Dagur - 20.05.1986, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 20. maí 1986
20. maí 1986 - DAGUR - 7
Merk
tímamót
- hjá Baldri og Hlyn
Þeir félagar Baldur Guðnason og Hlynur
Birgisson leikmenn Þórs í knattspyrnu náðu
merkuni áfanga í leiknum gegn Val á laugar-
dag. Baldur lék sinn fyrsta leik í 1. deild og
Hlynur skoraði sitt fyrsta mark í 1. deild en
hann hóf að leika í deildinni í fyrrasumar.
Baldur sem er tvítugur lék stöðu vinstri
bakvarðar og þótti standa sig vel. Hlynur
sem er aðeins 17 ára lék í fremstu víglínu
með Bjarna Svcinbjörnssyni en það var ein-
mitt fyrir Bjarna sem Hlynur kom inn í
Þórsliðið á miðju keppnistímabili í fyrra.
Þrátt fyrir að hafa leikið vel í lyrra tókst hon-
um ekki að skora en segja iná að Hlynur hafi
byrjað vel í ár því markið sem hann gerði á
laugardag var stórglæsilegt.
Þeir félagar eiga örugglega eftir að láta
mikið að sér kveða á knattspyrnuvellinum á
næstu árum.
Baldur Guðnason og Hlynur Birgisson.
Mynd: KK
Úrslit um
helgina
Eins og fram kemur í blaðinu í dag hófst
íslandsmótið í knattspyrnu á laugardag.
Leikin var heil umferð í 1. deild og 2. deild
um helgina. Við látum hér fylgja úrslit leikj-
anna sem leiknir voru um helgina.
1. dcild.
ÍA-Fram 0:0
UBK-ÍBK 1:0
Víðir-FH 1:3
KR-ÍBV 4:0
Þór-Valur 2:1
2. deild.
ÍBÍ-UMFN 3:3
Selfoss-Skallagrímur 4:1
KS-Völsungur 0:0
KA-Einherji 4:0
Þróttur-Víkingur 1:1
í kvöld fara fram fjórir leikir í 1. deild.
Leikirnir eru þcssir:
ÍBV-ÍA
Víðir-KR
Valur-UBK
FH-ÍBK
Annað kvöld leika síðan Fram og Þór og
er það síðasti leikur annarar umferðar.
íþróttÍL
Hlynur Birgisson leikmaður Þór hefur hleypt af og knötturinn er á leið í markið hjá Valsmönnum. Hlynur er vel einbeittur á myndinni eins og sjá má.
Mynd: KGA
Rislág knattspyrna þegar
Þór vann Val 2:1
á Þórsvelli í 1. deild íslandsmótsins
Islandsmótið 2. deild:
Öruggur KA-
sigur á
Einherja
- Tryggvi skoraði 2 mörk
„Þetta var ekki falleg knatt-
spyrna. En það verður ekki
spurt að því þegar upp verður
staðið heldur eru það stigin
sem gilda. Þetta var dæmi-
gerður malarleikur sem verður
sjaldnast skemmtilegur fyrir
áhorfendur. Ég er engu að síð-
ur bjartsýnn á framhaldið,
næst er það Fram í Reykjavík,
við tökum bara einn leik fyrir í
einu,“ sagði Nói Björnsson
fyrirliði Þórs eftir sigurinn
gegn Val á laugardag.
Það voru ekki liðnar nema
nákvæmlega tvær mín og þrjátíu
og tvær sekúndur af leiknum þeg-
ar Þórsarar skora fyrsta markið.
Þór fékk innkast rétt við horn-
fána Vals. Júlíus Tryggvason tók
langt innkast inn í markteig Vals,
Stefán markvörður reyndi að
kýla boltann í burtu en náði því
ekki og hann barst fyrir markið
þar sem Bjarni Sveinbjörnsson
var réttur maður á réttum stað og
skoraði af öryggi af stuttu færi,
1:0 fyrir Þór. Ekki var Stefán
markvörður sáttur við að fá á sig
mark, taldi að brotið hefði verið
á sér en Baldur dómari var á öðru
máli og dæmdi markið gilt.
Annars gerðist fátt markvert í
fyrri hálfleik, Þór lék undan
dálítilli golu og sótti nokkuð stíft
á köflum en þeir Ársæll Krist-
jánsson og Guðni Bergsson voru
eins og klettar í Valsvörninni.
