Dagur - 20.05.1986, Page 8
8 - DAGUR - 20. maí 1986
íþróttic
Valur Ingimundarson. Mynd: AE
„Nær
öniggt
aðég
kem norður'
- segir Valur Ingimundarson
Frá Gylfa Kristjanssyni blaðamanni Dags í
Belgíu:
„Það má télja nokkuð öruggt
að ég spila með Þór í körfu-
boltanum næsta vetur,“ sagði
Valur Ingimundarson lands-
liðsmaður í körfuknattleik úr
UMFN í samtali við Dag eftir
leik íslands og Ungverjalands í
Belgíu í gærkvöldi.
„Þetta
var
slátmn“
- segir Gunnar Þorvarðarson
Frá Gylfa Kristjánssyni blaðamanni Dags í
Belgíu:
„Þetta var slátrun, við áttum
aldrei einn einasta möguleika
gegn þessu liði,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson aðstoðarþjálfari
íslenska liðsins eftir Pólland
hafði unnið ísland 95:56 í
fyrsta leik b-keppninnar í
körfuknattleik í Belgíu.
Pólland skoraði 13 fyrstu stig
leiksins og eftirleikurinn var auð-
veldur enda íslendingarnir á
„neðri hæðinni“. Skotnýting
íslenska liðsins var 32 % sem er
lélegt og það lék enginn leik-
manna liðsins vel nema Pálmar
Sigurðsson sem jafnframt var
stigahæstur og skoraði 15 stig.
Akureyringar
komið með bílinn til okkar.
Gerum við, réttum og sprautum
allar tegundir bifreiða.
Varahlutaverslun.
Viðgerðaverkstæði.
Málningarverkstæði.
Réttingarverkstæði.
Smurstöð.
Hjólbarðaþjónusta.
Höldur s/f
Draupnisgötu 1A Símar 21365 - 21715 • 26915
vaxna ungverja sem léku sinn
besta leik í mótinu.
Pað var strax ljóst hvert stefndi
er hinn kunnuglega tala 14:2 sást
á stigatöflunni. Ungverjar höfðu
yfirburði á öllum sviðum, höfðu
sterka vörn og hittu nánast úr
hverju einasta skoti. Fráköst
báðum meginn á vellinum hrifs-
uðu þeir við körfuhringina.
Lokatölur leiksins segja nánast
allt sem segja þarf þessu til við-
bótar. Staðan í hálfleik var 36:27
ungverjum í vil og strax í upp-
hafi síðari hálfleiks var staðan
orðin 50 stig gegn 33. íslenska
liðið virkaði lúið og það lýsti sér
meðan annars í skapvönsku
leikmanna sem létu mótlætið fara
í taugarnar á sér og rifust inn á
vellinum hver við annan.
Torfi Magnússon fyrirliði var
langbesti maður íslenska liðsins í
gærkvöldi og reyndi að rífa aðra
leikmenn upp með sér. Þá var
Páll Kolbeinsson grimmur í vörn-
inni en lykilmenn eins og Valur
Ingimundarson og Pálmar Sig-
urðsson brugðust alveg.
Flest stig íslands skoruðu þeir
Torfi Magnússon 12. Hreinn
Porkellsson 10 og þeir Valur
Ingimundarson og Pálmar Sig-
urðsson 7 stig hvor.
Stórgóður leikur
íslands gegn
Tyrklandi
Pórsarar hafa átt í viðræðum
við Val um að hann þjálfi og leiki
með liðinu næsta keppnistímabil.
„Ef það verður samjýykkt á árs-
þingi KKÍ í næsta mánuði að
fjölga í 12 lið í Úrvalsdeildinni er
100 % öruggt að ég fer til Akur-
eyrar,“ sagði Valur. Hann sagði
það nær öruggt að tillaga Vals-
manna um fjölgun yrði samþykkt
og hann kæmi norður. Hann
mundi þá leika við hlið ívars
Websters sem nýlega hefur til-
kynnt félagaskipti yfir í Þór og
með þennan liðstyrk yrði Þórslið-
ið ekki árennilegt næsta vetur.
