Dagur - 20.05.1986, Page 5
20. maí 1986 - DAGUR - 5
Sumir hlýddu með athygli á framsöguerindin, en aðrir notuðu tímann til að
ræða málin á lágu nótunum. Á myndinni má m.a. sjá Erling Davíðsson, Jón
Arnþórsson og Jón G. Sólnes.
Hér hefur greinilega eitthvert alvarlegt málið verið til umræðu, svo sem sjá
má af svipbrigðunum.
með Jón Björnsson í broddi fylk-
ingar hefur haft með öldrunar-
málin að gera undanfarin ár.
Hins vegar mun sá málaflokkur
færast yfir til sérstaks öldrunar-
ráðs á næsta kjörtímabili enda
skipa málefni aldraðra æ stærri
sess innan bæjarkerfisins ár frá
ári og sú þróun mun eflaust halda
áfram. Gamla fólkið er þó ekki
alveg sátt við að missa forsjá Jóns
Björnssonar og hans fólks eins og
eftirfarandi samþykkt, sem fund-
arstjóri las upp á fundinum, ber
með sér: „Við félagar í Félagi
aldraðra á Akureyri beinum
þeirri eindregnu ósk til væntan-
legra bæjarfulltrúa að þeir hlutist
til um að félagið megi framvegis
sem hingað til njóta starfs og
stjórnunar hins ágæta og ötula
manns, Jóns Björnssonar hjá Fé-
lagsmálastofnun bæjarins. Það
hefur verið mikið lán að mega
hlíta hans forsjá og þess indæla
fólks er með honum hefur unnið
að málum félags okkar. Ég mæli
fyrir hönd okkar allra er ég
þakka þau ágætu störf og þann
hlýhug sem við njótum hjá þessu
fólki og kunnum við vel að meta
það er líða fer á daginn. Munið
þetta og festið í minni frambjóð-
endur góðir.“
Frummælendur stigu nú aftur í
pontu í sömu röð og fyrr nema
hvað Freyr Ófeigsson talaði fyrir
Alþýðuflokk í seinna skiptið.
Þeir höfðu nú helmingi skemmri
tíma en áður til að svara fyrir-
spurnunum og segja nokkur orð
að lokum. Fimm mínúturnar
dugðu því naumast til að koma
öllum svörunum á framfæri en þó
var mesta furða hversu mörgu
frambjóðendurnir náðu að svara.
Aðalsteinn veifaði klukkunni
miskunnarlaust þegar tíminn var
útrunninn og urðu menn að hlíta
þeirn úrskurði.
Frambjóðendurnir sögðust
hafa haft mikið gagn af þessari
heimsókn til aldraðra og eflaust
hefur það verið gagnkvæmt, alla-
vega hefur margur látið það ráð-
ast á þessum fundi við hvaða
bókstaf hann setur krossinn á
kjördag.
Dalvík x-b
Óskar Pálmason 3. sæti B-listans.
Við leggjum áherslu á öflugt skólastarf og viljum
að næsta framkvæmd á vegum bæjarfélagsins
verði skólabygging.
Konurnar sem sæti eiga á framboðslista framsóknarmanna á Akureyri buðu til kökukvölds á fímmtudag í síðustu
viku, að Eiðsvallagötu 6, kosningaskrifstofu B-listans. Greinarhöfundur, Kolbrún Þormóðsdóttir, situr lengst til
vinstri á myndinni. Mynd: HS
Kolbrún Þormóðsdóttir, 4. maður á lista framsóknarmanna á Akureyri:
Hugleiðingar um mál-
efni eldri bæjarbúa
í upphafi skal endinn skoða.
Hér á Akureyri þarf svo sannar-
lega að bæta úr málefnum eldri
bæjarbúa. Við verðum að taka
upp svokallaða húsnýtingar-
stefnu. En það er að nýta, endur-
bæta og aðhæfa það húsnæði sem
um er að ræða hverju sinni, íbú-
um þess, ungum sem eldri. . Ég
bendi á nýju húsnæðismálalögin
sem taka gildi 1.9. ’86 og munu
auðvelda slíkar framkvæmdir.
Sjálfsbjargarviðleitnin er rík í
okkur íslendingum, sem betur
fer. Fólk á að fá að ráða hvar og
hvernig það vill eyða efri árun-
um. Margir hafa því miður þurft
að vinna meira en mannsæmandi
vinnudag til þess að endar nái
saman. Fólk kvíðir því samt að
hætta að vinna, því eftir allt strit-
ið er afkoma ævikvöldsins síður
en svo trygg, hvorki hvað varðar
húsnæði eða fjárhag. Við lands-
menn erum á hraðri leið að
skipuleggja þrjú þjóðfélög úr
einu. Þetta er mjög miður, því ég
er þess fullviss að mikið af menn-
ingarverðmætum glatast, við
skiptingu kynslóðanna. Ég skil
vel þá sem vilja vera sjálfstæðir í
sínu hverfi. Ég vil að eldri bæjar-
búar geti búið áfram þar sem þeir
vilja, geti aðhæft húsnæðið eftir
þörfum og njóti félagslegra rétt-
inda og heimilisaðstoðar eftir
þörfum hvers og eins.