Áttu þeir Bjarni og Hlynur erfitt
með að komast framhjá þeim.
Á 40. mín fengu Þórsarar
aukaspyrnu út undir hliðarlínu
hægra megin. Jónas Róbertsson
sendi háan bolta inn í teig en
Valsarar ná að hreinsa frá marki.
Boltinn berst út á vítateigslínu
þar sem Hlynur Birgisson kom
aðvífandi og skaut hörkuskoti í
bláhornið á marki Vals. Stefán
markvörður náði að snerta bolt-
ann en ekki nóg til þess að slá
hann út fyrir. Staðan í hálfleik
2:0 fyrir Þór.
Valsarar mættu mjög ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og voru
greinilega ekki á því að gefast
upp. Strax á 48. mín komst
Guðni Bergsson sem var færður
framar á völlinn í seinni hálfleik
upp kantinn og sendi góðan bolta
fyrir mark Þórs. Baldvin mark-
vörður fór út en náði ekki til
knattarins sem barst manna á
milli í teignum og endaði með
skoti frá Ingvari Guðmundssyni
er fór hátt yfir.
Á 56. mín fengu Valsarar
dæmda vítaspyrnu er knötturinn
lenti í hönd eins varnarmanna
Þórs inn í teig úr löngu innkasti
frá Ingvari. Baldur dómari
dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu
sem Hilmar Sighvatsson skoraði
úr af öryggi. Ekki voru allir jafn
vissir um að boltinn hefði farið í
hönd Þórsara í því tilviki.
Eftir markið drógu Þórsarar
sig enn aftar og náðu Valsarar
mun betri tökum á spilinu þó að
leikurinn hafi verið hálfgert loft-
einvígi á köflum. Valsmenn
héldu áfram að pressa og á 60.
mín átti Sigurjón Kristjánsson
skot rétt framhjá marki Þórs. En
þótt Valsarar hafi pressað nokk-
uð stíft fengu Þórsarar sín færi. Á
66. mín tók Kristján aukaspyrnu
frá vinstri. Boltinn fór í gegnum
vörn Vals en Siguróli var aðeins
of seinn að átta sig og skaut bolt-
anum í hliðarnetið af stuttu færi.
Valsarar reyndu allt hvað þeir
gátu til að jafna en tókst ekki og
náðu Þórsarar sér í þrjú dýrmæt
stig í deildinni.
Það er erfitt að gera upp á milli
leikmanna Þórs en varnar-
mennirnir Júlíus, Árni, Jónas og
Baldur stóðu vel fyrir sínu. Þá
áttu þeir Hlynur og Halldór góða
spretti, annars er liðið með jafna
leikmenn.
í liði Vals voru þeir Ársæll og
Guðni eins og klettar í vörninni.
Einnig áttu þeir Hilmar og Ingvar
góðan leik.
Það var hart barist og lítill tími
gefinn þegar erkifjendurnir KS
og Völsungur áttust við á
Siglufjarðarvelli á laugardag í
sínum fyrsta leik í 2. deildinni í
knattspyrnu.
Nokkur vorbragur var á leik
liðanna en samt brá fyrir nokkr-
um skemmtilegum tilþrifum hjá
báðum liðum og greinilegt að þau
verða til alls líkleg í sumar. Bæði
lið söknuðu sterkra leikmanna, í
lið KA vantaði Colin Thacker
varnarmannin sterka sem var í
banni, Björn Ingimarsson er
meiddist í vikunni og Jón Kr.
Gíslason landsliðsmann í körfu-
bolta sem fékk botnlangakast
skömmu fyrir leikinn. Völsungar
söknuðu Helga Helgasonar sem
hefur verið meiddur og Ómars
Rafnssonar er meiddist fyrir
skömmu.
Mikil taugaveiklun einkenndi
liðin í upphafi leiksins og ekkert
markvert gerðist fyrstu mín. Á
Dómari var Baldur Scheving
og átti hann ágætan dag.