Frá Gylfa Kristjánssyni blaðamanni Dags í
Belgíu:
Vonir okkar um að komast í
milliriðil í b-keppni Evrópu-
mótsins í körfuknattleik sem
fram fer í Belgíu urðu að engu
í gærkvöldi er slakt lið íslands
steinlá fyrir Ungverjum. Úr-
slitin 75:55. Reyndar er töl-
fræðilegur möguleiki á því að
Island komist áfram en til þess
þarf liðið að vinna Israel í dag
en það er hlutur sem enginn
telur að sé hægt.
„Annað hvort höldum við haus
og vinnum þennan leik eða að við
fáum skell,“ sagði Einar Bollason
þjálfari íslenska liðsins fyrir leik-
inn við Ungverja í gær og það
gekk eftir. Islenska liðið var afar
slakt og auðveld bráð fyrir há-
Ekki tókst íslenska liðinu vel upp í leiknum gegn ungverjum í gærkvöldi og tapaði með 20 stiga mun.
Frá Gylfa Kristjánssyni blaðamanni Dags í
Belgíu:
„Þessi leikur okkar við Tyrk-
ina var frábær og ég hef aldrei
verið í jafn sterku íslensku
liði,“ sagði Torfi Magnússon
eftir að Island hafði unnið
Tyrkland 63:58 í b-keppninni í
körfuknattleik í Belgíu.
Fyrirfram var ekki reiknað
með að ísland myndi vinna leik í
þessari keppni og kom reyndar
mjög á óvart að liðið skyldi vinna
c-keppnina í Reykjavík og kom-
ast þar með í b-keppnina. Höllin
sem leikið var í Belgíu var þétt
setin er leikurinn fór fram á
sunnudag og voru tyrkneskir
áhorfendur þar í miklum meiri-
hluta og Iétu dólgslega auk þess
sem þeir voru með hljóðfæri til
þess að skapa stemningu. Þegar
svo ísland kom á óvart strax í
byrjun með því að taka forystu í
leiknum 17:3 fór að hittna í kol-
unum og undir lokin sauð upp úr
er einn áhorfandanna hljóp inn á
völlinn og réðist að öðrum dóm-
ara leiksins. Kom hann höggi á
dómarann áður en tókst að fjar-
lægja hann.
Byrjuninn var sem sagt mjög
góð hjá íslenska liðinu og staðan
33:12 eftir 12 mín. í hálfleik var
staðan 42:29,-
í upphafi seinni hálfleiks kom
slæmur kafli hjá íslandi í sókn-
inni og var ekkert stig skorað í 6
* 'æs’ w aml*$iars
í»SH SCHÖOt •
JUWOHS i
OPi ■ : ! t(m j
Torfi Magnússon. Mynd. AE
mín. Vörnin var hins vegar góð
þannig að munurinn minkaði
lítið. Með baráttu tókst Tyrkjun-
um að minka muninn í 5 stig er
langt var liðið á seinni hálfleikinn
en sigur fslands var aldrei í hættu
og lokatölur sem fyrr sagði 63:58.
íslenska liðið lék þennan leik
mjög vel og uppskar samkvæmt
því. Pálmar var stigahæstur með
21 stig og var mjög góður og þeir
Torfi og Símon voru góðir í vörn-
inni. Annars var liðið nokkuð
jafnt.
„Vantar hæð“
- segir Símon Ólafsson
Frá Gyllu KHstjánssyni blaðumanni Dags í gærkvöldí.
Belgíu: Símon sem leikið hefur hátt í
„Þetta hefur gengið upp og ioo landsleiki í körfuknattleik
niður hjá okkur og það sem var mjög ánægður með leikinn
veldur þessum óstöðugleika gegn Tyrklandi og mestan hluta
er það að það vantar alla hæð leiksins gegn Svíþjóð en sagði
í liðið hjá okkur,“ sagði að liðið hefði aldrei átt neinn
Símon Ólafsson eftir leikinn möguleika gegn Póllandi og
gegn Ungverjum í Belgíu í Ungverjalandi.
Sækjum — Sendum
B-keppnin í Körfuknattleik í Belgíu:
ísland tapaði stórt
fyrir Ungverjalandi