Hverfin eiga ekki að vera
svefnbústaðir eingöngu, heldur
eiga allir aldurshópar að búa í
hverfunum. Börn og eldri bæjar-
búar þyrftu ekki að vera eins
einmana og raun ber vitni heldur
gætu sameinast um félagsleg
tengsl og samveru.
Mikið og óeigingjarnt starf
hafa þær konur unnið sem starfa
að heimilishjálp hér í bænum. Ég
veit að vinnutími þeirra er ekki
8-4 eða 9-5, og að margar þeirra
vinna hreina sjálfboðavinnu utan
vinnutímans. Slík er þörfin
félagslega séð. Þessar konur eiga
heiður og þakklæti skilið og að
sjálfsögðu bætt kjör. Margt gott
hefur vissulega verið gert í
málefnum eldri bæjarbúa, en bet-
ur má ef duga skal. það er skylda
okkar allra að vinna saman að
þessurn málum.
Kolbrún Þormóðsdóttir.
Uiögni—-----------------
Að fengnum stimpli
Mér er nær að halda að aumk-
unarverðasta skepna jarðar-
innar sé Homo automobilens-
is islandicus eða hinn íslenski
blleigandi. Hann er ofsóttur,
píndur og hundeltur og gegnir
raunar furðu að tegundin skuli
ekki vera útdauð fyrir löngu
eins og Dínósárar fornaldar
og íslenski geirfuglinn. Látum
það vera, þótt mánaðarlaunin
fari í bensín og smurolíu. Lát-
um það vera þótt slá þurfi
vlxla til þess að kaupa til skipt-
is vetrar- og sumardekk. Lát-
um þaö Hka vera, þótt bruna-
hanar stökkvi I veg fyrir bílinn
og stórskemmi vinstra aftur-
brettið. Og við skulum líka láta
það liggja á milli hluta þótt
smurpungurinn bili og sé
gjörsamlega ófáanlegur I
hjálpartækjabankanum.
Nei, ósköpin byrja um leið
og kaupa á bíl. Fyrst er að
skrifa nafn sitt og númer á
óteljandi pappíra I þrí- eða
fjórriti. Þá er að drífa sig upp á
fógetaskrifstofu til að fá þar
stimpil. En frá fógeta er maður
sendur á skrifstofu tryggingar-
félagsins til þess að fá þar
stimpil fyrst. Síðan aftur til
fógeta og loksins er stimplað.
Nú, þá liggur leiðin upp á eftir-
lit, en þar reynast margstimpl-
aðir pappírarnir ekki nógsam-
lega stimplaðir. Aftur á fógeta-
skrifstofuna og aftur stimplað.
Upp á eftirlit, en þá vantar
stimpil upp á Ijósaskoðun. Út
á verkstæði. Pera í hægra aft-
ur-stefnuljósi biluð. Rokið í
þrjár varahlutaverslanir og
loksins fæst rétt pera. Aftur á
verkstæðið og peran á sinn
stað og stimplað með tilþrif-
um. Upp á eftirlit, en þá er
klukkan orðin fjögur og búið
að loka þann daginn, og læsa
niður alla stimpla.
Þá er vaknað í býtið daginn
eftir og byrjað á ný. Loksins er
langþráður stimpill á lofti og
sér fyrir endann á þrautagöng-
unni. En vertu hægur. Það er
mikið eftir. Manni er rétt skrúf-
járn og fleiri áhöld til að losa
og festa númer á bíia. Það
skal fúslega viðurkennt að
undirritaður veit það eitt um
skrúfjárn, að mjórri endinn á
að vísa fram. Þó tekst á ein-
hvern yfirnáttúrulegan hátt að
koma númera-skiltunum á
sinn stað. Undarleg og
óskiljanleg sigurgleði er að
taka vöid þrát fyrir blóðrisa
fingur og drullu upp fyrir haus.
En sigurgleðin er skamm-
vinn. Þegar heim er komið,
vekur konan athygli manns á
því að ekki sé sama númer á
bílnum aö aftan og framan. En
hvaða vit hafa konur á bílum?
Enda kemur það í Ijós við nán-
ari athugun, að númerið aö
framan er A-10715, en að aft-
an A-51701.
Högni.