-GSv
15. mín á svo Gústaf Björnsson
þjálfari og leikmaður KS fyrstu
tilraun til markskorunar í leikn-
um er hann skýtur föstu skoti rétt
utan við vítateig en framhjá. Á
25. mín gerðist óvænt atvik er
ungur nýliði í KS-liðinu, bak-
vörðurinn Birgir Ingimarsson
(eða tappinn eins og hann er kall-
aður) tók boltann viðstöðulaust á
lofti og þrumaði honum af yfir 40
metra færi í þverslána og niður á
völlinn. Voru Völsungar heppnir
að boltinn speglaðist ekki af
markverðinum og í markið.
Skömmu síðar á Jakob Kárason
gott skot innan vítateigs en mark-
vörður Völsungs varði vel. Á
þessum þriðjungi hálfleiksins
sóttu Siglfirðingar fast og press-
uðu Völsungana. Dæmið snérist
svo við síðasta þriðjunginn í hálf-
leiknum, þá sóttu Völsungarnir
en náðu þó aldrei að skapa sér
nein færi frekar en fyrr í leiknum.
Síðari hálfleikurinn var mun
„Við vorum frekar taugaveikl-
aðir í byrjun en eftir að við
skoruðum fyrsta markið var
þetta auðunnið. Fyrir mig var
þetta rólegur dagur í markinu.
Engu að síður verðum við að
leika betur en í þessum leik ef
við ætlum upp,“ sagði Haukur
Bragason markvörður KA eft-
ir sigurinn á Einherja í 2.
deildinni í knattspyrnu á
sunnudagskvöld.
Leikurinn fór mjög rólega af
stað en það voru KA-menn sem
voru öllu sterkari í byrjun. Þegar
líða fór á hálfleikinn fóru Ein-
herjamenn að koma meira inn í
leikinn. Það voru þó KA-menn
sem áttu fyrsta hættulega færið er
Hinrik Þórhallsson átti skot rétt
framhjá á 16. mín.
Það má segja að KA-menn hafi
sloppið með skrekkinn skömmu
síðar er Helgi Ásgeirsson átti
hörkuskot í slá KA-marksins eft-
ir góða sókn. Rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks komst Tryggvi Gunnars-
son KA-maður í gott færi en
Hreggviður markvörður varði
meistaralega. Staðan í hálfleik
0:0.
Það voru Einherjar sem áttu
fyrsta hættulega færið í síðari
hálfleik er Njáll Eiðsson þjálfari
liðsins átti gott skot af stuttu færi
en Haukur markvörður varði vel.
Á 60. mín skora KA-menn
fyrsta markið og var þar að verki
opnari en sá fyrri og engin kafla-
skipti, liðin skiptust meira á að
sækja. Húsvíkingar áttu tvær
hættulegar sóknir í upphafi hálf-
leiksins og var Kristján Olgeirs-
son ógnvaldurinn í bæði skiptin.
Fyrst varði Ómar Guðmundsson
markvörður vel skot hans frá
vinstri úr vítateignum og síðan
bjargaði Ómar aftur vel með út-
hlaupi þegar Kristján hafði
sloppið í gegn um KS-vörnina.
Þetta voru nánast einu sóknir
Völsungs í leiknum sem Siglfirð-
ingum stóð einhver stuggur af.
Siglfirðingar áttu nokkrar hættu-
legar sóknarlotur í seinni hálf-
leiknum og voru mun ákveðnari í
sóknarleiknum. T.d. komust
Gústaf og Óli Agnarsson í tví-
gang hvor í færi inn í teig sem
ekki tókst að nýta. Dauðafæri
geta þau þó varla talist nema þá
færið sem Óli fékk 15 mín fyrir
leikslok. Hafþór vann þá boltann
út á kantinum og gaf fyrir á Óla
Hinrik Þórhallsson. Hann fékk
góða sendingu frá Tryggva fyrir
markið og skoraði af öryggi frá
markteig. 8 mín síðar bætir
Tryggvi við öðru marki fyrir KA
eftir að Friðfinnur hafði sent
boltann inn í teig frá vinstri þar
sem Tryggvi var óvaldaður og
skoraði gott mark. Og enn 2 mín
síðar kemur þriðja mark KA.
Helgi Jóhannsson skoraði þá af
stuttu færi eftir hornspyrnu.
15 mín. fyrir leikslok bætti
Tryggvi við sínu öðru marki úr
vítaspyrnu sem dæmd var á varn-
armann Einherja fyrir að hand-
leika knöttinn inn í vítateig.
