konar tágavinna,
prjónles og önnur handavinna.
Allt unnið af vistfólki.
Komið og geríð góð kaup.
Veitingar á staðnum.
% International
Umboð
Söluumboð fyrir International paint skipa-
málningu á Akureyri er laust til umsóknar.
Umsækjandi þarf að þekkja vel til í skipasmíða-
stöðvum, útgerðarfyrirtækjum og byggingariðnaði á
Norðurlandi.
Umsóknir sendist til Dags fyrir 12. maí nk. merkt: Málning.
FRAMSOKN
TIL FRAMFARA
Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri er 8. á lista framsóknar-
manna til bæjarstjórnarkosninganna í vor. Hann verður til við-
tals á skrifstofunni Eiðsvallagötu 6 í dag 7. maí kl. 17-18.
Heitt verður á könnunni. Hittumst hress.
Framsóknarfélögin á Akureyri
Auglýsendur takið eftir!
Síðasta blað fyrir helgi kemur út
fimmtudaginn 8. maí.
Auglýsingar sem birtast eiga í því blaði þurfa að berast fyrir kl. 12
miðvikudaginn 7. maí.
Frá Hrafnagilsskóla
Sýning á teikningum og handavinnumunum
nemenda verður í skólanum fimmtudaginn 8. maí
nk. kl. 15-22.
Kaffihlaðborð.
Skólastjóri.
Leikfélag Öngulsstaðahrepps.
Aðalfundur félagsins
verður í Freyvangi fimmtudaginn 8. maí kl. 21.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Stjórnin.
Framhaldsaðalfundur
Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni
verður haldinn að Bjargi miðvikudaginn 7. maí
kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Reikningar.
2. Kosning fulltrúa á landssambandsþing.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar - Stjórnin.
Orlofshús
Frá og með mánudeginum 12. maí hefst útleiga á
orlofshúsum neðanskráðra féiaga vegna sumar-
mánaðanna.
Húsin eru leigð til viku í senn og ber að greiða viku-
leiguna við pöntun á húsunum. Þeir félagsmenn sem
ekki hafa sótt um húsin sl. 3 ár hafa forgangsrétt til
19. maí nk.
Eitt hús Verkalýðsfélagsins Einingar er ætlað fyrir
fatlað fólk sem er félagsbundið í einhverju af þeim
félögum sem orlofshús eiga að lllugastöðum.
Sækja verður um það sérstaklega hjá Verkalýðsfé-
laginu Einingu og verður umsækjandi að leggja til
hús á móti frá sínu stéttarfélagi.
Verkalýðfélagið Eining
Skipagötu 14, sími 23503
Félag málmiðnaðarmanna.
Skipagötu 14, sími 26800.
Sjómannafélag Eyjafjarðar.
Skipagötu 14, sími 25088.
Trésmiðafélag Akureyrar
Skipagötu 14, sími 22890
Starfsmenn óskast
Byggingavörudeild KEA óskar eftir starfsmönn-
um. Upplýsingar gefur deildarstjóri Bygginga-
vörudeildar - ekki í síma.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Sendill óskast
Gjarnan til eins árs. Æskilegur aldur 15 ár. Nánari upp-
lýsingar í varahlutaverslun Þórshamars, ekki í síma.
Þórshamar, varahlutaverslun.