Tryggvi var síðan nálægt því að
bæta við þriðja marki sínu
skömmu fyrir leikslok. Boltinn
barst inn í teig, gegnum vörnina
en Tryggvi var aðeins of seinn að
átta sig og boltinn fór aftur fyrir
endamörk. Fleira markvert gerð-
ist ekki í leiknum en öruggur sig-
ur KA í höfn.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og alveg þar til KA
skorar fyrsta markið. Eftir það
má segja að úrslitin hafi verið
ráðin og aðeins spurning hversu
stór sigur KA yrði. Bestir í liði
KA voru þeir Þorvaldur Örlygs-
son Friðfinnur Hermannsson og
Hinrik Þórhallsson. Njáll Eiðs-
son var langbestur Einherja-
manna en einnig var Hreggviður
Ágústsson markvörður þokka-
legur.
sem sendi lausan en lúmskan
bolta á markið, varnarmaður
hálfvarði og markvörður Völs-
ungs hirti svo boltann skoppandi
á línunni á síðustu stundu.
Eins og fyrr sagði börðust liðin
vel og reyndu oft á tíðum að spila
fótbolta. Erfitt er að gera upp á
milli einstakra leikmanna í leikn-
um, nánast útilokað. Þeir stóðu
sig allir vel, reyndu sitt besta. Að
mínum dómi var jafntefli ekki
ósanngjörn úrslit en þó miðað við
sóknaraðgerðir og færi hefðu
Siglfirðingarnir með smá heppni
verðskuldað sigur.
En Björn Olgeirsson leikmað-
ur Völsungs sem sagði í viðtali í
Degi fyrir helgi að jafntefli væri
tap fyrir Völsung má vera ánægð-
ur með úrslitin. Þess má geta að
þessi ummæli Björns hafa
hneykslað margan Siglfirðinginn.
Leikinn dæmdi Haukur Torfa-
son og gerði það vel.
ÞÁ
íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild:
Tilþrifalrtill leikur
KS og Völsungs
- hvorugu liðinu tókst að skora mark
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Hinrik Þórhallsson kom KA á bragðið á móti Einherja. Hann skoraði fyrsta mark leiksins í byrjun síðari hálfleiks.
Mynd: KGA
Golfvertíðin hafin
- Þrjú mót að Jaðri um helgina
Þá er golfvertíðin hafin hér á
Akureyri. Um helgina fóru
fram þrjú mót að Jaðri. Á
laugardag var Flaggakeppni, á
sunnudag Snærisleikur og í
gær var einnar kylfu keppni.
Mjög góð þátttaka var í þess-
um mótum sem eru fyrst og
fremst haldin til þess að koma
fólki af stað.
í Flaggakeppninni notar kepp-
andi par vallarins plús forgjöfina
sína og sú tala lögð saman og
hann reynir að komast sem flest-
ar holur á þeim höggafjölda.
Ásgrímur Hilmisson sigraði í
þeirri keppni, hann átti eftir einn
metra til að klára 20. holuna. í
2.-3. sæti urðu þeir Jón B. Árna-
son og Guðni Jónsson en þeir
púttuðu út á 19. holunni.
í Snærisleiknum fær keppandi
snærisspotta. Helming að lengd
miðað við forgjöf og getur hann
notað spottann í staðinn fyrir
högg. T.d. ef keppandi á 1 m eftir
í holu getur hann í staðinn fyrir
að pútta klippt 1 m af spottanum
og sleppt högginu. Ef snærið er
notað er ekki skráð högg á kepp-
andann.
Sigurvegari í Snærisleiknum
varð Konráð Gunnarsson á 64
höggum. í öðru sæti varð Birgir
Marinósson einnig á 64 höggum
og í þriðja sæti varð Sigurður H.
Ringsted á 69 höggum.
Einnar kylfu keppnin fer þann-
ig fram að keppandi notar aðeins
eina kylfu í keppninni. Flestir
nota járn númer 4 eða 5. I því
móti sigraði Ragnar Harðarson á
75 höggum. í öðru sæti varð
Konráð Gunnarsson á 76 högg-
um og í þriðja sæti varð Sigurður
H. Ringsted á 78 höggum.
Það var hart barist á Siglufirði í leik KS og Völsungs á laugardag. Hér sækja Siglfirðingar að marki Völsungs.
Mynd: þá